Fréttir
326 327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Aldrei mælst minni í Þjóðarpúlsi Gallup Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með átján prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups og hefur flokkurinn aldrei mælst með minna fylgi í rúmlega þriggja áratuga sögu Þjóðarpúlsins. Samfylkingin mælist enn stærst með 28 prósenta fylgi og Miðflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkurinn. Innlent 3.1.2024 07:39
Garðabær braut lög með því að falla frá ráðningu Önnu Garðabær braut gegn lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði með því að falla frá ráðningu Önnu Kristínar Jensdóttur, menntaðs náms- og starfsráðgjafa, í starf á leikskólanum Ökrum. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála. Innlent 3.1.2024 07:30
Styttir víða upp og rofar til Nú í morgunsárið eru austan fimm til þrettán metrar sekúndu á landinu og einhver rigning eða slydda í mörgum landshlutum. Veður 3.1.2024 07:21
H5N1 sögð hafa valdið dauða ísbjarnar í Alaska Ísbjörn sem fannst dauður nærri Utqiagvik í norðurhluta Alaska reyndist smitaður af H5N1, sem hefur valdið dauða milljóna fugla og þúsunda spendýra frá árinu 2021. Erlent 3.1.2024 07:06
Drápið á Arouri vekur hörð viðbrögð Hezbollah-samtökin hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau segja dráp Ísraelsmanna á Saleh al-Arouri, einum æðsta leiðtoga Hamas-samtakanna, „alvarlega árás á Líbanon“. Erlent 3.1.2024 06:48
Handtöskunni stolið á meðan setið var að snæðingi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust nokkrar tilkynningar um þjófnaði á vaktinni í gærkvöldi og nótt og þá var nokkuð um að einstaklingar í annarlegu ástandi væru til vandræða. Innlent 3.1.2024 06:13
„Náttúran er svolítið í að koma manni á óvart“ Jarðeðlisfræðingur segir ljóst að líkurnar á eldgosi á Reykjanesskaga aukist með tímanum. Líklegast sé að eldgos yrði svipað gosinu sem hófst um miðjan desember. Innlent 2.1.2024 23:20
Brutu ekki lög með því að ráða ekki fatlaðan mann í prófarkalestur Ríkisútvarpið gerðist ekki brotlegt við lög um um jafna meðferð á vinnumarkaði með því að ráða ekki fatlaðan mann í hlutastarf við prófarkalestur. Ekki þótti sýnt fram á að ákvörðun RÚV byggðist á fötlun mannsins. Innlent 2.1.2024 22:51
Spáð í forsetaspilin Fréttastofa fór á stúfana í dag og ræddi við fólk á förnum vegi um þau tíðindi að Guðni Th. Jóhannesson forseti hefði ákveðið að láta gott heita eftir tvö kjörtímabil í embætti. Fólk var spurt hvaða manneskju það vildi sjá í embætti forseta Íslands næst. Innlent 2.1.2024 22:16
Landlæknir, ráðherrar og rithöfundar orðaðir við Bessastaði Forystufólk í heilbrigðiskerfinu, ráðherrar og rithöfundar eru orðaðir við forsetaframboð í sumar. Almannatengill býst við fjörugum kappræðum og mörgum frambjóðendum. Hann telur að sagan muni fara mjúkum höndum um núverandi forseta og ákvörðun hans um að láta gott heita. Innlent 2.1.2024 21:30
Skemmdarverk og fúkyrði á Austurvelli: „Farið heim til ykkar, Hamas-rottur“ Palestínskur maður sem haldið hefur til í tjaldi á Austurvelli segist hafa fengið tvær miður skemmtilegar heimsóknir í nótt og morgun. Myndbönd sýna tvo karlmenn, á sitthvorum tímanum, með ógnandi tilburði og fúkyrðaflaum í garð fólks á svæðinu. Innlent 2.1.2024 21:09
Boðar til blaðamannafundar vegna „stórra ákvarðana“ Arnar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur boðað til blaðamannafundar á morgun. Tilefnið er „stórar ákvarðanir“ sem hann kveðst hafa tekið um mikilvæg mál. Innlent 2.1.2024 20:20
Kapphlaup við tímann og náttúruna Undirbúningur fyrir varnargarða fyrir utan Grindavík er hafinn. Unnið verður allan sólarhringinn á svæðinu næstu vikur en verkstjóri segir starfsmenn vera í kapphlaupi við náttúruna og tímann. Innlent 2.1.2024 19:18
Aflýsa hættustigi og aflétta rýmingu á Seyðisfirði Hættustigi vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur verið aflýst. Innlent 2.1.2024 18:54
Rannsaka umskurð í heimahúsi á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra er með til rannsóknar hvort drengur á öðru aldursári hafi verið umskorinn í heimahúsi á Akureyri haustið 2022. Innlent 2.1.2024 18:34
Næstráðandi Hamas-samtakanna féll í drónaárás í Beirút Saleh al-Arouri, næstráðandi Hamas-samtakanna, er í hópi látinna eftir drónaárás í líbönsku höfuðborginni Beirút síðdegis í dag. Erlent 2.1.2024 18:03
Hálkuslysin áberandi á bráðamóttökunni Talsvert álag hefur verði á bráðamóttökunni í dag vegna hálkuslysa. Yfirlæknir segir álag á heilbrigðiskerfinu öllu, en reynt sé eftir fremsta megni að veita öllum þjónustu eins og best verður á kosið. Innlent 2.1.2024 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Unnið verður allan sólarhringinn við varnargarða við Grindavík en undirbúningur framkvæmdarinnar hófst í dag. Líkur á gosi gætu verið að aukast þar sem dregið hefur úr landrisi við Svartsengi en það gæti verið vísbending um að kvikuþrýstingur sé að byggjast upp. Innlent 2.1.2024 18:00
Mildi að ekki fór verr þegar farmur féll á Hringbraut „Það er mikil mildi að ekki fór verr,“ segir Guðmundur Berg, hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um farm úr járni sem féll af vörflutningabíl á Hringbraut í Reykjavík um tvöleytið í dag. Innlent 2.1.2024 16:30
„Ég hef enga eftirsjá“ „Hér sit ég sjö mánuði enn, eftir það geri ég fastlega ráð fyrir því að sinna fræða og rannsóknarstörfum, hverfa á ný í þann heim sem ég kom úr. En annars veit ég ekkert hvað framtíðin beri í skauti sér þar fyrir utan. Við látum það ráðast,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti lýðveldisins, sem tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta tvö kjörtímabil nægja og ætlar ekki að gefa kost á sér aftur. Innlent 2.1.2024 16:04
Mögulegt gos líklega eins og það síðasta Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur líklegt að mögulegt eldgos á Reykjanesskaga verði líkt síðasta gosi, sem varð í nýliðnum desember. Innlent 2.1.2024 13:41
Jón segir ríkisstjórnina komna á endastöð Helsti stjórnarandstæðingurinn á þingi núna kemur úr röðum stjórnarþingmanna. Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, er fulltrúi hundóánægðra þingmanna sem telja fráleitt að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tali um að nú þurfi að gera orkustefnu til framtíðar. Innlent 2.1.2024 13:17
Fimm um borð í vél strandgæslunnar fórust Fimm sem voru um borð í vél japönsku strandgæslunnar fórust þegar vélin og flugvél Japan Airlines, sem kom til lendingar, rákust saman á Haneda-flugvelli í japönsku höfuðborginni Tókýó í dag. Erlent 2.1.2024 12:49
Enn snjóflóðahætta og rýmingar enn í gildi Enn er snjóflóðahætta undir Strandartindi á Seyðisfirði líkt og greint var frá í gær þegar tvö íbúðarhús voru rýmd. Innlent 2.1.2024 12:16
Vísar ásökun um vanhæfi á bug Orkumálastjóri segir gríðarlega mikilvægt að þingið nái að afgreiða frumvarp um orkuöryggi sem allra fyrst. Hún bendir framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins sem hefur sakað hana um vanhæfi á að beina áhyggjum sínum að stjórnmálamönnum. Innlent 2.1.2024 12:03
Kvikuþrýstingur að byggjast upp og líkur á eldgosi aukast Vísbending um að kvikuþrýstingur sé að byggjast upp og þar með aukast líkur á nýju kvikuhlaupi og einnig eldgosi. Innlent 2.1.2024 11:58
Jakkafötum og verkfærum stolið úr geymslum Geymsla 1 er með aðstöðu á Gjáhellu á Völlunum í Hafnarfirði þar sem boðin eru upp á bil til leigu þar sem fólk getur geymt ýmislegt úr búslóð sinni. Í desembermánuði á síðasta ári lágu menn á því lúalaginu að brjótast þar inn og hafa eitt og annað með sér. Innlent 2.1.2024 11:48
„Þetta er gert í sátt við Sorpu“ Fataverslanir Rauða krossins verða reknar áfram með sama sniði, þrátt fyrir að Sorpa taki senn við móttöku textíls á grenndarstöðvum sínum. Fataverslanirnar eru ein mikilvægasta fjáröflun samtakanna en flokkunarstjóri segir Rauða krossinn munu fara í eigin söfnun sem verður aðskilin frá grenndar- og endurvinnslustöðvum. Innlent 2.1.2024 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Fráfarandi forseti, fatasöfnun, orkumál og áramót í Grindavík verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Innlent 2.1.2024 11:41
Sennilega spurning um tíma frekar en hvort Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir stöðuna við Svartsengi vera óbreytta þar sem land hefur haldið áfram að rísa sem sé merki um að verið sé að safna í nýtt kvikuhlaup eða að nýtt gos sé yfirvofandi. „Það er því sennilega spurning um tíma frekar en hvort.“ Innlent 2.1.2024 11:20