
Össur

Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical
André Rocha hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical, móðurfélags Össurar og fleiri leiðandi félaga á alþjóða heilbrigðistæknimarkaðnum.

Móðurfélag Össurar hagnaðist um 2,8 milljarða á metfjórðungi
Embla Medical, móðurfélag stoðtækjafyrirtækisins Össurar skilaði 2,8 milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi 2024 og jókst hann um 26 prósent frá sama tíma í fyrra.

Össur stofnar móðurfélagið Embla Medical
Stjórn Össurar hf. hefur lagt til við aðalfund Össurar sem fram fer í næsta mánuði að móðurfélag félagsins taki upp nafnið Embla Medical hf.

Össur Kristinsson er látinn
Össur Kristinsson, stofnandi stoðtækjafyrirtækisins Össurar, er látinn, áttræður að aldri. Hann lést á Landspítalanum síðastliðinn þriðjudag.

Hagnaður Össurar nam um átta milljörðum króna á síðasta ári
Tekjur Össurar á fjórða ársfjórðungi 2023 námu 210 milljónum Bandaríkjadala, eða 29,2 milljörðum íslenskra króna, sem samsvarar níu prósenta innri vexti. Tekjur á nýliðnu áru námu því 786 milljónum Bandaríkjadala, eða 109,1 milljörðum íslenskra króna.

Össur kaupir þýskt stoðtækjafyrirtæki
Össur hefur undirritað samning um kaup á öllum hlutum þýska stoðtækjafyrirtækisins Fior & Gentz. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Össuri en tilkynnt var um kaupin rétt í þessu.

Stórlax í stoðtækjum selur glæsivillu með sundlaug og bíósal
Össur Kristinsson, stofnandi stoðtækjafyrirtækisins Össur hf., hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við sjávarsíðuna á Kársnesi í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 260 milljónir.

Var á Íslandi á meðan hálf fjölskyldan fórst í loftárás
Palestínumaður búsettur á Íslandi missti foreldra sína í loftárás Ísraelshers fyrir mánuði síðan. Systir hans missti fótlegg í árásinni og vonast hann til að hún geti fengið gervifót eða komið hingað til lands.

Guðmundur Fertram og risasala á Kerecis hlutu viðskiptaverðlaun Þjóðmála
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, var útnefndur viðskiptamaður ársins 2023 á Hátíðarkvöldi Þjóðmála síðastliðinn fimmtudag auk þess sem risasala á fyrirtækinu til alþjóðlega heilbrigðisrisans Coloplast fyrir jafnvirði um 180 milljarða króna var valin viðskipti ársins. Þá hlaut Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Össurar, sérstök heiðursverðlaun Þjóðmála fyrir ævilangt framlag sitt til uppbyggingar íslensks atvinnulífs.

Lukas tekur við af Agli sem hættir eftir 27 ára starf hjá Össuri
Egill Jónsson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs Össurar hf., hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu í lok árs, þar sem hann hyggst fara á eftirlaun.

Agnes frá Össuri til Samorku
Agnes Ástvaldsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri faghópa hjá Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja og hefur hún þegar hafið störf.

Össur styður Úkraínu enn frekar: „Við erum einbeitt í að leggja okkar af mörkum“
Össur hf. hefur undirritað rammasamkomulag um frekara samstarf við endurhæfingaspítala í Úkraínu. Gert er ráð fyrir að fjöldi hermanna og óbreyttra borgara sem þurfa á stoðtækjum að halda sé um tuttugu þúsund.

1,4 milljarða hagnaður hjá Össuri á fyrsta ársfjórðungi
Hagnaður fyrirtækisins Össur á fyrsta ársfjórðungi nam tíu milljónum dollara, 1,4 milljarði íslenskra króna. Er það átta prósent aukning frá síðasta ári. Sala á ársfjórðungnum nam 25,7 milljörðum króna.

Missti þrjá útlimi í lestarslysi en hyggst ganga á hæsta fjall Japans
Ungur japanskur maður sem missti þrjá útlimi þegar hann varð fyrir lest í Japan er nú staddur hér á landi þar sem hann æfir fyrir göngu á hæsta fjall Japans. Hann lifir eftir þeirri hugmyndafræði að ekkert sé ómögulegt.

Hagnaðurinn um fjórir milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins
Hagnaður Össurar hf. á þriðja ársfjórðungs nam sjö milljónum Bandaríkjadala, um 929 milljón íslenskra króna, eða fjögur prósent af veltu. Hagnaðurinn á fyrstu níu mánuðum ársins 2022 nam því þrjátíu milljónum Bandaríkjadala, eða um fjórum milljörðum íslenskra króna.

Össur hjálpar fólki í Úkraínu sem misst hefur útlimi
Stoðtækjaframleiðandinn Össur hefur hlotið styrk úr heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu til að útvega Úkraínumönnum, sem misst hafa útlimi, stoðtæki. Forstjóri fyrirtækisins segir þessa aðstoð hafa gríðarleg áhrif á fólk og einn sem hafi fengið nýjan gervifót hafi beðið maka síns á sjúkrabekknum þegar hann fékk nýja fótinn.

Össur kaupir hið bandaríska Naked Prosthetics
Heilbrigðistæknifyrirtækið Össur hf. hefur gengið frá kaupum á Naked Prosthetics sem sérhæfir sig í stoðtækjum fyrir einstaklinga sem misst hafa framan af fingri eða hlut af hendi.

Ytri aðstæður haft áhrif á afkomu Össurar
Össur hagnaðist um fjórtán milljónir bandaríkjadala eða 1,9 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2022 eða átta prósent af veltu. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður nítján milljónir dala og lækkar því um 26 prósent milli ára.

Guðný Arna frá Kviku til Össurar
Guðný Arna Sveinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar og mun hefja störf í september.

Össur hagnaðist um 1,2 milljarða króna
Stoðtækjaframleiðandinn Össur hagnaðist um níu milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 1,2 milljarða íslenskra króna, á fyrsta ársfjórðungi 2022. Sala nam alls 170 milljónum bandaríkjadala, eða 21,8 milljörðum króna. Söluvöxtur nam 10% í staðbundinni mynt og innri vöxtur var 6% á ársfjórðungnum.

Jón segir skilið við Össur eftir aldarfjórðung og Sveinn tekur við
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, er sestur í helgan stein eftir 26 ár í starfi. Sveinn Sölvason hefur verið skipaður arftaki hans.

Kemur til Isavia frá Össuri
Bjarni Örn Kærnested hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Isavia.