Sport

Clippers sigruðu í borgarslag

LA Lakers tapaði öðrum leik sínum í röð, nú fyrir LA Clippers, 89-105. Lebron James var óstöðvandi þegar Cleveland vann Memphis 114-111. James skoraði 27 stig, tók 15 fráköst og var með 9 stoðsendingar. Boston vann Indiana, Washington sigraði Philadelphia og Miami Heat vann Toronto á útivelli þar sem Shaquille O´Neal skoraði 33 stig og tók 18 fráköst. Detroit sigraði Denver, New Orelans tapaði heima fyrir Houston, Minnesota vann Atlanta og Utah hafði betur í baráttu við Seattle. Dallas sigraði Portland á útivelli og það sama gerði New Jersey gegn Golden State. Þá vann Phoenix sex stiga sigur á Milwaukee á útivelli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×