Erlent
45 46 47 48 49 50 51 52 53 … 334 ›
Að minnsta kosti 25 sagðir hafa látist í árás á tjaldbúðir Að minnsta kosti 25 léstust í árásum Ísraelshers á þorpið Abassan austur af Khan Younis í gær. Líkin voru talin af blaðamanni Associated Press en samkvæmt yfirvöldum voru sjö konur og börn meðal látnu. Erlent 10.7.2024 06:37
Biden heitir Úkraínu nýjum loftvarnarkerfum Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í ræðu sinni í tilefni af 75 ára afmælis Atlantshafsbandalagsins að Bandaríkin myndu í samstarfi við aðrar bandalagsþjóðir sjá Úkraínumönnum fyrir fimm loftvarnarkerfum. Erlent 9.7.2024 23:21
Atlantshafsbandalagið heldur upp á 75 ára afmæli Leiðtogar Atlantshafsbandalagsríkjanna koma saman á fundi í Washington. Fundurinn markar 75 ár frá stofnun bandalagsins, auk þess sem hann verður sá síðasti í tíð Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra. Erlent 9.7.2024 21:02
Eldflaugin greinilega úr rússnesku vopnabúri Alþjóðasamfélagið er slegið vegna mannskæðrar árásar Rússa á barnaspítala í Kænugarði, sem lýst hefur verið sem stríðsglæp. Rússar þræta fyrir ábyrgð en sérfræðingar segja sprengjuna úr rússnesku vopnabúri. Erlent 9.7.2024 19:10
Gefa út handtökuskipun á hendur ekkju Navalnís Dómstóll í Moskvu hefur gefið út handtökuskipun á hendur Yuliu Navalnaíu, ekkju Alexei Navalní pólitíska andstæðings Pútíns. Erlent 9.7.2024 17:16
„Fjölskyldustund“ Demókrata lokið án niðurstöðu Fundi þingmanna Demókrataflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings lauk nú fyrir stundu en til umræðu var staða Joe Biden sem forsetaefnis flokksins. Erlent 9.7.2024 15:50
Vill slá vopnin úr höndum popúlista með því að taka á áhyggjum fólks Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hvetur Keir Starmer, núverandi forsætisráðherra, til að taka útlendingamálin föstum tökum í því skyni að slá vopnin úr höndum popúlista á hægri væng stjórnmálanna. Erlent 9.7.2024 09:12
„Rússnesku hryðjuverkamennirnir verða að svara fyrir þetta“ Í það minnsta 41 er látinn eftir sprengjuárás Rússlands í Úkraínu í gær. Einn stærsti barnaspítali borgarinnar varð fyrir sprengjum. Um er að ræða eina banvænustu sprengjuárás síðustu mánaða en hún átti sér stað um miðjan dag. Erlent 9.7.2024 06:29
Byrjaði að öskra við fyrstu sprengingu Að minnsta kosti 36 almennir borgarar létust í árásum Rússa á fjölda borga í Úkraínu í dag. Árásirnar eru einar þær mannskæðustu frá upphafi stríðs. Fimm létust og fólks er enn leitað í rústum stærsta barnaspítala Úkraínu, sem Rússar sprengdu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman á neyðarfundi á morgun vegna árásarinnar. Erlent 8.7.2024 21:07
Parkinsons-sérfræðingur heimsótti Hvíta húsið átta sinnum Yfir átta mánaða tímabil frá júlí í fyrra og með febrúar í ár heimsótti sérfræðingur í lækningum við Parkinson-sjúkdómnum Hvíta húsið að minnsta kosti átta sinnum. Erlent 8.7.2024 20:13
Þjóðfylking Le Pen gengur til liðs við jaðarhægri fylkingu Orbán Þjóðfylking Marine Le Pen hefur gengið til liðs við flokk Viktors Orbán, forsætisráðherrans ungverska, og hafa þau myndað nýtt bandalag jaðarhægri flokka á Evrópuþinginu. Erlent 8.7.2024 19:05
Óvissa og spenna í Frakklandi næstu daga Óvenjuleg staða, þrungin óvissu, er uppi í frönskum stjórnmálum eftir seinni umferð þingkosninga í gær, þar sem undið var ofan af stórsigri Þjóðfylkingarinnar frá því í fyrri umferð en enginn flokkur náði meirihluta. Íslendingur búsettur í París segir næstu daga verða spennandi. Erlent 8.7.2024 12:55
Gerðu loftárás á barnaspítala í Kænugarði Minnst tuttugu almennir borgarar létust í loftárásum Rússa á fjölda borga í Úkraínu í dag. Meðal skotmarka Rússa var barnaspítali í Kænugarði. Erlent 8.7.2024 11:26
Kröfur Ísrael og Hamas virðast algjörlega ósamræmanlegar Litlar líkur virðast á vopnahléi á Gasa eftir að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sagði að mögulegt samkomulag þyrfti að fela í sér að Ísraelsmenn gætu haldið aðgerðum sínum áfram þar til markmiðum þeirra væri náð. Erlent 8.7.2024 08:19
Háttsettir þingmenn sagðir vilja að Biden stígi til hliðar Háttsettir þingmenn Demókrataflokksins funduðu í gær um stöðu mála í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar vestanhafs og eru nokkrir sagðir hafa lýst því yfir að Joe Biden Bandaríkjaforseti ætti að stíga til hliðar. Erlent 8.7.2024 07:40
Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Þúsundir göngugarpa hafa klifið Everest, hæsta fjall jarðar, frá því að toppnum var fyrst náð árið 1953. Einhverjir þeirra hafa hins vegar skilið eftir sig fleira en bara fótsporin. Nepölsk yfirvöld áætla að það taki mörg ár að fjarlægja rusl frá tjaldbúðum sem þau telja á bilinu 40-50 tonn. Erlent 7.7.2024 23:33
Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Forsætisráðherra Frakklands, Gabriel Attal, ætlar að segja upp starfi sínu á morgun eftir að ljóst varð að miðjubandalag Macrons Frakklands mun ekki halda meirihluta á þingi. Viðsnúningur varð á því sem skoðanakannanir gáfu til kynna og kosninganiðurstöðum. Erlent 7.7.2024 22:15
Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Bandalag vinstriflokka í Frakklandi tekur forystu í útgönguspá sem birt var klukkan sex eftir að kjörstaðir lokuðu. Seinni umferð þingkosninga fór fram í dag þar sem margir kjósendur virðast ætla að kjósa taktískt til þess að koma í veg fyrir að hægri flokkurinn Franska þjóðfylkingin komist til valda. Erlent 7.7.2024 18:25
Frakkar ganga til sögulegra kosninga Frakkar ganga að kjörborðinu að nýju í dag þegar önnur umferð þingkosninga fer fram þar í landi. Búið er að opna kjörstaði. Kosningin gæti orðið söguleg en Þjóðfylking Marine Le Pen leiðir samkvæmt skoðanakönnunum. Flokkurinn var sterkastur eftir fyrri umferð, sem fram fór síðustu helgi, með 33 prósent atkvæða. Erlent 7.7.2024 12:08
Sextán drepnir í loftárás á skóla Að minnsta kosti sextán manns létust í loftárás Ísraela á skóla á Gasa-svæðinu. Ísraelski herinn kveðst hafa hæft hryðjuverkamenn sem hafi komið sér fyrir innan veggja skólans. Erlent 6.7.2024 19:41
Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Stýrihópur Lyfjastofnunar Evrópu um lyfjaskort hefur gefið út tilmæli til að takast á við skort sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfja í flokki GLP-1 viðtakaörva. Meðal slíkra lyfja er lyfið Ozempic. Skorturinn leiði til ólöglegrar starfsemi. Erlent 6.7.2024 16:30
Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Nafni aðalflugvallar Mílanóborgar verður breytt og hann verður nefndur í höfuðið á Silvio Berlusconi, skrautlegum og umdeildum fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu. Matteo Salvini samgönguráðherra tilkynnti þetta í gær. Erlent 6.7.2024 13:35
Beryl lék Mexíkó grátt Fellibylurinn Beryl gekk yfir Júkatanskagan í Mexíkó í gær og í nótt eftir að hafa valdið umfangsmikilli eyðileggingu víðs vegar um Karabíahafið og að minnsta kosti tíu dauðsföllum. Erlent 6.7.2024 08:21
Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Umbótasinninn Massoud Pezeshkian hefur verið kjörinn nýr forseti Írans og bar þar með sigur úr býtum gegn íhaldssömum keppinaut sínum, Saeed Jalili, í annarri umferð forsetakosninga þar í landi. Erlent 6.7.2024 07:45
Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Joe Biden Bandaríkjaforseti sagðist ekki ætla að stíga til hliðar og lofaði að hann myndi sigra Donald Trump mótframbjóðanda sinn í komandi kosningum í ræðu sem hann hélt á kosningafundi í Wisconsin-ríki í dag. Erlent 5.7.2024 21:54
Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Breska stjórnmálakonan Rachel Reeves var í dag skipuð fjármálaráðherra Bretlands fyrst kvenna eftir stórsigur Verkamannaflokksins í núliðnum þingkosningum. Erlent 5.7.2024 20:14
Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Rishi Sunak fór í morgun ásamt eiginkonu sinni Akshata Murty á fund Karls Bretakonungs þar sem hann sagði af sér embætti forsætisráðherra en íhaldsflokkurinn beið afhroð í kosningunum sem fram fóru í gær. Erlent 5.7.2024 10:42
Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Forsætisráðherra Ísrael, Benjamin Netanyahu, hefur ákveðið að senda teymi samningamanna til að reyna að komast að samkomulagi við Hamas um vopnahlé og frelsun gíslanna sem enn eru í haldi Hamas. Daginn áður sendi Hamas Ísrael svar sitt við friðartillögu forseta Bandaríkjanna sem lögð var fram í maí. Erlent 5.7.2024 07:43
Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Verkamannaflokkurinn vann stórsigur í bresku þingkosningunum sem fram fóru í gær og Íhaldsflokkurinn, sem verið hefur við stjórnvölinn í fjórtán ár, beið afhroð. Erlent 5.7.2024 06:57
Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Búist er við stórsigri Verkamannaflokksins í þingkosningum í Bretlandi í dag. Rishi Sunak, forsætisráðherra og leiðtogi Íhaldsflokksins, og Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins greiddu báðir atkvæði í morgun með eiginkonur sínar sér við hlið. Erlent 4.7.2024 21:43