Innlent

Loka­tölur úr Fjalla­byggð: Meiri­hlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Innlent

Á­byrgð náði hreinum meiri­hluta

Á-listi Ábyrgðar náði fjórum mönnum kjörnum í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í dag. Listinn náði fjórum mönnum inn og þar með hreinum meirihluta.

Innlent

Hildur segir nýjan meiri­hluta þurfa breiða skír­skotun

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist líta til Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks hvað varði meirihluta, þá sitthvoran kostinn. Báðir séu einfaldasta leiðin að myndun meirihluta en Hildur segist vilja mynda meirihluta með breiða skírskotun sem geti endurreist traust til borgarstjórnar.

Innlent

Pétur hræddur um fram­tíð Borgarlínunnar

Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar segir að flokkurinn muni veita nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg gott aðhald. Hann óttast að nýr meirihluti setji stopp á Borgarlínu. Flokkurinn mælist með fimm menn í borginni í fyrstu tölum í borginni.

Innlent

„Hvað sagðiru, 42? Það er geð­veikt!“

Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ var himinlifandi þegar fréttamaður Sýnar bar honum tíðindi af fylgisaukningu flokksins í beinni útsendingu. Flokkurinn er með 42,5 prósent fylgi og meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur.

Innlent