Stj.mál
131 132 133 134 135 136 137 138 139 … 187 ›
Vildu láta reyna á meirihluta Sjálfstæðismenn báru fram tillögu á borgarstjórnarfundi í dag um að viljayfirlýsing borgarstjórnar og ríkisstjórnarinnar um sölu á hlut Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun yrði borin undir atkvæði. Komið hefði fram andstaða hjá vinstri - grænum sem skapaði óvissu um hvort meirihluti væri fyrir málinu. Borgarstjóri segir það af og frá. Innlent 13.10.2005 18:50
Vill draga úr niðurrifi húsa Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, ætlar að leggja fram tillögu á fundi borgarstjórnar í dag um að nýjum starfshópi verði komið á fót til að endurskoða deiliskipulag við Laugaveg. Markmið endurskoðunarinnar verði að draga úr þeim víðtæku heilmildum til niðurrifs gamalla húsa við Laugaveg sem ætlunin sé að veita. Innlent 13.10.2005 18:50
Draumar um virðingu sjálfsagðir Viðhorf þriggja þingmanna úr ólíkum flokkum varðandi stefnu stjórnvalda að sækjast eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eru um margt lík. Íslendingar hafi þá stöðu í heiminum að við getum haft áhrif. Þó var deilt um hvort kostnaðurinn væri þess virði. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
Stór ákvörðun að hætta Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hættir á þingi 1. ágúst og tekur við starfi deildarforseta lögfræðideildar á Bifröst. Hún segir að lögfræðin hafi togað í sig og hún hafi ekki viljað sleppa þessu tækifæri. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
Fagna eflingu jafnréttis Landssamband framsóknarkvenna telur að djúp spor hafi verið mörkuð í sögu framsóknarkvenna og þar með sögu flokksins með ákvörðun um að efla jafnrétti innan flokksins. Framsóknarkonur telja að þau skref muni án efa leiða Framsóknarflokkinn áfram til aukinna áhrifa og framgöngu í íslenskum stjórnmálum. Innlent 13.10.2005 18:50
Telur þingmennsku styrkja framboð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir telur að það styrki framboð sitt til formanns Samfylkingarinnar að hún taki við þingmennsku í haust því að það hafi verið notað sem rök gegn framboðinu að hún sitji ekki á Alþingi. Innlent 13.10.2005 18:50
Fjölmiðlanefnd skilar áliti í mars Nefnd menntamálaráðherra, sem á að gera tillögur að frumvarpi um fjölmiðla, stefnir að því að skila áliti sínu seint í mars. Til stóð að skila álitinu 1. febrúar en strax þá var ljóst að það gengi ekki. Karl Axelsson, formaður nefndarinnar, sagði að nefndinni hefði verið ætlaður of naumur tími til verksins og tímasetningin hefði verið óraunhæf. Karl segir nú að verkið gangi vel og vonandi verði því lokið um eða eftir páska. Innlent 13.10.2005 18:50
Forsætisráðherra til Danmerkur Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra fer í dag í opinbera heimsókn til Danmerkur í boði Anders Foghs Rasmussens, forsætisráðherra Danmerkur. Í heimsókninni mun Halldór hitta marga málsmetandi Dani og einnig forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja í Danmörku. Heimsókn forsætisráðherra til Danmerkur lýkur á miðvikudag. Innlent 13.10.2005 18:50
Gunnar í varaformanninn Gunnar Örlygsson alþingismaður Frjálslynda flokksins ætlar að bjóða sig fram gegn Magnúsi Þór Hafsteinssyni, varaformanni, á landsþingi flokksins sem fram fer um næstu helgi. Innlent 13.10.2005 18:50
Segir blað brotið í sögu flokksins Formaður Landssambands framsóknarkvenna segir brotið blað í sögu Framsóknarflokksins með ákvörðun um að efla jafnrétti kynjanna innan flokksins. Samkvæmt henni skuli hlutur hvors kyns ekki vera lægri en 40 prósent við skipan í trúnaðar- og ábyrgðarstöður. Innlent 13.10.2005 18:50
Segir Evrópuumræðu leikrit Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, segir Evrópuumræðu Framsóknarflokksins um helgina að öllum líkindum leikrit til að breiða yfir innanbúðarátök í flokknum. Sé hins vegar um raunverulega stefnubreytingu að ræða geti það þrengt hjónabandsmarkaðinn fyrir Framsókn eftir næstu kosningar. Innlent 13.10.2005 18:50
Leyfa undanþágur á þýðingarskyldu Formaður allsherjarnefndar Alþingis telur ekki ástæðu til að óttast undanþágur frá þýðingarskyldu á lagatexta þar sem þeim verði markaðar þröngar skorður. Innlent 13.10.2005 18:50
Ingibjörg tekur við af Bryndísi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, mun taka við þingmennsku af Bryndísi Hlöðversdóttur þegar hún hættir þann 1. ágúst og tekur við embætti forseta lagadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst. Ákvörðun Bryndísar var kynnt þingflokki Samfylkingarinnar í dag. Innlent 13.10.2005 18:50
Bryndís hættir á þingi 1. ágúst Bryndís Hlöðversdóttir ætlar að hætta þingmennsku til að taka við stöðu deildarforseta lagadeildar Viðskiptaháskólans í Bifröst. Gert er ráð fyrir að hún hætti þingstörfum 1. ágúst. Næsti maður inn á þing er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Innlent 13.10.2005 18:50
Ákvörðun tengist ekki formannsslag Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, tekur við þingmennsku af Bryndísi Hlöðversdóttur, sem gerist deildarstjóri lagadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst. Bryndís neitar því að hún sé að rýma til fyrir Ingibjörgu Sólrúnu í tengslum við framboð hennar til formanns Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 18:50
Fagna nýrri stefnu varðandi ESB Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður fagnar því að stefna flokksins í Evrópumálum hafi verið endurskoðuð á flokksþingi Framsóknarflokksins sem lauk í gær. Ungir framsóknarmenn telja þetta mikilvægan áfanga í átt að nánara sambandi Íslands við Evrópusambandið og þeir segja líklegt að jákvæð afstaða Framsóknarflokksins verði til þess að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB á næsta kjörtímabili. Innlent 13.10.2005 18:50
Stöðugur flótti stuðningsmanna ESB Enn er hart tekist á um afstöðu til Evrópusambandsins á flokksþingi Framsóknarflokksins. Stuðningsmenn aðildar eru á stöðugum flótta og hafa andstæðingar náð fram verulegum breytingum frá upphaflegri tillögu að ályktun. Þá stefnir í að Framsóknarflokkurinn álykti að flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýrinni. Innlent 13.10.2005 18:50
Halldór fékk 81,85% atkvæða Halldór Ásgrímsson var endurkjörinn formaður Framsóknarflokksins á flokksþinginu á öðrum tímanum í dag. 406 fulltrúar á þinginu greiddu honum atkvæði en alls voru atkvæðin 520, þar af tvö ógild og 22 skiluðu auðu. Halldór fékk því 81,85% atkvæða. Ef auðir seðlar eru taldir með fékk formaðurinn 78,4% atkvæða. Guðni Ágústsson var endurkjörinn varaformaður og Siv Friðleifsdóttir var endurkjörin ritari. Innlent 13.10.2005 18:50
Kjarnorkuvopnaáætlun í bígerð? Íranar keyptu upplýsingar af pakistönskum vísindamönnum um hvernig koma ætti af stað kjarnorkuvopnaáætlun, segja rannsóknarmenn Bandaríkjastjórnar. Erlent 13.10.2005 18:50
Verður að þurrka út skæruliðahópa Mahmoud Abbas verður að þurrka út palestínska skæruliðahópa. Þetta eru viðbrögð Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, við sjálfsmorðsárásinni á næturklúbb í Tel Aviv á föstudagskvöld. Að öðrum kosti væru Ísraelsmenn tilneyddir að beita hersveitum sínum í baráttunni gegn skæruliðahópunum. Erlent 13.10.2005 18:50
