Líftækni
1 2 3 4 ›
Alvotech orðið ein stærsta eignin hjá helstu hlutabréfasjóðum landsins Vægi Alvotech í eignasöfnum stærstu hlutabréfasjóða landsins hefur aukist verulega á fáum vikum samtímis miklum verðhækkunum á gengi bréfa íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins og þátttöku sjóðanna í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Úttekt Innherja sýnir að félagið er orðið stærsta eða næststærsta eignin hjá meirihluta sjóðanna. Innherji 16.2.2023 15:54
Íslenskir fjárfestar komnir með um fimmtíu milljarða hlutabréfastöðu í Alvotech Íslenskir fjárfestar, einkum verðbréfasjóðir, fjárfestingafélög og efnameiri einstaklingar, áttu í byrjun þessa árs hlutabréf í líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech fyrir að lágmarki um tuttugu milljarða króna miðað við núverandi gengi. Sú fjárhæð hefur núna tvöfaldast eftir nýafstaðið hlutafjárútboð félagsins en á meðal nýrra fjárfesta sem bættust þá í hluthafahópinn var lífeyrissjóðurinn Birta sem keypti fyrir tvo milljarða. Innherji 24.1.2023 13:45
Alvotech leitar til innlendra fjárfesta eftir auknu hlutafé Rúmum einum mánuði eftir að Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, kláraði útgáfu á breytanlegum skuldabréfum fyrir jafnvirði um tíu milljarða króna vinnur líftæknilyfjafyrirtækið núna að því að sækja sér umtalsverða fjárhæð í aukið hlutafé til að treysta fjárhaginn. Félagið hóf markaðsþreifingar við innlenda fjárfesta fyrr í dag, samkvæmt heimildum Innherja, en stefnt er að því að klára útboðið fyrir opnun markaða á mánudag. Innherji 20.1.2023 16:44
LSR fyrsti af stóru lífeyrissjóðunum sem fjárfestir í Alvotech Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) var í hópi innlendra fjárfesta, ásamt meðal annars þremur öðrum lífeyrissjóðum, sem komu að fjármögnun á líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech fyrr í þessum mánuði með kaupum á skuldabréfum sem eru breytanleg í almenn hlutabréf að einu ári liðnu, samkvæmt heimildum Innherja. Á meðal þriggja langsamlega stærstu lífeyrissjóða landsins – LSR, LIVE og Gildis – er LSR fyrsti sjóðurinn sem kemur að fjármögnun á Alvotech en það er í dag orðið verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni. Innherji 29.12.2022 10:31
Arctic Therapeutics fær tæplega tveggja milljarða króna fjármögnun Íslenska erfða- og líftæknifyrirtækið Arctic Therapeutics (AT) hefur tryggt sér 12,5 milljón evra fjármögnun, sem samsvarar rúmlega 1,9 milljarði íslenskra króna, frá Evrópska nýsköpunarráðinu (European Innovation Council, EIC). Innherji 29.12.2022 05:31
Alvotech færist nær því að fá markaðsleyfi fyrir stærsta lyf sitt í Bandaríkjunum Bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) hefur lokið umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir líftæknilyfjahliðstæðu með útskiptileika við gigtarlyfið Humira í háum styrk, sem er mest selda lyf í heimi, og staðfest að framlögð gögn íslenska félagsins sýni fram á að allar kröfur séu uppfylltar. Veiting markaðsleyfis í Bandaríkjunum er nú háð fullnægjandi niðurstöðu endurúttektar eftirlitsins á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík. Innherji 22.12.2022 09:41
Lífeyrissjóðir farnir að horfa til Alvotech eftir 1,6 milljarða kaup á víkjandi bréfum Að minnsta kosti þrír íslenskir lífeyrissjóðir komu að fjármögnun á líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech í liðinni viku með kaupum á skuldabréfum fyrir tæplega tvo milljarða sem eru breytanleg í almenn hlutabréf að rúmlega einu ári liðnu. Áður hafði Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, sem var jafnframt í hópi þeirra sjóða sem tóku þátt í nýafstöðnu skuldabréfaútboði, fram að því verið eini lífeyrissjóðurinn hér á landi sem hafði fjárfest í eigin nafni í Alvotech. Innherji 20.12.2022 10:34
Algalíf skráð á markað eftir tvö ár Líftæknifyrirtækið Algalíf stefnir á skráningu á markað 2025. Þá var Baldur Stefánsson, framkvæmdastjóri og einn eiganda ráðgjafafyrirtækisins Hamrar Capital Partners, kjörinn stjórnarformaður Algalífs. Innherji 16.12.2022 13:47
