Skoðun

Ég er eigin­lega al­veg hætt að borða sykur

Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar

Samkvæmt könnun neyta Íslendingar miklu minni sykurs heldur en sölutölur benda til. Það er nefnilega þannig að einstaklingar eru tregir til að segja frá raunneyslu sinni eða gleyma að minnast á matvæli sem neytt er milli mála.

Skoðun

Að kjósa með sjálfum sér

Sveinn Ólafsson skrifar

Fjármálaráðherrann sagði sem svo að verðbólgan væri í DNA okkar Íslendinga, að minnsta kosti þeirra sem eru eldri en tvævetur, eins og ég og ráðherrann. Það er satt að við munum báðir þá tíma sem verðbólguhraðinn náði 100%, að krónan var á hálfvirði ári síðar.

Skoðun

Stjórnar­skipti og hús­næðis­öryggi fyrir alla

Sandra B. Franks skrifar

Núverandi ríkisstjórn hefur brugðist almenningi og þarf að víkja. Á undanförnum árum hefur það margsinnis komið í ljós að það er almenningur sem ber byrðarnar, á meðan auðmenn og fjármagnseigendur græða. Við höfum séð þetta í gegnum hrunið, heimsfaraldurinn, hækkandi stýrivexti og verðbólgu.

Skoðun

Skattaafsláttur af börnum

Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Í dag gengur síðasti þingvetur kjörtímabilsins í garð og Alþingi verður sett í 155. sinn. Ég notaði sumarið til undirbúnings að vanda og átti fjölmarga góða fundi. Niðurstaðan er sú að í dag mun ég leggja fram nokkur þingmál sem ég hef unnið að – nokkur ný, en önnur eru lögð fram að nýju.

Skoðun

Allt í rugli og engin á­byrg stjórnun

Guðbjörn Jónsson skrifar

Það er búið að umturna öllu skipulagi í rekstri sjálfstæðs samfélags hjá okkur. Og ég sé ekki betur en það sé búið að umturna sjálfu stjórnkerfi lýðveldisins, svo því verði ekki stjórnað til hagsbóta fyrir þjóðfélagið, án þess að fara í gegnum algjöra endurskipulagningu, bæði tekjuöflunarkerfi og hið sameiginlega útgjaldakerfi.

Skoðun

Að­gerðir fyrir heimilin strax!

Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Nóbelsverðlaunahafinn Daniel Kahneman hefur bent á að meginábyrgð samfélaga sé að draga úr þjáningu. Mikilvægasta verkefni stjórnvalda sé því að auka velferð. Með þetta að meginmarkmiði verður forgangsröðun stjórnvalda hverju sinni skýr.

Skoðun

Þetta lit­ríka líf

Matthildur Björnsdóttir skrifar

Ég var tíu ára þegar fjölskyldan hafði flutt í eigið húsnæði. Af einskonar skyldu við kirkjuna voru messur látnar vera á í útvarpinu á sunnudögum. En við fórum ekki í kirkju nema þegar ættingjar eða vinir voru jarðaðir.

Skoðun

Snúum leiknum í á­vinning fyrir alla

Friðrik Einarsson skrifar

Ein af aðalforsendum að geta opnað Grindavík á nýjan leik er að til staðar sé öflugt atvinnulíf. Án fyrirtækja er lítill grundvöllur fyrir opnun bæjarins. Stjórnvöld lögðu á það áherslu strax í upphafi náttúruhamfaranna í Grindavík að leita leiða til að styðja við atvinnulíf bæjarins. Hvernig hefur það gengið og hvar stöndum við í dag?

Skoðun

Þetta er al­veg orðið al­veg á­gætt

Þórarinn Eyfjörð skrifar

Við mótmælum 10. september. Árum saman hefur það verið reynsla almennings að það er sama hvernig hagkerfið veltist og snýst, alltaf skal almenningur borga brúsann og bera skarðan hlut frá borði.

Skoðun

Af­leit af­koma heimila

Stefán Ólafsson skrifar

Kaupmáttur heimilanna var að aukast til 2021, vegna Lífskjarasamningsins sem gerður var 2019. Seinni hluta ársins 2021 tók vaxandi verðbólga vegna aukins húsnæðiskostnaðar og Kóvid kreppunnar við, sem stöðvaði kaupmáttaraukninguna. Síðan bættust við enn meiri verðbólguhvetjandi áhrif af innrásinni í Úkraínu á árinu 2022.

Skoðun

Við mót­mælum…

Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Ragnar Þór Ingólfsson skrifa

Einstæð móðir á örorkubótum hefur með harðfylgi og útsjónarsemi náð að eignast og halda íbúð. Hún festi vexti fyrir nokkrum árum og hefur greitt 120.000 krónur á mánuði af lánunum. En svo „féll snjóhengjan“, vextirnir losnuðu og núna á hún að greiða 270.000 krónur í hverjum mánuði.

Skoðun

Milljarða­tugir Jóns Bald­vins

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Fyrir helgi birtist athyglisverð grein á Vísir.is eftir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, þar sem hann hélt því fram að árlegur efnahagslegur ávinningur Íslands af aðildinni að EES-samningnum hafi numið 52 milljörðum króna.

