Erlent
221 222 223 224 225 226 227 228 229 … 334 ›
Fimm látnir eftir sprengingu í lest í Indlandi Fimm eru látnir og 25 alvarlega slasaðir eftir öfluga sprengingu í farþegalest í austurhluta Indlands í dag. Tveir vagnar í lestinni sem voru yfirfullir af fólki skemmdust mikið í sprengingunni sem varð á afskekktum teinum í Vestur-Bengalhéraði. Erlent 20.11.2006 14:57
Reyna að koma í veg fyrir loftárás Ísraelshers Fjöldi Palestínumanna safnaðist saman á og við hús háttsetts Hamas-liða í Beit Lahiya norðarlega á Gasaströndinni í dag vegna fregna af því að Ísraelsher hygðist gera loftárás á húsið. Erlent 20.11.2006 14:44
LSE hafnaði yfirtökutilboði Nasdaq Stjórn Kauphallarinnar í Lundúnum í Bretlandi (LSE) hafnaði í dag yfirtökutilboði bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq í alla hluti LSE. Tilboðið hljóðaði upp á 2,7 milljarða punda eða 357 milljarða íslenskra króna. Þetta var í annað sinn sem Nasdaq gerir tilboð í LSE. Viðskipti erlent 20.11.2006 14:31
Heilsu Litvinenkos hrakar Líðan Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB og síðar leyniþjónustu Rússlands, hefur versnað og hann hefur aftur verið fluttur á gjörgæsludeild University College sjúkrahússins í Lundúnum þar sem hann dvelur vegna eitrunar sem hann varð fyrir. Erlent 20.11.2006 14:17
Alræmdur glæpamaður sleppur úr fangelsi í S-Afríku Lögregla í Suður-Afríku leitar nú að einum af alræmdustu glæpamönnum landsins sem slapp úr öryggisfangelsi í Pretoríu á laugardagskvöld. Maðurinn, Ananias Mathe sem er frá Mósambík, var handtekinn fyrir rúmu ári og hefur verið ákærður fyrir yfir 50 brot, þar á meðal morð, nauðgun, vopnað rán og mannrán. Erlent 20.11.2006 13:43
Nærri þrjátíu slösuðust í lestarslysi í Berlín Hátt í þrjátíu manns slösuðust, þar af tveir alvarlega, þegar farþegalest rakst á farartæki sem ætlað er til viðhalds á lestum á lestarstöð í Suður-Berlín í morgun. Bæði lögregla og slökkvilið voru kvödd á vettvang til þess að hjálpa hinum slösuðu út úr lestinni en flestir munu hafa hlotið minni háttar meiðsl. Erlent 20.11.2006 13:24
Segja réttarhöld yfir Hussein meingölluð Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja að réttarhöldin yfir Saddam Hussein hafi verið meingölluð og dómurinn yfir honum því rangur. Verði hann tekinn að lífi er óttast að átök muni breiðast út um öll Miðausturlönd. Erlent 20.11.2006 12:30
Látinn eftir umsátur við grunnskóla í Þýskalandi Grímuklæddur maður vopnaður skambyssu, sem réðst inn í grunnskóla í Emsdetten í vesturhluta Þýskalands í morgun, er látinn. Óvíst er hvort hann féll fyrir eigin hendi eða byssukúlum öryggissveitarmanna sem höfðu umkringt skólabygginguna en að sögn BBC var maðurinn með sprengjubelti um sig miðjan. Erlent 20.11.2006 12:26
Tony Blair á ferð um Afganistan Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í dag að breskir hermenn væru ekki á heimleið frá Afganistan og að herinn yrði í landinu þar til friði og ró yrði komið á þar. Erlent 20.11.2006 11:43
Stærsti koparframleiðandi í heimi verður til Bandaríska námafyrirtækið Freeport-McMoran hefur ákveðið að kaupa samkeppnisaðila sinn Phelps Dodge fyrir 25,9 milljarða bandaríkjadali eða 1.830 milljarða íslenskra króna. Með viðskiptunum verður til stærsti koparframleiðandi í heimi. Viðskipti erlent 20.11.2006 11:19
Maður réðst inn í skóla í Þýskalandi Grímukæddur maður með byssu réðst inn í gagnfræðaskóla í bænum Emsdetten í vesturhluta Þýskalands í morgun og hóf skothríð á þá sem þar voru. Nokkrir munu hafa særst í árásinni en enginn alvarlega. Erlent 20.11.2006 10:27
Nasdaq gerir yfirtökutilboð í LSE í annað sinn Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn Nasdaq hefur gert yfirtökutilboð í alla hluti Kauphallarinnar í Lundúnum í Bretlandi. Tilboðið hljóðar upp á 2,7 milljarða punda eða 357 milljarða íslenskra króna. Búist hefur verið við skrefi sem þessu hjá Nasdaq en markaðurinn hefur þegar keypt 28,75 % hlutafjár í LSE. Viðskipti erlent 20.11.2006 10:11
Mikill viðbúnaður vegna heimsóknar Bush til Indónesíu Mikill viðbúnaður var í Djakarta, höfuðborg Indónesíu, í dag þegar George Bush, forseti Bandaríkjanna, kom þangað í stutta heimsókn á reisu sinni um Asíu. Erlent 20.11.2006 10:04
Eiði Smára líkt við Romario Eiður Smári Guðjohnsen, eða “Guddy” eins hann er kallaður á Spáni, segir að mörkin tvö sem hann skoraði gegn Mallorca í gær komi til með að veita honum mikið sjálfstraust. Eiði Smára er líkt við Romario í spænskum fjölmiðlum í dag. Fótbolti 20.11.2006 09:15
Vilja aukið viðskiptafrelsi Aðildarríki APEC vilja viðræður um aukið frjálsræði í alþjóðaviðskiptum. Ríkin sammæltust um að kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu yrði að stöðva. Erlent 19.11.2006 22:15
