Hengdu sig í Guantanamo 11. júní 2006 19:00
Þrír fangar hengdu sig í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu um helgina. Hernaðaraðgerð gegn Bandaríkjunum, segir yfirmaður fangelsisins. Fangarnir þrír, einn Jemeni og tveir Sádí Arabar hengdu sig með vafningi sem þeir höfðu útbúið úr rúmfötum og fatnaði. Fangaverðir komu að þremenningunum í klefum sínum snemma á laugardagsmorgun, en þá var ekkert lífsmark með þeim og ítarlegar lífgunartilraunir báru ekki árangur. Þetta eru fyrstu sjálfsmorðin sem vitað er um í fangabúðunum síðan þær voru reistar fyrir röskum fjórum árum. Nokkrum sinnum áður hafa fangar freistað þess að svipta sig lífi en það hefur ekki tekist fyrr en nú. Atburðurinn hefur enn á ný beint athyglinni að meðferð fanga í Guantanamo, þar sem meira en fjögur hundruð eru í haldi án dóms og laga. Mannréttindasamtök um allan heim segja sjálfsmorðin tilkomin vegna ómannúðlegrar meðferðar. Hrein og klár örvænting hafi rekið mennina út í opinn dauðann. Undir það taka fyrrverandi fangar í búðunum, sem segja óhjákvæmilegt að atbuður sem þessi myndi eiga sér stað með tilliti til þess hvernig aðbúnaður fanganna sé. En bandaríski herinn lítur málið öðrum augum. Yfirmaður við fangabúðirnar segir að komið hafi verið fram við fangana af virðingu og þeir notið fullra mannréttinda. Því verði að líta á sjálfsmorðin sem hernaðaraðgerð gegn Bandaríkjunum. Bush Bandaríkjaforseti segir atburðinn mikið áhyggjuefni og sem fyrr sé stefnt að því að tæma fangabúðirnar eins og fljótt og mögulegt sé.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira