Ástin á götunni
330 331 332 333 334 ›
Chelsea kaupir vinstri bakvörð Spænski varnarmaðurinn Asier del Horno hefur skrifað undir 3 ára samning við Chelsea en hann kemur frá Athletic Bilbao á 8 milljónir punda. Þá bárust nú síðdegis fréttir þess efnis að ítalska stórveldið AC Milan hafi í dag hunsað formlega fyrirspurn Chelsea um úkraínska sóknarmanninn Andriy Shevchenko. Sport 13.10.2005 19:24
Brasilía naumlega í undanúrslitin Brasilía komst naumlega í undanúrslit álfukeppninnar í knattspyrnu í kvöld og mætir þar Þjóðverjum. Heimsmeistararnir gerðu í kvöld 2-2 jafntefli við Japana sem sitja eftir þrátt fyrir að vera jöfn að stigum. Mexíkó er í efsta sæti B-riðls með 7 stig. Sport 13.10.2005 19:24
Hannes með tvö mörk fyrir Viking Hannes Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir Viking Stavanger í kvöld þegar liðið lagði Vard frá Haugesund, 3-0 í norsku bikarkeppninni í knattspyrnu. Viking mætir Lillestrøm í 4. umferð fimmtudaginn 30. júní. Mörk Hannesar komu á 24. mínútu og 83. mínútu. Bæði komu mörkin af stuttu færi, annað eftir hornspyrnu en hið síðara eftir klaufamistök varnarmanns. Sport 13.10.2005 19:24
Þjálfari Afríku í 2 mánaða bann Mostafa Marinó Anbari, þjálfari 3. deildarliðs Afríku á Íslandsmótinu í knattspyrnu hefur verið úrskurðaður í 2 mánaða leikbann af KSÍ. Þá var félagið ennfremur sektað um 12.000 krónur fyrir að nota leikmann sem ekki var kominn með leikheimild með félaginu í leik í VISA bikarnum 20. maí sl. Sport 13.10.2005 19:24
Ólafur skrifar undir hjá Brentford Ólafur Ingi Skúlason, fyrrum leikmaður Arsenal og fyrirliði 21 árs landsliðsins, skrifar í dag undir tveggja ára samning við enska 2. deildar liðið Brentford. Ólafur Ingi mun hafa náð samkomulagi við Brentford um launaliði samningsins en reiknað er með að hann skrifi undir eftir læknisskoðun í dag. Sport 13.10.2005 19:24
Man Utd kaupir Ji-Sung Manchester United hefur fest kaup á suður kóreska landsliðsmanninum Park Ji-Sung og er hann þessa stundina í læknisskoðun á Old Trafford. Þessi 24 ára gamli miðjumaður kemur frá PSV Eindhoven í Hollandi og er snöggur mjög og harður af sér. Ji-Sung kostar Man Utd um 4 milljónir punda og hefur hann gert 4 ára samning við félagið. Sport 13.10.2005 19:24
Þjálfari Tyrkja tekur pokann sinn Ersun Yanal, landsliðsþjálfari Tyrkja í knattspyrnu var látinn fjúka í kvöld þar sem Tyrkir hafa ekki staðið undir væntingum frá því hann tók við liðinu. Yanal var á 4 ára samning sem hann gerði í apríl 2004 en það voru vonbrigði með árangur liðsins í undankeppni HM sem fylltu mælinn. Sport 13.10.2005 19:24
Man. Utd opnar budduna Manchester United hefur keypt Suður-Kóreumanninn Park Ji Sung frá PSV Eindhoven á tæpar fimm hundruð miljónir króna. Park gerir samning til fjögurra ára við United. Sport 13.10.2005 19:24
Jafnt hjá Þjóðverjum og Argentínu Þýskaland og Argentína skildu jöfn, 2-2 í álfukeppninni í knattspyrnu nú í kvöld. Liðin eru bæði örugg í undanúrslit og eru jöfn að stigum í A-riðli en Þjóðverjar á toppnum með betri markatölu. Túnis náði 3. sætinu með því að leggja Ástrala 2-0 einnig í kvöld. Sport 13.10.2005 19:24
Dregið í VISA-bikarkeppninni Dregið var í hádeginu í VISA-bikarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu á Hótel Loftleiðum. Í 16 liða úrslitum karla mætast eftirtalin lið 12. júlí: Sport 13.10.2005 19:23
