Innlent
204 205 206 207 208 209 210 211 212 … 334 ›
ELKEM flytur starfsemi sína frá Ålvik til Grundartanga Stjórn Elkem ákvað í dag að leggja niður drjúgan hluta af framleiðslu járnblendiverksmiðju félagsins í Ålvik í Noregi og flytja hana til Íslands. Forstjóri Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga er að vonum ánægður, en þetta þýðir um fjörutíu ný störf í fyrirtækinu. Innlent 13.10.2006 15:56
Býður sig fram í 2. sætið Einar Már Sigurðarson, alþingismaður, býður sig fram í 2. sætið á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi í prófkjöri flokksins sem fram fer seinna í mánuðinum. Innlent 13.10.2006 15:50
Vilja fjölga opinberum störfum í Bolungarvík Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík skorar á ríkisstjórnina að fjölga opinberum störfum í Bolungarvík í stað þeirra starfa sem lögð hafa verið niður hjá Ratsjárstofnun á Bolafjalli. Það þykir ekki í samræmi við byggðaáætlun að flytja störf af landsbyggðinni. Innlent 13.10.2006 15:33
Eignarhlutur Straums-Burðaráss samþykktur Breska fjármálaeftirlitið hefur veitt Straumi-Burðarási heimild til að fara með 50 prósenta eignarhlut í breska ráðgjafarfyrirtækinu Stamford Partners. Fjármálaeftirlitið hefur jafnframt tilkynnt Straumi-Burðarási að það geri ekki athugasemdir við virkan eignarhlut bankans í ráðgjafarfyrirtækinu. Viðskipti innlent 13.10.2006 15:27
Segir von á fleiri kvörtunum til Samkeppniseftirlitsins Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, segir úrskurð Samkeppniseftirlitsins um að Osta- og smjörsalan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart fyrirtækinu sigur fyrir Mjólku. Hann segir að fyrirtækið hyggist senda fleiri mál til Samkeppniseftirlitsins vegna þess sem hann kallar undirboð Osta- og smjörsölunnar. Innlent 13.10.2006 15:23
Vinstri grænir flýta landsfundi Vinstrihreyfinginn – grænt framboð hefur ákveðið að flýta landsfundi sínum vegna komandi alþingiskosninga. Fundurinn er vanalega haldinn að hausti til en verður í febrúar á næsta ári, nánar tiltekið 23. - 25 febrúar árið 2007 á Grand Hóteli Reykjavík. Innlent 13.10.2006 15:08
Tveir slösuðust í vinnuslysi skammt frá Hvolsvelli Verið er að flyjta tvo menn með sjúkrabíl frá Hvolsvelli á slysdeild Landspítalans í Fossvogi eftir vinnuslys á bóndabæ skammt fyrir utan Hvolsvöll. Slysið var með þeim hætti að annar mannanna var að festa upp ljós og stóð í fiskikari sem fest var á gaffla á dráttarvél en karið rann fram af göfflunum og lenti ofan á manninum. Innlent 13.10.2006 14:54
Ungir leiðtogar ræða um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum Þessa dagana er haldinn hér á landi alþjóðlegur samráðsfundur um aðgerðir gegn loftlagsbreytingum að frumkvæði samtaka ungra forystumanna á heimsvísu, Young Global Leaders, sem starfa á vettvangi hinnar árlegu Davos-ráðstefnu, World Economic Forum. Innlent 13.10.2006 14:36
Rannsókn á orkustuldi látin niður falla Ríkissaksóknari hefur tekið ákvörðun um að ljúka máli vegna meints þjófnaðar á orkuforða á Ísafirði. Lögreglu var tilkynnt um málið þegar verið var að vinna að breytingum á götu í bænum en þar kom í ljós að tengingum í rafmagstöflu hafði verið breytt og vaknaði þá grunur um þjófnað á orkuforða. Innlent 13.10.2006 14:24
Níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir eignaspjöll Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til þriggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir eignaspjöll. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa slegið ítrekað í vélarhlíf og framrúðu leigbíls með þeim afleiðingum að vélarhlífin rispaðist og framrúðan brotnaði. Innlent 13.10.2006 13:39
Spyr hví Týr sé merktur Coast Guard Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra, um hvers vegna varðskipið Týr sé núna merkt Landhelgisgæslunni á ensku, á hliðum skipsins. Innlent 13.10.2006 13:16
Segir mannleg mistök hafa valdið mismundandi verðlagningu Forsvarsmenn Osta- og smjörsölunnar segja að mannleg mistök hafi orðið þess valdandi að Mjólka hafi þurft að greiða meira fyrir undanrennuduft en Ostahúsið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu í kjölfar úrskurðar Samkeppniseftirlitsins um að Osta - og smjörsalan hafi brotið gegn samkeppnislögum með verðlagningunni. Innlent 13.10.2006 13:08
Gagnrýna hvor aðra fyrir gagnrýni Ríkisendurskoðun og Umhverfisstofnun gagnrýna nú hvor aðra fyrir gagnrýni hvorrar á verkum annarrar og er mergur málsins orðinn aukaatriði. Innlent 13.10.2006 12:28
Ræða ekki málefni einstakra starfsmanna Stjórnendur álvers Alcan í Straumsvík segjast ekki ætla að ræða málefni einstakra aðila innan fyrirtækisins, en eins og kunnugt er héldu starfsmenn fjölmennan fund í Hafnarfirði í gær til að mótmæla uppsögnum þriggja starfsmanna fyrirtækisins fyrir skemmstu. Innlent 13.10.2006 12:25
Gorbastjov hugsanlega heiðursforseti Friðarstofnunar Reykjavíkur Höfði verður aðsetur Friðarstofnunar Reykjavíkur sem verður að veruleika innan tíðar. Svo gæti farið að Mikail Gorbatsjov yrði heiðursforseti stofnunarinnar. Fyrrum forseti Slóvakíu sem undirbýr stofnunina segir Ísland besta staðinn fyrir friðarviðræður. Innlent 13.10.2006 12:16
Sakar Kristján Þór um að ljúga að kjósendum sínum Bæjarfulltrúi L-listans á Akureyri vill að bæjarstjórinn taki sér launalaust leyfi meðan hann gegni prófkjörsbaráttu. Hann sakar Kristján Þór Júlíusson um að hafa logið að kjósendum sínum. Innlent 13.10.2006 12:09
Vefritið Vefritið opnað í dag Nýtt vefrit um pólitík og samfélagsmál, Vefritið, var opnað formlega í dag. Fram kemur í tilkynningu frá ritstjórn Vefritsins að í það skrifi fjölbreyttur hópur ungs fólks sem eigi það sameiginlegt að vera frjálslynt félagshyggjufólk. Innlent 13.10.2006 11:48
Misnotaði markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólku Samkeppniseftirlitið telur að Osta-og smjörsalan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólku ehf og þannig brotið gegn samkeppnislögum. Innlent 13.10.2006 11:37
Tvöfaldaður á næstu árum Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, segir að vegurinn á milli Reykjavíkur og Selfoss verði tvöfaldaður á næstu árum. Þetta muni liggja fyrir í nýrri vegaáætlun sem ríkisstjórnin kynnir í vetur. Innlent 13.10.2006 11:15
200 börn bíða eftir plássi á frístundaheimili Um 200 börn bíða nú eftir plássi á á frístundaheimilum borgarinnar og furðar fulltrúi Samfylkingarinnar í Hverfisráði Grafarvogs, Dofri Hermannsson, sig á sinnuleysi borgaryfirvalda í málinu. Í tilkynningu frá Dofra segir að vegna skorts á starfsfólki séu 63 börn á biðlista eftir plássi á frístundaheimili í Grafarvogi einum og séu sum þeirra fötluð eða með þroskafrávik og þurfi á sérstökum stuðningi að halda. Innlent 13.10.2006 10:48
Tólf ákærðir fyrir mótmæli við Kárahnjúka Búið er að birta tólf þeirra sem mótmæltu við Kárahnjúkavirkjun í sumar ákærur fyrir að fara í óleyfi inn á virkjanasvæðið. Brot þeirra varða allt að eins árs fangelsi. Innlent 13.10.2006 10:32
Kaupþing gefur út skuldabréf í Japan Kaupþing gaf í dag út svokölluð Samurai skuldabréf í Japan fyrir samtals 50 milljarða japanskra jena eða 29 milljarða íslenskra króna. Þetta er fyrsta skuldabréfaútgáfa Kaupþings banka í Japan. Viðskipti innlent 13.10.2006 10:16
Guðrún sækist eftir 4. -5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Guðrún Ögmundsdóttir þingkona sækist eftir fjórða til fimmta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fer fram 11. nóvember og er vegna komandi þingkosninga. Guðrún hefur setið á þingi frá árinu 1999 og skipaði í síðustu kosningum 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. Innlent 13.10.2006 10:12
Þjóðarhreyfingin vill að varnarsamningi verði sagt upp Þjóðarhreyfingin mótmælir breyttum varnarsamningi milli Íslands og Bandaríkjanna og skorar á stjórnarandstöðuflokkana að lýsa því yfir nú þegar að myndi þeir ríkisstjórn eftir kosningar að vori, verði varnarsamningnum sagt upp. Innlent 13.10.2006 09:59
Þungfært á Tröllatunguheiði Það er góð færð um allt land nema hvað Tröllatunguheiði er þungfær og það er krap á Steinadalsheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Innlent 13.10.2006 09:44
Velti tvær og hálfa veltu Sautján ára ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Langstaðavegi, rétt fyrir austan Selfoss í gærkvöldi, með þeim afleiðingum að bíllinn fót útaf og valt tvær og hálfa veltu uns hann nam staðar. Innlent 13.10.2006 08:10
Lögreglan leysti upp partí Lögreglan í Kópavogi, í samvinnu við lögregluna í Hafnarfirði, leysti upp partí í heimahúsi í Kópavogi í nótt og handtók átta ungmenni, eftir að hass og amfetamín fundust þar við húsleit. Innlent 13.10.2006 08:04
Ekið á hross Hestur drapst þegar bíl var ekið á hann á þjóðveginum skammt frá Hólum í Hjaltadal í gærkvöldi. Höggið var svo mikið að bíllinn er gjör ónýtur og var ökumaður hans fluttur á sjúkrahús, en reyndist ekki alvarlega slasaður. Innlent 13.10.2006 08:01
Framtíð járnblendiverksmiðjunnar í Alvik ræðst í dag Það ræðst á stjórnarfundi hjá Elkem i Noregi í dag, hvort járnblendiverksmiðjunni í Alvík í Noregi verður lokað og hún flutt upp á Grundartanga og bætt við verksmiðju fyrirtækisins þar. Innlent 13.10.2006 07:18
Fríverslunar- og fjárfestingarsamningar ræddir Fríverslunar- og fjárfestingarsamningar milli Íslands og Bandaríkjanna voru meðal þess sem rætt var á fundi Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra, og Susan Schwab, viðskiptafulltrúa Bandaríkjastjórnar, í Washington í gær. Fjárfestingarsamningur myndi greiða fyrir vegabréfsáritunum til lengri tíma fyrir þá Íslendinga sem þurfa til Bandaríkjanna í viðskiptaerindum. Innlent 12.10.2006 20:01