Spænski boltinn
243 244 245 246 247 248 249 250 251 … 268 ›
Riquelme lánaður til heimalandsins Forseti Boca Juniors í Argentínu segir að félagið sé búið að gera fjögurra mánaða lánssamning við leikstjórnandann Juan Roman Riquelme hjá Villarreal og muni greiða spænska félaginu hátt í tvær milljónir evra fyrir. Riquelme hefur verið úti í kuldanum hjá Villarreal á leiktíðinni eftir deilur við þjálfara sinn. Fótbolti 8.2.2007 14:43
Real og Barcelona ríkustu félögin Real Madrid er komið aftur í efsta sæti yfir ríkustu knattspyrnufélög Evrópu og erkifjendurnir Barcelona sitja í öðru sætinu. Þetta er niðurstaða ítarlegrar könnunar sem gerð hefur verið og sýnir 20 ríkustu félagslið í Evrópu. Fótbolti 8.2.2007 14:27
Capello skammaður fyrir að hrósa öfgasinnuðum stuðningsmönnum Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, var tekinn inn á teppi hjá stjórn félagsins í dag þar sem hann var skammaður fyrir að hafa hrósað öfgasinnuðum stuðningsmönnum liðsins, Ultras Sur, fyrir stuðninginn í háðlegu tapi Real fyrir Levante á dögunum. Fótbolti 7.2.2007 16:28
Ayala fer til Villarreal í sumar Argentínumaðurinn Roberto Ayala gengur í raðir Villarreal frá Valencia í sumar og hefur gegngið frá þriggja ára samningi. Hann er 33 ára gamall og þarf einn landsleik til við bótar til að verða landsleikjahæsti leikmaður Argentínu frá upphafi. Ayala hefur verið kjölfestan í sigursælu liði Valencia um árabil, en flytur sig nú um set til smáliðsins í grennd við Valencia. Fótbolti 7.2.2007 15:39
Við getum ekki haldið í Torres Staðan á framherjanum magnaða Fernando Torres hjá Atletico Madrid verður æ skringilegri með hverjum deginum, en nú nokkrum dögum eftir að leikmaðurinn lýsti því yfir að hann vildi alls ekki fara frá félaginu - hefur yfirmaður liðsins nú komið fram og sagt að félagið eigi ekki möguleika á að halda honum í sínum röðum lengur. Fótbolti 6.2.2007 20:17
Barcelona: Við höfum efni á Ronaldo Ferran Soriano, varaforseti Barcelona, segir að félagið hafi vel efni á því að kaupa Portúgalann Cristiano Ronaldo frá Manchester United, ekkert sé því til fyrirstöðu ef þjálfarinn Frank Rijkaard hafi áhuga á því og ef verðmiðinn flokkist undir "almenna skynsemi." Fótbolti 6.2.2007 20:04
Guti: Beckham á að spila Miðjumaðurinn Guti hjá Real Madrid segir að leikmaður á borð við David Beckham eigi að vera inni á vellinum að spila með liðinu í stað þess að húka uppi í stúku og fullyrðir að hann tali fyrir munn allra leikmanna Real í þessu sambandi. Fótbolti 6.2.2007 14:16
Eto´o: Næ ekki fullum styrk fyrr en eftir eitt ár Kamerúninn Samuel Eto´o sneri aftur úr meiðslum með liði Barcelona í gær þegar hann lék síðustu fimm mínúturnar í daufu jafntefli Börsunga við Osasuna. Spænskir fjölmiðlar spá því að hann verði jafnvel í byrjunarliði Barcelona í næsta leik þegar meistararnir mæta Santander næsta laugardag, en leikmaðurinn segir sig eiga langt í land með að ná bata. Fótbolti 5.2.2007 15:03
Capello ætlar að halda ótrauður áfram Ítalski þjálfarinn Fabio Capello hjá Real Madrid ætlar ekki að láta niðurlægjandi tap liðsins gegn Levante í gær hafa áhrif á sig og segist fullviss um að liðið geti náð að gera fína hluti í vor. Tap Real í gær var hið fjórða í síðustu fimm leikjum og stuðningsmenn Real létu vel í sér heyra eftir vonbrigðin í gær. Fótbolti 5.2.2007 14:45
Forseti Barcelona hefur ekki áhyggjur af Saviola Joan Laporta, forseti Barcelona, segist ekki hafa áhyggjur af því hvort Argentínumaðurinn Javier Saviola fari frá félaginu í sumar eða ekki, en bætir því við að hann sé afar ánægður með frammistöðu hans í undanförnum leikjum. Fótbolti 1.2.2007 14:35