Haraldur í liði vikunnar Nýliðinn í íslenska landsliðinu í knattspyrnu, Haraldur Freyr Guðmundsson er greinilega að taka stöðugum framförum sem leikmaður en hann var í dag útnefndur í úrvalslið 11. umferðar í norsku úrvalsdeildinni. Haraldur sem lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Möltu á dögunum leikur með Aalesund sem er í næst neðsta sæti deildarinnar. Sport 13.10.2005 19:24
Enska FA enn í vandræðum Einkaritarinn sem stóð í framhjáhaldi með Sven-Göran Eriksson, lansliðsþjálfara enska knattspyrnulandsliðsins, Faria Alam, heldur áfram að hrista stoðir enska knattspyrnusambandsins. Hún hefur nú ásakað sambandið um ólöglega uppsögn og heldur því fram að hún hafi orðið fyrir barðinu á kynferðislegu áreiti hjá þáverandi yfirmanni sínum. Sport 13.10.2005 19:24
Segist hafa hafnað tilboði Chelsea Kamerúnski knattspyrnumaðurinn Samuel Eto´o segist hafa hafnað girnilegu tilboði enska liðsins Chelsea og ákveðið í staðinn að framlengja samning sinn við Barcelona. Reiknað er með því að Eto´o skrifi undir samning til ársins 2010. Sport 13.10.2005 19:23
Djurgården efst í Svíþjóð Djurgården náði í gærkvöldi fjögurra stiga forystu í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið sigraði Helsingborg með fimm mörkum gegn engu. Kári Árnason tók út leikbann í liði Djurgården en Sölvi Geir Ottesen kom ekki við sögu. Djurgården hefur 23 stig en Malmö er í öðru sæti með 19 stig. Sport 13.10.2005 19:23
Fer Heiðar til Wigan? Heiðar Helguson gæti skrifað undir hjá enska knattspyrnufélaginu Wigan Athletic sem leikur í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð í fyrsta skipti í sögunni. Heiðar hittir stjóra Wigan, Paul Jewell, í dag eða á morgun til að ræða um launaliði. Talið er að Watford, félag Heiðars, hafi samþykkt einnar milljóna punda tilboð í sóknarmanninn. Sport 13.10.2005 19:23
Veigar skoraði gegn Skeid Veigar Páll Gunnarsson skoraði eitt marka Stabæk sem sigraði Skeid 4-0 í norsku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Þetta var fimmta deildarmark Veigars fyrir Stabæk sem er í öðru sæti með 27 stig, þremur stigum á eftir Bryne sem hefur forystu í deildinni. Sport 13.10.2005 19:23
Spurs íhuga nýtt tilboð í Johnson Áhugi Tottenham Hotspur á enska landsliðsmanninum Andy Johnson hefur nú vaknað að nýju, eftir að kappinn gaf það út opinberlega að hann vildi komast frá liði sínu Crystal Palace og í úrvalsdeildina, til að eiga betra tækifæri á að verða í enska hópnum fyrir HM í Þýskalandi á næsta ári. Sport 13.10.2005 19:23
McClaren semur við Boro Knattspyrnustjóri Middlesbrough, Steve McClaren hefur handsalað nýjan fjögurra ára samning við Steve Gibson, stjórnarformann liðsins. Sport 13.10.2005 19:23
Eto´o vildi ekki til Chelsea Kamerúninn Samuel Eto´o hefur greint frá því að hann hafi hafnað tilboði frá Chelsea um að ganga til liðs við þá í sumar og mun þess í stað ganga frá nýjum samningi við Barcelona fljótlega. Sport 13.10.2005 19:23
Essien verður dýr Forráðamenn frönsku meistaranna í Lyon segja að Chelsea verði að kafa enn dýpra í budduna ef þeir ætli sér að landa hinum eftirsótta Michael Essien, en segjast jafnframt vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda í miðjumanninn unga. Sport 13.10.2005 19:23
