Ástin á götunni

Fréttamynd

Meistaradeildin er betri en HM

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Meistaradeild Evrópu sé sterkari og skemmtilegri keppni en sjálft Heimsmeistaramótið í knattspyrnu.

Sport
Fréttamynd

Yakubu kemur Boro yfir

Framherjinn sterki Yakubu hjá Middlesbrough var nú rétt í þessu að koma Boro yfir 1-0 á móti Arsenal, í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal óð í færum framan af leik en nú hafa heimamenn tekið forystuna á 40. mínútu. Thierry Henry leikur ekki með Arsenal í dag vegna meiðsla.

Sport
Fréttamynd

Við áttum að vinna þennan leik

Arsene Wenger var ekki par kátur með frammistöðu sinna manna í Arsenal þegar liðið lá fyrir Middlesbrough í dag. Wenger sagði sína menn hafa verið betri allan leikinn og þótti þá eiga skilið að vinna hann.

Sport
Fréttamynd

Reynir meistari í þriðju deild

Reynir frá Sandgerði varð í dag 3. deildar meistari, þegar liðið lagði Sindra frá Höfn í Hornafirði 4-1. Í leiknum um þriðja sætið sigruðu Gróttumenn Leikni frá Fáskrúðsfirði 5-4 í hörkuleik.

Sport
Fréttamynd

Tap hjá Bjarna og félögum

Plymouth, lið Bjarna Guðjónssonar í ensku fyrstu deildinni, tapaði 2-0 fyrir Norwich nú áðan, en Bjarni kom ekki við sögu í leiknum. Þetta var fyrsti sigur Norwich á leiktíðinni, en lið Plymouth, sem nýverið rak stjóra sinn, á í miklum erfiðleikum þessa dagana.

Sport
Fréttamynd

Rooney skapheitur

Wayne Rooney er einn hæfileikaríkasti knattspyrnumaður heims í dag og er almennt talinn einn besti framherjinn í ensku úrvalsdeildinni. Hann á þó í mestu vandræðum með að hemja skap sitt og eftir að hafa lofað öllu fögru fyrir skömmu síðan, er hann aftur kominn í fréttirnar fyrir stuttan kveikjuþráð sinn.

Sport
Fréttamynd

Þeir áttu jafnteflið ekki skilið

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United var ekki sáttur við jafnteflið við grannaliðið Manchester City á Old Trafford í dag, en var þó nokkuð sáttur við leik sinna manna.

Sport
Fréttamynd

Hálfleikur á Englandi

Fyrri hálfleik er nú lokið í flestum leikjanna sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni, en fá mörk hafa litið dagsins ljós fram að þessu. Staðan á Old Trafford er 1-0 fyrir Manchester United gegn grönnunum í Manchester City, en enn er markalaust hjá Tottenham og Liverpool.

Sport
Fréttamynd

Maccarone kemur Boro í 2-0

Massimo Maccarone hefur komið Middlesbrough í 2-0 gegn Arsenal í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og því er útlitið orðið svart hjá bikarmeisturunum. Aðeins um stundarfjórðungur er eftir af leiknum.

Sport
Fréttamynd

Wenger slær á létta strengi

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er ekki vanur að vera mikill háðfugl, en þegar hann var spurður út í ráðningu grannaliðsins Tottenham á Damien Comolli á dögunum, sá hann ástæðu til að slá á létta strengi.

Sport
Fréttamynd

Middlesbrough lagði Arsenal 2-1

Middlesbrough vann frækinn sigur á Arsenal í síðasta leiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það voru þeir Yakubu og Massimo Maccarone sem komu heimamönnum í 2-0, en Spánverjinn Jose Antonio Reyes minnkaði muninn í uppbótartíma fyrir Arsenal, sem hefur nú tapað tveimur af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni.

Sport
Fréttamynd

Breiðablik komið yfir

Blikastúlkur voru rétt í þessu að komast yfir 2-1 gegn KR í bikarúrslitaleik kvenna á Laugardalsvelli. KR stúlkur komust í 1-0 eftir aðeins fimm mínútna leik, en Blikastúlkur komust yfir 2-1 í blálokin á hálfleiknum.

Sport
Fréttamynd

Jol hrósar Michael Carrick

Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspurs, hrósaði miðjumanni sínum Michael Carrick í hástert eftir leikinn við Liverpool í dag og sagði hann hafa átt miðjuna í leiknum. Jol segist ekki skilja af hverju Carrick er ekki valinn í enska landsliðið.

Sport
Fréttamynd

Henry stefnir á markametið

Franski framherjinn Thierry Henry getur um helgina jafnað markamet Ian Wright hjá Arsenal, sem er 185 mörk en segist lítið hugsa um metið og vill bara skora eins mörg mörk og hann mögulega getur til að vinna leiki.

Sport
Fréttamynd

Dagsformið ræður úrslitum

Breiðablik hefur átt góðu gengi að fagna í sumar og sigraði í Landsbankadeildinni með töluverðum yfirburðum en eini leikurinn sem liðinu hefur ekki tekist að vinna var gegn KR, en þeim leik lauk með 0-0 jafntefli í Frostaskjólinu.