Róbert Wessman sest í stól forstjóra Alvotech Róbert Wessman, stjórnarformaður og stofnandi Alvotech, mun taka við starfi forstjóra félagsins eftir að Mark Levick forstjóri ákvað að biðjast lausnar. Viðskipti innlent 2.12.2022 07:05
Skapa 500 störf og 12 milljarða úr smáræði af fiskroði Uppgangur líftæknifyrirtækisins Kerecis á Ísafirði hefur verið ævintýralegur. Fyrirtækið framleiðir einstaklega græðandi umbúðir úr þorskroði sem oft á tíðum kemur í veg fyrir að aflima þurfi fólk. Verðmæti afurðanna er meira en alls sjávarfangs á Vestfjörðum að frátöldu fiskeldi. Viðskipti innlent 30.11.2022 20:13
Genís klárar 2,4 milljarða króna hlutafjáraukningu Íslenska líftæknifyrirtækið Genís sem hefur um tveggja áratuga skeið unnið að rannsóknum og þróun á lífvirkum kítínfásykrum til notkunar í fæðubótarefnum, lyfjum og við beinígræðslu hefur lokið fjármögnun sem felur í sér hlutafjáraukningu að fjárhæð 2,4 milljarðar króna. Innherji 30.11.2022 08:28
Berglind Rán frá Orku náttúrunnar til ORF Líftækni Berglind Rán Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstjóri ORF Líftækni. Hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar. Viðskipti innlent 21.10.2022 14:16
Oculis fær tólf milljarða innspýtingu og setur stefnuna á Nasdaq Lyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem var stofnað af íslenskum prófessorum við Háskóla Íslands og Landspítalann, hefur tryggt sér að lágmarki um 80 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 12 milljarða króna, í nýtt hlutafé í tengslum við áformaða skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum á næsta ári. Stærsti fjárfestingarsjóður Evrópu á sviði lífvísinda leggur félaginu til meginþorra fjármagnsins. Innherji 17.10.2022 13:07
Alvotech ræður Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóra gæðaeftirlits Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur ráðið Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóri gæðaeftirlits hjá Alvotech en hún tekur við af Reem Malki, sem beðist hefur lausnar af persónulegum ástæðum. Sarah Tanksley mun hefja störf þann 14. október næstkomandi. Viðskipti innlent 12.10.2022 13:57
Íslenskir sjóðir fjárfestu í Alvotech fyrir á fimmta milljarð Fjögur stærstu íslensku sjóðastýringarfélögin fjárfestu í Alvotech fyrir samtals vel yfir fjóra milljarða króna í aðdraganda þess að líftæknilyfjafyrirtækið var skráð á markað hér heima og í Bandaríkjunum í júní síðastliðnum. Sjóðir opnir almennum fjárfestum í rekstri Íslandssjóða, dótturfélagi Íslandsbanka, voru þar umsvifamestir. Innherji 5.10.2022 08:08
Stoðir með yfir 40 prósenta hlut í kaupum fjárfesta á Algalíf Fjárfestingafélagið Stoðir verður stærsti einstaki hluthafi Algalífs á Reykjanesi, með á bilinu 40 til 45 prósenta eignarhlut, miðað við áætlanir hóps innlendra fjárfesta sem eru á lokametrunum með að kaupa allt hlutafé íslenska líftæknifyrirtækisins. Innherji 8.9.2022 07:01
Halda sínu striki og stefna á að leysa úr athugasemdum FDA Íslenska líftæknifyrirtækið Alvotech tilkynnti í dag um samskipti við Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, sem varða úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík, í kjölfar leyfisumsóknar Alvotech fyrir líftæknilyfjahliðstæðuna AVT02. Viðskipti innlent 5.9.2022 16:35
Alvotech stefnir á aðalmarkað Stjórn Alvotech hefur samþykkt áætlun um að undirbúa skráningu félagsins á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi. Viðskipti innlent 12.8.2022 08:37
Stoðir og hópur fjárfesta í viðræðum um kaup á Algalíf fyrir yfir 15 milljarða Fjárfestingafélagið Stoðir og framtakssjóður í rekstri Alfa Framtaks fara fyrir hópi innlendra fjárfesta sem eru langt komnir í viðræðum um kaup á íslenska líftæknifyrirtækinu Algalíf á Reykjanesi. Vonir standa til að viðskiptin geti klárast síðla sumars eða næstkomandi haust. Innherji 13.7.2022 21:53
DNB mælir með kaupum í Alvotech og verðmetur félagið á 700 milljarða Hlutafé íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem var skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi í liðnum mánuði, er metið á rúmlega 5,1 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 700 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi, samkvæmt nýju verðmati. Innherji 7.7.2022 16:01