Óvænt úrslit í VISA-bikarnum 1. deildarlið Hauka gerði sér lítið fyrir og sló Landsbankadeildarlið Þróttar úr leik í VISA-bikarnum í knattspyrnu eftir vítaspyrnukeppni. Keflavík komst einnig í hann krappann gegn Fjölni í Grafarvogi en slapp með skrekkinn. Sport 13.10.2005 19:23
Everton á eftir Bellamy Úrvalsdeildarilið Everton virðist vera líklegasta liðið til að landa vandræðagemsanum Craig Bellamy frá Newcastle, eftir að útséð virðist með það að Celtic í Skotlandi hafi efni á honum. Sport 13.10.2005 19:23
Safnaði fé fyrir Watford Tónlistarmaðurinn Sir Elton John safnaði 1,3 milljónum sterlingspunda, eða 155 milljónum íslenskra króna, fyrir fótboltaliðið Watford. Sir Elton, sem er gallharður stuðningsmaður félagsins, hélt tónleika á laugardag og 23 þúsund áhorfendur mættu. Popparinn segir að upphæðina eigi Watford að nota til þess að kaupa leikmenn. Sport 13.10.2005 19:23
Fylkir og ÍBV í vandræðum í bikar Fylkir og ÍBV lentu í miklum vandræðum með að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum VISA-bikarkeppni karla í knattspyrnu í gær. Fylkir sigraði KS 4-2 í framlengdum leik. Björgólfur Takefusa skoraði tvö marka Fylkis úr vítaspyrnum. Í Ólafsfirði tryggði Orri Rúnarsson Leiftri/Dalvík framlengingu þegar hann skoraði á síðustu mínútu leiksins. Bjarni Hólm Aðalsteinsson skoraði sigurmark ÍBV í framlengingu. Sport 13.10.2005 19:23
Kroldrup á leið til Everton Everton er sagt vera komið langt á veg með að tryggja sér danska varnarmanninn Per Kroldrup á fimm milljónir punda frá ítalska liðinu Udinese. Sport 13.10.2005 19:23
Mexíkóar lögðu Brasilíumenn Mexíkóar sigruðu Brasilíumenn 1-0 í Álfukeppninni í knattspyrnu í Þýskalandi í gærkvöldi. Jared Borghetti skoraði markið hálftíma fyrir leikslok. Með sigrinum tryggði Mexikó sér sæti í undanúrslitum en Brasilíumenn og Japanar mætast á miðvikudag í leik sem sker úr um það hvort liðanna fylgir Mexikóum í undanúrslitin. Japanar unnu Evrópumeistara Grikkja 1-0 í gær. Sport 13.10.2005 19:23
Mátti ekki spila gegn KR "Það var ansi svekkjandi að fá ekki að spila þennan leik," sagði Vigfús Arnar Jósepsson, sem leikur lykilhlutverk með liði Leiknis R. sem situr á toppnum í 2. deildinni. Leiknir tók á móti KR í bikarnum á sunnudag en KR-ingar vildu ekki að Vigfús léki þann leik þar sem hann er samningsbundinn félaginu en er á lánssamningi hjá Leikni. Sport 13.10.2005 19:23
Bowyer ekki óvinsæll í Birmingham Nú hefur komið á daginn að stuðningsmenn Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, eru ekki eins mikið á móti því að Lee Bowyer gangi til liðs við félagið og leit út fyrir í fyrstu. Sport 13.10.2005 19:23
Parma áfram í úrvalsdeildinni Parma hélt sæti sínu í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á kostnað Bologna. Parma vann seinni einvígisleikinn við Bologna, 2-0, í gær. Í leikslok þurfti lögreglan að beita táragasi eftir að stuðningsmenn Bologna ruddust inn á völlinn. Sport 13.10.2005 19:23
ÍA hópurinn sem fór til Finnlands Skagamenn héldu til Finnlands í gær þar sem liðið mætir Inter Turku í 1. umferð Inter-toto keppninnar í knattspyrnuá morgun sunnudag. Þetta er fyrri leikur liðanna en sá síðari verður á Akranesi viku síðar. Töluverð meiðsli hrjá Skagaliðið þessa dagana. Sport 13.10.2005 19:23