Erlendar
200 201 202 203 204 205 206 207 208 … 264 ›
Við erum meira en hálfnaðir Arsene Wenger segir sína menn í Arsenal vera rúmlega hálfnaða með verkefni sitt gegn Real Madrid í Meistaradeildinni eftir að Arsenal vann fyrri leik liðanna í Madrid á dögunum og lítur því á það sem formsatriði að ná hagstæðum úrslitum á Highbury annað kvöld. Sport 7.3.2006 17:10
Farinn að leita að eftirmanni Michael Ballack Felix Magath, stjóri Bayern Munchen, segist vera búinn að sætta sig við að Michael Ballack fari frá félaginu í sumar og segir að enginn maður í herbúðum liðsins nú geti fyllt það skarð sem hann skilur eftir sig sem leiðtogi á vellinum. Sport 7.3.2006 17:01
Coulthard vill framlengja við Red Bull Skoski ökuþórinn David Coulthard segist hafa fullan hug á því að framlengja veru sína hjá liði Red Bull í Formúlu 1, ekki síst fyrir tilkomu bílahönnuðarins Adrian Newey sem áður var hjá McLaren. Samningur Coulthard rennur út eftir næsta tímabil, sem hefst einmitt í Barein um næstu helgi. Sport 7.3.2006 16:22
Robben fær fjögurra leikja bann Áfrýjun Chelsea á rauða spjaldið sem Arjen Robben fékk að líta gegn West Brom um síðustu helgi hefur verið vísað frá af aganefnd enska knattspyrnusambandsins og fer leikmaðurinn því tafarlaust í fjögurra leikja bann. Leikbann í kjölfar rauðs spjalds er að jafnaði þrír leikir, en Robben fær einn til vegna þess að þetta er annað rauða spjaldið sem hann fær á leiktíðinni. Sport 7.3.2006 16:13
Vill gera hið ómögulega Alex McLeish og lærisveinar hans í skoska liðinu Glasgow Rangers eiga erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld þegar liðið mætir spænska liðinu Villareal á útivelli í síðari leiknum í Meistaradeildinni. Fyrri leiknum í Skotlandi lauk með 2-2 jafntefli og McLeish leitast við að koma enn einu sinni á óvart og stela sigrinum. Sport 7.3.2006 16:03
Hugsar um Arsenal, ekki Ronaldo Fernando Martin, nýráðinn forseti Real Madrid, segir að honum sé efst í huga að vinna sigur á Arsenal í Meistaradeildinni annað kvöld en ekki að velta sér upp úr því hvort Brasilíumaðurinn Ronaldo verði í liðinu eða ekki. Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð framherjans hjá liðinu og hafa þær á tíðum varpað skugga á leikinn mikilvæga annað kvöld. Sport 7.3.2006 15:52
Mourinho ætlar að tvídekka Messi Jose Mourinho hefur gefið það út að hann ætli að láta leikmenn sína tvídekka ungstirnið Lionel Messi hjá Barcelona í leik liðanna á Nou Camp í kvöld. Messi fór á kostum í fyrri leik liðanna á Stamford Bridge, en Mourinho ætlar ekki að láta það koma fyrir aftur. Sport 7.3.2006 15:40
Shaq hélt upp á afmælið með sigri Miðherjinn Shaquille O´Neal hélt upp á 34 ára afmælið sitt í gær með því að skora 35 stig og hirða 12 fráköst í naumum sigri Miami Heat á Charlotte Bobcats 106-105 í framlengdum leik. Shaq skoraði öll 8 stig Miami í framlengingunni. Gerald Wallace skoraði 26 stig og hirti 15 fráköst fyrir Charlotte. Sport 7.3.2006 15:01
Íslendingaslagur í Evrópukeppninni Nú er búið að draga í undanúrslit Evrópukeppnanna í handbolta og þar ber hæst að Íslendingaliðin Lemgo og Gummersbach munu leika til undanúrslita í EHF keppninni, en hinn undanúrslitaleikurinn er reyndar einnig Íslendingaslagur. Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mæta þýska liðinu Flensburg í Meistaradeildinni. Sport 7.3.2006 14:52
