Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Agnar Már Másson skrifar 24. júní 2026 17:46 Þar sem ekki var haldið utan um vinnutíma starfsmanna á Vietnam Restaurant voru starfsmenn fengnir til þess að bera vitni fyrir dómi. Þannig var staðfest að starfsmaðurinn hefði unnið tólf tíma á dag, sex daga vikunnar. vísir Fyrrverandi starfsmaður á veitingastað sem rekinn var af athafnamanninum Quang Lé hafði betur gegn þrotabúi Vietnam restaurant í einkaréttarkröfumáli fyrir Landsrétti. Alls fær hann 19,9 milljónir króna í forgangskröfu í þrotabúið eftir að viðurkennt var að launakröfur hans skyldu einnig ná til yfirvinnu enda fékkst það staðfest að hann hefði unnið tólf tíma á dag, sex daga vikunnar.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Eflingu en Landsréttardómurinn hefur ekki verið birtur opinberlega. Í tilkynningu stéttarfélagsins er greint frá því að þýðingamikill sigur hafi unnist félagsmanni í gær þegar dómurinn hafi úrskurðað í máli manns sem unnið hafði hjá veitingastaðnum Vietnam restaurant áður en staðurinn var tekinn til gjaldþrotaskipta. Í tilkynningunni segir að dómurinn hafi viðurkennt meðal annars að launakröfur mannsins skyldu ná til yfirvinnu hans og sneri þar með við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. „Er um gríðarlega mikið hagsmunamál að ræða, bæði fyrir umræddan mann, en einnig fyrir um á fjórða tug annarra starfsmanna, þar á meðal Eflingarfélaga, sem bíða úrlausnar sinna mála.“ Enn á eftir að gefa út ákæru á hendur Quang Lé Wokon, rekstrarfélag Wok On, var tekið til gjaldþrotaskipta 12. júní 2024, en fyrir þann tíma hafði lögregla ráðist í umfangsmiklar aðgerðir sem beindust að fyrirtækjum í eigu veitingamannsins Quangs Lé, en hann var grunaður um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi. Quang Le var bæði einn umsvifamesti veitingamaður landsins auk þess að reka gistiheimili í miðbæ Reykjavíkur. Hann er grunaður um mansal og skipulagða glæpastarfsemi. Sjá einnig: Mál Quangs Lé Lögregla hefur enn ekki gefið út ákæru í máli Quang Lé, sem alls átti átta félög á þessum tíma sem ýmist héldu utan um rekstur veitingastaða eða voru fasteignafélög. Vietnam restaurant var úrskurðað gjaldþrota 12. september 2024 og á málið sem Landsréttur úrskurðaði í gær rætur að rekja til þess, að því er fram kemur í tilkynningunni. Fyrrverandi samstarfsmenn staðfestu vinnutímann Í tilkynningu Eflingar er það reifað að fyrir dómi hafi þess verið krafist að þrotabúið greiddi manninum vangoldin laun, annars vegar vegna dagvinnu og hins vegar vegna yfirvinnu, auk orlofs. Skiptastjóri þrotabúsins hafi þegar fallist á að greiða dagvinnulaunin en ágreiningur hafi verið um yfirvinnu, þar sem krafan var tæpar 15 milljónir króna. Sú krafa byggði á því að maðurinn hefði frá upphafi ráðningarsamnings síns, frá febrúar 2022, unnið mun meira en hann hafi fengið greitt fyrir. Hann hafi að jafnaði unnið tólf klukkustundir á dag, sex daga vikunnar. Við málareksturinn hafi verið bent á það að það væri á ábyrgð vinnuveitanda að halda utan um unnar yfirvinnustundir samkvæmt lögum. Það hafi hann hins vegar ekki gert. Skiptastjóri þrotabúsins vildi meina að starfsmaðurinn fyrrverandi yrði að færa sönnur á að hann hefði unnið umrædda yfirvinnu, en engin tiltæk skjöl eða tímaskráningar um vinnutíma lágu fyrir. Í ljósi þess leiddi fyrrverandi starfsmaðurinn fram fjölda vitna, fyrrverandi starfsmenn Vietnam Restaurant, sem hafi borið um það vitni að vinnutími mannsins, sem og þeirra allra, hafi verið tólf klukkustundir á dag, sex daga vikunnar. Sömu vitnisburðir hafi legið fyrir í skýrslum lögreglu af starfsfólkinu, auk þess sem upplýsingar um opnunartíma veitingastaðarins hafi gefið þeim vitnisburðum vægi. Skráðu ekki vaktir Í tilkynningu Eflingar segir að í úrskurði Landsréttar komi fram að í ljósi þess að ekki hafi neitt komið fram um að Vietnam Restaurant hafi komið upp kerfi til að halda utan um unnar vinnustundir, svo sem skylt er, hafi það verði það á ábyrgð vinnuveitandans, og þar með skiptastjóra þrotabúsins, að hnekkja staðhæfingum starfsfólksins um vinnutíma. Það hafi þrotabúið ekki gert. Dómurinn hafi fallist á kröfu starfsmannsins fyrrverandi um að hann hefði unnið mikla yfirvinnu sem skyldi hafa stöðu forgangskröfu í þrotabúið. Alls var upphæð yfirvinnunnar sem dómurinn úrskurðaði um rétt rúmar 14 milljónir króna. Þá var jafnframt fallist á aðrar kröfur, þ.e. um dagvinnu og orlof. Alls hafi Landsréttur úrskurðað að tæpar 19,9 milljóna króna kröfur starfsmannsins fyrrverandi skyldu njóta forgangs sem launakröfur við skipti á þrotabúi Vietnam Restaurant. Kærufrestur til Hæstaréttar vegna málsins er tvær vikur en alls óljóst er hvort málinu verði áfrýjað, segir í niðurlagi tilkynningarinnar.
Mál Quangs Le Kjaramál Reykjavík Veitingastaðir Stéttarfélög Mansal Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Sjá meira