Sport
Fréttamynd

Pearce óttast ekki grannaslaginn

Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, segist ekki hafa neinar áhyggjur af grannaslagnum við United á Old Trafford á morgun, en þar hefur City ekki sigrað í meira en þrjá áratugi.

Sport
Fréttamynd

Ætlum að vinna tvöfalt

Þóra Helgadóttir, fyrirliði og markvörður Breiðabliks, kom til Breiðabliks fyrir tímabilið en hún hóf feril sinn hjá félaginu. "Þetta sumar er búið að vera virkilega skemmtilegt og það er líka gaman fyrir mig að snúa aftur í mitt gamla félag á uppgangstímum."

Sport
Fréttamynd

Mourinho heldur tryggð við Lampard

Jose Mourinho segist ekki láta gagnrýni Sven-Göran Eriksson á Frank Lampard á sig fá og bendir á að það sem Lampard geri með enska landsliðinu komi sér ekki við.

Sport
Fréttamynd

Toppbaráttan í algleymingi í dag

Toppbaráttan í fyrstu deild karla verður í algleymingi í dag því Víkingur og KA eru jöfn í öðru og þriðja sæti deildarinnar með 31 stig en Breiðablik er búið að vinna deildina með 40 stig. KA mætir meisturum Breiðabliks í dag á Kópavogsvelli en þá fá Blikar afhentan titilinn. Í Hafnarfirðinum mætast Haukar og Víkingar.

Sport
Fréttamynd

Jenas saknar ekki Newcastle

Enski landsliðsmaðurinn Jermaine Jenas, sem nýverið gekk í raðir Tottenham Hotspurs, segist ekki sakna þess að leika með Newcastle, því sér hafi fundist sem hann næði ekki að þroskast sem leikmaður í röðum félagsins.

Sport
Fréttamynd

Bent maður mánaðarins

Framherjinn ungi Darren Bent hjá Charlton hefur verið valinn knattspyrnumaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni, en hann fór mikinn í fyrstu umferðum mótsins. Þá hefur verið tilkynnt að Stuart Pearce, stjóri Manchester City hefur verið valinn knattspyrnustjóri mánaðarins.

Sport
Fréttamynd

Guðjón biður um stuðning áhorfenda

Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, biður stuðningsmenn liðsins að fjölmenna á völlinn á morgun þegar topplið hans mætir lærisveinum Keith Curle í Chester City.

Sport
Fréttamynd

Butt útilokar ekki landsliðið

Miðjumaðurinn Nicky Butt, sem er í láni hjá Birmingham frá Newcastle í vetur, segist ekki útiloka að spila aftur með enska landsliðinu ef kallið kæmi. Butt þótti standa sig vel á HM með Englendingum árið 2002, en hefur átt erfitt uppdráttar á síðustu tveimur árum.

Sport
Fréttamynd

Eriksson fer huldu höfði

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, hefur aflýst fyrirhugaðri ferð sinni á úrslitaleik Englendinga og Ástrala í kvöld vegna fjölmiðlafársins sem er í kring um hann í kjölfar taps Englendinga fyrir Norður-Írum í vikunni.

Sport
Fréttamynd

Eto´o vill fara að vinna

Framherjinn knái Samuel Eto´o hjá Barcelona hefur sent félögum sínum í liðinu skýr skilaboð fyrir næsta leik í spænsku deildinni, sem er einmitt gegn fyrrum félögum sínum í Mallorca.

Sport
Fréttamynd

Zidane frá í 3 vikur

Nú er ljóst að franski knattspyrnukappinn Zinedine Zidane leikur ekki með Real Madríd næstu þrjár vikurnar. Zidane fór meiddur af velli í leik Frakka og Íra í undankeppni heimsmeistaramótsins á miðvikudag.

Sport
Fréttamynd

Thierry Henry meiddur

Franski markahrókurinn Thierry Henry mun ekki jafna markamet Ian Wright hjá Arsenal á morgun, því hann er meiddur á nára og missir því af leik liðsins við Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Allardyce vill taka við Englandi

"Stóri-Sam" Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, vill ólmur taka við enska landsliðinu þegar Sven-Göran Eriksson hættir með liðið, ef marka má orð umboðsmanns hans.

Sport
Fréttamynd

Ferdinand sáttur við stutt frí

Rio Ferdinand segist vera sáttur við að hafa verið kallaður snemma úr sumarfríi sínu ásamt öðrum leikmönnum Manchester United, og segir þá hafa átt það skilið eftir lélega frammistöðu í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Faria Alam tapaði málsókn sinni

Ritarinn Faria Alam tapaði í dag máli sínu gegn enska knattspyrnusambandinu fyrir rétti, en kærurnar sem hún hafði fram á hendur manna innan sambandsins um ólöglega uppsögn og kynferðislega áreitni, var vísað frá.

Sport