Innlent
249 250 251 252 253 254 255 256 257 … 334 ›
Kísilvegurinn lokaður tímabundið í dag Vegna hitaveituframkvæmda verður Kísilvegurinn, vegur 87, lokaður stórum bílum við Litlu Reyki frá kl. 13 til 17 í dag. Bent er á Hvammaveg, nr. 853. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Innlent 14.9.2006 09:14
Borgarafundir gegn umferðarslysum í dag Borgarafundir gegn umferðarslysum verða haldnir á sjö stöðum á landinu samtímis klukkan kortér yfir fimm í dag. Fundirnir bera yfirskriftina "Nú segjum við stopp!" og beinast þeir gegn áhættuhegðun í umferðinni. Innlent 14.9.2006 09:31
Sigurður Kári sækist eftir 2. sæti í öðru hvoru kjördæmanna Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sækist eftir 2. sæti framboðslista flokksins í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Hann hefur því ákveðið að gefa kost á sér í 4. sætið í komandi prófkjöri flokksins. Innlent 14.9.2006 09:25
Stýrivextir hækkaðir um 50 punkta Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 50 punkta og verða þeir eftirleiðis 14 prósent. Þetta er 17. vaxtahækkun Seðlabankans frá því vaxtahækkunarferli bankans hófst í maí fyrir tveimur árum og sú sjötta á þessu ári. Greiningardeildir bankanna segja þetta síðuðust eða næstsíðustu vaxtahækkun Seðlabankans. Viðskipti innlent 14.9.2006 08:56
Gerir ráð fyrir hækkun stýrivaxta um 0,5 prósentustig Ný stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands verður kynnt klukkan níu. Greiningardeild KB banka gerir ráð fyrir hálfs prósentustigs hækkun stýrivaxta, sem og að vaxtalækkunarferlið hefjist á fyrstu mánuðum næsta árs. Innlent 14.9.2006 07:47
Hass haldlagt í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi lagði hald á lítilræði af hassi í gærkvöldi sem fannst í bifreið tveggja pilta um tvítugt. Efnið fannst eftir að lögregla stöðvaði piltana við reglubundið eftirlit og er talið hafa verið til einkaneyslu. Innlent 14.9.2006 07:23
Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir bílveltu Þrír slösuðust þegar fólksbíll valt á malarvegi skammt frá Flúðum í nótt. Ökumaðurinn, sem er innan við tvítugt, var ekki í bílbelti og kastaðist hann út úr bifreiðinni með þeim afleiðingum að hann hlaut alvarlega höfuðáverka. Pilturinn var fluttur með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi og gekkst hann undir aðgerð nú í morgun. Innlent 14.9.2006 07:09
Rannveig hættir í stjórnmálum Samfylkingin í Suðvesturkjördæmi ákvað rétt í þessu á aðalfundi kjördæmisráðs að halda lokað prófkjör fyrir flokksmenn til að velja á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Rannveig Guðmundsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Innlent 13.9.2006 21:51
Vonast til að geta hafið hvalveiðar í október Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., vonast til að geta hafið hvalveiðar í október miðað við yfirlýsingar stjórnvalda. Hann vonast til að fá haffærniskírteini í næstu viku og hvalstöðin í Hvalfirði er í endurnýjun. Innlent 13.9.2006 21:32
Reykvísk börn fá frístundakort Reykvísk börn eiga von á frístundakorti frá borginni með úttekt til að stunda íþróttir, tónlist og annað tómstundastarf. Upphæðin á að hækka í áföngum og verða fjörutíu þúsund, samkvæmt stefnu borgaryfirvalda. Innlent 13.9.2006 21:29
Ákærður fyrir manndráp af gáleysi Maðurinn, sem ók bifreið á hús Vífilfells á Akureyri í byrjun mars með þeim afleiðingum að farþegi lést, var undir áhrifum áfengis. Hann hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Innlent 13.9.2006 21:27
Með góða reynslu af samvinnu við Barnahús Dómstjóri Héraðsdóms Norðurlands eystra segir góða reynslu af samvinnu dómstólsins og starfsfólks Barnahúss. Hann segist þó skilja að Héraðsdómur Reykjavíkur noti eigið starfsfólk þegar börn eru yfirheyrð. Innlent 13.9.2006 21:25
Segir fjármálaráðherra fagna of snemma Verðbólgan minnkar og fjármálaráðherra fagnar. En Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, segir ráðherra fagna góðu gengi of snemma. Innlent 13.9.2006 21:22
Meiri innflutningur á vinnafli til Íslands og Noregs Innflutningur vinnuafls til Íslands og Noregs hefur verið mun meiri en til flestra ríkja evrópska efnahagssvæðisins á undanförnum árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem norræna ráðherranefndin hefur gefið út. Innlent 13.9.2006 21:18
Spá hækkun stýrvaxta Greiningardeild KB banka gerir ráð fyrir að stýrivextir Seðlabanka Íslands verði hækkaðir í fjórtán prósent á morgun. Geiningardeildin gerir þannig ráð fyrir hálfs prósentu hækkun á stýrivöxtum en jafnframt sé um að ræða síðustu hækkunina í þessari uppsveiflu. Stýrivextir taki svo að lækka á nýjan leik á næsta ári. Innlent 13.9.2006 20:53
Blóðbönd tilnefnd til Evrópsku kvikmynda- verðlaunanna Íslenska kvikmyndin Blóðbönd er meðal þeirra 49 kvikmynda sem Evrópska kvikmyndaakademían hefur valið í forval til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Myndin var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto í Kanada í gær og fékk hún góðar viðtökur áhorfenda. Verðlaunaafhendingin fer fram í Varsjá í Póllandi þann 2. desember næstkomandi. Blóðbönd var frumsýnd hér á landi í febrúar. Leikstjóri myndarinnar er Árni Ólafur Ásgeirsson en handrit skrifaði Jón Atli Jónasson. Innlent 13.9.2006 18:55
Ferðatöskumálið upplýst Ferðataskan sem lögreglan í Kópavogi fann í gær með smókingfötum og öðrum fatnaði, er komin til eigenda sín. Ferðatöskunni hafði verið stolið úr ólæstri bifreið nokkrum dögum áður en eigandi töskunnar kom til lögrelunnar í dag og endurheimti fötin sín. Innlent 13.9.2006 18:06
37 milljónir króna söfnuðust í Göngum til góðs 37 milljónir söfnuðust í landsöfnum Rauða kross Íslands, Göngum til góðs, um síðustu helgi. Það er tveimur milljónum krónum meira en safnaðist í söfnuninni fyrir tveimur árum. Innlent 13.9.2006 17:56
Áformum um stóriðju verði slegið á frest Samfylkingin vill að frekari áformum um stóriðju verði slegið á frest og náttúra landsins verði sett í forgang. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem flokkurinn efndi til í dag þar sem ný umhverfisstefna var kynnt. Innlent 13.9.2006 17:18
Gaf safninu ágrip úr dagbókum sínum frá stríðsárunum Fyrrum breskur hermaður gaf í dag Íslenska stríðsminjasafninu á Reyðarfirði teikningar og ljósmyndir frá þeim tíma er hann dvaldist hér á landi við herskyldu fyrir sextíu og fimm árum. Hann segir mikið hafa breyst á þeim tíma en fjöllunum hafi hann þó aldrei gleymt. Innlent 13.9.2006 17:24
Atvinnuleysi í ágúst 1,2 prósent Eins komma tveggja prósenta atvinnuleysi mældist í ágústmánuði síðastliðnum samkvæmt nýjum tölum frá Vinnumálastofnun. Meðalfjöldi atvinnulausra var um 11 prósent minni í ágúst en í júlí og hefur atvinnulausum fækkað um þriðjung frá því í ágúst 2005. Innlent 13.9.2006 17:12
Mikill meirihluti landsmanna fylgjandi atvinnuveiðum Tæplega þrír fjórðu þjóðarinnar eru fylgjandi því að Íslendingar stundi hvalveiðar í atvinnuskyni samkvæmt nýrri könnun sem Capacent gerði fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna. Innlent 13.9.2006 17:07
Mælir með kaupum á bréfum Alfesca Greiningardeild KB banka segir uppgjör Alfesca á öðrum fjórðungi ársins hafi verið yfir væntingum og hafi deildin gefið út nýtt verðmat á fyrirtækið. Deildin mælir með kaupum á hlutabréfa Alfesca. Viðskipti innlent 13.9.2006 16:35
Breytingar hjá Alfesca Nadine Deswasière, framkvæmdastjóri stefnumótunar og þróunar hjá Alfesca, hefur látið af störfum hjá fyrirtækinu. Ákveðið var að hún léti af störfum eftir að fyrirtækið hóf að leggja megináherslu á kjarnastarfsemi fyrirtæksins. Viðskipti innlent 13.9.2006 16:26
Seðlabankinn kynnir breytingu stýrivaxta á morgun Seðlabanki Íslands hefur boðað til fundar með fjölmiðlum á morgun til þess að kynna ákvörðun bankastjórnar um stýrivexti. Stýrivextir eru nú 13,5% en þeir voru síðast hækkaðir þann 16. ágúst. Fundurinn fer fram í fundarsal bankans að Sölvhóli og hefst klukkan 11. Innlent 13.9.2006 15:27
Kínverjinn farinn af landi brott Kínverjinn, sem veitti sjálfum sér áverka í vinnubúðum á Kárahnjúkum 20. ágúst síðastliðinn, er farinn úr landi og hefur látið af störfum. Oddur Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður verkalýðsfélaga á Kárahnjúkum, segir að maðurinn hafi farið af landi brott stuttu eftir að hann losnaði af sjúkrahúsi. Innlent 13.9.2006 15:13
Náttúra landsins verði sett í forgang Samfylkingin vill að frekari áformum um stóriðju verði slegið á frest og náttúra landsins verði sett í forgang. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem flokkurinn efndi til í dag þar sem ný umhverfisstefna var kynnt. Innlent 13.9.2006 14:57
Ótækt að Landsvirkjun starfi í skjóli ríkisábyrgðar Varaformaður iðnaðarnefndar Alþingis telur ótækt að Landsvirkjun starfi í skjóli ríkisábyrgðar og vill að einkafyrirtækjum verði gert kleift að hanna og byggja virkjanir. þingmaður Samfylkingarinnar, segir ákaflega erfitt að hafa virka samkeppni á jafn litlum raforkumarkaði og íslenski raforkumarkaðurinn sé. Innlent 13.9.2006 14:51
Ítrekað ekið á hæðarslár Lögregla kvartar enn undan því að ekið sé á hæðarslár sem komið hefur verið fyrir á gatnamótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar. Síðdegis í gær var þrisvar ekið á hæðarslárnar þrátt fyrir að öllum eigi að vera ljóst að þar sé unnið að gerð mislægra gatnamóta. Innlent 13.9.2006 14:30
Latibær verðlaunaður í Þýskalandi Sjónvarpsþættirnir um Latabæ voru útnefndir eitt besta barnaefni í þýsku sjónvarpi á föstudaginn var. Verðlaunin sem kennd eru við EMIL, sem er þekkt persóna í TV Spielfilm, sjónvarps- og kvikmyndatímariti í Þýskalandi. Innlent 13.9.2006 13:39