Innlent
235 236 237 238 239 240 241 242 243 … 334 ›
Landsflug hættir að fljúga til Eyja Landsflug hefur ákveðið að hætta öllu áætlunarflugi á flugleiðinni frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Ákvörðunin tekur gildi á mánudag en arðsemin var ófullnægjandi að mati stjórnenda Landsflugs. Innlent 22.9.2006 21:30
Fagnar þátttöku Ómars í stjórnmálum Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og iðnaðarráðherra, segist fagna hugsanlegri komu Ómars Ragnarssonar í stjórnmál. Jón telur samt hugmyndir Ómars um að hætta við að taka Kárahnjúkavirkjun og álverið á Reyðarfirði í notkun flokkast undir gamansemi. Innlent 22.9.2006 21:26
Útsendingar NFS heyra sögunni til Tuttugu starfsmönnum NFS var sagt upp í dag, þar af sjö fréttamönnum. Forstjóri fyrirtækisins segir ekki um uppgjöf að ræða, heldur verði áherslum breytt. Samfelldum fréttaútsendingum allan daginn verður hætt í kvöld, en meiri þungi lagður í kvöldfréttir og fréttir á netinu. Innlent 22.9.2006 19:14
Hlutverk Íslendinga á Sri Lanka Íslendingar gegna veigamiklu hlutverki á Srí Lanka, þar sem átökum virðist ekkert vera að linna. Þeir Jóhannes Kr. Kristjánsson og Ingi R. Ingason myndatökumaður eru nýkomnir heim frá Srí Lanka og afraksturinn má sjá í fréttaskýringaþættinum Kompási á sunnudaginn. Innlent 22.9.2006 19:02
Hvít kanína Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands æfir nú sýninguna Hvít kanína sem samin er af leikhópnum og aðstandendum hans. Þetta er fyrsta verkefni vetrarins og er frumsýning í kvöld á Litla sviði Borgarleikhússins. Lífið 22.9.2006 19:07
Ragnheiður sækist eftir öðru sætinu í Suðurkjördæmi Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg, hefur ákveðið að sækjast eftir 2.-3. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Innlent 22.9.2006 17:08
Skífan sektuð um 65 milljónir króna Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins frá því fyrr í sumar um að Skífan skuli greiða 65 milljónir króna í sekt fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sínu og brotið þannig gegn bannákvæðum samkeppnislaga. Innlent 22.9.2006 17:01
Amerískt spínat reyndist ekki mengað Ekkert bendir til þess að amerískt spíntat sem innkallað var af íslenskum markaði í liðinni viku hafi verið mengað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá matvælaeftirliti Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. Innlent 22.9.2006 15:47
Sektaður fyrir að hafa menn í vinnu án atvinnuleyfis Hæstiréttur dæmdi í gær karlmann til greiðslu hálfrar milljónar króna í sekt fyrir að hafa haft sex litháíska ríkisborgara í vinnu án atvinnuleyfis. Innlent 22.9.2006 14:10
Gerð grein fyrir umferðaröryggi Háaleitisbrautar Vegna slyssins við Háaleitisbraut á dögunum, þar sem ekið var á stúlku á gangbraut, óskuðu fulltrúar Samfylkingarinnar eftir því á fundi borgarráðs í gær að gerð verði grein fyrir umferðaröryggi við götuna, hvaða leiðir séu til úrbóta og að lögð verði fram aðgerðaráætlun í því efni. Innlent 22.9.2006 14:21
Útsendingum NFS hætt í dag - 20 manns sagt upp Ákveðið hefur verið að hætta útsendingum fréttastöðvarinnar NFS frá og með deginum í dag. Þetta kom fram á fundi Ara Edwald, forstjóra 365, með starfsmönnum. Um tuttugu manns verður sagt upp störfum, þar af átta frétta- og dagskrárgerðarmönnum. Innlent 22.9.2006 15:27
Orðin mest sótta íslenska heimildarmyndin Íslenska heimildarmyndin Þetta er ekkert mál er orðin sú mest sótta í íslensku kvikmyndahúsi frá upphafi. Yfir átta þúsund manns hafa borið hana augum á þeim tveimur vikum sem liðnar eru frá því að hún var frumsýnd en hún fjallar, eins og kunnugt er, um ævi og afrek kraftlyftingarmannsins Jóns Páls Sigmarssonar. Innlent 22.9.2006 13:05
Al Gore kemur til landsins Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hefur þegið boð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að koma bráðlega hingað til lands og kynna sér meðal annars árangur Íslendinga á sviði endurnýjanlegrar orku. Innlent 22.9.2006 14:54
Meðalverð á fiski hækkar um 10% frá því í janúar Meðalverð á fiski í fiskbúðum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um tíu prósent frá því í janúar, samkvæmt nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Innlent 22.9.2006 13:31
Landsflug hættir flugi til Vestmannaeyja Forsvarsmenn flugfélagsins Landsflugs ehf. hafa tekið þá ákvörðun að hætta öllu áætlunarflugi á Vestmannaeyjar frá og með mánudeginum 25. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir enn fremur að ákvörðunin sé tilkomin vegna þess að flugleiðin hafi ekki staðist væntingar um arðsemiskröfur. Innlent 22.9.2006 14:32
Landsframleiðsla á mann vaxið um 50% á 25 árum Landsframleiðsla á mann á Íslandi hefur vaxið um 50% að raunvirði á síðustu 25 árum. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Innlent 22.9.2006 13:36
