Ástin á götunni

Framkvæmdastjórinn um ákvörðun KA að selja Nökkva Þey: „Mjög erfið en samt í raun ekki“
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, segir það markmið KA að koma leikmönnum út í atvinnumennsku. Það sé því í raun erfið ákvörðun, en samt ekki, að leyfa Nökkva Má Þórissyni að fara til belgíska B-deildarliðsins Beerschot.

„Ömurleg byrjun sem varð okkur að falli“
Hinn tvítugi sóknarmaður ÍA, Eyþór Wöhler skoraði 2 mörk í annað sinn á móti KR á þessu tímabili. Báðir leikir liðanna hafa verið hádramatískir og alls fjórtán mörk skoruð í þeim.

Erfitt að gagnrýna menn fyrir að klúðra vítaspyrnu
„Við segjum bara hlutina eins og þeir eru, þetta voru tvö kjörin tækifæri til að klára leikinn. Við ætlum greinilega ekki auðveldu leiðina í þessu,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen þjálfari FH eftir að hans menn gerðu markalaust jafntefli við Leikni í Bestu deildinni. FH misnotaði tvær vítaspyrnur í leiknum.

Logi heppinn að ekki fór verr: Sjáðu rauða spjaldið
Markvörðurinn Jón Kristinn Elíasson fékk rautt spjald í sínum fyrsta leik í Bestu deild karla er ÍBV heimsótti Íslandsmeistara Víkings. Jón Kristinn hljóp af öllu afli inn í Loga Tómasson sem þurfti að yfirgefa völlinn í kjölfarið.

Leik Fram og KA frestað um klukkustund
Leikur Fram og KA í Bestu deild karla í fótbolta átti að hefjast klukkan 17.00 en honum hefur nú verið frestað um klukkustund eða til 18.00.

Þróttur Reykjavik upp í Lengjudeildina
Þróttur Reykjavík er komið upp í Lengjudeild karla í fótbolta eftir eitt tímabil í 2. deild. Sætið var tryggt með 3-0 heimasigri á Haukum fyrr í dag.

Þrjú rauð spjöld og Þórssigur í Vogunum
Þór vann öruggan sigur á föllnum Þrótturum í síðasta leik dagsins í Lengjudeildinni í fótbolta.

Hallgrímur: „Sleikjum sárin og svo bara áfram gakk"
Hallgrímur Jónasson, annar þjálfari KA, var vitanlega svekktur eftir að norðanmenn lutu í lægra haldi fyrir FH í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í Kaplakrika í kvöld.

Davíð Snær: Var staðráðinn í að koma inn með krafti
Daníel Snær Jóhannsson gerði gæfumuninn þegar FH tryggði sér sæti í úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í kvöld. Daníel Snær skoraði markið sem skildi liðin að í 2-1 sigri FH auk þess að ná í vítaspyrnu sem fór reyndar forgörðum.

Umfjöllun: FH - KA 2-1 | FH kom til baka og tryggði sér farseðilinn í bikarúrslit
FH lagði KA að velli með tveimur mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í Kaplakrika í kvöld.

Karl Friðleifur um fagnið: Ég er ekki stoltur af fagninu en það voru tilfinningar í þessu
Víkingur Reykjavík vann 0-3 sigur á Breiðabliki á Kópavogsvelli og mætir annað hvort FH eða KA í úrslitum Mjólkurbikarsins. Karl Friðleifur Gunnarsson, leikmaður Víkings, sagði að markið sitt væri persónulegt gegn sínu gamla liði og tilfinningar höfðu brotist út í fagni hans.

Keimlík mörk er Valur og Fram gerðu jafntefli
Valur og Fram gerðu 1-1 jafntefli í eina leiknum sem fór fram í gær, mánudag, í Bestu deilda karla í fótbolta. Mörk leiksins voru vægast sagt keimlík. Bæði voru skoruð af stuttu færi, bæði komu á sama mark eftir fyrirgjöf frá vinstri og bæði voru skoruð undir lok hvors hálfleiks fyrir sig.

Jón Sveinsson: Svekktur að hafa ekki klárað leikinn
Fram gerði 1-1 jafntefli við Val í Bestu deild karla í kvöld eftir að hafa jafnað metin í blálokin. Jón Sveinsson, þjálfari Fram, var svekktur að hafa ekki náð að klára leikinn.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur 1-1 Fram | Jafntefli á Hlíðarenda
Valur og Fram gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik 19. umferðar Bestu-deildar karla í kvöld. Haukur Páll kom Valsmönnum yfir rétt fyrir hálfleik en Jannik Holmsgaard jafnaði leikinn þremur mínútum fyrir leikslok.

„Við erum aldrei að fara að falla úr þessari deild“
Atli Jónasson, markvörður Leiknis, lék í gær sinn fyrsta leik í efstu deild í 13 ár þegar Leiknir og Breiðablik áttust við í 19. umferð Bestu-deildar karla.

Sjáðu mörkin: Öruggt hjá Blikum, dramatík á Akureyri og í Keflavík, ÍBV kom til baka og ekkert gerðist í Vesturbæ
Alls fóru fimm leikir fram í Bestu deild karla í fótbolta á sunnudag. Það var nóg um að vera, mikið af mörkum, nóg af dramatík og mikil skemmtun á flestum völlum. Hér að neðan má sjá öll mörkin og allt það helsta sem gerðist.

