Innlent

Fréttamynd

Ísland í níunda sæti yfir efnahagslegt frelsi

Ísland hefur færst upp um fjögur sæti á lista yfir þær þjóðir heimsins sem búa við mest efnahagslegt frelsi samkvæmt árlegri skýrslu um efnahagslegt frelsi í heiminum. Það er Rannsóknarmiðstöð um samfélags og efnahagsmál sem gefur út skýrsluna. Ísland var í þrettánda sæti í fyrra en er nú í því níunda ásamt Lúxemborg.

Innlent
Fréttamynd

Hyggjast markaðssetja ferðir fyrir einhleypa

Ferðamannasamtökin Wonderful Copenhagen í Kaupmannahöfn hyggjast markaðssetja borgina sem áfangastað fyrir einhleypa ferðamenn. Politiken greinir frá því að ráðgert sé að bjóða upp á lengri helgarferðir þar sem viðskiptavinurinn, sá einhleypi, geti sótt skemmtikvöld og farið út að borða með öðrum sem eru í sömu hjúskaparstöðu. Sölu- og markaðsstjóri samtakanna segir að um áhugaverðan markhóp sé að ræða og þarna sé óplægður akur innan ferðamannaiðnaðarins.

Erlent
Fréttamynd

Lagður af stað yfir Ermasundið

Benedikt S. Lafleur lagði af stað í þreksund sitt yfir Ermarsundið upp úr sjö í morgun. Í samtali við NFS í morgun var hann brattur og sagði aðstæður prýðisgóðar í dag en sundraunin hefur frestast um nokkra daga vegna veðurs og öldugangs.

Innlent
Fréttamynd

Calderon réttmætur sigurvegari kosninganna

Felipe Calderon tók í gær við skjali frá kosningadómstól Mexíkó sem vottar það að hann sé réttmætur sigurvegari forsetakosninganna sem fram fóru í júlí síðastliðnum. Forseti kosningadómstólsins bað alla Mexíkóa að hætta að deila innbyrðis og brúa gjárnar sem mynduðust í kjölfar forsetakosninganna.

Erlent
Fréttamynd

Safna fyrir byggingu skóla í Pakistan

Nemendur og starfsmenn Borgarholtsskóla munu ferðast leiðina til Pakistan í dag. Í tilefni 10 ára afmælis skólans er efnt til táknræns hlaups, göngu og/eða hjólreiða nemenda og starfsmanna skólans í fjáröflunarskyni og er markmiðið að samanlagður kílómetrafjöldi sem lagður verður að baki verði jafn vegalengdinni í loftlínu á milli Íslands og Pakistan.

Innlent
Fréttamynd

Mikill verðmunur á pasta og frosinni ýsu

Um sautján hundruð krónum getur munað á innkaupakörfum samkvæmt nýrri verðlagskönnun Verðlagseftirlits ASÍ. Karfan var ódýrust í Bónus en dýrust í Kaskó. Mikilvægt að skoða innihald körfunnar í heild, segir ASÍ.

Innlent
Fréttamynd

Hætt störfum hjá flokknum

Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, hefur látið af störfum sem aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins en því starfi hefur hún gegnt síðustu sjö ár.

Innlent
Fréttamynd

Slæmri stöðu Strætó leynt

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir fyrrum stjórnarformann Strætó bs., borgarfulltrúa R-listans, hafa leynt upplýsingum um slæma fjárhagsstöðu fyrirtækisins fram yfir kosningar. Fyrrum stjórnarformaður segir þetta dylgjur og að málið hafi ekki verið

Innlent
Fréttamynd

Vöruverð lækkar ef verndartollar hverfa

Matarverðið lækkar ekki nema Íslendingar afnemi tolla og vörugjöld og lækki virðisaukaskatt. Innkoma erlendrar lágvöruverðsverslunar á íslenskan markað myndi lækka vöruverðið, að mati framkvæmdastjóra sænska SVÞ.

Innlent
Fréttamynd

Íslenskir verkamenn þreyttir á ástandinu

Byggingamarkaðurinn stjórnast af vertíðarhugsun erlendra starfsmanna. Íslenskir iðnaðarmenn eru þreyttir á því að vinna myrkranna á milli og komast ekki burt, eins og erlendu starfsmennirnir. Félagsleg tengsl vantar á vinnustaði.

Innlent
Fréttamynd

Ákærðir fyrir tugi lögbrota

Þrír piltar hafa verið ákærðir fyrir innflutning á 400 grömmum af kókaíni frá Frankfurt í janúar. Einn piltanna er ákærður fyrir meira en tuttugu önnur afbrot, sem flest voru framin í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Báturinn er tilbúinn í slaginn við hvalina

"Nú fer hann bara á sinn stað og bíður átekta, það á eftir að gera sitt lítið af hverju en báturinn er til í slaginn," sagði Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., sem gerir út hvalveiðiskipin fjögur sem setið hafa við Ægisgarð síðan 1989, í tilefni þess að Hvalur 9 var útskrifaður úr slipp í gærdag.