Sænska stjórnin óvinsæl Ríkisstjórn bandalags hægri- og miðflokkanna í Svíþjóð er nú orðin óvinsælli en bandalag stjórnarandstöðuflokkanna. Þetta kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtar voru í gær. Erlent 19.11.2006 22:15
Teknir með 10.000 töflur Ungverska landamæralögreglan handtók í gær tvo króatíska ríkisborgara fyrir stórfellt eiturlyfjasmygl. Mennirnir reyndu að smygla 10.000 e-pillum auk nokkurs magns af spítti. Söluvirði efnanna er talið um 11 milljónir. Erlent 19.11.2006 22:15
Smeygði sér fremst á biðlista Göran Persson, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, smeygði sér fremst á tuttugu ára biðlista eftir leiguíbúð í miðborg Stokkhólms með einu símtali nýlega. Persson og eiginkona hans, Anitra Steen, fá því leiguíbúðina afhenta í byrjun næsta árs. Langt á undan öllum öðrum. „Óþolandi,“ segir formaður leigusamtakanna, Barbro Engman, við sænska dagblaðið Aftonbladet. Erlent 19.11.2006 22:15
Páfi ræddi um Mið-Austurlönd Ástandið í Mið-Austurlöndum var helsta umræðuefni Þýskalandsforseta, Horst Koehler, og Benedikts páfa XVI þegar þeir hittust í Vatíkaninu á laugardag. Erlent 19.11.2006 22:15
Réttmætar sjálfbærar veiðar Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin World Conservation Trust hafa lýst yfir stuðningi við sjálfbærar hvalveiðar Íslendinga. Samtökin hafa höfuðstöðvar í Sviss og beita sér fyrir „sjálfbærri nýtingu villtra auðlinda náttúrunnar til sjós og lands sem leiðar til náttúruverndar“, eins og segir í fréttatilkynningu. Erlent 19.11.2006 22:15
Berjast saman gegn offitu Sáttmáli um sameiginlega baráttu gegn offitu hefur verið undirritaður af fulltrúum Evrópulanda Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Í sáttmálanum er kallað eftir aukinni samstöðu á milli opinberra aðila, frjálsra félagasamtaka, einstaklinga og fjölskyldna. Erlent 19.11.2006 22:15
Drápu trylltan nashyrning Breskir hermenn, sem villtust við heræfingar í Kenía á föstudag, drápu hvítan nashyrning sem réðst að þeim. Hvítir nashyrningar eru í útrýmingarhættu og aðeins um 170 eftir í Kenía, en hermennirnir sögðust ekki hafa átt annarra kosta völ. Erlent 19.11.2006 22:14
Lásbogi á knattspyrnuvelli Lögreglan rannsakar nú ör sem virðist hafa verið skotið úr lásboga á knattspyrnuleik í Stockport. Erlent 19.11.2006 22:15
Sautján létust í sjálfsmorðssprengjuárás Sautján verkamenn létust og fjörtíu og níu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás suður af Bagdad höfuðborg í Íraks í dag. Róstursamt hefur verið í landinu í dag en að minnsta kosti tuttugu og fjórir vopnaðir menn, klæddir í lögreglubúningum, stormuðu inn á heimili aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraks og rændu honum. Erlent 19.11.2006 19:32
Liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi Breska lögreglan rannsakar hverjir eitruðu fyrir fyrrverandi forystumanni rússnesku leyniþjónustunnar sem leitaði hælis í Bretlandi fyrir sex árum. Hann liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Erlent 19.11.2006 18:00
Ekki endurlífgun ef fæðist 18 vikum fyrir tímann Breskir sérfræðingar leggja til að læknar þar í landi grípi ekki til endurlífgunartilrauna á börnum sem fæðast 18 vikum fyrir tímann eða fyrr. Tillagan hefur vakið miklar deilur í Bretlandi. Andstæðingar benda á að læknum beri að lina þjáningar en ekki deyða sjúklinga. Erlent 19.11.2006 17:56
Fordæmir ályktun SÞ Ísraelar fordæma þá ákvörðun Sameinuðu þjóðanna að rannsaka atburðina í Beit Hanoun á Gaza-svæðinu fyrir hálfum mánuði þegar hátt í tuttugu almennir borgarar týndu lífi í loftárás Ísraelshers á íbúðarhús. Ísraelsher hætti við árás á hús á Gaza í morgun þegar mörg hundruð Palestínumenn slógu skjaldborg um það. Erlent 19.11.2006 17:37
Aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka rænt Vopnaðir menn rændu í dag aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka þar sem han var staddur á heimili sínum. Ráðherrann, Síjinn Ammar al-Saffar, situr í ríkisstjórn Nuri al-Malaki og er í Dawaflokknum. Erlent 19.11.2006 15:25
Eitrað fyrir njósnara Breska lögreglan rannsakar nú hvernig eitrað hafi verið fyrir rússneskum njósnara sem leitaði hælis í Bretlandi fyrir sex árum. Hann liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi. Erlent 19.11.2006 12:23
Gefin saman í ítölskum miðaldakastala Hollywood-stjörnurnar Tom Cruise og Katie Holmes gengu í það heilaga á Ítalíu í gær. Þetta var staðfest um kl. 19:30 í gærkvöldi. Fjölmargar stjörnur voru viðstaddar athöfnina en knattspyrnukappinn David Beckham varð frá að hverfa að kröfu þjálfara síns hjá Real Madrid. Erlent 19.11.2006 12:28