Fréttir
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 334 ›
Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Prófessor emeritus við sýkla- og veirufræðideild Landspítalans segir það geta verið lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur með réttum hætti við matseld. Mikilvægt sé að elda rækjurnar nægilega og nálgast eigi verkefnið líkt og þegar um kjúkling er að ræða. Innlent 18.9.2026 08:54
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ „Það er augljóst að ef farið verður í þessar breytingar þá munu breytingarnar ganga út á það að Ríkisútvarpið, sem er eini fjölmiðillinn sem er vel haldinn af fjármunum, verði jafnsett en skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á.“ Innlent 18.9.2026 08:30
Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Norðmenn vilja nútímavæða og efla eftirlit með EES-samningnum og segir Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs að breytingarnar verði þær stærstu síðan samningurinn var innleiddur árið 1994. Ástæðan er breyttur heimur. Ráðherrann kynnti áherslubreytingarnar í dag á blaðamannafundi ásamt Cecilie Myrseth atvinnuvegaráðherra Noregs. Erlent 18.9.2026 08:25
Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Útlit er fyrir að úrkomubakki komi inn á sunnanvert landið í dag en nái þó ekki langt inn. Á meðan er þokuloft með norður- og austurströndinni. Í dag verður fremur hægur vindur víðast hvar. Innlent 18.9.2026 07:32
Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Charles Spencer, jarl og bróðir Díönu prinsessu, segir að Karl Bretakonungur hafi hljómað „himinlifandi“ þegar hann hringdi í Spencer eftir að systir hans dó í bílslysi. Jarlinn segir að þáverandi prinsinn hafi látið eins og hann hefði unnið í lottói. Erlent 18.9.2026 06:57
Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Saksóknari í Súlunesmálinu svokallaða krefst þess að refsing Margrétar Höllu Hansdóttur Löf verði þyngd í sautján ára fangelsi. Málsmeðferð fyrir Landsrétti lauk í liðinni viku og er dóms beðið í málinu. Innlent 18.9.2026 06:48
Fundað í flugvirkjadeilu Samninganefndir í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa verið boðaðar til fundar í Karphúsinu á hádegi í dag. Þetta staðfestir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari við fréttastofu. Hann segist hafa verið í stöðugu sambandi og átt í samráði við báðar samninganefndir undanfarna daga. Innlent 18.9.2026 06:26
Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um mann sem réðst á annan og ógnaði honum með hníf. Að því loknu ók hann á brott. Lögregluþjónar fundu hann í umferðinni og hófst þá eftirför, sem endaði með því að taka þurfti manninn úr umferð með því að aka á bíl hans, samkvæmt lögreglunni. Innlent 18.9.2026 06:17
Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Ný fjárframlög vöktu upp blendnar tilfinningar hjá Runólfi Pálssyni, forstjóri Landspítalans. Óumdeilt sé að fjárframlög spítalans hafi ekki haldið í við þjónustuaukningu. Innlent 17.9.2026 23:50
Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Eigandi eins þekktasta veitingastaðar Suður-Kóreu þarf ekki að dvelja í fangelsi eftir að eftirréttur með maurum var borinn fram á veitingastaðnum. Saksóknararnir kröfðust fangelsisdómsins. Erlent 17.9.2026 22:59
Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Grunnskólakennari telur að íslenskt samfélag hafi misst sjónar á því hvað skólinn standi fyrir. Námið sé aftast í forgangsröðun heimilisins og kallar hún eftir því að foreldrar sýni jafn mikla ástríðu fyrir náminu og á hliðarlínunni á Símamótinu. Innlent 17.9.2026 22:23
Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ Paul Watson, leiðtogi Paul Watson-samtakanna sem berjast gegn hvalveiðum á Íslandi, segir að Aðgerð 86 sé ekki lokið. Málið muni halda áfram fyrir dómstólum Íslands. Innlent 17.9.2026 22:12
„Við höldum í fjallarómantíkina“ Skagfjörðsskáli í Langadal í Þórsmörk hefur verið jafnaður við jörðu. Eftir 72 ára sögu hefur Ferðafélag Íslands ákveðið að blása í herlúðra og reisa nýjan þar sem ferðalangar í náttúruparadísinni geta sungið saman undir gítarspili og hallað höfði yfir nóttina. Innlent 17.9.2026 20:30
Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar ganga að kjörborðinu um helgina og eiga þeir þar að velja á milli tíu flokka, sem allir virðast sammála stærsta flokki landsins og Vladimír Pútín. Eini flokkurinn sem stóð gegn stríðinu í Úkraínu hefur verið bannaður. Erlent 17.9.2026 20:30
„Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Formaður Flokks fólksins hafnar því alfarið að hún hafi reynt að „bola“ sér inn á sjúkrastofu þar sem þáverandi mennta- og barnamálaráðherra lá eftir hjartaaðgerð í desember. Upplifun hans sé gjörólík upplifun hennar og annarra í Flokki fólksins. Innlent 17.9.2026 19:07
Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Nær fjórir af hverjum tíu landsmönnum telja sig hafa verið bitna af lúsmýi á Íslandi í sumar. Hlutfallið hefur hækkað töluvert frá upphafi mælinga. Innlent 17.9.2026 18:42
Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Landsréttur hefur þyngt dóm yfir David Gabríel S. Glascorssyni fyrir tilraun til manndráps úr þremur árum í fimm ár. Hann veittist að öðrum með hníf og veitti umfangsmikla og lífshættulega áverka. Innlent 17.9.2026 18:16
Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Arnaldur Grétarsson, samfélagsmiðla- og markaðssérfræðingur, býður sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands. Hann hefur gegnt störfum fyrir sambandið síðan 2021. Innlent 17.9.2026 16:57
Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra segir að formaður Flokks fólksins hafi verið ágeng á meðan hann jafnaði sig á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans til að segja honum að hann þyrfti að hætta sem ráðherra. Það gerði hann skömmu síðar og sagði sig í kjölfarið úr flokknum. Innlent 17.9.2026 16:45
Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Donalds Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir gögn frá pólsku leyniþjónustunnar sýna að Rússar hafi áætlað fjölþáttaárásir gegn löndum sem styðja við Úkraínu, þar á meðal Póllandi. Rússland hyggist láta fyrirhugaða árás líta út fyrir að vera óhapp. Erlent 17.9.2026 16:40
Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Afgreiðslu tillögu um að afturkalla lóðarúthlutun til tveggja trúfélaga var frestað á fundi borgarráðs í morgun. Borgarráði barst póstur frá Félagi múslíma á Íslandi á meðan á fundinum stóð. Félagið kom af fjöllum um að mál þeirra væri til afgreiðslu á fundinum. Innlent 17.9.2026 15:38
Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Davíð Bjarni Chiarolanzio hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn og beita grófu ofbeldi í Vatnagörðum í Reykjavík árið 2023. Innlent 17.9.2026 15:11
Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Landsréttur hefur sýknað Brim hf. og TM tryggingar hf. af bótakröfu foreldra ungs skipverja sem drukknaði á sjó í maí 2020. Innlent 17.9.2026 15:02
Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Samgönguráðherra segir að Sundabraut verði eitt af fyrstu verkefnum nýs innviðafélags sem ber heitið Göng og brú. Hún muni gjörbylta samgöngum og draga úr akstri á höfuðborgarsvæðinu um hundrað og fimmtíu þúsund kílómetra á dag. Innlent 17.9.2026 14:44
Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna, segist vilja fara með Svíþjóð í nýja átt sem kjósendur völdu í kosningum um helgina. Hún leggur áherslu á loftslags-, mennta-, heilbrigðis- og öldrunarmál. Erlent 17.9.2026 14:24
Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Sex stöðugildi hafa verið lögð niður og var starfsfólki hjá dómsmálaráðuneytinu sagt upp í dag. Freyr Gígja Gunnarsson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Innlent 17.9.2026 14:04
Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið „Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, sem lagt var fram í liðinni viku. Framganga ríkisstjórnarinnar, ekki síst í ljósi krefjandi aðstæðna sem forsendubrestur kjarasamninga hefur skapað, er með öllu óskiljanleg og kallar á viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar.“ Innlent 17.9.2026 13:26
Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna telur grundvöll til að telja að Bandaríkjamenn hafi framið stríðsglæpi í tveimur árásum þeirra á Íran á þessu ári. Það telur írönsk stjórnvöld einnig hafa framið glæp gegn mannkyninu þegar þau börðu niður mótmæli. Erlent 17.9.2026 13:24
Ríkið lagði eldri borgarana Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá máli þriggja Íslendinga gegn íslenska ríkinu. Málið hefur í fjölmiðlum hér á landi yfirleitt verið kennt við Gráa herinn og varðaði breytingar á íslenska lífeyriskerfinu sem gerðar voru 2016 og 2017. Innlent 17.9.2026 12:53
Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann Forseti ASÍ segir fullreynt að semja við Wolt um að gera kjarasamninga við sendla. Sendlarnir lögðu niður störf í gær og segja laun sín hafa lækkað um fjörutíu prósent. Forseti ASÍ segir þá áður hafa fengið 1500 krónur á klukkutímann, starfsemin standist hvorki lög né reglur í launamálum. Dæmi eru um að sendlar hjá Wolt á Íslandi hafi lánað hvor öðrum kennitölur og hafi ekki atvinnurréttindi, samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 17.9.2026 12:01