Erlent
327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Engin vettlingatök Tveir bræður sem handteknir voru í áhlaupi Lundúnalögreglunnar á dögunum vegna gruns um að þeir hygðu á hermdarverk lýstu í dag reynslu sinni. Þeir segjast hafa sætt fádæma fautaskap og haldið að þeirra síðasta stund væri runnin upp. Erlent 13.6.2006 17:27
Kanna áfram möguleika á framleiðslu bóluefnis Heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna ætla áfram að kanna möguleika á samstarfi norrænu ríkjanna um að framleiða bóluefni gegn fuglaflensu ef heimsfaraldur heimur upp. Þetta kemur fram í frétt á vef Norðurlandaráðs. Erlent 13.6.2006 16:54
Barist um þýskan lyfjarisa Bandaríska lyfjafyrirtækið Merck er komið í stöðu til að koma í veg fyrir yfirtökuáform þýska lyfjarisans Bayer á lyfjafyrirtækinu Schering. Merck keypti óvænt rúm 18 prósent í Schering rétt fyrir lokun markaða á föstudag. Viðskipti erlent 13.6.2006 15:10
9 létust og 20 særðust í loftárás á Gaza Níu létust, þar á meðal tvö börn, og tuttugu særðust í loftárás Ísraelshers á Gazaströndina í morgun. Ísraelsk stjórnvöld lýstu því yfir eftir árásina að henni hefði verið beint að bifreið sem notuð væri til eldflaugaárása á skotmörk hinum megin landamæranna. Erlent 13.6.2006 10:33
Mikil lækkun hlutabréfa í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði mikið í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag en Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 4,14 prósent. Vísitalan hefur ekki lækkað jafn mikið á einum degi í tvö ár. Ástæða lækkunarinnar er ótti fjárfesta í Bandaríkjunum og Japan við hugsanlega hækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 13.6.2006 10:03
Ofbeldishrina í Afganistan af völdum eiturlyfjabaróna Eiturlyfjabarónar í suðurhluta Afganistans reyna nú að kynda undir ófriði í héraðinu til að spilla herferð stjórnvalda gegn eiturlyfjum. Þetta er álit sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan. Erlent 13.6.2006 08:56
Aðildarviðræður við Tyrki hafnar Evrópusambandið hóf formlega fyrsta hluta aðildarviðræðna við Tyrkland í gær. Þetta er gert þrátt fyrir tilraunir ráðamanna á Kýpur til að reyna að koma í veg fyrir þær. Í gær var rætt um vísindi og rannsóknir og tókst að ljúka samningum um það svið. Enn standa þó eftir samningar um þrjátíu og fjögur svið. Erlent 13.6.2006 08:47
Sporvagnaslys í Japan Á þriðja tug manna slasaðist þegar tveir sporvagnar rákust saman í Tokyo í morgun. Enginn er þó talinn alvarlega slasaður en nokkur fjöldi manna var um borð í vögnunum þegar þeir rákust saman. Ekki er vitað á þessari stundu hvað olli slysinu en vagnarnir eru nokkuð skemmdir. Slysið varð í norðurhluta Tokyo. Lestarslys hafa verið fátíð í Japan enda mikil áhersla lögð á öryggismál á þessu sviði. Á síðasta ári léstust hins vegar rúmlega hundrað manns þegar lest fór út af teinunum og lenti á íbúðarhúsi. Erlent 13.6.2006 07:57
Flytja átti einn fangann Bandaríkjaher hafði ákveðið að flytja til annars lands einn fanganna þriggja sem frömdu sjálfsvíg í Guantanamo-fangabúðunum á laugardag. Fanganum, sem var frá Sádi-Arabíu, hafði ekki verið tilkynnt um ákvörðunina. Þetta kom fram í upplýsingum sem talsmenn hersins gáfu í gær. Erlent 12.6.2006 22:11
Þaulsætnasti þjóðhöfðinginn Kóngafólk og aðalsmenn hvaðanæva úr heiminum flykktust í Konungshöllina í Taílandi í gær til að minnast sextíu ára krýningarafmælis hins 78 ára gamla konugs, Bhumibol Adulyadejs, en enginn núlifandi þjóðhöfðingi hefur setið honum lengur á valdastóli. Hundruð manna söfnuðust saman við höllina og hlýddu á þegar þjóðsöngurinn var fluttur fyrir konungshjónin. Erlent 12.6.2006 22:11
Flóðin menga vatnsbólin Flóð af völdum mikilla rigninga mengaði vatnsból borgarinnar Miskolc, sem er um 160 kílómetra norðaustur af Búdapest, í síðustu viku. Tólf hundruð íbúar borgarinnar þjáðust greinilega af bakteríusýkingu, sem lýsti sér með niðurgangi, uppköstum og þreytu og enn eru um áttatíu þeirra á sjúkrahúsi. Unnið er að hreinsun vatnsins í borginni. Erlent 12.6.2006 22:11
Áfram rætt um saming Þingmenn Hamas samþykktu í gær að halda áfram viðræðum við forseta Palestínu um Fangaskjalið. Forsætisráðherra Ísraels er í Bretlandi í leit að stuðningi í friðarumleitunum milli Ísraels og Palestínu. Erlent 12.6.2006 22:11
Samið eftir málamiðlun Viðræður um fyrsta af 35 efnisköflum aðildarsamninga Tyrkja við Evrópusambandið hófust loks í gær, eftir að leysa tókst deilu sem stefndi í að valda því að ekkert yrði úr þessum áfanga í bili. Erlent 12.6.2006 22:11
Nýr leiðtogi vígamanna Hryðjuverkaöfl í Írak eru talin hafa fundið arftaka Abu Musab Al-Zarqawis, sem drepinn var í loftárás af íraska hernum á dögunum. Sá heitir Abu Hamza al-Muhajer, en hann hefur ekki verið sýnilegur í sögu samtakanna áður og virðist ekki vera eftirlýstur af bandarískum yfirvöldum. Erlent 12.6.2006 22:12
Bjartsýni á samninga Ráðherrar Evrópusambandsins segjast bjartsýnir á jákvæð viðbrögð Írana við sáttatilboði stórveldanna og að lausn sé þannig í sjónmáli í kjarnorkudeilunni. Erlent 12.6.2006 22:11
Gengur ekki að skipa stjórn Flokkur Viktors Júsjenkó, forseta Úkraínu, sleit í gær viðræðum við Sósíalistaflokkinn um myndun ríkisstjórnar, en þær höfðu varað í ellefu vikur. Flokkur forsetans, Okkar Úkraína, krafðist þess að skipa mann úr sínum röðum sem forseta þingsins, en það gátu sósíalistarnir ekki gefið eftir. Formaður þeirra, Oleksandr Moroz, krafðist þess að Júsjenkó gripi inn í viðræðurnar. Erlent 12.6.2006 22:11
Meira fé eytt í heri Fjárútlát vegna herja heims jukust um 3,4 prósent milli áranna 2004 og 2005, að því er fram kemur í árlegri skýrslu sænsku friðarrannsóknarstofnunarinnar, SIPRI, sem birt var í gær. Erlent 12.6.2006 22:11
Tíu ára stúlka missti sex fjölskyldumeðlimi Houda Ghalia, tíu ára stúlka, missti föður sinn og fimm systkini í árásum Ísraela á Gazastrendur á föstudaginn. Fjölskylda Houdu hafði farið í lautarferð á ströndina til að fagna því að börnin höfðu lokið prófum. Þegar viðvörunarflautur Ísraelshers hljómuðu pakkaði fjölskyldan saman og þau voru að bíða eftir leigubíl þegar sprengjan lenti hjá þeim. Erlent 13.6.2006 10:04
Segir al-Zarqawi hafi látist af innvortis meiðslum Bandaríska herstjórnin segir að al-Qaida leiðtoginn Abu Musab al-Zarqawi hafi dáið af innvortis meiðslum, fimmtíu og tveimur mínútum eftir að sprengju var varpað á hús sem hann var staddur í. Bandaríkjamenn harðneita að hann hafi verið barinn til bana. Erlent 12.6.2006 19:10
Mestu flóð í Kína í 30 ár Nærri hundrað hafa látist í miklum flóðum í Kína undanfarna tíu daga. Úrhellisrigning undanfarið hefur valdið mestu flóðum sem orðið hafa í landinu í heil þrjátíu ár. Erlent 12.6.2006 13:55
Íbúar Flórída varaðir við aftakaveðri Íbúar Flórída hafa verið varaðir við úrhellisrigningu og aftakaveðri á morgun þegar hitabeltisstormurinn Alberto gæti náð þar landi. Alberto er fyrsti hitabeltisstormur ársins og stefnir nú óðfluga í átt að Kúbu og Flórída. Erlent 12.6.2006 10:58
Snarpur jarðskjálfti í Japan Fimm slösuðust í snörpum jarðskjálfta upp á 6,2 á Richter í suðurhluta Japans í morgun. Skjálftans varð vart á mjög stóru svæði í suður- og vesturhluta landsins en ekki varð verulegt eignatjón og engin flóðbylgjuviðvörun var gefin út. Erlent 12.6.2006 10:29
Arcelor tók ekki tilboði Mittal Steel Stjórn stálframleiðandans Arcelor hefur ákveðið einróma að taka ekki yfirtökutilboði breska stálfyrirtækisins Mittal Steel í fyrirtækið. Tilboðið hljóðar upp á 22 milljarða evrur, jafnvirði rúmra 2.000 milljarða íslenskra króna. Að sögn stjórnarinnar var tilboð Mittal Steel vanmat á Arcelor. Viðskipti erlent 12.6.2006 10:15
Átti að losna fljótlega úr Guantanamo-búðunum Einn þremenninganna sem hengdu sig í Guantanamo-fangabúðunum um helgina átti að losna úr prísundinni fljótlega, en vissi ekki af því sjálfur. Erlent 12.6.2006 10:12
Írönum ekki vel tekið Meira en þúsund þýskir gyðingar mótmæltu kröftuglega á götum Nurnberg í dag, þar sem Íranar spiluðu fyrsta leik sinn á HM. Lögreglan í Frankfurt þurfti að loka nokkrum hverfum í borginni vegna óláta eftir leik Englendinga og Paragvæ í gær. Erlent 11.6.2006 18:31
Sakaðir um að hafa barið Zarqawi til dauða Bandarískir hermenn eru sakaðir um að hafa barið al-Zarkawi, leiðtoga al-Kæda í Írak, til dauða. Samtökin hóta stórfelldum árásum í landinu til að hefna leiðtoga síns. Erlent 11.6.2006 18:29
Hengdu sig í Guantanamo Þrír fangar hengdu sig í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu um helgina. Hernaðaraðgerð gegn Bandaríkjunum, segir yfirmaður fangelsisins. Erlent 11.6.2006 18:27
Fyrsti hitabeltisstormur ársins. Yfirvöld á Kúbu og Flórída í Bandaríkjunum hafa gefið út viðvörun vegna fyrsta hitabeltisstorms ársins. Hitabeltisstormurinn Albert stefnir nú óðfluga í átt að Kúbu og Cayman-eyjum, þar sem hefur hellirignt í dag, og óttast er að aurskriður kunni að fylgja. Erlent 11.6.2006 16:22
Hóta stórfelldum árásum í Írak Al Qaeda í Írak hóta stórfelldum árásum í landinu eftir að al-Zarqawi, leiðtogi þeirra, var drepinn í vikunni. Þetta kemur fram á heimasíðu herskárra múslima í dag. Erlent 11.6.2006 16:17
Tilboðið gallað en þó gott Ari Larijani, helsti samningamaður Írana í kjarnorkudeilu þeirra við Vesturveldin, sagði í morgun að margt væri gallað við tilboð stórveldanna sex um lausn deilunnar en einnig margt sem Íranar gætu sætt sig við. Erlent 11.6.2006 10:59