Á leið með trillu til Patreksfjarðar Bátur frá björgunarsveitinni á Patreksfirði er nú á leið til hafnar með trillu í eftirdragi sem varð olíulaus í morgun. Þá var hún stödd um sjö sjómílur norður af Kópanesi sem er mitt á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Innlent 22.9.2006 13:52
„Skrifborðsæfing" vegna hugsanlegra hryðjuverka Samæfing yfirstjórna og sérsveita lögreglu á Norðurlöndunum var haldin í Danmörku í fyrradag. Æfingin var svokölluð „skrifborðsæfing“ þar sem látið var reyna á samskipti stjórnstöðva ríkislögreglustjóraembættanna með það að markmiði að æfa samvinnu og samhæfingu við möguleg hryðjuverkatilfelli á Norðurlöndunum. Innlent 22.9.2006 13:02
Týr fagnar eins árs afmæli Því verður fagnað í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á morgun að nautið Týr er eins árs. Eins og flestum er kunnugt um þá er Týr 25. afkvæmi merkisnautsins Guttorms og arftaki hans í garðinum. Lífið 22.9.2006 13:35
Í gæsluvarðhald eftir ránsferð um landið Tveir ungir menn úr hópi þjófagengis, sem farið hefur ránshendi víða um land að undanförnu, voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gærkvöldi. Innlent 22.9.2006 12:59
Róberti sagt upp störfum sem forstöðumaður NFS Róbert Marshall hefur verið sagt upp störfum sem forstöðumaður NFS. Þetta kemur fram í bréfi sem hann sendi starfsfólki í morgun. Eins og greint hefur verið frá stendur til að gera breytingar á útsendingum stöðvarinnar og verða þær kynntar á næstunni. Innlent 22.9.2006 13:02
Húsaleiga fer hækkandi á höfuðborgarsvæðinu Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu fer hækkandi þrátt fyrir offramboð á húsnæði og að íbúðir standi tómar. Formaður Húseigendafélagsins rekur þessa þróun til þess að færri og færri fái nú fyrirgreiðslu til fasteignakaupa og að eftirspurn hafi því aukist á leigumarkaði. Innlent 22.9.2006 12:52
Vill varanlegar lausn á húsnæðismálum NÍ Umhverfisráðherra segir tíma til kominn að húsnæðisvandi Náttúfurfræðistofnunar Íslands og náttúrugripasafnsins verði leystur. Hún leggur til að stofnununum verði fundinn staður á Keflavíkurflugvelli. Innlent 22.9.2006 12:47
Enn líf á íbúðamarkaði Íbúðaverð hækkaði um 2,4 prósent á milli júlí og ágúst á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt vísitölu sem Fasteignamat ríkisins birti í gær. Mælingin gefur til kynna að enn sé líf að finna á íbúðamarkaði og bið sé í verðlækkun, að mati greiningardeildar Glitnis. Viðskipti innlent 22.9.2006 12:41
Nýsköpunarsjóður fjárfestir í Marorku Nýsköpunarsjóður hefur ákveðið að fjárfesta í Marorku ehf., hátæknifyrirtæki á sviði orkustjórnunar og orkusparnaðar í sjávarútvegi og flutningum. Hlutur sjóðsins verður um 20 prósent og mun innkoma hans styrkja stoðir Marorku og opna félaginu nýja möguleika. Viðskipti innlent 22.9.2006 12:37
Útlendingaeftirlitið yfirvarp fyrir íslenska njósnastarfsemi Útlendingaeftirlitið var áratugum saman notað að hluta sem yfirvarp fyrir íslenska njósnastarfsemi. Njósnirnar beindust einkum að starfsemi austantjaldsríkja hérlendis og starfsemi kommúnista og sósísalista. Þetta kemur fram í grein Þórs Whitehead sagnfræðings, sem vakið hefur mikla athygli. Innlent 22.9.2006 12:30
Stenst ekki lög - jafnvel ekki stjórnarskrá Öryrkjabandalagið ætlar í mál við lífeyrissjóðina fjórtán, sem ákveðið hafa að skerða eða fella niður lífeyrisgreiðslur til öryrkja, ef ákvörðuninni verður ekki breytt fyrir næstu mánaðamót. Formaður bandalagsins segir alveg ljóst að aðgerðin standist ekki lög, jafnvel ekki stjórnarskrá. Innlent 22.9.2006 12:00
Hjólið óskráð og ljóslaust Bíll og mótorkross hjól lentu í árekstri í Gilsbúð í Garðabæ í gærkvöldi og meiddist ökumaður hjólsins, en ekki alvarlega. Hjólið var óskráð, ljóslaust og ökumaðurinn hafði ekki réttindi til aksturs vélhjóla. Innlent 22.9.2006 08:16
Niðurstöður varnarviðræðna kynntar eftir helgi Ekki verður greint frá samkomulagi Íslendinga og Bandaríkjamanna í varnarmálum og viðskilnaði hersins við landið fyrr en í næstu viku að sögn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, aðstoðarkonu Geirs H. Haarde forsætisáðherra. Geir lýsti því yfir fyrr í vikunni að samkomulagið lægi fyrir örðu hvorum megin við helgina en nú er ljóst að það verður ekki fyrir helgi. Innlent 22.9.2006 10:48
Trilla olíulaus úti fyrir Kópanesi á Vestfjörðum Björgunarbátur frá Patreksfirði var kallaður út í morgun um klukkan níu vegna trillu sem varð olíulaus um sjö sjómílur norður af Kópanesi sem er mitt á milli Arnarfjarðar og Dýrarfjarðar. Ekkert amaði að skipverjanum á trillunni og er gott veður á staðnum. Innlent 22.9.2006 11:09
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent