Stj.mál
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 187 ›
Uppsagnir fram undan hjá Akureyrarbæ Uppsagnir eru fram undan hjá Akureyrarbæ vegna stjórnsýslubreytinga sem nú standa yfir. Formaður bæjarrráðs segir breytingarnar til bóta og vísar gagnrýni á bug. Innlent 25.10.2006 12:36
Árni Þór stefnir á eitt af efstu sætunum ÁrnI Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, hyggst sækjast eftir einu af efstu sætunum á lista flokksins í sameiginlegu forvali í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi vegna þingkosninga í vor. Innlent 25.10.2006 12:46
Níutíu þúsund lofa heimsókn ef hvalveiðum verður hætt Á heimasíðu umhverfissamtakana Greenpeace hafa níutíu þúsund manns heitið því að sækja Ísland heim ef Íslendingar láta vera að veiða hvali. Greenpeace leggur áherslu á þessa baráttuaðferð og ætlar ekki að senda hingað skip sitt til að reyna að hindra hvalveiðar. Innlent 25.10.2006 11:55
Íslendingum í háskólanámi fjölgar hratt Ísland er ásamt Svíþjóð í öðru sæti á Norðurlöndum þegar horft er til þess hversu margt ungt fólk er í háskólanámi. Þetta kemur fram í Norrænu tölfræðiárbókinni 2006 sem kemur út í dag. Innlent 25.10.2006 11:12
400 hafa greitt atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna Um fjögur hundruð manns hafa þegar kosið utankjörfundar í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmunum vegna komandi þingkosninga. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst þann 11. október en hið eiginlega prófkjör fer fram á föstudag og laugardag. Innlent 25.10.2006 10:23
Framlengja framboðsfrest vegna forvals í NA-kjördæmi Framboðsfrestur í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi hefur verið framlengdur um fjóra daga, eða til 5. nóvember. Valgerður Jónsdóttir, formaður uppstillingarnefndar, segir 12 einstaklinga hafa gefið kost á sér. Kynjahlutföll eru jöfn í þessum 12 manna hópi og dreifingin um kjördæmið nokkuð góð, að sögn Valgerðar. Innlent 25.10.2006 09:59
Minnsta fylgi Verkmamanna- flokksins í nærri 20 ár Fylgi breska Verkamannaflokksins hefur ekki mælst minna í nærri tuttugu ár samkvæmt nýrri könnun sem breska blaðið Guardian birtir í dag. Erlent 25.10.2006 09:47
Átta manns berjast um fimm sæti hjá Framsókn í NV-kjördæmi Átta manns gefa kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður með póstkosningu dagana 3.-17. nóvember. Tveir berjast um efsta sætið, þeir Kristinn H. Gunnarsson þingmaður og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra. Innlent 24.10.2006 16:07
Fimm fengu styrki úr Jafnréttissjóði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra afhenti í dag styrki úr Jafnréttissjóði til fimm rannsókna á sviði jafnréttismála. Sjóðurinn var stofnaður á síðasta ári í tilefni 30 ára afmælis Kvennafrídagsins og er markmiðið með stofnun hans að tryggja að hér á landi verði unnar vandaðar rannsóknir á stöðu kynjanna á vinnumarkaði, eins og segir á vef félagsmálaráðuneytisins. Innlent 24.10.2006 14:41
Valgerður til Síberíu á fund Norðurskautsráðsins Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra mun á morgun eiga fund með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sem er gestgjafi á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins sem haldinn verður á fimmtudag. Ráðið er sameiginlegur vettvangur norrænna ríkja, ríkja Norður-Ameríku og Rússlands auk samtaka frumbyggja. Innlent 24.10.2006 14:27
