Á batavegi eftir alvarlega líkamsárás á Höfða Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 14. janúar 2026 22:15 Árásin mun hafa átt sér stað í Höfðahverfi í austurhluta Reykjavíkur. Vísir/Arnar Maður á fertugsaldri, sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í Reykjavík í lok síðustu viku, er á batavegi. Tveir menn sitja í gæsluvarhaldi vegna málsins sem er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Það var eftir miðnætti að nóttu til síðastliðinn föstudag sem lögreglu var tilkynnt um karlmann með alvarlega áverka utandyra í austurhluta borgarinnar, nánar til tekið uppi á Höfða. Lögregla staðfestir í samtali við Vísi að hinn særði sé karlmaður á fertugsaldri og að hann sé á batavegi. Rannsókn málsins sé enn í fullum gangi, en meðal annars er unnið að því að vinna úr þeim gögnum sem fyrir liggja en tæknideild lögreglunnar hefur meðal annars haft aðkomu að rannsókninni. Meðal þess sem er til rannsóknar er hvort og þá hvaða tengsl kunni að vera á milli meintra gerenda og fórnarlambsins, og eftir atvikum hvort fleiri kunni að hafa átt aðild að málinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort gæsluvarðhaldsúrskurður yfir yngri manninum, sem er á þrítugsaldri, verði kærður. Sá var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna, en hinn maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, í eina viku á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is Lögregla sendi frá sér tilkynningu um málið síðdegis í dag þar sem fram kemur að mennirnir tveir sem eru í gæsluvarðhaldi hafi verið handteknir samdægurs. „Tveir karlar, annar á þrítugsaldri og hinn á fimmtugsaldri, eru í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Reykjavík í síðustu viku. Tilkynnt var um málið síðastliðin föstudag þegar karlmaður fannst með alvarlega áverka utandyra í austurborginni. Tveir menn voru handteknir í tengslum við málið sama dag og þeir síðan á laugardag úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna til 14. janúar. Gæsluvarðhaldið yfir báðum mönnunum var svo framlengt að kröfu lögreglu í héraðsdómi í dag. Yngri maðurinn var þá úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna, en sá eldri í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna,“ sagði um málið í tilkynningu frá lögreglunni sem barst á sjötta tímanum í dag. Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Sjá meira
Það var eftir miðnætti að nóttu til síðastliðinn föstudag sem lögreglu var tilkynnt um karlmann með alvarlega áverka utandyra í austurhluta borgarinnar, nánar til tekið uppi á Höfða. Lögregla staðfestir í samtali við Vísi að hinn særði sé karlmaður á fertugsaldri og að hann sé á batavegi. Rannsókn málsins sé enn í fullum gangi, en meðal annars er unnið að því að vinna úr þeim gögnum sem fyrir liggja en tæknideild lögreglunnar hefur meðal annars haft aðkomu að rannsókninni. Meðal þess sem er til rannsóknar er hvort og þá hvaða tengsl kunni að vera á milli meintra gerenda og fórnarlambsins, og eftir atvikum hvort fleiri kunni að hafa átt aðild að málinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort gæsluvarðhaldsúrskurður yfir yngri manninum, sem er á þrítugsaldri, verði kærður. Sá var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna, en hinn maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, í eina viku á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is Lögregla sendi frá sér tilkynningu um málið síðdegis í dag þar sem fram kemur að mennirnir tveir sem eru í gæsluvarðhaldi hafi verið handteknir samdægurs. „Tveir karlar, annar á þrítugsaldri og hinn á fimmtugsaldri, eru í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Reykjavík í síðustu viku. Tilkynnt var um málið síðastliðin föstudag þegar karlmaður fannst með alvarlega áverka utandyra í austurborginni. Tveir menn voru handteknir í tengslum við málið sama dag og þeir síðan á laugardag úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna til 14. janúar. Gæsluvarðhaldið yfir báðum mönnunum var svo framlengt að kröfu lögreglu í héraðsdómi í dag. Yngri maðurinn var þá úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna, en sá eldri í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna,“ sagði um málið í tilkynningu frá lögreglunni sem barst á sjötta tímanum í dag.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Sjá meira