Innlent

Um­ferðar­slys við Nýbýlaveg í Kópa­vogi

Freyja Þórisdóttir skrifar
Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang.
Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Vísir/Vilhelm

Tveir fólksbílar skullu saman við Nýbýlaveg í Kópavogi á fimmta tímanum í dag en sjúkrabílar voru sendir á vettvang til að athuga með einstaklinga sem voru í bílunum þegar slysið varð.

Þetta staðfestir Stefán Kristinsson varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir um aftanákeyrslu vera að ræða en tveir ökumenn eða farþegar hafa kennt sér meins. Því hafi tveir sjúkrabílar verið sendir á staðinn en ekki liggi fyrir hvort bílarnir séu mikið tjónkaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×