BSRB fagnar tillögum um lækkun matarverðs BSRB fagnar tillögum ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að lækka matvælaverð og lýsir vilja til samstarfs um að farsællega takist til um framkvæmdina. Fram kemur í ályktun sem birt er á heimasíðu bandalagsins að það leggi mikla áherslu á að virða hagsmuni landbúnaðarins og innlendrar afurðarvinnslu við allar kerfisbreytingar sem ráðist er í. Innlent 24.10.2006 13:13
Eindregin samstaða milli frambjóðenda í annað sætið Það var eindregin samstaða milli þeirra þriggja frambjóðenda sem berjast um annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þar sem þeir sátu fyrir svörum í Íslandi í dag í gærkvöld. Innlent 24.10.2006 12:28
Málsmeðferðartími efnahagsbrotadeildar of langur Málsmeðferðartími hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra er almennt lengri en talið er eðlilegt í nágrannaríkjunum og það eiga íslensk stjórnvöld ekki að sætta sig við segir Ríkisendurskoðun í nýrri stjórnsýsluúttekt á Ríkislögreglustjóra. Ríkisendurskoðun leggur til aukna samvinnu Ríkislögreglustjóra og skattrannsóknarstjóra í rannsókn alvarlegra skattalagbrota. Innlent 24.10.2006 12:14
Vilja auka veg kvenna á Alþingi Femínistafélag Íslands skorar á stjórnmálaflokka sem ekki hafa myndað sér skýra stefnu um aukinn hlut kvenna á framboðslistum fyrir komandi þingkosningar að hefjast strax handa og veita konum jafnan sess á við karla. Innlent 24.10.2006 10:42
Atvinnurekendur leiðrétti launamun kynjanna Atvinnu- og stjórnmálahópur Femínístafélags Ísland skorar á atvinnurekendur að fylgja landslögum og leiðrétta launamun kynjanna í fyrirtækjum sínum. Þessi áskorun er send í tilefni þess að í dag er liðið ár frá því að rúmlega 50.000 íslenskar konur gengu út af vinnustöðum sínum til að vekja athygli á launamuni kynjanna og krefjast leiðréttingar á honum. Innlent 24.10.2006 09:50
Áhöfn Hvals 9 skýtur aðra langreyði Áhöfnin á Hval 9 hefur skotið aðra langreyði. Hvalurinn er talinn vera yfir 60 fet og veiddist um 210 sjómílur vestur af Hvalfirði um klukkan hálffimm í dag. Hvalur 9 siglir nú til Hvalfjarðar og kemur þangað um tvöleytið á morgun þar sem hvalurinn verður skorinn. Innlent 23.10.2006 17:26
Fresta því að skerða lífeyri öryrkja Lífeyrissjóðir sem aðild eiga að Greiðslustofu lífeyrissjóða hafa ákveðið að fresta því að skerða eða fella niður greiðslur til örorkulífeyrisþegar til áramóta en til stóð að gera það um næstu mánaðamót. Innlent 23.10.2006 17:07
Hröð uppbygging í Grafarholti Íbúar í Grafarholti voru tæplega 4800 í lok ágúst síðastliðins en aðeins eru sex ár síðan farið var að selja byggingarrétt í hverfinu. Innlent 23.10.2006 16:51
Nærri tvöfalt fleiri í framboði í prófkjörum en síðast Nærri tvöfalt fleiri frambjóðendur berjast um þingsæti í prófkjörum Samfylkingarinnar í ár en fyrir síðustu þingkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Innlent 23.10.2006 16:46
Skýrir sjónarmið Íslands í hvalveiðimálum fyrir starfsbræðrum Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra sat í morgun undirbúningsfund Norðurlandaráðherra fyrir umhverfisráðherrafund Evrópusambandsins sem haldinn er í Lúxemborg í dag. Þar kynnti hún sjónarmið og forsendur þeirrar ákvörðunar Íslands að hefja aftur hvalveiðar í atvinnuskyni. Innlent 23.10.2006 14:27