Torres: Ég hefði auðveldlega geta farið til Chelsea Framherjinn Fernando "El Nino" Torres hjá Atletico Madrid segir að hann hefði auðveldlega geta gengið í raðir Chelsea í janúarglugganum ef sig hefði langað að fara frá uppeldisfélagi sínu á Spáni. Það hafi hinsvegar ekki komið til greina fyrir sig. Fótbolti 1.2.2007 14:29
Xavi staðfestir áhuga Manchester United Miðjumaðurinn knái Xavi hjá Barcelona hefur staðfest að Manchester United hafi verið í reglulegu sambandi við umboðsmann sinn. Hann tekur það fram að hann sé samningsbundinn Barcelona og ítrekar að ef United hafi raunverulegan áhuga, verði félagið að setja sig í samband við forráðamenn Barcelona. Fótbolti 31.1.2007 14:29
Eiður markalaus í 455 mínútur Útlitið er ekkert alltof bjart fyrir okkar mann hjá Barcelona. Eiður Smári hefur ekki skorað í síðustu átta leikjum sínum, á sama tíma hefur Javier Saviola skorað 8 mörk og samkeppnin er jafnframt að harðna. Fótbolti 30.1.2007 23:43
Framtíð Saviola ennþá óljós Yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona er ekki að flýta sér að bjóða Argentínumanninum Javier Saviola nýjan samning hjá félaginu þrátt fyrir að framherjinn hafi staðið sig einstaklega vel í síðustu leikjum liðsins. Fótbolti 29.1.2007 12:37
Barcelona aftur á toppinn eftir sigur gegn Celta Barcelona er á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Celta Vigo í kvöld þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en skammt var eftir af leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í lið Barcelona þegar tæpar 10 mínútur voru eftir. Fótbolti 28.1.2007 19:50
Eiður Smári byrjar á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona sem tekur á móti Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Argentínumaðurinn Javier Saviola byrjar inn á hjá meisturunum í þriðja leiknum í röð. Leikurinn hófst nú kl. 18 og er í beinni útsendingu á Sýn. Fótbolti 28.1.2007 18:09
Frank Rijkaard: Látið Ronaldinho í friði Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, hefur skipað fjölmiðlum á Spáni að láta Ronaldinho í friði, en brasilíski snillingurinn hefur verið harðlega gagnrýndur að undanförnu fyrir slaka frammistöðu. Rijkaard segir það ekki einum leikmanni að kenna að Barcelona sé ekki að spila eins það best getur. Fótbolti 28.1.2007 13:08
Eiður Smári: Saviola á tækifærið skilið Eiður Smári Guðjohnsen segist ekki vera bitur út í þjálfara sinn Frank Rijkaard fyrir að hafa tekið Javier Saviola fram yfir sig í síðustu leikjum Barcelona. Eiður Smári segir í ítarlegu viðtali við spænska dagblaðið Marca að það sé eðlilegt að Saviola sé tekinn fram yfir sig eins og hann er að spila um þessar mundir. Fótbolti 27.1.2007 22:59
Real tapaði fyrir Villareal Real Madrid mátti þola 1-0 tap fyrir Villareal í öðrum af tveimur leikjum kvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta og mistakast þannig að komast á topp deildarinnar um stundarsakir. Í hinum leik kvöldsins skildu Atletico Madrid og Racing Santanter jöfn, 1-1. Fótbolti 27.1.2007 23:02
Juventus býður Saviola samning Juventus hefur boðið argentínska sóknarmanninnum Javier Saviola fimm ára samning en núverandi samningur Saviola við Barcelona rennur út í sumar. Saviola stendur frammi fyrir erfiðu vali þar sem hann hefur átt fast sæti í liði Spánar- og Evrópumeistaranna að undanförnu. Fótbolti 27.1.2007 19:20