Róbert hringir lokabjöllunni í tilefni skráningar Alvotech Hlutabréf Alvotech voru tekin til viðskipta í Nasdaq First North Growth markaðnum í morgun. Í tilefni af því mun Róbert Wessmann, stofnandi og stjórnarformaður félagsins, hringja lokabjöllu kauphallarinnar við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum félagsins. Viðskipti innlent 23.6.2022 14:46
Viðskipti með bréf Alvotech hafin á Íslandi Hlutabréf Alvotech verða tekin til viðskipta á Nasdaq First North Growth markaðnum í Reykjavík í dag. Félagið var skráð á markað í Bandaríkjunum fyrir viku síðan en um er að ræða fyrsta félagið sem skráð er á markað hér á landi og vestanhafs samtímis. Viðskipti innlent 23.6.2022 10:09
Hlutur Róberts metinn á um 226 milljarða króna Alvotech, líftæknifyrirtæki Róberts Wessman var í dag skráð á markað í Bandaríkjunum aðeins tíu árum eftir stofnun. Þá er fyrsta lyf fyrirtækisins nú komið í dreifingu í Kanada og Evrópu eftir að dómssátt náðist um leyfismál. Viðskipti innlent 16.6.2022 20:01
Stærsta stund ferilsins í dag Alvotech, líftæknifyrirtæki Róberts Wessmann, verður skráð á markað í Bandaríkjunum í dag. Fyrirtækið verður það fyrsta íslenska sem skráð er á markað í Bandaríkjunum og á Íslandi - og þá er þetta í fyrsta sinn í rúm tuttugu ár sem íslenskt fyrirtæki er skráð í bandarísku kauphöllina. Viðskipti innlent 16.6.2022 13:16
Hefur „óbilandi trú“ á Alvotech þótt aðstæður á markaði séu erfiðar Hlutabréf íslenska fyrirtækisins Alvotech, sem hefur unnið að þróun líftæknilyfja frá stofnun þess fyrir um áratug og kostað til um einum milljarði Bandaríkjadala, jafnvirði yfir 130 milljarða króna, verða tekin til viðskipta í NASDAQ kauphöllinni, stærsta hlutabréfamarkaði heims, í New York eftir hádegi í dag. Alvotech verður með því eina íslenska félagið sem er á bandarískum hlutabréfamarkaði. Innherji 16.6.2022 06:00
Samþykkja samruna Oaktree og Alvotech og skráning boðuð í næstu viku Mikill meirihluti hluthafa sérhæfða yfirtökufélagsins Oaktree Acquisition Corp. II samþykkti fyrr í kvöld öfugan samruna við íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum, og að hlutabréf Alvotech verði tekin til viðskipta á Nasdaq markaðnum í New York daginn eftir. Innherji 7.6.2022 23:50
Samþykktu samruna Alvotech og Oaktree Hluthafafundur í sérhæfða yfirtökufélaginu Oaktree Acquisition Corp. II samþykkti í dag samruna við Alvotech S.A. og Alvotech. Gert er ráð fyrir að samrunanum ljúki formlega 15. júní, að öllum öðrum skilyrðum uppfylltum. Þá verður Alvotech skráð á markað í Bandaríkjunum þann 16. júní. Viðskipti innlent 7.6.2022 23:37
Hækkar verðmatið á Alvotech í 630 milljarða rétt fyrir skráningu á markað Heildarvirði íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem verður skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi síðar í þessum mánuði, er metið á um 4,95 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 630 milljarða króna, í uppfærðu verðmati bandaríska fjárfestingabankans Nortland Capital á félaginu. Innherji 3.6.2022 07:57
Bein útsending: Framtíð líftækni á Íslandi Alvotech og Háskóli Íslands standa fyrir þriðja fundinum í fyrirlestraröðinni „Framtíð nýsköpunar“ milli klukkan 14 og 16 í dag. Fundurinn fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og verður hægt að fylgjast með honum í streymi í spilara að neðan. Viðskipti innlent 27.4.2022 13:31
Tryggir sér 32 milljarða fjármögnun til að mæta mögulegum innlausnum fjárfesta Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, sem undirbýr nú tvíhliða skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og Íslandi sem verður að óbreyttu í næsta mánuði, hefur gengið frá samkomulagi við tvo bandaríska fjárfestingasjóði sem tryggir félaginu aðgang að fjármögnun fyrir allt að 250 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 32 milljarða íslenskra króna. Innherji 20.4.2022 16:30