Fíkniefnabrot
1 2 3 4 5 6 7 … 13 ›
Hlé vegna gagna frá ChatGPT Gera þurfti stutt hlé á aðalmeðferð í þætti Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun eftir að verjandi Péturs Jökuls lagði fram ný gögn í málinu. Gögnin voru fengin af gervigreindarsíðunni ChatGPT. Innlent 16.8.2024 09:34
Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson hefur verið dæmdur til að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir að aka án ökuleyfis og undir áhrifum. Þetta er í annað sinn sem Gísli Pálmi er gripinn við akstur undir áhrifum á hálfu ári. Innlent 14.8.2024 12:30
Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Lögreglufulltrúi segir Sverri Þór Gunnarsson, betur þekktan sem Svedda tönn, hafa rætt um fíkniefnaviðskipti við notanda sem lögregla telur ljóst að sé Pétur Jökull Jónasson. Pétur Jökull sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu sem kom upp sumarið 2022. Lögreglufulltrúinn kafaði ofan í samskipti Sverris Þórs á Signal. Innlent 13.8.2024 21:00
Svipaður hlátur á öllum upptökunum Sérfræðingur í raddbeitingu við Háskólann í Árósum segir ýmislegt benda til þess að rödd Péturs Jökuls Jónassonar sé sú sem heyrist á upptöku sem er meðal helstu sönnunargagna lögreglu í stóra kókaínmálinu. Þetta kom fram við aðalmeðferð á þætti Péturs Jökuls Jónassonar í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 13.8.2024 13:45
Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Lögreglufulltrúar sem rannsökuðu stóra kókaínmálið lýstu því fyrir dómi í morgun að sakborningar hefðu endurtekið skipt út símum og breytt um notendanöfn í þeim tilgangi að hylja slóð sína við innflutninginn. Þeir komust á sporið í málinu við rannsókn á saltdreifaramálinu svokallaða vegna tengingar milli aðila í því máli og stóra kókaínmálinu. Innlent 13.8.2024 12:35
Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Karlmaður á fertugsaldri sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps og aðild að umfangsmiklu fíkniefnamáli neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann játaði þó vopna- og fíkniefnalagabrot í málinu. Innlent 12.8.2024 14:17
Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Daði Björnsson, sem hlaut fimm ára fangelsi fyrir aðild sína að stóra kókaínmálinu árið 2022, neitaði því að Pétur Jökull Jónasson væri sá Pétur sem hann hefði hitt, rætt við í síma og gefið útlitslýsingu sem passaði við umræddan Pétur Jökul. Hann sagðist aðspurður ekki óttast neinn í tengslum við málið. Innlent 12.8.2024 11:03
Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Pétur Jökull Jónasson, sakborningur í stóra kókaínmálinu, kom af fjöllum þegar saksóknari spurði hann út í ýmis gögn sem virðast tengja hann við skipulagningu innflutnings á miklu magni kókaíns frá Brasilíu til Íslands. Hann neitar alfarið sök í málinu. Innlent 12.8.2024 10:35
Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Pétur Jökull Jónasson sem sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu svokallaða kemur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag þar sem aðalmeðferð í máli hans fer fram. Fjórir hafa þegar hlotið dóma í málinu. Innlent 12.8.2024 09:21
Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Engin fíkniefni reyndust vera um borð í bát sem lögreglan á Suðurlandi var með til rannsóknar. Grunur um saknæmt athæfi í tengslum við fíkniefni kom upp við tollaeftirlit í gær, eftir að báturinn kom til Hafnar í Hornafirði frá Færeyjum. Innlent 9.8.2024 15:55
Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Lögreglufulltrúi hjá miðlægri rannsóknardeild segir enn til skoðunar hvort nokkuð refsivert hafi átt sér stað í tengslum við komu báts frá Færeyjum til Hafnar í Hornafirði í gær. Tveir voru yfirheyrðir vegna málsins í gær. Innlent 9.8.2024 14:54
Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Umfangsmikil lögregluaðgerð í Höfn í Hornafirði í gær beindist að bát sem siglir undir sænskum fána. Um er að ræða hraðskreiðan skemmtibát sem kom til Hafnar frá Færeyjum. Innlent 9.8.2024 12:06
Þekkir sjúkdóminn sem dró barnabarnið til dauða af eigin raun Sigurður Gunnsteinsson tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í ár þar sem hann hyggst hlaupa hálfmaraþon og safna áheitum fyrir SÁÁ í minningu sonardóttur sinnar, sem lést aðeins 26 ára gömul úr fíknisjúkdómi. Sigurður mun hlaupa í bol með mynd af sonardóttur sinni, hefur sjálfur farið í meðferð og þekkir baráttuna við sjúkdóminn af eigin raun. Lífið 8.8.2024 09:51
Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Kona sem var ein á ferð ásamt tólf ára syni sínum var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði grunuð um innflutning fíkniefna til landsins frá Spáni. Innlent 2.8.2024 15:21
Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Karlmaður á fertugsaldri, sem er einn sakborninga í stórfelldu fíkniefnamáli, sem kennt hefur verið við potta og skemmtiferðaskip, er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Honum er gefið að sök að hafa tekið annan mann kyrkingartaki, eins og segir í ákæru, og þrengt að öndunarvegi hans í að minnsta kosti sjö mínútur. Innlent 2.8.2024 11:49
Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á umtalsvert magn af fíkniefnum og teygir málið anga sína víða. Yfirlögregluþjónn segir talsvert magn fíkniefna í umferð og sala þeirra fari fram fyrir opnum tjöldum á samfélagsmiðlum. Fimm manns eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Innlent 26.7.2024 12:05
Margt sem kann að skýra fjölgun tilkynninga til barnaverndar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur áhyggjur af þróun í samfélaginu hvað lýtur að ofbeldi og vímuefnaneyslu barna- og unglinga. Það séu þó margir samverkandi þættir sem kunni að skýra fjölgun tilkynninga til barnaverndar og erfitt að leggja mat á raunverulega aukningu áhættuhegðunar barna. Innlent 25.7.2024 12:22
Fundu talsvert magn fíkniefna Karl og kona voru handtekin og færð til yfirheyrslu í gær vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna. Lögregla kannaði málið vegna maríjúanalyktar. Innlent 20.7.2024 08:32
Ákærð vegna amfetamínsbasa í áfengisflöskum og snyrtivörum Þrír karlmenn og ein kona hafa verið ákærð fyrir innflutning á samtals 6,8 lítrum af amfetamínbasa sem er talin hafa verið ætlaður til söludreifingar hér á landi. Innlent 19.7.2024 07:00
Grunaðir um kókaíninnflutning í gegnum kaffikönnu og útvarp Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot vegna innflutnings á kókaíni sem var falið annars vegar í kaffikönnu og hins vegar í útvarpstæki. Innlent 18.7.2024 10:42
Lögregla látin skila milljónum sem dómurinn telur líklega illa fengið fé Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf að láta af hendi 7,13 milljónir króna í reiðufé sem hún lagði hald á árið 2021 í tengslum við rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi. Maður, sem er eigandi peninganna, er ásamt öðrum grunaður í máli sem varðar innflutning, framleiðslu og dreifingu fíkniefna, sem og ýmis auðgunarbrot, stórfelldan þjófnað og peningaþvætti. Innlent 13.7.2024 14:10
Telja sig vera með höfuðpaur fíknefnahóps í haldi Maður sem lögregla telur að sé höfuðpaur hóps sem er grunaður um innflutning og sölu fíkniefna hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þangað til í ágúst, en hann hefur verið í haldi síðan um miðjan apríl. Innlent 9.7.2024 17:04
Myndband með jólalagi lykilsönnunargagn í fíkniefnamáli Adam Benito Pedie hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot. Hann var ákærður fyrir að standa í innflutningi á fíkniefnum til Íslands í lok síðasta árs og upphafi þessa árs. Innlent 8.7.2024 08:41
Dæmdar tæplega fimmtíu milljónir fjórtán árum eftir handtökuna Guðmundur Gunnlaugsson lagði íslenska ríkið í gær sem þarf að greiða honum 47,8 milljónir króna í bætur vegna handtöku og gæsluvarðhalds sem hann sætti árið 2010. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, en 26,3 milljónir sem Guðmundur hefur þegar fengið í bætur verða dregnar frá bótaupphæðinni. Innlent 5.7.2024 11:45
Handtóku fjóra eftir að kókaín var sótt á pósthús Fjórir karlmenn og ein kona sæta ákæru fyrir innflutning á tveimur kílóum af kókaíni. Sá sem talinn er lykilmaður í málinu fékk minni spámenn til að sækja fíkniefnin fyrir sig en var að endingu handtekinn eins og sendlarnir. Innlent 2.7.2024 15:08
Nokkrir sakborninganna hafi komið við sögu lögreglu áður Hópur sakborning í umfangsmiklu máli sem snýr að skipulagðri brotastarfsemi samanstandur af konum og körlum á ýmsum aldri. Ætla má að brot fólksins hafi staðið yfir í nokkur ár. Innlent 25.6.2024 19:28
Efnin í skemmtiferðaskipinu falin í eldhúspottum Fjórir íslenskir karlmenn hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því í lok apríl, grunaðir um aðild að skipulagðri brotastarfsemi, innflutningi, sölu og dreifingu á fíkniefnum hér á landi um langt skeið, peningaþvætti og vopnalagabrotum. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru fíkniniefni flutt til landsins með skemmtiferðaskipi, falin í eldhúspottum. Innlent 25.6.2024 11:57
Handtóku á þriðja tug manna og lögðu hald á 40 milljónir króna og fjölda skotvopna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á samtals rúmlega sex kíló af kókaíni og amfetamíni í umfangsmiklu máli sem hefur verið til rannsóknar hjá embættinu um nokkurt skeið. Lögregla lagði einnig hald á 40 milljónir króna í reiðufé, fjölda skotvopna og peningatalningavélar. Innlent 25.6.2024 10:43
Máli Péturs Jökuls vísað frá Máli Péturs Jökuls Jónassonar, sakbornings í stóra kókaínmálinu, hefur verið vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Héraðssaksóknari hefur kært þá niðurstöðu til Landsréttar. Innlent 20.6.2024 11:09
Ungt burðardýr hlaut vægari dóm í Landsrétti Landsréttur hefur mildað dóm Edas Geraitis, 24 ára litáísks karlmanns, úr fimm ára fangelsisvist í fjögurra. Hann var sakfelldur fyrir að flytja inn ríflega fimm kíló af kókaíni til landsins árið 2022. Innlent 9.6.2024 20:20