Fréttir
161 162 163 164 165 166 167 168 169 … 334 ›
Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Sundrung innan ríkisstjórnar Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, virðist nú vera að brjótast upp á yfirborðið en varnarmálaráðherrann Yoav Gallant hefur kallað eftir svörum um framtíð Gasa. Erlent 16.5.2024 07:52
Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Geert Wilders, leiðtogi hollenska popúlistaflokksins Frelsisflokksins, segir að fjórir hægriflokkar hafi loks náð saman um myndun nýrrar samsteypustjórnar. Wilders mun ekki gegna embætti forsætisráðherra í þeirri stjórn. Erlent 16.5.2024 07:46
Víða gola og dálítil væta Grunn og hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag þar sem verður suðlæg eða breytileg átt. Víða má reikna með golu eða kalda og dálítilli vætu, en yfirleitt þurrt um landið austanvert. Veður 16.5.2024 07:18
Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Dregið hefur úr skjálftahrinunni við Sýlingarfell sem hófst í gærkvöldi. Innlent 16.5.2024 07:18
Samið um kappræður í júní og september Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi forseti, hafa samþykkt að mætast í tveimur kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Erlent 16.5.2024 07:09
Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Mikil mildi var að rúmlega fertug kona slasaðist ekki lífshættulega þegar ekið var á kyrrstæðan bíl hennar á Suðurlandsvegi síðdegis á mánudag. Konan var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem fyrir hendingu var í loftinu á æfingu þegar útkallið barst. Innlent 16.5.2024 07:00
Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Starfsmenn fasteignafélagsins Þórkötlu hafa yfirfarið og samþykkt kaup á 660 húseignum í Grindavík og undirritað 471 kaupsamning. Félaginu hefur borist samtals 781 umsókn um kaup á íbúðarhúsnæði í bænum. Innlent 16.5.2024 06:44
Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Manni var bjargað á þriðja tímanum í nótt þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga. Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna málsins en það var skipstjóri annars strandveiðibáts sem bjargaði manninum úr sjónum. Innlent 16.5.2024 06:23
Fico ekki talinn í lífshættu Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, er ekki lengur talinn í lífshættu. Hann var skotinn fimm sinnum af ljóðskáldi á áttræðisaldri í dag. Erlent 15.5.2024 23:28
Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Nú þegar fyrstu úthlutun leikskólaplássa er lokið í Reykjavík lítur út fyrir að um 800 börn verði á biðlista þann 1. september. Af þeim eru 548 þeirra 12 til 17 mánaða og 255 18 mánaða og eldri. Inn í þessum tölum eru 40 börn sem bíða en eru með pláss á sjálfstætt starfandi leikskóla. Innlent 15.5.2024 23:07
Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Vatnalíffræðingur segir ekkert óvenjulegt við mýflugna„faraldur“ sem herjað hefur á íbúa Vatnsendahverfis í Kópavogi undanfarna daga. Þróunin sé þvert á móti jákvæð, enda sýni hún fram á heilbrigt vistkerfi. Innlent 15.5.2024 21:30
Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Veðurstofa Íslands hefur mælt sjö smáskjálfta við austanvert Sýlingarfell, þar sem kvikuhlaup hafa orðið, í kvöld. Náttúruvársérfræðingur segir vel fylgst með stöðunni en viðbragð hafi ekki verið aukið, enn sem komið er. Innlent 15.5.2024 20:28
„Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði „Íslenska með hreim er tákn um hugrekki“, segir meðal annars í nýju appi, „Bara tala“, sem kennir íslensku á einfaldan og skemmtilegan hátt. Tvö hundruð manna fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hefur nýtt sér úrræðið með mjög góðum árangri. Innlent 15.5.2024 20:16
Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Píratar gera verulegar athugasemdir við frumvörp dómsmálaráðherra um útlendinga og lögreglu sem stjórnarflokkarnir leggja áherslu á að verði afgreidd á yfirstandandi vorþingi. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segist ekki deila áhyggjum Pírata. Bæði frumvörp færi reglur hér nær því sem þekkist á Norðurlöndunum. Innlent 15.5.2024 19:47
Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Um 77 prósent þjóðarinnar eru hlynnt því að dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi, um fimmtán prósent eru hvorki hlynnt né andvíg og aðeins um sjö prósent eru andvíg. Innlent 15.5.2024 18:40