Skoðun

Að þróa og efla grósku­hugar­far

Ingrid Kuhlman skrifar

Carol S. Dweck, prófessor í sálfræði við Stanford háskóla, er frumkvöðull í rannsóknum á hugarfari. Í bók sinni Mindset: The New Psychology of Success gerir hún greinarmun á gróskuhugarfari annars vegar (e. growth mindset) og fastmótuðu hugarfari hins vegar (e. fixed mindset).

Skoðun

Réttum konunni gjallar­hornið

Yngvi Sighvatsson skrifar

Nýverið birti RÚV viðtal við Sigríði Andersen, fyrrum ráðherra, þó ekki bara fyrrum ráðherra, heldur einn af fáum slíkum sem hefur þurft að svara fyrir misgjörðir í starf og misst stöðu sína í kjölfarið.

Skoðun

Að sjúga í sig orku­lindir Ís­lendinga

Snæbjörn Guðmundsson skrifar

„Hörður segir líklegt að á næstu 15 til 20 árum verði nýtt meira eða minna allt vatnsafl og jarðvarmi sem nýtanlegur sé á landinu. [...] Síðasta stóra framkvæmdaskeiðið í virkjanagerð er að renna upp og því er sérstaklega mikilvægt að vel sé vandað til verka.“

Skoðun

Varist eftir­líkingar

Hildur Björnsdóttir skrifar

Í gærdag steig borgarstjóri fram á ritvöllinn með sína fyrstu yfirlýsingu um breytingar í borginni, rúmum tveimur árum eftir kjör hans í borgarstjórn. Breytingarnar sagði hann felast í stórbættum fjárhag Reykjavíkur í kjölfar aðhaldsaðgerða. Þetta kallar á nánari skoðun.

Skoðun

Ég svelt þá í nafni kven­réttinda

Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

„Ég svelt þá í nafni kvenréttinda” eru orð foreldris sem mætti á borgaraþing um málefni 0-6 ára í Reykjavík vegna gagnrýni á heimgreiðslur. Skoðunin er sennilega speglun á skoðun margra heimila í sömu stöðu sem eru búin með fæðingarorlofið og róa þungan róður vegna tekjutaps því að dagvistunarpláss eru af skornum skammti.

Skoðun

Að stytta bið­lista

Gunnar Hrafn Birgisson skrifar

Í félags- og heilbrigðiskerfum hérlendis ríkir biðlistahefð. Fólk með sálmein eða geðrænar áskoranir bíður oft vikum, mánuðum og árum saman eftir að fá hjálp. Þetta hefur oft verið gagnrýnt og kallað eftir úrlausnum, sérstaklega varðandi börn, sjá t.d. heimildir 1-4. Biðlistahefðin hindrar að hjálp sé veitt sem hægt væri að veita. Það veldur margvíslegu mældu og ómældu tjóni.

Skoðun

Bókin er minn ó­vinur

David Bergmann skrifar

Ég var tossi sem gat ekki lesið mér til gagns og ég var með hníf í vasanum, af hverju skyldi það vera?

Skoðun

Sann­leikurinn um Evrópu­sam­bandið III: Eflum álfuna okkar, Evrópu, og þar með ESB, barnanna okkar vegna!

Ole Anton Bieldtvedt skrifar

Undirritaður bjó í miðju Evrópusambandinu, Þýzkalandi, í 27 ár og fylgdist gjörla með þróun ríkjasambandsins allan þennan tíma, reyndar fyrir og eftir á líka, svo og með tilkomu Evrunnar og þróun þessa sameiginlega gjaldmiðils nú 26 þjóða. Allt gerðist þetta innan frá; ég upplifði atburðarásina á staðnum.

Skoðun

Í til­efni af al­þjóð­legum degi læsis: Brettum upp ermar!

Guðbjörg Rut Þórisdóttir skrifar

Í tilefni af alþjóðlegum degi læsis, þann 8. september, hefur Félag læsisfræðinga á Íslandi (FLÍS) sent upplýsingar til leik- og grunnskóla varðandi hvernig aðstoða má foreldra við að efla læsi barna sinna. Leikskólar fengu sendar upplýsingar, til að deila með foreldrum, um gildi þess að lesa fyrir börn frá unga aldri þar sem grunnur að góðum málþroska og læsi er lagður strax á fyrstu æviárum barnsins.

Skoðun

Af upplýsingaóreiðu um orku­mál

Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Sá sem á tilvitnaða textann hér að neðan, er ekki bara einhver „Jón á bolnum“ út í bæ. Heldur fer þarna mikinn, Bjarni Bjarnason fyrrverandi forstjóri OR, næststærsta orkufyrirtækis landsins og núverandi meðlimur svokallaðs fagráðs Landverndar.

Skoðun

Póstur í rugli?

Árni Guðmundsson skrifar

Það vakti nokkra undrun þegar Íslandspóstur kynnti sérstaklega samstarf sitt við fyrirtæki sem stundar ólöglega smásölu áfengis. Alveg einstaklega vanhugsaður og óviðeigandi gjörningur af hálfu fyrirtækis sem er í eigu almennings.

Skoðun