Beckham gæti spilað fyrir Real Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, hefur dregið úr þeim ummælum sem hann lét falla fyrir nokkrum vikum um að David Beckham myndi ekki spila aftur fyrir félagið þar sem hann hefur samið við LA Galaxy í Bandaríkjunum. Capello segir nú að ef Beckham sé í góðu formi og sýni rétt viðhorf eigi hann möguleika á að komast í liðið. Fótbolti 27.1.2007 13:43
Ronaldinho upp með sér yfir áhuga Chelsea Brasilíski snillingurinn Ronaldinho segist upp með sér yfir þeim áhuga sem fullyrt er að Chelsea og AC Milan hafi á því að fá hann í sínar raðir, en segist staðráðinn í að vera áfram hjá Barcelona þar sem hann ætli sér að vinna fleiri titla. Fótbolti 25.1.2007 20:29
Nistelrooy hefur ekkert á móti Ronaldo Ruud Van Nistelrooy segir að hann hafi ekkert á móti fyrrum félaga sínum Cristiano Ronaldo hjá Manchester United, en langlífar vangaveltur fjölmiðla um að Real ætli sér að kaupa Portúgalann urðu til þess að blaðamenn rifjuðu upp deilur sem komu upp milli þeirra félaga á sínum tíma. Fótbolti 25.1.2007 15:52
Tomasson lánaður til Villarreal Spænska liðið Villarreal gekk í dag frá lánssamningi við danska framherjann Joh Dahl Tomasson frá þýska liðinu Stuttgart. Tomasson, sem er af íslensku bergi brotinn, verður hjá spænska liðinu út leiktíðina. Fótbolti 24.1.2007 20:22
Barcelona varð að sætta sig við jafntefli Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Barcelona urðu að sætta sig við eitt stig í kvöld þegar liðið mætti Betis á útivelli í leik sem frestað var í haust. Heimamenn komust yfir undir lok fyrri hálfleiks en Rafael Marquez tryggði Barcelona stig með góðu marki á 61. mínútu. Fótbolti 24.1.2007 21:59
Eiður á bekknum gegn Betis Nú er leikur Real Betis og Barcelona í spænsku deildinni kominn í gang og er hann sýndur beint á Sýn Extra. Þetta er frestaður leikur síðan Barcelona tók þátt í HM félagsliða í haust. Eiður Smári er á varamannabekk Barcelona að þessu sinni. Fótbolti 24.1.2007 20:04
Ronaldo fer ekki frítt Spænska félagið Real Madrid segir það alveg ljóst að brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo fari ekki frá félaginu nú í janúar án þess að það fái greiðslu fyrir. Ronaldo hefur verið orðaður sterklega við ítalska liðið AC Milan. Fótbolti 22.1.2007 22:19
Real Madrid í þriðja sæti Real Madrid komst í kvöld í þriðja sætið í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu með mikilvægum 1-0 sigri á Mallorca. Það var Jose Antonio Reyes sem skoraði sigurmark Real beint úr aukaspyrnu undir lok leiksins. Barcelona, Sevilla og Real Madrid hafa nú öll 38 stig í efstu þremur sætum deildarinnar en meistararnir í Barcelona eiga leik til góða. Fótbolti 21.1.2007 21:54
Barcelona lagði Tarragona Barcelona skellti sér á toppinn í spænsku deildinni í kvöld þegar liðið vann tilþrifalítinn en sannfærandi 3-0 sigur á botnliði Tarragona. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn sem varamaður á 65. mínútu og átti þátt í tveimur síðustu mörkum liðsins. Barcelona og Sevilla eru efst og jöfn í deildinni með 38 stig en Barca á leik til góða, líkt og Real Madrid sem getur komist í þennan hóp með sigri á Mallorca i kvöld. Fótbolti 21.1.2007 19:59
Luku leik með sjö leikmönnum Fjórir leikmenn Osasuna fengu að líta rauða spjaldið þegar liðið heimsótti Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Osasuna er eina liðið í spænsku efstu deildinni sem lýkur leik með 7 leikmenn inni á vellinum á síðustu 10 keppnistímabilum. Fótbolti 21.1.2007 14:13