Sport

Carmelo Anthony valinn bestur

Nýliðaleikur NBA-körfuboltans fór fram í Denver í nótt þar sem úrvalslið nýliða mætti úrvali leikmanna á öðru ári í deildinni. Heimamaðurinn Carmelo Anthony fór fyrir úrvali leikmanna á öðru ári og átti stóran þátt í sigri þess á nýliðunum, 133-106. Melo, eins og Anthony er oftast kallaður, skoraði 31 stig, þar af 17 í fyrri hálfleik, og var valinn besti maður leiksins. "Þetta fer á ferilskrána," sagði Melo og bætti því við að hann væri ekkert svekktur yfir að vera ekki valinn í Stjörnuliðið. "Þetta er bara annað árið mitt í deildinni og ég ætla mér að vera hér um ókomin ár. Ég fer ekki fet."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×