Íslenski körfuboltinn
49 50 51 52 53 54 55 56 57 … 82 ›
Marcus Walker fékk sér KR-húðflúr á öxlina Marcus Walker ýtir heldur betur undir goðsögnina einu sinni KR-ingur, ávallt KR-ingur. Þessi frábæri bakvörður sem fór á kostum með KR-liðinu veturinn 2010 til 2011 stóð nefnilega við loforð sitt og fékk sér KR-húðflúr á öxlina. Körfubolti 27.8.2012 12:48
Jakob hitnar ekki fyrr en í seinni hálfleik Jakob Örn Sigurðarson bakvörður íslenska körfuboltalandsliðsins er búinn að skora 14,0 stig að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum liðsins í undankeppni EM. Jakob verður í sviðsljósinu í dag þegar strákarnir taka á móti Eistum klukkan 19.15 í Laugardalshöllinni. Körfubolti 27.8.2012 12:04
Þrír íslenskir leikmenn á topp tíu yfir flestar spilaðar mínútur Það hefur verið mikið álag á nokkrum leikmönnum íslenska landsliðsins í körfubolta í undankeppni Evrópumótsins en íslenska liðið leikur sinn fimmta leik í kvöld þegar Eistlendingar mæta í Laugardalshöllina. Leikurinn hefst klukkan 19.15 en bæði lið hafa tapað undanförnum tveimur leikjum og þyrstir því í sigur. Körfubolti 27.8.2012 12:00
Feðgar stjórna öllu hjá eistneska landsliðinu - spila í Höllinni í kvöld Íslenska körfuboltalandsliðið tekur á móti Eistlandi í Laugardalshöllinni klukkan 19.15 í kvöld en þetta er fimmti leikur liðsins af tíu í undankeppni Evrópumótsins. Eftir leikinn í kvöld hefur íslenska landsliðið mætt öllum þjóðunum fimm sem eru með strákunum okkar í riðli. Það vekur athygli að feðgar eru í stóru hlutverki í landsliði Eistlendinga. Körfubolti 27.8.2012 11:57
Strákarnir töpuðu með 18 stigum í Svartfjallalandi Íslenska karlalandsliðið í körfubolta átti aldrei möguleika á móti sterku liði Svartfellinga í Niksic í undankeppni Evrópumótsins í kvöld. Svartfellingar unnu leikinn á endanum með 18 stigum, 85-67 eftir að hafa komist mest 25 stigum yfir í fyrri hálfleiknum. Íslenska liðið hefur þar með tapað tveimur leikjum í röð og þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í riðlinum. Körfubolti 24.8.2012 20:15
Arnar Freyr og Ingibjörg til Danmerkur Karla- og kvennalið Keflavíkur hafa orðið fyrir blóðtöku þar sem Arnar Freyr Jónsson og Ingibjörg Jakobsdóttir eru bæði á leið til Danmerkur. Körfubolti 24.8.2012 15:01
Jón Arnór fjórði stigahæstur eftir þrjár umferðir Jón Arnór Stefánsson er meðal stigahæstu manna eftir þrjár fyrstu umferðirnar í undankeppni Evrópumótsins í körfubolta en Jón Arnór hefur skorað 22,0 stig að meðaltali í fyrstu þremur leikjum íslenska landsliðsins. Körfubolti 22.8.2012 16:10
Hlynur lofar því að troða í upphituninni "Já og já,“ sagði Hlynur Bæringsson landsliðsmaður í körfuknattleik þegar hann var inntur eftir því hvort leikmenn liðsins væri klárir í slaginn gegn Ísrael og hvort Ísland gæti unnið þá í Laugardalshöllinni í kvöld. Liðin eigast við í undankeppni Evrópumótsins en Ísland er með einn sigur eftir tvær umferðir en Ísrael hefur tapað báðum viðureignum sínum í riðlinum. Körfubolti 21.8.2012 11:16
Ægir Þór ætlar að nýta hraða sinn gegn Ísrael Ægir Þór Steinarsson leikstjórnandi íslenska landsliðsins í körfuknattleik fær eflaust stórt hlutverk í kvöld þegar Ísland tekur á móti Ísrael í undankeppni Evrópumótsins í Laugardalshöll. Ægir fékk óvænt tækifæri í byrjunarliðinu í 81-75 sigri Íslands gegn Slóvakíu á útivelli s.l. laugardag eftir að Pavel Ermolinskij meiddist í upphitun. Pavel verður ekki með í kvöld og það er ljóst að það mun mikið mæða á Ægi. Körfubolti 21.8.2012 11:10
Jón Arnór býst við hörkuleik gegn Ísrael í kvöld Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í íslenska körfuknattleikslandsliðinu mæta Ísrael í undankeppni Evrópumótsins í Laugardalshöll í kvöld. Ísland náði frábærum úrslitum gegn Slóvakíu á útivelli s.l. laugardag með 81-75 sigri. Þar fór Jón Arnór á kostum og skoraði hann 28 stig. Landsliðsmaðurinn vonast eftir góðum stuðningi frá íslenskum áhorfendum í kvöld en leikurinn hefst kl. 19.15. Körfubolti 21.8.2012 11:05
Pavel verður hvíldur á móti Ísrael á morgun Pavel Ermolinskij verður ekki með íslenska landsliðinu á móti Ísrael í Laugardalshöllinni á morgun en hann er ekki orðinn nógu góður af nárameiðslunum sem hann varð fyrir í upphitun fyrir Slóvakíuleikinn á laugardaginn. Körfubolti 20.8.2012 22:10
Strákarnir fengu skóna sína rétt fyrir æfingu Íslenska körfuboltalandsliðið er þessa stundina á æfingu fyrir leikinn á móti Ísrael sem fram fer í Laugardalshöllinni á morgun en það munaði engu að sumir leikmanna liðsins þyrftu að æfa á sokkalestunum í kvöld. Körfubolti 20.8.2012 17:48
18 ára strákarnir unnu Svartfjallaland - tveir sigrar í tveimur leikjum Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta byrjar vel í b-deild Evrópukeppni 18 ára landsliða sem stendur nú yfir í Bosníu. Íslenska liðið fylgdi á eftir sigri á Sviss í gær með því að vinna sannfærandi 12 stiga sigur á Svartfellingum í dag, 80-68. Körfubolti 10.8.2012 22:34
Skipting í þjálfarateymi Peter Öqvist - Tómas inn fyrir Helga Jónas Tómas Holton, þjálfari sextán ára landsliðs stúlkna í körfubolta, verður aðstoðarmaður karlalandsliðsins í undankeppni Evrópumóts landsliða sem hefst í næstu viku. Þetta kemur fram á heimasíðu Körfuboltasambandsins. Körfubolti 10.8.2012 15:17
Svona úrslit munu ekki endurtaka sig Íslenska körfuboltalandsliðið átti fá svör á móti sterku Ólympíuliði Litháa í Vilníus í gærkvöldi en fyrirliðinn Hlynur Bæringsson er hvergi banginn og segir íslensku strákana staðráðna í að gera Evrópukeppnina að jákvæðu móti. Körfubolti 24.7.2012 22:33
Strákarnir töpuðu stórt á móti Ólympíuliði Litháa Íslenska karlalandsliðið í körfubolta átti fá svör á móti Ólympíuliði Litháa í æfingaleik í Siemens-höllinni í Vilinius í kvöld. Litháen var komið 20 stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann og vann leikinn á endanum með 50 stigum, 101-51. Körfubolti 24.7.2012 18:07
Tindastóll semur við tvo bandaríska leikmenn Úrvalsdeildarlið Tindastóls í körfuknattleik karla hefur samið við tvo bandaríska leikmenn sem munu leika með liðinu í Dominos-deildinni á næstu leiktíð. Körfubolti 23.7.2012 14:42
Erlendur þjálfari kemur vel til greina hjá KR-ingum Hrafn Kristjánsson mun ekki stýra KR-liðinu í Dominos deildinni í körfuknattleik karla á næstu leiktíð og eru forráðamenn liðsins í þjálfaraleit. Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, segir í samtali við karfan.is að það komi vel til greina að leita að erlendir þjálfarar komi vel til greina hjá félaginu. Körfubolti 20.7.2012 19:59
Hrafn verður ekki áfram þjálfari KR-liðsins Körfuknattleiksdeild KR og Hrafn Kristjánsson hafa komist að samkomulagi um að slíta samningaviðræðum varðandi endurnýjun samnings Hrafns við deildina fyrir komandi keppnistímabil og mun hann því ekki sjá um þjálfun meistaraflokks karla næstu leiktíð. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem KR-ingar sendu frá sér í dag. Körfubolti 17.7.2012 14:51
Hörður Axel dregur sig úr íslenska landsliðinu Körfuknattleikskappinn Hörður Axel Vilhjálmsson hefur dregið sig úr íslenska landsliðshópnum. Þetta staðfesti Hannes S. Jónsson formaður Körfuknattleikssambands Íslands í samtali við Vísi í morgun. Körfubolti 12.7.2012 10:56
Stelpurnar unnu þær dönsku í spennuleik - bronsið í höfn Íslenska kvennalandsliðið vann fimm stiga sigur á Danmörku, 72-67, í þriðja leik sínum á Norðurlandamótinu í körfubolta sem fram fer í Noregi. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenska kvennalandsliðið vinnur tvo leiki á einu Norðurlandamóti en áður höfðu stelpurnar unnið stórsigur á gestgjöfunum. Körfubolti 25.5.2012 18:57
Skotsýning hjá íslensku stelpunum og 27 stiga stórsigur á Noregi Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta byrjar mjög vel á Norðurlandamótinu í Noregi því Ísland vann 27 stiga sigur á Noregi í opnunarleik mótsins, 82-55, sem jafnframt var fyrsti leikur A-landsliðs kvenna í körfubolta í 999 daga og fyrsti leikur liðsins undir stjórn Sverris Þórs Sverrissonar. Körfubolti 24.5.2012 17:27
Hildur sú fyrsta til að taka þátt í fjórum Norðurlandamótum Hildur Sigurðardóttir verður í eldlínunni með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta sem mætir Noregi nú klukkan 16.00 í fyrsta leiknum sínum á Norðurlandamótinu í Noregi. Hildur er að skrifa söguna því hún verður fyrsta íslenska körfuboltakonan til þess að taka þátt í fjórum Norðurlandamótum. Körfubolti 24.5.2012 13:50
Stelpurnar misstu bronsið úr höndunum í fjórða leikhluta Íslenska 18 ára landslið kvenna rétt missti af bronsinu eftir naumt þriggja stiga tap á móti Dönum, 56-59, í leiknum um þriðja sætið á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta i Solna í Svíþjóð. Danska liðið tryggði sér sigurinn með því að vinna síðustu átta mínúturnar 26-7. Körfubolti 20.5.2012 14:08
Þrír íslenskir krakkar komust í úrvalslið Norðurlandamótsins Ísland átti þrjá leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í Svíþjóð en valið var tilkynnt nú rétt áðan. Martin Hermannsson og Valur Orri Valsson voru í úrvalsliði 18 ára stráka og Sara Rún Hinriksdóttir var valin í úrvalsliði 16 ára stelpna. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. Körfubolti 20.5.2012 13:28
Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti unglinga í Solna í Svíþjóð eftir 41 stigs stórtap á móti Finnum í leiknum um gullið. Þetta var fyrsta og eina tap íslenska liðsins á mótinu. Sextán ára stelpunum tókst á sama tíma ekki að ná í bronsið en þær töpuðu fyrir Dönum í leiknum um þriðja sætið. Körfubolti 20.5.2012 11:09
NM unglinga í körfu: Einn leikur um gull og tveir leikir um brons Í dag fer fram lokadagurinn á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer eins og venjulega fram í Solna í Svíþjóð. Þrjú af fjórum landsliðum Íslands eiga möguleika á verðlaunum þar af spila 18 ára strákarnir um gullið. Sextán ára strákarnir urðu að sætta sig við að lenda í fimmta og síðasta sætinu. Körfubolti 19.5.2012 23:56
Frábær sigur stelpnanna á Finnum dugði ekki - spila um bronsið Íslenska 16 ára landslið kvenna er að gera frábæra hluti á Norðurlandamótinu undir stjórn Tómasaar Holton. Liðið vann Finna 60-56 í lokaleik sínum í riðlakeppninni en hefði þurft að vinna sjö stiga sigur til að komast í úrslitaleikinn. Körfubolti 19.5.2012 19:54
Fyrsti sigur 18 ára stelpnanna í fimm ár - spila um bronsið Íslenska 18 ára landslið kvenna vann langþráðan sigur á Norðurlandamótinu í morgun þegar stelpurnar unnu fimmtán stiga sigur á Norðumönnum, 66-51. Þetta er fyrsti sigur 18 ára kvennaliðs Íslands á NM síðan árið 2007. Körfubolti 18.5.2012 11:25
Strákarnir spila um gullið - fóru illa með Norðmenn Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta er að gera góða hluti á Norðurlandamótinu í körfubolta í Solna í Svíþjóð en þeir eru búnir að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum eftir 41 stigs sigur á Norðmönnum, 83-42. Strákarnir höfðu áður unnið Dani og Svía á mótinu. Körfubolti 18.5.2012 11:12
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent