Innlent
224 225 226 227 228 229 230 231 232 … 334 ›
Krefjast þess að fá land varnarliðsins aftur Eigendur að stórum hluta þess lands sem tekið var undir herstöðina á Keflavíkurflugvelli krefjast þess að fá landið til baka nú þegar íslensk stjórnvöld taka við því við brottför hersins. Landeigendurnir hafa aldrei sætt sig við landtökuna, hafnað nauðungarbótum og staðið í lagaþrætu við Bandaríkjaher og utanríkisráðuneytið í sextíu og fimm ár. Innlent 30.9.2006 18:32
Velti tengivagni með bílhræjum á Dynjandisheiði Bílhræ liggja nú á víð og dreif á kafla á Dynjandisheiði á Vestfjörðum eftir að tengivagn flutningabíls valt þar í dag. Flutningabíllinn var á leið upp á heiðina þegar vagninn valt í beygju með þeim afleiðingum að samanpressuð bílhræ á vagninum flugu út í móa. Innlent 30.9.2006 16:22
Sameiginlegt prófkjör hjá Vg á höfuðborgarsvæðinu Vinstri - grænir hafa ákveðið að halda sameiginlegt forval í báðum Reykjavíkurkjördæmunum og Suðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Þetta varð ljóst eftir að kjördæmisráð flokksins í Suðvesturkjördæmi samþykkti tillögu þar að lútandi á fimmtudag. Innlent 30.9.2006 16:11
Keflvíkingar bikarmeistarar árið 2006 Keflvíkingar eru bikarmeistarar árið 2006 eftir frækinn 2-0 sigur á KR-ingum á Laugardalsvelli í úrslitaleik. Guðjón Antoníusson og Baldur Sigurðsson skoruðu mörk Keflvíkinga í fyrri hálfleik, en þrátt fyrir að KR-ingar hafi lagað leik sinn í þeim síðari, var sigur Keflvíkinga fyllilega verðskuldaður. Innlent 30.9.2006 15:58
Sofnaði undir stýri í Hvalfjarðargöngum Ungur ökumaður gaf sig í eftirmiðdaginn fram við lögreglu og sagðist hafa verið valdur að umferðaróhappi í Hvalfjarðargöngum í nótt. Að sögn lögreglu sofnaði hann við stýrið og missti stjórn á bílnum. Innlent 30.9.2006 15:41
Lærbrotnaði þegar hann klemmdist á milli tveggja bifreiða Sjö ára gamall drengur lærbrotnaði í dag að hann klemmdist á milli tveggja bifreiða. Atvikið var með þeim hætti að móðir hans hafði brugðið sér inn í hús og skilið hann og systur hans eftir í bíl sínum. Annað þeirra náði að losa bifreiðina úr gír og setja í hlutlausan og við það rann bifreiðin af stað. Innlent 30.9.2006 15:36
Myrkvun Reykjavíkur vekur mikla athygli Borgarmyrkvinn síðastliðinn fimmtudag virðist hafa fengið mikla umfjöllun um allan heim eftir því sem segir í tilkynningu frá alþjóðlegri kvikmyndahátíð sem stóð fyrir uppátækinu. Innlent 30.9.2006 15:23
Vill að kannað verði hvort jafnræðisregla hafi verið brotin Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur skrifað menntamálaráðherra og óskað eftir svari við því hvort Þjóðskjalasafnið hafi brotið jafnræðisreglu stjórnsýslulaga þegar það veitti fræðimönnunum Helgu Kress og Halldóri Guðmundssyni aðgang að bréfasafni Halldórs Laxness en synjaði Hannesi um slíkan aðgang árið 2003. Innlent 30.9.2006 15:04
Tafir á umferð um Dynjandisheiði vegna umferðaróhapps Vegna umferðaóhapps verða tafir á umferð um Dynjandisheiði á milli kl. 15 og 18 í dag. Vegfarendur eru beðnir að sýna tillitsemi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Ekki hefur náðst í lögreglu á Ísafirði og því liggur ekki fyrir hvers eðlis slysið er. Innlent 30.9.2006 14:51
Iceland Naturally hleypt af stokkunum í Þýskalandi Verkefnið Iceland Naturally, þar sem náttúra Íslands og matvæli eru kynnt á erlendum mörkuðum, hófst formlega í Þýskalandi á fimmtudag. Samgönguráðherra flutti ávarp við opnun jarðvísindasýningar í Frankfurt en þar er Ísland kynnt í sérstakri deild. Innlent 30.9.2006 14:04
Október helgaður baráttunni við brjóstakrabbamein Októbermánuður verður helgaður baráttunni við brjóstakrabbamein eins og undanfarin sex ár. í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu segir að boðið verði upp á fræðslu um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku. Innlent 30.9.2006 13:38
Síðasta skemmtiferðaskip sumarsins Skemmtiferðaskipið Stjörnuprinsessan er síðasta skemmtiferðaskipið sem kemur til landsins þetta sumar. Það lagðist að bryggju í morgun í fallegu veðri. Innlent 30.9.2006 12:54
Þjónustusamningur sýnir að hlutafélagavæðing sé óþörf Þjónustusamningurinn við Ríkissjónvarpið sýnir að hlutafélagavæðing RÚV er óþörf segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar. Forseti Bandalags íslenskra listamanna fagnar samningnum en telur RÚV hafa efni á að gera enn betur. Innlent 30.9.2006 12:48
Sjónvarpið fagnar 40 ára afmæli Fjörutíu ár eru í dag liðin frá því að Ríkissjónvarpið hóf útsendingar. Það var 30. september 1966 sem sjónvarpið fór í loftið með ávarpi Vilhjálms Þ. Gíslasonar útvarpsstjóra. Afmælinu verður fagnað í kvöld með skemmtidagskránni - Afsakið meðan við afmælum - sem verður í beinni útsendingu í tvær og hálfa klukkustund en þar munu Spaugstofan, Jón Ólafs og fleiri skemmta áhorfendum. Innlent 30.9.2006 12:29
Fram fari óháð rannsókn á leyniþjónustu í kalda stríðinu Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, segir Sjálfstæðisflokkinn eiga að koma hreint fram og láta fara fram óháða rannsókn á hvernig flokkurinn kom að rekstri leyniþjónustu hér á landi á tímum kalda stríðsins. Hann fagnar því að ríkisstjórnin ætli að breyta lögum til að auðvelda störf nefndar sem er að skoða gögn um símahleranir og starfsemi öryggislögreglu. Innlent 30.9.2006 12:26
Bandaríski herinn kveður í dag Bandaríski herinn fer af landi brott í dag eftir fimmtíu og fimm ára veru á Miðnesheiði. Herstöðvaandstæðingar sem ætla að fagna brottför hersins við herstöðina á morgun fá ekki að draga íslenska fánann þar að húni. Innlent 30.9.2006 12:02
Þrír teknir fyrir ölvunarakstur á Akranesi Þrír voru teknir grunaðir um ölvunarakstur innanbæjar á Akranesi í nótt. Að sögn lögreglu á staðnum er það óvenjumikill fjöldi í bænum á ekki lengri tíma. Einn þeirra sem tekinn var er jafnframt grunaður um að hafa brotið rúðu í bíl og stolið þaðan hlutum en hann var handtekinn upp úr klukkan eitt í nótt. Innlent 30.9.2006 10:41
Formlegar sprengingar við Héðinsfjarðargöng hefjast í dag Sturla Böðvarsson samgönguráðherra tendrar fyrstu formlegu sprengingu við Héðinsfjarðargöng klukkan fjórtán í dag. Sprengingin verður framkvæmd við gangamunna Siglufjarðarmegin í Skútudal. Innlent 30.9.2006 11:03
Handteknir fyrir rúðubrot og fyrir að veitast að lögreglu Tveir menn gista nú fangageymslur lögreglunnar í Keflavík eftir ölvun og ofstopa í samskiptum við lögreglu. Lögregla var kvödd að húsnæði Tryggingamiðstöðvarinnar við Hafnargötu í nótt eftir að annar þeirra hafði brotið rúðu þar. Innlent 30.9.2006 10:34
Fáklædd í vesturbænum Lögreglan í Reykjavík þurfti að hafa afskipti af nokkrum fáklæddum einstaklingum í vesturbænum í nótt. Hún hafði fyrst afskipti af 16 ára pitli þar sem hann hljóp um á nærbuxunum einum fata og var honum gert að klæða sig og tal haft af foreldrum hans. Innlent 30.9.2006 10:03
Sérsveit Ríkislögreglustjóra kölluð út á Akureyri Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð út á Akureyri um fimmleytið í nótt vegna manns í heimahúsi í miðbænum sem hugðist taka sitt eigið líf með skotvopni. Lögregla fékk tilkynningu um málið um hálffimm og var þá allt tiltækt lið sent á vettvang og svæðið í kringum húsið lokað af, eins og alltaf er gert í tilvikum sem þessum. Innlent 30.9.2006 09:54
Boðar eflingu sveitastjórnarstigsins í landinu Nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga boðar eflingu sveitastjórnastigsins í landinu. Í fyrsta sinn í sögu sambandsins var kosið á milli formannsefna. Innlent 29.9.2006 23:12
16 ára með tæplega áttaíu grömm af hassi Sextán ára piltur var í gær dæmdur í Héraðsdómi Vestfjarða til að greiða 160.000 krónur í sekt fyrir að hafa haft í vörslum sínum 77,61 gramm af hassi. Pilturinn kastaði fíkinefnunum út úr bíl sem hann var farþegi í þegar lögreglan stöðvaði för bílsins við Ögurnes í Ísafjarðardjúpi. Innlent 29.9.2006 22:52
Dæmdur fyrir að ganga í skrokk á sambýliskonu sinni Tæplega fertugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ganga í skrokk á sambýliskonu sinni. Innlent 29.9.2006 22:37
Eldur í rusli við félagsmiðstöð Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld að félagsmiðstöðinni Árseli í Árbæ. Kveikt hafði verið í rusli um sex til sjö metra frá húsinu. Þegar slökkviliðið kom á svæðið hafði starfsfólki félagsmiðstöðvarinnar tekist að slökkva eldinn. Innlent 29.9.2006 21:31
Framtíðarsýn þarf að fara saman með sýn heimamanna Atvinnuþróunarráð Sambands sveitarfélaganna á Suðurnesjum leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja að stefna og framtíðarsýn þeirra aðila sem fá úthlutað byggingum til afnota á svæði Varnarliðsins, fari saman með stefnu sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Innlent 29.9.2006 20:24
Kristín Á Guðmundsdóttir sækist eftir 3. sæti í Kraganum Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, sækist eftir þriðja sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Kristín hefur starfað sem formaður Sjúkraliðafélagins í fjölda ára. Innlent 29.9.2006 19:57
Giuliani útilokar ekki að bjóða sig fram til forseta Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York-borgar, segir að Bandaríkjamenn eigi að taka sér íslenskt samfélag til fyrirmyndar. Hann útilokar ekki að bjóða sig fram til forseta. Innlent 29.9.2006 19:40
Ekki leyniþjónusta Sjálfstæðisflokksins Forsætisráðherra segir aðdróttanir um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi rekið leyniþjónustu móðgandi og fáránlegar. Innlent 29.9.2006 18:56
Kappakstursbæjarfélag rís á Reykjanesi Fyrsta skóflustungan, að gerð bílaíþróttasvæðis með nokkur þúsund manna byggð í kringum, verður tekin á morgun. Þrjár kappaksturbrautir fyrir ríflega hálfan milljarð íslenskra króna verða lagðar. Innlent 29.9.2006 17:55