Fréttir
140 141 142 143 144 145 146 147 148 … 334 ›
Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Bandaríska tímaritið New York hefur sent aðalfréttaritara sinn í Washington-borg í leyfi eftir að í ljós kom að hún átti í sambandi við Robert F. Kennedy yngri, fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Blaðakonan skrifaði meðal annars um Kennedy. Erlent 20.9.2024 23:23
Hvers vegna að fella ísbirni? Ísbjörninn sem kom á land á Hornströndum í gær var birna, líklegast tveggja eða þriggja vetra. Birnan var ekki í góðum holdum þegar hún kom hingað á land. Líklega hafði aðeins reynt á fituforðann síðustu daga. Kona á níræðisaldri í sumarhúsi tilkynnti lögreglu um birnuna sem var felld nokkrum tímum síðar. Innlent 20.9.2024 22:31
Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna kókaínsinnflutnings í póstsendingu í vikunni. Öðrum þeirra var sleppt úr haldi í dag. Innlent 20.9.2024 21:29
Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Ísraelsher rannsakar nú hóp hermanna sem náðust á myndbandi kasta líkum Palestínumanna fram af húsþaki eftir rassíu á Vesturbakkanum. Meðferðin á líkunum stríðir gegn alþjóðalögum. Erlent 20.9.2024 21:08
Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Bræðurnir sem saman fagna hundrað ára starfsafmæli hjá sama fyrirtæki segja samstarfið hafa verið einfalt, þægilegt og laust við keppni í þá hálfu öld sem þeir hafa verið samstarfsfélagar. Það hafi sjaldan eða aldrei hvarflað að þeim að skipta um vinnu. Innlent 20.9.2024 20:30
Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Móðir sex ára drengs sem varð fyrir árás á skólalóð í Kópavogi í gær segir son sinn hafa brugðist hárrétt við, en starfsmenn skólans hafi ekki trúað honum í fyrstu. Upptökur öryggismyndavéla hafi þó staðfest frásögn hans. Hún hafi fengið ábendingar um sambærilegar árásir í Fossvogi sama dag. Innlent 20.9.2024 20:30
Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur líklegt að myndavélakerfi verði tekið upp á landamærum á næstunni sem hjálpi til við að stoppa af óprúttna aðila á leið til landsins. Hann skorar á stjórnvöld að gefa málaflokknum betri gaum. Mikið álag sé á starfsfólki embættisins sem glími jafnframt við aðstöðuleysi. Innlent 20.9.2024 19:31
Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Baldur Þórhallsson þurfti að endurgreiða félögum sem styrktu forsetaframboð hans um samtals 800.000 krónur. Eigendur félaganna töldust tengdir öðrum félögum sem styrktu framboðið og því var heildarframlag þeirra fram yfir lögbundið hámark. Innlent 20.9.2024 18:48
Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Fjölskylda flugmanns hjá Icelandair hefur lagt fram beiðni til lögreglu um að andlát hans verði rannsakað. Flugmaðurinn féll fyrir eigin hendi eftir að mál tengd honum voru tekin fyrir innan fyrirtækisins. Fjölskylda hans telur mörgum spurningum enn ósvarað í málinu. Miklar brotalamir hafi verið á málsmeðferð innan Icelandair. Innlent 20.9.2024 18:42
Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Tveir karlmenn um tvítugt voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Þeir eru grunaðir um að ræna drengi, hóta þeim og beita þá ofbeldi í Hafnarfirði í ágúst. Innlent 20.9.2024 18:03
Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Fjölskylda flugmanns hjá Icelandair hefur lagt fram beiðni til lögreglu um að andlát hans verði rannsakað. Flugmaðurinn féll fyrir eigin hendi eftir að mál tengd honum voru tekin fyrir innan fyrirtækisins. Fjölskylda hans telur mörgum spurningum enn ósvarað í málinu. Miklar brotalamir hafi verið á málsmeðferð innan Icelandair. Innlent 20.9.2024 18:02
Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Talsmaður Ísraelshers segir að þó nokkrir af háttsettum leiðtogum Hezbollah-samtakanna hafi verið felldir í loftárás í Beirút í dag. Helsta skotmark árásarinnar var Ibrahim Aqil, einn af æðstu leiðtogum samtakanna sem sagður var hafa leitt hernaðararm Hezbollah eftir að fyrrverandi leiðtogi þessa arms var ráðinn af dögum í júlí. Erlent 20.9.2024 16:52
Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Vátryggingafélagið Sjóvá hefur verið dæmt til að greiða Ríkislögreglustjóra tjón sem varð af því þegar sérsveitarbíl var ekið á bíl manns sem ekið hafði á ofsahraða. Hann hafði sýnt lögreglumönnum „ósæmilega löngutöng“ á gatnamótum áður en eftirför hófst. Innlent 20.9.2024 16:42
Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Svanhildur Hólm Valsdóttir sendiherra afhenti Joseph R. Biden Bandaríkjaforseta trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum á miðvikudag. Innlent 20.9.2024 16:11
Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykktu í dag frumvarp um að Lífvarðaþjónusta Bandaríkjanna (e. Secret Service) eigi að auka gæslu með forsetaframbjóðendum til jafns við þá gæslu sem sitjandi forseti fær. Erlent 20.9.2024 16:07
Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Svalbarðsstrandarhreppur í austanverðum Eyjafirði hefur ákveðið að loka almenningbókasafninu í þorpinu en efla jafnframt skólabókasafnið. Þá verða teknar upp viðræður við Akureyrarbæ um sérstakan þjónustusamning fyrir íbúa. Innlent 20.9.2024 14:37
Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi en mun verða í leyfi frá opinberum embættisstörfum í lengri tíma. Erlent 20.9.2024 14:08
Búið að taka sýni úr ungu birnunni Búið er að taka ýmis sýni úr hvítabirninum sem var felldur í gær. Næst á dagskrá er að greina sýnin til að komast að því hvort hann hafi borið með sér einhverja sjúkdóma og til að komast að því af hvaða stofni hann var. Hvítabjörninn var kvendýr og var um 163 sentímetrar að lengd. Innlent 20.9.2024 13:59
Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Oddvitar Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps eiga von á því að geta unnið umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fljótt og örugglega. Stefnt er að því að sveitarfélögin afgreiði umsóknina á sama tíma. Innlent 20.9.2024 13:58
Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Ísraelar gerðu í dag loftárás á fjölbýlishús í úthverfi Beirút en árásin er sögð beinast gegn háttsettum leiðtoga Hezbollah-samtakanna. Nokkrar sprengjur eru sagðar hafa lent á húsinu, sem varð fyrir miklum skemmdum. Erlent 20.9.2024 13:49
Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Sjö ára strákur varð fyrir aðkasti konu á leið sinni í frístund úr Smáraskóla í gær. Myndbandsupptökur staðfesta frásögn piltsins. Foreldrar stráksins finna að því að málið hafi ekki verið tilkynnt strax til lögreglu. Innlent 20.9.2024 13:45
Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Borgarráð samþykkti í gær að koma á árlegum námsstyrk í nafni Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur lögfræðings og fyrrum sviðsstjóra og borgarritara. Ellý lést í júní á þessu ári og var þá 59 ára gömul. Ellý greindist með forstigseinkenni Alzheimersjúkdómsins 51 árs. Innlent 20.9.2024 13:40
Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Þrjú af þeim fjölmörgu myndböndum sem Dominique Pelicot tók af því þegar hann eða tugir annarra manna nauðguðu eiginkonu hans, Gisele, voru sýnd í dómsal í Frakklandi í gær. Það var eftir að einn hinn fimmtíu manna sem hafa verið ákærðir í málinu sagðist ekki hafa nauðgað Gisele. Erlent 20.9.2024 13:01
Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig hafa „góða hugmynd“ um hvar og hvenær tíu ára stúlku, sem fannst látin við Krýsuvíkurveg á sunnudagskvöld, hafi verið ráðinn bani. Innlent 20.9.2024 12:47
Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Kamala Harris og Donald Trump mældust með jafn mikinn stuðning á landsvísu í nýrri skoðanakönnun New York Times, Philadelphia Inquirer og Siena College. Erlent 20.9.2024 12:44
Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Karlmaður fannst látinn í gærkvöldi sem lögreglan hafði leitað við Vík í Mýrdal frá því á mánudag. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að rannsókn fari fram hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Maðurinn fannst látinn við Reynisfjall seint í gær. Innlent 20.9.2024 12:44
Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Bæjarstjórinn á Akureyri segir það mikla viðurkenningu fyrir bæinn að höfuðstöðvar nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar verði á Akureyri og til marks um þá miklu þekkingu sem sé til staðar í bæjarfélaginu. Hún er sannfærð um að þetta muni hafa mjög jákvæð áhrif á samfélagið fyrir norðan. Innlent 20.9.2024 12:05
Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Allt of margir bíða eftir lögbundinni NPA þjónustu frá sveitarfélögunum og er staðan algjörlega óásættanleg. Þetta segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélögin fari fram á skýr svör frá ríkinu um hvort fjármagna eigi málaflokkinn eða ekki. Innlent 20.9.2024 12:03
Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Ekki var talin ástæða til þess að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa ætlað sér að hagnýta tvær stúlkur sem komu til landsins í mansali. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim rann út í gær og þeir ganga því lausir. Innlent 20.9.2024 11:43
Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Í hádegisfréttum verður rætt við formann Sambands íslenskra sveitarfélaga sem segir biðina eftir NPA þjónustu ólíðandi og kallar eftir skýrum svörum frá ríkinu um hvort til standi að fjármagna þjónustuna að fullu eður ei. Innlent 20.9.2024 11:40