Innlent
Fréttamynd

Markaður leitar jafnvægis

Forsvarsmenn afurðastöðva telja kjötmarkað vera að leita jafnvægis eftir að kjöt var selt undir markaðsverði um árabil. Þeir telja bændur vanmeta hækkanir en smásöluálagning aukist.

Innlent
Fréttamynd

Aðferðir við val á lista ákveðnar

stjórnmál Fundir í kjördæmisráðum Samfylkingarinnar í fjórum kjördæmum standa fyrir dyrum en á þeim verður ákveðið með hvaða hætti valið verður á lista flokksins fyrir þingkosningarnar í vor.

Innlent
Fréttamynd

Heimavist góð fyrir félagsleg samskipti

Heimavistarskólar á grunnskólastigi eru ekki lengur starfandi í landinu og er börnum í minni skólum boðið upp á akstur til og frá skóla. Guðjón Bjarnason var andsnúinn því að dætur hans yrðu keyrðar daglega og taldi hag þeirra betur borgið á heimavist.

Innlent
Fréttamynd

Fangelsismálastjóri á fundinn

Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins, verður gestur á fundi Allsherjarnefndar Alþingis í dag. Málefni fangelsa verða til umræðu á fundinum en þau hafa verið til umfjöllunar í samfélaginu síðustu daga.

Innlent
Fréttamynd

Segir veiðarnar stórhættulegar

Íslendingar halda á karfaveiðar á alþjóðlega hafsvæðinu í Síldarsmugunni á næstunni. Íslenskur floti hefur aldrei áður veitt markvisst úr karfastofninum og varar Þorsteinn Sigurðsson, hjá Hafrannsóknastofnun, eindregið við þeim.

Innlent
Fréttamynd

Vetrarkvíði hjá jarðverktökum

Framkvæmdir Jarðvinnuverktakar eru uggandi um framtíð sína því engin stór verkefni í jarðverktöku á vegum hins opinbera eru í bígerð. Öll útboð á sviði vegagerðar voru sett á ís í sumar og var það liður í aðgerðum stjórnvalda til að slá á verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Oddvitar oft í starfi sveitarstjóra

Fimmtán sveitarfélög á landinu hafa, að sögn félagsmálaráðuneytisins, ekki valið eða ráðið sveitarstjóra, frá sveitarstjórnarkosningunum nú í maí.

Innlent
Fréttamynd

Flokksmenn beðnir að benda á hugsanlega frambjóðendur

Flokksmönnum í Frjálslynda flokknum hefur borist bréf frá forystu flokksins þar sem þeir eru beðnir að láta vita hvort þeir hafi áhuga á að taka sæti á framboðslistum fyrir þingkosningarnar í vor eða viti af einhverjum sem hugsanlega hefðu áhuga á framboði.

Innlent
Fréttamynd

Flytja út spilliefni

Síðustu sekkirnir með PCB menguðum jarðvegi verða sendir á morgun með gámum til Þýskalands til urðunar. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu 10. maí á þessu ári hafa meira en hundrað tonn af PCB menguðum jarðvegi verið geymd á starfssvæði Hringrásar í Klettagörðum frá því árið 2001, en engin spilliefnamóttaka er hér á landi sem getur tekið á móti PCB menguðum jarðvegi.

Innlent
Fréttamynd

Schengen-samstarfið rætt

Þróun Schengen-samstarfsins og það hvernig Ísland tengist samstarfi innan Evrópusambandsins á sviði réttarfars- og lögreglumála verður í brennidepli á ráðstefnu sem Evrópunefnd forsætisráðherra og Háskólinn á Bifröst standa fyrir nú í vikulokin.

Innlent
Fréttamynd

Minnka þarf veiði

Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ) hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins. Talningar sýna að stofninn er á niðurleið um allt land eftir aðeins tvö ár í uppsveiflu og lagt er til að dregið verði úr rjúpnaveiði í haust með því að takmarka veiðitíma og að sölubann gildi áfram.

Innlent
Fréttamynd

Ákveður sig í næsta mánuði

Gunnar Örlygsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, hefur ekki ákveðið hvort hann sækist eftir áframhaldandi þingmennsku. Ég mun taka ákvörðun í október um hvort ég velji pólitíkina eða þau verkefni sem bíða mín í sjávarútvegi á sviði sölu- og markaðsmála, sagði Gunnar í samtali við Fréttablaðið í gær.

Innlent