Viðbrögð Breta ekki eins sterk og búist hafði verið við Sænsk stjórnvöld eru ævareið hvalveiðum Íslendinga og skora á þá að þeim verði hætt hið fyrsta. Að mati sendiherra Íslands í Bretlandi eru viðbrögðin þar í landi við aflabrögðum helgarinnar ekki eins sterk og búist hafði verið við. Innlent 23.10.2006 11:56
Landbúnaðarnefnd fjallar um samkeppnismál í næsta mánuði Landbúnaðarnefnd Alþingis mun í næsta mánuði fjalla um nýfallinn úrskurð Samkeppniseftirlitsins þar sem því var beint til landbúnaðarráðherra að beita sér fyrir lagabreytingum svo mjólkuriðnaðurinn yrði ekki undanþeginn samkeppnislögum eins og nú er. Innlent 23.10.2006 11:45
Grundvöllur skylduaðildar brostinn ef til skerðingar kemur Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands skorar á stjórnir þeirra fjórtán lífeyrissjóða sem boðað hafa skerðingar og niðurfellingar lífeyrisgreiðslna til öryrkja að hverfa frá þeim áformum sínum. Að öðrum kosti lítur Öryrkjabandalagið svo á að grundvöllur núverandi skylduaðildar að lífeyrissjóðunum í landinu sé brostinn. Innlent 20.10.2006 17:08
Þjónustuíbúðir fyrir geðfatlaða í Kópavogi Kópavogsbær tók í dag formlega í notkun sjö þjónustuíbúðir í Hörðukór í Kópavogi fyrir einstaklinga með geðfötlun ásamt sameiginlegum þjónustukjarna. Innlent 20.10.2006 16:55
Þórhildur sækist eftir 6.-8. sæti í prófkjöri í Reykjavík Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi þingkona, sækist eftir sjötta til áttunda sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna komandi þingkosninga. Innlent 20.10.2006 16:07
Jóhanna sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar Jóhanna Sigurðardóttir þingkona hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2.-3.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer 11. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni. Innlent 20.10.2006 15:54
Vilja stofna sérstakt Loftlagsráð Þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem lagt er til að ríkisstjórninni verði falið að koma á fót Loftslagsráði sem meðal annars hafi það verkefni að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og annarra skaðlegra efna og meta líkleg áhrif loftslagsbreytinga á þjóðarhag og þjóðaröryggi. Innlent 20.10.2006 13:51
ESB fordæmir atvinnuveiðar Íslendinga Evrópusambandið fordæmir nýhafnar hvalveiðar Íslendinga í atvinnuskyni og hvetur stjórnvöld til að endurskoða ákvörðunina. Í tilkynningu frá framkvæmdastjórn sambandsins, sem greint er frá á vef Reuters-fréttastofunnar, segir að hvalir séu viðkvæmur hlekkur lífkeðju hafsins sem þegar sé í hættu vegna veiða og mengunar af mannvöldum. Innlent 20.10.2006 13:17
Bradshaw hefur engan rétt til að tala svo harkalega til annarra þjóða Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, segir að starfsbróðir hans í Bretlandi hafi engan rétt til að tala til annarra þjóða með þeim hætti sem hann talaði til Íslendinga þegar hann gagnrýndi hvalveiðar Íslendinga í gær. Hvalur níu hefur enn ekki sett í hval eftir tæplega þriggja sólarhringa leit. Innlent 20.10.2006 12:34
Lög um Námsgagnastofnun verði endurskoðuð Samkeppniseftirlitið beinir því til menntamálaráðherra að beita sér fyrir endurskoðun á lögum og reglum sem varða útgáfu og sölu Námsgagnastofnunar á kennsluefni fyrir grunnskólanema með hliðsjón af markmiði og ákvæðum samkeppnislaga. Enn fremur beinir eftirlitið þeim fyrirmælum til stofnunarinnar að skilið verði fjárhagslega á milli lögbundins rekstrar og rekstrar sem er í samkeppni við einkaaðila. Innlent 20.10.2006 10:09
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent