Innlent
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 334 ›
Segir ríkið refsa vel reknum ríkisfyrirtækjum Gísli S. Einarson, bæjarstjóri á Akranesi, segir ljóst að fái sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi ekki fjárframlög við afgreiðslu fjáraukalaga sé ríkisvaldið að refsa þeim ríkisfyrirtækjum sem standa sig vel í rekstri. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorni. Innlent 24.11.2006 11:04
Yfirdýralæknir: Ekki sleppa Sigurerni Erninum Sigurerni verður ekki sleppt í dag því í morgun þegar menn voru í þann mund að fanga hann í Húsdýragarðinum komu fyrirmæli frá yfirdýralækni um að sleppa fuglinum ekki. Að hans sögn er beðið eftir niðurstöðum sýna sem tekin voru fyrr í vikunni. Innlent 24.11.2006 10:26
Segja skrýtið að skattur af geisladiskum sé lækkaður en ekki af lyfjum Samtök framleiðenda frumlyfja, Frumtök, segja það skjóta skökku við að í umræðum um lækkun virðisaukaskatts á ýmsm nauðsynjum sé ekki rætt um lækkun skatts á lyfjum. Fram kemur í tilkynningu frá Frumtökum að lyf beri nú 24,5 prósenta virðisaukaskatt en hins vegar sé stefnt að því að lækka virðisaukaskatt á bæði gosdrykkjum og geisladiskum. Innlent 24.11.2006 10:16
Prófkjör hjá sjálfstæðismönnum í Norðausturkjördæmi á morgun Sjálfstæðismenn í Norðausturkjördæmi ákveða á morgun í prófkjöri hvernig framboðslisti þeirra fyrir komandi þingkosningar kemur til með að líta út. Kosið verður á 22 stöðum í kjördæminu en auk þess var kosið í Grímsey á miðvikudaginn var. Innlent 24.11.2006 09:58
Tvöföldun Suðurlandsvegar verði tryggð tafarlaust Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Árborg skorar á Alþingi og ríkisstjórn að tryggja tvöföldun Suðurlandsvegar án tafar með lögfestingu verksins á vegaáætlun. Þetta kemur fram í ályktun frá ráðinu. Þar segir einnig að umferð á veginum hafi tvöfaldast á fáum árum auk þess sem bent er á að skipaflutningar hafi lagst af með fram ströndum og fari nú þungaflutningar um vegi landsins. Innlent 24.11.2006 09:41
Er enn haldið sofandi í öndunarvél Karlmaður sem brenndist illa í eldsvoða í Ferjubakkanum þann 7. nóvember síðastliðinn, er enn á gjörgæsludeild, þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél. Eiginkona hans lést af sárum sínum. Innlent 24.11.2006 09:36
Evróvisjónævintýri Silvíu Nætur klúður ársins Evróvisjónævintýri Silvíu Nætur var valið klúður ársins, þegar Gullkindin svonefnda var veitt í gærkvöldi. Hún er veitt þeim sem með einhverju móti hafa staðið sig sérlega illa á árinu. Búbbarnir þóttu versti sjónvarpsþátturinn og heiðursverðlaunin, sem er vafasamasti heiðurinn, fékk Árni Johnsen, væntanlega fyrir tæknileg mistök. Innlent 24.11.2006 08:44
Vilja meina för ráðherra á fund NATO Fulltrúar samtaka herstöðvaandstæðinga ætla í dag að fara fram á það við sýslumanninn í Reykjavík, að hann setji lögbann á för íslenskra ráðherra á fund Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn verður í Riga í Lettalandi í næstu viku. Innlent 24.11.2006 08:42
Fíkniefni í söluumbúðum fundust Lögreglan í Kópavogi handtók ungan mann í nótt eftir að hafa fundið nokkra skammta af fíkniefnum í söluumbúðum í fórum hans. Í framhaldinu var gerð húsleit heima hjá honum og þar fannst talsvert af hassi, marijúana, amfetamíni og ofskynjunarefnum, sem talið er víst að maðurinn hafi ætlað til sölu. Innlent 24.11.2006 08:38
Þjófar létu greipar sópa Bíræfinn þjófur, eða þjófar, létu greipar sópa um alla skápa og hirslur í tveggja hæða einbýlishúsi í Mosfellsbæ í gærdag, þegar íbúar voru að heiman, og nemur andvirði þýfisins hundruðum þúsunda, ef ekki milljónum króna. Innlent 24.11.2006 08:24
Björgólfur selur tékkneskt fjarskiptafyrirtæki Félög, sem að mestu eru í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar hafa selt eignarhlut sinn í tékkneska fjarskiptafyrirtækinu C-Ra, fyrir um 120 milljarða króna. Þetta mun vera stærsta fyrirtækjasala Íslendinga í útlöndum til þessa. Innlent 24.11.2006 08:13
Óttast fylgistap vegna Árna Víðtæk og hörð andstaða mun vera meðal þingmanna Sjálfstæðisflokksins við að Árni Johnsen verði á framboðslista í kosningunum í vor. Herma heimildir Fréttablaðsins að þingmennirnir óttist mjög að flokkurinn muni tapa stuðningi kjósenda um allt land bjóði hann Árna fram. Innlent 23.11.2006 22:29
Rússneskum hundum lógað Lögreglan á Akureyri lógaði tveimur hundum klukkan hálftíu á fimmtudagsmorgun. Hundarnir voru í eigu rússneskra sjómanna á skipinu Kazan, sem legið hefur við landfestar í höfn bæjarins í tvær vikur. Innlent 23.11.2006 22:28
Ætlaði að stinga af með sjö mánaða son sinn Lögreglan á Akureyri stöðvaði í gærmorgun mann hátt á fertugsaldi sem hugðist fara með sjö mánaða gamlan son sinn úr landi með flugi til Kaupmannahafnar Innlent 23.11.2006 22:28
Sektir upp á hálfa milljón Ársreikningaskrá fær heimild frá og með næsta ári til að leggja sektir á félög, er virða ekki skilafrest á ársreikningum, nái frumvarp fjármálaráðherra fram að ganga. Sektarupphæðin getur numið allt að hálfri milljón króna en fjárhæðin mun ráðast af stærð félaga. Innlent 23.11.2006 22:29
Sjálfstæðisþingmenn óttast framboð Árna Innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins er þungum áhyggjum lýst vegna veru Árna Johnsen á lista flokksins í kosningunum í vor. Menn óttast að flokkurinn geti skaðast í öllum kjördæmum. Málið hefur verið rætt á þingflokksfundum. Innlent 23.11.2006 22:29
Sekt fyrir vanrækslu á hrossum Hrosseigandi á Suðurlandi hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 700 þúsund krónur í sekt eða sæta ella fangelsi í 34 daga vegna grófrar vanrækslu á aðbúnaði, umhirðu og fóðrun á ellefu hrossum, sem hann var umráðamaður yfir og stóðu inni í hesthúsi í febrúar. Fjórum hrossum úr hópnum var lógað. Innlent 23.11.2006 22:29
Var sýknaður af nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað karlmann af ákæru um nauðgun. Hann var ákærður fyrir að hafa þvingað unglingsstúlku með ofbeldi til samræðis í bifreið í byrjun sumars. Dómurinn taldi ekki sannað, að kynmökin hefðu verið gegn vilja stúlkunnar. Innlent 23.11.2006 22:29
Samkomulag um kolmunna Ársfundi Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC, lauk í London nýverið. Á fundinum var meðal annars fjallað um stjórn veiða á kolmunna, úthafskarfa, norsk-íslenskri síld, og makríl fyrir árið 2007 auk verndunar viðkvæmra hafsvæða. Innlent 23.11.2006 22:29
Ríkisstjórn þarf að samþykkja Ríkisstjórn Íslands og stjórn skipasmíðafyrirtækisins Asmar í Chile þurfa að veita samþykki sitt áður en hægt er að skrifa undir samning um smíði á nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Innlent 23.11.2006 22:29
Aðstaða víða ófullnægjandi Aðstaða til smíðakennslu er harðlega gagnrýnd í bréfi sem Félag íslenskra smíðakennara hefur ritað Menntasviði Reykjavíkurborgar. Í bréfinu segir að víða í nýjum skólum sé aðstaða til smíðakennslu takmörkuð og að smíðakennarar fáist ekki til að sækja um störf vegna aðstöðuleysis. Innlent 23.11.2006 22:29
Sjö ára fangelsi fyrir smygl Tveir Litháar á fertugsaldri, Šarunas Budvytis og Virunas Kavalciukas, voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í sjö ára fangelsi fyrir að reyna að smygla 11,9 kílóum af amfetamíni til landsins í bíl, sem þeir fluttu hingað með ferjunni Norrænu í sumar. Innlent 23.11.2006 22:29
Fimm ára fangelsisdómur Rúmlega tvítugur maður var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, auk fleiri brota, í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Maðurinn stakk annan mann fyrir utan íbúðarhús í Hafnarfirði hinn fjórtanda maí síðastliðinn. Fórnarlambið hlaut lífshættulega áverka og eru afleiðingarnar af völdum hnífstungunnar varanlegar. Innlent 23.11.2006 22:29
Kópavogur kaupir 863 hektara land Bæjaryfirvöld í Kópavogi hyggjast taka 863 hektara af Vatnsendajörðinni eignarnámi. Samkomulag er um verð sem mun hlaupa á milljörðum króna. Innlent 23.11.2006 22:29
Algjört bann við botnveiði órökstutt Greenpeace gagnrýnir sjávarútvegsráðherra fyrir að koma í veg fyrir að þing SÞ samþykkti tillögu um bann við botnveiði. Einar K. Guðfinnsson segir að algjört bann sé tilefnislaust og órökstutt. Margar þjóðir séu sammála Íslendingum. Innlent 23.11.2006 22:29
Misnotaði tvö stúlkubörn Karlmaður var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðislega misnotkun á tveimur telpum, sem báðar eru fæddar árið 1994, í Hæstarétti Íslands í gær. Innlent 23.11.2006 22:29
Úthafskarfaveiði minnkuð Ársfundi Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC, lauk í London nýverið. Á fundinum var meðal annars fjallað um stjórn veiða á kolmunna, úthafskarfa, norsk-íslenskri síld, og makríl fyrir árið 2007. Innlent 23.11.2006 22:28
Kosta 280 milljónum í svæði varnarliðsins Samningur stjórnvalda og Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar um eftirlit og umönnun eigna á varnarsvæðinu tekur gildi í dag. Lagt er til að 280 milljóna króna tímabundið framlag fari í umsjón svæðisins. Innlent 23.11.2006 22:29
Íbúðirnar funheitar „Það er okkar mat að þetta séu skemmdir upp á tugi milljóna, en ekki marga og alls ekki hundruð eins og komið hefur fram,“ segir Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, spurður um vatnstjónið í íbúðum varnarliðsins. Innlent 23.11.2006 22:29
Lamdi mann Karlmaður á sextugsaldri var á þriðjudag ákærður fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur. Manninum er gefið að sök að hafa slegið annan mann margsinnis með hnefanum á bifreiðastæði Kjörgarðs við Hverfisgötu í júní á síðasta ári með þeim afleiðingum að fórnarlambið særðist á höku, brjóstvöðum og bringubeini. Innlent 23.11.2006 22:29