Vegagerð

Fréttamynd

Birta um­hverfis­mat vegna Sunda­brautar fyrir lok þessa mánaðar

HMS stefnir á að birta álit sitt á umhverfismati vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar. Vegna umræðu um tafir sem orðið hafa á umhverfismati Sundabrautar vill HMS árétta að tímarammi umhverfismatsins er á forræði framkvæmdaraðila. Framvinda málsins ræðst af því hvenær hann leggur fram gögn til yfirferðar HMS.

Innlent
Fréttamynd

Ó­sáttur í bíla­lest á Suður­lands­vegi

Vegagerðin stýrir umferð á Suðurlandsvegi við Hólmsá rétt fyrir utan Reykjavík vegna vegaframkvæmda. Ökumaður er verulega ósáttur við að sitja fastur í umferð og telur verk sem þessi mega vinna í næturvinnu.

Innlent
Fréttamynd

Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík

Samgöngusáttmáli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er í algleymingi í stefnum flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík, ýmist stuðningur við sáttmálann, andstaða eða tillögur að endurskoðun hluta hans. Vísir tók saman stefnu flokkanna í málaflokknum en áhersla á bílastæði fer þar mikinn.

Innlent
Fréttamynd

Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár

Stefnt er á að kjarnaborunum - í tengslum við jarðgangagerð til Vestmannaeyja - ljúki í lok árs. Framkvæmdastjóri Eyjaganga er ekki í vafa um að göngin séu arðbær og segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að keyra á milli lands og eyja eftir tíu ár.

Innlent
Fréttamynd

Hættum beit í bænum

Í Hafnarfirði eru tvö beitarhólf – annars vegar á Krýsuvíkurheiði sunnan Suðurstrandarvegar, liðlega12 km2, og hins vegar á sveitarfélagamörkum Hafnarfjarðar og Grindavíkur sunnarlega í Sveifluhálsi, um þrisvar sinnum stærra eða liðlega 35 km2.

Skoðun
Fréttamynd

Tvö­faldur verð­munur á Súðavíkurgöngum

Tólf til fjórtán milljörðum króna munar í kostnaði eftir því hvaða leið verður valin fyrir jarðgöng milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Nokkrir valkostir hafa verið til skoðunar um hvar göngin eigi að liggja. Í tillögu að nýrri samgönguáætlun eru þau í öðru til þriðja sæti ásamt Fjarðagöngum fyrir austan en á eftir Fljótagöngum.

Innlent
Fréttamynd

Bjóða út fram­kvæmdir vegna Sæbrautarstokks

Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk. Framkvæmdum á samkvæmt útboði að vera lokið í nóvember á þessu ári. Tilboðum á að skila fyrir miðjan apríl. Ofan á stokknum er gert ráð fyrir nýjum almenningsgarði.

Innlent
Fréttamynd

Glæsibrú á Vest­fjörðum boðin út í næsta mánuði

Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Dælan anni ekki vatns­magni

Reykjavíkurborg skoðar úrbætur á nýjum undirgöngum undir Breiðholtsbraut við Suðurfell og Jaðarsfell. Ítrekað hefur myndast þar mikill vatnselgur og hafa íbúar haft orð á því á hverfissíðu Breiðhyltinga.

Innlent
Fréttamynd

Mikil­vægast með jarð­göngum að losna við hættu­legustu vegi

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla.

Innlent
Fréttamynd

Gagnheiðargöng verði sátta­leið Aust­firðinga

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

„Erum við ekki að fara að­eins fram úr okkur“

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“

Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp.

Innlent