Spilaði síðast í efstu deild 2009 en varði víti gegn toppliðinu á sunnudag
Atli Jónasson stóð óvænt í marki Leiknis Reykjavíkur er liðið heimsótti Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, á sunnudagskvöld. Toppliðið vann vissulega öruggan sigur en Atli, sem var að spila aðeins sinn annan leik í efstu deild, stóð sig með prýði og varði meðal annars vítaspyrnu frá Höskuldi Gunnlaugssyni.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 1-2| Valur bikarmeistari í fjórtánda sinn
Valur varð í dag Mjólkurbikarmeistarar kvenna, en þær léku til úrslita gegn Breiðablik. Þetta var 14. bikarmeistaratitill Vals í kvennaflokki og er liðið það sigursælasta í sögunni.

„Held að pressan sé álíka mikil á báðum liðum“
„Leggst vel í mig, það er alltaf tilhlökkun fyrir þennan leik. Þetta er leikurinn sem allir vilja komast í, stærsti leikur ársins hverju sinni og eðlilega tilhlökkun fyrir slíkum leik,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari bikarmeistara Breiðabliks. Lið hans getur varið titilinn er það mætir Íslandsmeisturum Vals á Laugardalsvelli á laugardag.

Svona virkar úrslitakeppnin: Fjórskipt barátta í lokin
Harkaleg fallbarátta, hnífjöfn keppni um Evrópupeninga og slagurinn um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn er það sem er fram undan í Bestu deild karla í fótbolta nú þegar styttist í fyrstu úrslitakeppnina í sögu efstu deildar á Íslandi.

Markafjörið í efstu deild aldrei meira
Leikmenn hafa raðað inn mörkum sem aldrei fyrr í Bestu deild karla í fótbolta í sumar og útlit fyrir að markamet í tólf liða deild verði slegið.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Selfoss 0-2| Annar sigur Selfyssinga í röð
Selfoss fór á HS Orku-völlinn í Keflavík og vann 0-2 sigur á Keflvíkingum. Brenna Lovera kom Selfossi yfir á þriðju mínútu. Íris Una Þórðardóttir bætti síðan við öðru marki í seinni hálfleik sem innsiglaði sigur gestanna.Þetta var annar sigur Selfyssinga í röð og Keflavík sogast nær fallsvæðinu eftir tap kvöldsins.

Fimm spurningar Stúkunnar: Hver er besti miðvörður Bestu deildar, er KA í titilbaráttu og meira til
Liðurinn „Fimm spurningar“ var á sínum stað í síðasta þætti Stúkunnar er farið var yfir síðustu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Kjartan Atli Kjartansson spurði þá Reyni Leósson og Lárus Orra Sigurðsson spjörunum úr.

Ólafur Davíð: „Við munum vakna til lífsins, bíðið þið bara“
Ólafur Davíð Jóhannesson er enn taplaus eftir að hann tók við stjórnartaumunum hjá Val á nýjan leik fyrr í sumar en liðið gerði jafntefli við Víking í Fossvoginum í Bestu deild karla í fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld.

Arnar Bergmann: „Leggjum pælingar um toppbaráttu tímabundið til hliðar"
Þrátt fyrir að hafa misst niður tveggja marka forystu í rimmu sinni við Val í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld var Arnar Bergmann Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, sáttur við frammistöðu leikmanna sína í leiknum.

Umfjöllun: Víkingur-Valur 2-2 | Draumaúrslit fyrir Blika í leik Víkings og Vals
Víkingur og Valur skildu jöfn, 2-2, þegar liðin mættust í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld. Bæði lið hefðu þurft þrjú stig til þess að saxa á forskot á Breiðablik á toppi deildarinnar.

„Við vissum það að það væri erfitt verkefni að koma hérna og fara með þrjú stig héðan“
„Ég er mjög sáttur. Við vissum það að það væri erfitt verkefni að koma hérna og fara með þrjú stig héðan. Það er mjög gott og við erum á góðu skriði. Þeir eru auðvitað ósigraðir síðan að þeir komu hingað í Úlfarsárdal, þennan glæsilega heimavöll, þannig að ég er bara ánægður,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-0 sigur á Fram í kvöld.

„Ég gleymdi þessu sjálfsmarki um leið“
Bjarki Aðalsteinsson, fyrirliði Leiknis, skoraði sjálfsmark í 4-3 sigri þeirra á KR-ingum. Það skipti hann hins vegar litlu máli eftir leikslok.

Umfjöllun og viðtöl: Fram-Breiðablik 0-2| Blikar fyrstir til að vinna Framara í Úlfarsárdal
Fram tók á móti Breiðabliki í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fram hafði ekki tapað leik á nýjum heimavelli sínum í Úlfarsárdal. Breiðabliki, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, tókst hinsvegar að breyta því og vann 2-0.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: FH-Keflavík 3-0| Endurreisn FH hófst á sigri
Fyrir leikinn blésu FH-ingar í herlúðra. Boðið var meðal annars frítt á völlinn og var þetta leikurinn sem FH átti að snúa blaðinu við. Keflavík missti mann af velli á 6. mínútu. Einum fleiri skoruðu FH-ingar tvö mörk í fyrri hálfleik.Úlfur Ágúst Björnsson gerði þriðja mark FH í síðari hálfleik og gulltryggði fyrsta sigur Eiðs Smára í Bestu deildinni.