Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. janúar 2026 06:50 Talið er að um átján þúsund mótmælendur hafi verið handteknir og að aftökur gætu hafist í vikunni. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur heitið því að grípa til afdráttarlausra aðgerða ef stjórnvöld í Íran hefja aftökur á handteknum mótmælendum. Trump hafði áður hótað ráðamönnum í Íran vegna ofbeldis gegn mótmælendum en áætlað er að yfir 2.500 manns hafi látist fram að þessu.
Auk þeirra sem hafa látist í mótmælunum hafa þúsundir til viðbótar verið handteknir og óttast er að einn þeirra, Erfan Soltani, verði hengdur á næstu dögum. Soltani, 26 ára, var handtekinn á fimmtudaginn í síðustu viku og hefur þegar verið dreginn fyrir dóm og fundinn sekur. Mannréttindasamtök í Noregi áætla að um 1.500 manns hafi verið teknir af lífi með hengingu í Íran í fyrra en talið er að um átján þúsund manns hafi verið handteknir í tengslum við mótmælin á síðustu dögum og vikum. Óvíst er hvað Trump hyggst gera ef aftökur hefjast en greinendur segja fáa kosti í stöðunni. Forsetinn hefur hins vegar verið ófeiminn við að hvetja mótmælendur til dáða, heitið þeim stuðningi Bandaríkjanna og sagt aðstoð á leiðinni. Ein leið sem nefnd hefur verið til sögunnar er að efla getu fólks til að skipuleggja sig og mótmæla en það mætti til að mynda gera með því að greiða aðgengi að internetinu. Greint hefur verið frá því að öryggisyfirvöld í Íran hafi unnið að því að leita að og eyðileggja fjarskiptabúnað, meðal annars þann sem gæti tengt íbúa við Starlink, gervihnattanet Elon Musk. Stjórnvöld í Íran segja möguleg afskipti Bandaríkjamanna ekki munu skila tilætluðum árangri, það er að segja að steypa stjórninni af stóli. Þá hafa ráðamenn í Rússlandi sakað Bandaríkjamenn um að freista þess að nota mótmælin til að tortíma Íran.
Íran Bandaríkin Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Aukafundur borgarfulltrúa: Rætt um frekari hagræðingu Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Sjá meira