Flugvöllurinn áfram í Reykjavík Tekist var á um það á flokksþingi framsóknarmanna hvort álykta ætti um það að flytja innanlandsflugið burt úr miðborginni. Innlent 13.10.2005 18:50
Öllum tilraunum Evrópusinna hrint Andstæðingar Evrópusambandsaðildar innan Framsóknarflokksins hrundu öllum tilraunum á flokksþingi til að færa flokkinn nær aðildarumsókn. Þótt sjónarmið Halldórs Ásgrímssonar hefðu þannig orðið undir var hann endurkjörinn formaður Framsóknarflokksins með 78 prósentum atkvæða. Innlent 13.10.2005 18:50
Framsókn hreyfir við Norðmönnum Forsætisráðherra Noregs, Kjell Magne Bondevik, segir Evrópustefnu Framsóknarflokksins hafa áhrif í Noregi. Í samtali við Fréttablaðið segir Bondevik að Norðmenn fylgist grannt með þróun umræðunnar um Evrópumál á Íslandi. Aðildarviðræður séu á dagskrá Norðmanna í fyrsta lagi 2007. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
Framsóknarflokkurinn stefnulaus? Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, telur ESB-umræðuna hugsanlega skilaboð um breytt stjórnarmynstur á næsta kjörtímabili. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, telur sjálfstæðismenn móta stefnu Framsóknarflokksins í Evrópumálum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
Innanlandsflug áfram í Reykjavík Gert er ráð fyrir að Framsóknarmenn samþykki ályktun um höfuðborgarstefnu þar sem lagt er til að miðstöð innanlandsflugs verði áfram í Reykjavík. Í upphafi þings lá fyrir tillaga um að innanlandsflug til höfuðborgarsvæðisins yrði flutt til Keflavíkur. Innlent 13.10.2005 18:50
Orðrómurinn ekki réttur Halldór Ásgrímsson, sem endurkjörinn var formaður Framsóknarflokksins um helgina, finnst vegur sinn innan flokksins ekki hafa minnkað. Hann kannast ekki við það sem sumir framsóknarmenn hafa haldið fram, að formaðurinn hafi tekið einhverja tiltekna einstaklinga að brjósti sér og úthýst öðrum. „Ég kannast við þennan orðróm en hann er einfaldlega ekki réttur,“ segir Halldór. Innlent 13.10.2005 18:50
Ungir framsóknarmenn fagna Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður fagnar því að ákvörðun hafi verið tekin um endurskoðun á stefnu Framsóknarflokksins í evrópumálum. Félagið segir þetta mikilvægan áfanga í átt að nánara sambandi Íslands við Evrópusambandið, enda líklegt að jákvæð afstaða Framsóknarflokksins þurfi til að Ísland hefji aðildarviðræður. Innlent 13.10.2005 18:50
Ályktun loksins samþykkt Eftir miklar deilur samþykktu Framsóknarmenn loks eftir hádegi ályktun um utanríkismál. Hart var tekist á um Evrópustefnuna. Ályktunin hefur tekið verulegum breytingum frá upphaflegum drögum en stuðningsmenn Evrópusambandsaðildar hafa margoft þurft að bakka fyrir andstæðingum aðildar. Innlent 13.10.2005 18:50
Evrópustefnan sigur fyrir flokkinn Halldór Ásgrímsson segir ályktun flokksþingsins mikil tíðindi og sigur fyrir flokkinn. Í fyrsta sinn hafi verið opnað fyrir aðild að Evrópusambandinu. Hann hafi nú umboð flokksins til að huga að aðildarviðræðum. Það skipti öllu máli. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
Föngunum ekki sleppt Þeim 400 palestínsku föngum sem eru í ísraelskum fangelsum, og átti að sleppa áður en langt um liði, verður ekki gefið frelsi vegna sjálfsmorðsárásarinnar í Tel Aviv á föstudagskvöld sem kostaði fjóra Ísraela lífið. 500 palestínskum föngum sem verið hafa í haldi í Ísrael var sleppt fyrir tæpri viku. Erlent 13.10.2005 18:50