Fréttir
328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Víða hvassviðri á fyrsta degi ársins Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan tíu til átján metrum á sekúndu og rigningu eða slyddu með köflum á þessum fyrsta degi ársins. Veður 1.1.2024 08:40
Tólf leitað á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Tólf manns hafa leitað á bráðamóttöku Landspítala vegna flugeldaslysa síðasta sólarhringinn. Í flestum tilvikum voru áverkarnir þó minniháttar. Innlent 1.1.2024 08:17
Flóðbylgjuviðvörun gefin út í Japan eftir skjálfta 7,6 að stærð Yfirvöld í Japan hafa gefið út flóðbylgjuviðvörun eftir að skjálfti 7,6 að stærð reið yfir í Japanshafi, vestur af landinu. Erlent 1.1.2024 08:06
Selenskí boðar stóraukna vopnaframleiðslu á nýju ári Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur heitið því að eigin vopnaframleiðsla Úkraínumanna muni stóraukast á nýju ári. Erlent 1.1.2024 07:51
Eldur í bílskúr í Hafnarfirði Eldur kom upp í bílskúr við Kjóahraun í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti. Innlent 1.1.2024 07:08
Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Vísir sendir lesendum sínum nær og fjær – til sjávar og sveita – bestu óskir um farsælt nýtt ár. Megi árið 2024 færa okkur öllum frið og hamingju í hjarta. Innlent 31.12.2023 23:00
Margrét Þórhildur stígur til hliðar Margrét Þórhildur Danadrottning ætlar að stíga til hliðar hinn 14. janúar næst komandi. Hún tilkynnti þetta í áramótaávarpi sínu í dag. Erlent 31.12.2023 17:16
Grindvíkingurinn er maður ársins Maður ársins hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, er Grindvíkingurinn. Valið var ekki erfitt að þessu sinni. Hver og einn íbúi bæjarins á hlutdeild í útnefningunni. Innlent 31.12.2023 17:15
Flestir vilja Kristrúnu sem forsætisráðherra: „Þessi fylgisaukning hefur komið mér á óvart“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, er sá stjórnmálaleiðtogi sem flestir Íslendinga myndu vilja sjá sem forsætisráðherra samkvæmt nýrri könnun Maskínu. 27,6 prósent myndu vilja hana sem forsætisráðherra, en hún hefur bætt við sig um fimm prósentum frá síðasta ári. Innlent 31.12.2023 15:55
„Þú ert búin að vera svo orðljót síðustu mánuðina“ Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, tókust á um störf ríkisstjórnarinnar í Kryddsíldinni á Stöð 2 sem nú er í gangi. Þá deildu þau um hvort Inga hefði verið orðljót undanfarið. Innlent 31.12.2023 15:12
Svanhildur ekki einn af nánustu vinum Bjarna Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, svaraði fyrir skipun sína á Svanhildi Hólm Valsdóttur í sendiherrastöðu í Bandaríkjunum í Kryddsíldinni á Stöð 2. Hann sagði gagnrýni á skipunina ekki koma sér á óvart, en Svanhildur hefur starfað með Bjarna um margra ára skeið. Hann vill þó meina að hún sé ekki náinn vinur sinn, en þó vinur. Innlent 31.12.2023 14:42
Áramótum fagnað víða um land: Brenna á Eyrarbakka en engin í Kópavogi Áramótabrennur verða með hefðbundnum hætti ár en þó ekki í Kópavogi og Hafnarfirði, þar sem engar brennur verða. Íbúar segja margir hverjir þetta svekkjandi. Í kvöld verða áramótabrennur tendraðar á tíu stöðum í Reykjavík. Tvær í Garðabæ, ein á Seltjarnarnesi og ein í Mosfellsbæ. Í Kópavogi og Hafnarfirði verða hins vegar engar brennur. Innlent 31.12.2023 14:25
Tugir særðir í hefndaraðgerðum Rússa Rússar gerðu loftárásir á Úkraínu í nótt og nokkrir tugir eru særðir. Árásirnar eru hefndaraðgerðir Rússa eftir að tuttugu og fjórir féllu í umfangsmikilli árás Úkraínu á rússnesku borgina Belgorod í gær. Hún er að sögn rússneskra stjórnvalda sú versta á Rússland frá upphafi stríðsins. Erlent 31.12.2023 12:12
Danska flutningaskipið varð fyrir annarri árás Danska fragtskipið sem varð í gær fyrir loftárás í Rauðahafinu varð fyrir annarri árás í morgun. Miðlæg stjórnstöð Bandaríkjahers, Centcom, greinir frá þessu. Erlent 31.12.2023 11:46
Hádegisfréttir Stöðvar 2 Áramótabrennur verða með hefðbundnum hætti víða á höfuðborgarsvæðinu í ár. Þó ekki í Kópavogi og Hafnarfirði, þar sem engar brennur verða. Íbúar segja margir hverjir svekkjandi að geta ekki kvatt gamla árið með brennu. Við ræðum við íbúa Kópavogs og Hafnarfjarðar í hádegisfréttum á Stöð 2. Innlent 31.12.2023 11:36
