Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Lionel Messi og Cristiano Ronaldo eru mættir á sitt sjötta heimsmeistaramót á ferlinum og setja með því met. Það eru ágætar líkur á því að þeir mætist á mótinu. Fótbolti 11.6.2026 23:17
Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Gata í New York hefur verið endurnefnd eftir Thierry Henry í aðdraganda heimsmeistaramótsins 2026. Pele heitinn fær líka götu nefnda eftir sér. Fótbolti 11.6.2026 22:33
Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Norska lögreglan leggur sitt af mörkum til öryggisgæslu á heimsmeistaramótinu í fótbolta Fótbolti 11.6.2026 22:02
Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Tveir sterkir póstar í liði Marokkó hafa hrökklast úr lestinni rétt fyrir komandi heimsmeistaramót. Fótbolti 11. júní 2026 16:30
Elstir og yngstir á HM Aldursbilið á heimsmeistaramóti karla í fótbolta sem hefst í kvöld spannar 26 ár. Sá elsti er 43 ára og sá yngsti 17 ára. Yngsti leikmaður mótsins gæti spilað í kvöld. Fótbolti 11. júní 2026 12:46
Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Haítí þarf að breyta treyjunum sínum á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fifa lét Haítí vita aðeins nokkrum dögum fyrir fyrsta leik mótsins. Fótbolti 11. júní 2026 11:15
HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst í kvöld en Vísir hefur talið niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Í dag minnumst við þess þegar Ronaldo leiddi Brasilíumenn til heimsmeistaratitilsins 2002. Fótbolti 11. júní 2026 09:02
„Slakiði á“ Gianni Infantino, forseti Fifa, hélt blaðamannafund í gær þar sem hann var spurður út í ýmislegt tengt heimsmeistaramótinu í fótbolta sem byrjar í kvöld. Hann sagði fjölmiðlum að slaka á og að verið væri að reyna að leysa öll vandamál. Fótbolti 11. júní 2026 08:01
Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Anthony Gordon var maður kvöldsins í síðasta leik Englendinga fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta en enska landsliðið vann öruggan 3-0 sigur á Kosta Ríka í Orlando í kvöld. Leiknum seinkaði um klukkutíma vegna veðurs. Fótbolti 10. júní 2026 23:04
Ronaldo fór illa með færin í kvöld Portúgal vann 2-1 sigur á Nígeríu í kvöld í síðasta undirbúningsleiknum sínum fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta en spilað var í Leiria í Portúgal. Fótbolti 10. júní 2026 22:13
Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Mauricio Pochettino, þjálfari karlalandsliðs Bandaríkjanna, sagði að lið hans gæti unnið heimsmeistaramótið í fótbolta í ár þrátt fyrir að eiga enga leikmenn sem eru á lista yfir hundrað bestu leikmenn heims. Fótbolti 10. júní 2026 21:00
Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Gianni Infantino, forseti FIFA, hélt blaðamannafund í kvöld, sólarhring fyrir opnunarleik heimsmeistaramótsins. Forsetinn var meðal annars spurður út í umdeilt fyrirkomulag við sölu miða á leiki mótsins en hátt miðaverð hefur hneykslað marga. Fótbolti 10. júní 2026 19:53
„Við erum félagar, við Messi“ Íslenski landsliðsmaðurinn Daníel Tristan Guðjohnsen komst í heimsfjölmiðlana eftir vináttulandsleik Íslands og Argentínu í nótt en hann ræddi leikinn og endurfundi við Lionel Messi í Reykjavík síðdegis. Fótbolti 10. júní 2026 19:32
Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Bandarískur embættismaður heldur því fram að HM-dómarinn sem meinað var um inngöngu hafi tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti 10. júní 2026 18:15
Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst á morgun, fimmtudaginn 11. júní, en meðal þeirra sem hafa sest niður, rætt sín á milli og loks spáð fyrir um hvernig úrslit mótsins fara eru stelpurnar í fataversluninni Kjólum og konfekti. Sex kjólar í fánalitum skarta sem stendur búðarglugga verslunarinnar og segist eigandi aldrei hafa séð eins marga karlmenn stoppa við búðargluggann til að virða kjólana fyrir sér. Tíska og hönnun 10. júní 2026 17:08
Messi sló ellimet gegn Íslandi Töframaðurinn Lionel Messi sló enn eitt metið á sínum ferli þegar hann skoraði gegn Íslandi í vináttulandsleiknum með Argentínu í nótt. Fótbolti 10. júní 2026 16:48
Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Argentína og Ísland mættust í æfingaleik í nótt. Heimsmeistararnir fóru þar með 3-0 sigur. Innkoma Lionel Messi breytti leiknum. Fótbolti 10. júní 2026 11:01
Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Mótmæli mynduðust fyrir utan Azteca-leikvanginn í Mexíkóborg þar sem opnunarleikur heimsmeistaramótsins í fótbolta á að eiga sér stað á morgun. Lögregla þurfti að loka svæðinu í kringum leikvöllinn svo fólk kæmist ekki nálægt vellinum. Fótbolti 10. júní 2026 10:30
HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir einn dag en Vísir telur niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og í dag skoðum við ástæðuna fyrir því að þjóð með tvo heimsmeistaratitla fær að bera fjórar stjörnur. Fótbolti 10. júní 2026 09:01
HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar „Hér verða allir velkomnir árið 2026,“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, við fjölmiðlamenn á síðasta ári um komandi heimsmeistaramót. Nú er ljóst að sú setning er eins röng og hún hljómaði vitleysisleg þegar hún var látin falla. Fótbolti 10. júní 2026 08:01
Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Portúgalski framherjinn Rafael Leão hefur sagt að hann hafi „aldrei ætlað að meiða“ Ivan Román þrátt fyrir að hafa slegið síleska varnarmanninn í andlitið í vináttulandsleik á laugardaginn sem var upphitun fyrir heimsmeistaramótið. Fótbolti 10. júní 2026 07:03
Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Ísland mætir Argentínu í vináttulandsleik í kvöld í Auburn í Alabama-fylki en það hefur rignt mikið á svæðinu í dag. Fótbolti 9. júní 2026 22:57
Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Kennslu verður aflýst og fjarvinna verður tekin upp í Mexíkóborg vegna upphafs heimsmeistaramótsins en opnunarleikurinn á HM 2026 fer fram í borginni á fimmtudagskvöldið. Fótbolti 9. júní 2026 22:30
Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Rio Ngumoha, hinn ungi framherji Liverpool, mun yfirgefa enska landsliðshópinn í þessari viku þrátt fyrir að hafa heillað Thomas Tuchel og alþjóðlega liðsfélaga sína. Enski boltinn 9. júní 2026 19:15