Umferðarslys vegna símanotkunar, banatilræði að forsætisráðherra og mýflugnafaraldur Rekja má fjórðung umferðarslysa til símanotkunar undir stýri. Allt að 200 slasast hérlendis vegna þessa á hverju ári. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 15.5.2024 18:01
Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Sænska flugvélafyrirtækið Heart Aerospace tilkynnti í dag að það hefði ákveðið að flytja hluta af þróunarstarfi vegna þrjátíu sæta tvinn-rafmagnsflugvélar frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Jafnframt hefur félagið hætt við verksmiðjubyggingu í Halmstad en í staðinn ákveðið að reisa rannsóknar- og þróunarmiðstöð í Los Angeles í Kaliforníu. Erlent 15.5.2024 17:44
Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn „Jú, eins og ég sagði fyrir atvinnuveganefnd þingsins í gær og maður þarf að segja þetta: Þetta er svívirðilegustu náttúruspjöll sem farið hefur verið með í gegnum sali Alþingis,“ segir Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur. Innlent 15.5.2024 17:09
Þetta er vitað um árásarmanninn Maðurinn sem er grunaður um að hafa skotið Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, er sagður vera 71 árs gamall. Hann var handtekinn á vettvangi. Erlent 15.5.2024 16:58
Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg Cement, furðar sig mjög á yfirlýsingu Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra First Water hf um að starfsemi á landeldi og mölunarverksmiðjunnar geti ekki farið saman. Innlent 15.5.2024 15:52
Biden skorar á Trump Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur skorað á mótherja sinn í tilvonandi forsetakosningum, hann Donald Trump, að mæta honum í kappræðum. Erlent 15.5.2024 15:20
Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Hæstiréttur hefur viðurkennt að starfsmaður átti að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar. Innlent 15.5.2024 15:17
Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, hefur óskað eftir því að fulltrúar Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála og ríkislögreglustjóra komi á fund allsherjar- og menntamálanefndar til að ræða um brottvísun þriggja nígerískra kvenna í fyrradag. Konurnar hafa allar lýst því að vera þolendur mansals. Innlent 15.5.2024 15:00
Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Frá og með morgundeginum verða bókleg almenn ökupróf rafræn um allt land. Allir ökunemar munu því framvegis taka próf til B-réttinda í tölvu hjá prófamiðstöð Frumherja. Innlent 15.5.2024 14:57
Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Formaður Félags íslenskra heimilislækna fagnar því að heilbrigðisráðherra sýni í verki vilja til að koma til móts við lækna en vill fleiri og stærri skref. Á dögunum voru drög að reglugerðarbreytum um einföldun á fyrirkomulagi tilvísana fyrir börn birtar í samráðsgátt stjórnvalda. Innlent 15.5.2024 14:12
Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, lýsir áhyggjum af því að nýsamþykkt lög um félagasamtök og fjölmiðla í Georgíu hafi neikvæð áhrif á stöðu landsins í hinum frjálsa heimi. Hún er stödd í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna. Innlent 15.5.2024 13:51
Maðurinn fannst heill á húfi Maður á fimmtugsaldri sem lögregla á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gærkvöldi er fundinn heill á húfi. Innlent 15.5.2024 13:24
Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, hefur verið fluttur á sjúkrahús eftir skotárás fyrr í dag. Hann er sagður vera með lífshættulega áverka. Erlent 15.5.2024 13:13
Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Starfsmönnum kosningamiðstöðvar Baldurs Þórhallssonar brá heldur betur í brún þegar þeir komu að miklu magni af hundaskít, í og utan poka, við inngang kosningamiðstöðvarinnar snemma í gærmorgun. Grunur er um að honum hafi viljandi verið komið þarna fyrir af óprúttnum aðila sem skilaboðum. Innlent 15.5.2024 13:03
Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Fulltrúi meirihlutans í skóla- og frístundaráði borgarinnar segist vel skilja uppnám foreldra og skólasamfélags vegna stefnubreytingar í grunnskólamálum í Laugardal. Forsendur hafi þó breyst og bygging nýs unglingaskóla sé besti kosturinn í stöðunni. Innlent 15.5.2024 13:00