Fannar bæjarstjóri maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík er maður ársins 2023 mati lesenda Vísis og hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Valið var kunngjört í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni rétt í þessu. Innlent 31.12.2023 11:31
Varar við flughálku víða á morgun Í fyrramálið hlánar á láglendi um land allt og hætt er við að flughált verði víða á vegum á morgun. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við fréttastofu. Veður 31.12.2023 11:27
Margir eiga í miklum erfiðleikum með að halda jól Tæpur þriðjungur landsmanna segir krefjandi fyrir sig fjárhagslega að halda jól og tæp tíu prósent eiga í miklum erfiðleikum með hátíðarhöldin. Sjötíu prósent segja jólahaldið þó engin áhrif hafa á skuldastöðu sína. Innlent 31.12.2023 10:11
Svona horfir þú á Kryddsíld Það verður nóg um að vera í dag á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þegar að Kryddsíld hefst klukkan 14:00 í beinni útsendingu á Stöð 2. Innlent 31.12.2023 09:08
Nýjar myndir af eldfjallatunglinu Íó NASA deildi í nótt nýjum myndum af Íó tungli Júpíters. Myndirnar voru teknar af svokallaðri JunoCam í geimfarinu Juo sem er um þessar mundir á sveimi um sólkerfið okkar. Erlent 31.12.2023 08:43
Danskt fragtskip hæft af eldflaug Danskt fragtskip í eigu olíu- og flutningarisans Mærsk var hæft af eldflaug í gærkvöldi á siglingu um Rauðahafið. Þessu greinir DR frá. Erlent 31.12.2023 08:19
Gul viðvörun og misjafnt árámótaveður eftir landshlutum Í dag verður norðaustanátt á landinu, víðast hvar fimm til þrettán metrar á sekúndu, en að átján metrar á sekúndu suðaustanlands. Skýjað með köflum en dálítil él norðaustan- og austantil. Frost eitt til ellefu stig. Veður 31.12.2023 08:10
Með innkaupakerru á miðri akbraut og sagðist taka styðstu leið Tilkynnt var um mann með innkaupakerru á miðri akbraut en þegar lögregla ræddi við hann kvaðst hann vera að taka stystu leið á áfangastað og að göngustígar væru ófærir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en maðurinn sagðist jafnframt ætla að koma sér af akbrautinni. Innlent 31.12.2023 07:54
Annálar ársins 2023: Það góða, vonda og ljóta Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar hefur á síðustu vikum rifjað upp árið sem er að líða. Innlent 31.12.2023 07:01
Jón Gunnarsson kallar eftir nýjum meirihluta Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur kallað eftir myndun nýs meirihluta vegna ummæla Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um orkumál í viðtali í Ríkisútvarpinu í gær. Innlent 31.12.2023 00:02
Segir hatursfulla umræðu ekki hafa haft neitt að gera með stjórnmálin Sanna Marin fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands segir margar ungar konur velta fyrir sér að fara í stjórnmál en hika við það vegna hatursfullar umræðu á samfélagsmiðlum. Erlent 30.12.2023 22:40
Fleiri látnir í loftárás á rússnesku borgina Belgorod Átján manns létu lífið í árás Úkraínumanna á rússnesku borginni Belgorod í dag. Þar af þrjú börn, samkvæmt rússneskum yfirvöldum. Einnig særðust 111 manns. Erlent 30.12.2023 21:44
Níu prósentum munar á Samfylkingu og Sjálfstæðisflokknum Fylgi Samfylkingarinnar eykst lítillega á milli mánaða og mælist nú rúmlega 26 prósent samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgi Sjálfstæðisflokks dalar lítillega á milli mánaða og mælist nú rúm 17 prósent. Innlent 30.12.2023 21:21
Skaftholtsréttum breytt í skautasvell Skaftholtsréttir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa fengið tímabundið nýtt hlutverk því búið er að útbúa skautasvell í réttunum. Mikil ánægja er á meðal heimamanna, ekki síst barnanna með nýja skautasvellið þó þar séu engar kindur. Innlent 30.12.2023 20:31
Óvinsældir Bjarna sláandi Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir óvinsældir Bjarna Benediktssonar samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Maskínu sláandi. Innlent 30.12.2023 19:55