Fögnuðu eins og þeir hefðu sloppið úr fangelsi Paul Jewell, stjóri Wigan, sagði sína menn afar illa svikna eftir tapið gegn Manchester United í úrvalsdeildinni í kvöld og þótti lið Manchester United sleppa vel frá leiknum. "Það var skelfilegt að tapa á þessu marki og eins og sást á leikmönnum þeirra, áttu þeir ekki von á að vinna þennan leik. Þeir fögnuðu eins og þeim hefði verið sleppt úr fangelsi," sagði Jewell. Sport 6.3.2006 23:20
United stal sigrinum gegn Wigan Manchester United tryggði sér gríðarlega mikilvæg þrjú stig í kvöld þegar liðið stal sigrinum gegn Wigan á útivelli 2-1, þar sem úrslitin réðust á sjálfsmarki Pascal Chimbonda þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. United er því komið með tveggja stiga forskot á Liverpool í öðru sæti deildarinnar. Sport 6.3.2006 21:55
Ronaldo jafnaði Portúgalinn Cristiano Ronaldo er búinn að jafna leikinn fyrir Manchester United gegn Wigan og staðan því orðin 1-1. Markið kom eftir laglega skyndisókn á 73. mínútu leiksins. Sport 6.3.2006 21:32
LA Lakers - San Antonio í beinni Það verður góður leikur á dagskrá á NBA TV fyrir hörðustu nátthrafna í kvöld þegar Los Angeles Lakers tekur á móti meisturum San Antonio, en leikurinn hefstu klukkan 3:30 að íslenskum tíma. Leikurinn verður svo sýndur aftur í fyrramálið venju samkvæmt. Sport 6.3.2006 21:01
Rijkaard stillir til friðar Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, vill að stuðningsmenn Barcelona sýni Jose Mourinho og lærisveinum hans í Chelsea virðingu og taki vel á móti þeim þegar liðin mætast á Nou Camp í meistaradeildinni annað kvöld, en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 6.3.2006 20:45
Wigan komið yfir Nýliðar Wigan voru rétt í þessu að komast yfir gegn Manchester United á heimavelli sínum, en þetta er fyrsta markið sem Wigan nær að skora gegn Manchester United. Það var varnarmaðurinn Paul Scharner sem skoraði markið á 59. mínútu eftir mikið klafs í vítateig United liðsins. Sport 6.3.2006 21:19
Jafnt hjá Wigan og United í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureign Wigan og Manchester United á JJB Stadium í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn hefur verið frekar daufur framan af og eru heimamenn mun líklegri til afreka það sem af er. Ruud Van Nistelrooy er enn á varamannabekk United, en hann hefur þjáðst af magakveisu undanfarið. Sport 6.3.2006 20:51
Benedikt náði góðum árangri Heljarmennið Benedikt Magnússon náði frábærum árangri í aflraunakeppninni á Arnold Classic mótinu sem fram fór í Bandaríkjunum um helgina. Benedikt hafði lítinn tíma til undirbúnings fyrir mótið því honum barst seint boð um að vera á meðal keppenda, en hann skaut meðal annars sterkasta manni heims ref fyrir rass í keppninni. Sport 6.3.2006 20:13
Lampard verður með gegn Barcelona Miðjumaðurinn Frank Lampard verður í byrjunarliði Chelsea gegn Barcelona í síðari leik liðanna í meistaradeild Evrópu annað kvöld eftir að hann komst vel frá æfingu með liði sínu í kvöld. Lampard hefur átt við meiðsli að stríða, en hefur nú náð sér nógu vel til að spila leikinn mikilvæga annað kvöld. Sport 6.3.2006 20:10
McLaren lofar betri bíl Forráðamenn McLaren Mercedez fullyrða að vélar liðsins verði ekki til sömu vandræða og í fyrra og segja prófanir á síðustu fimm vikum lofa góðu um stöðugleika. Sífelldar vélarbilanir hjá Kimi Raikkönen í fyrra urðu þess valdandi að hann gat ekki veitt Fernando Alonso verðuga keppni um titil ökuþóra. Sport 6.3.2006 18:46
Wigan leitar hefnda gegn United Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þegar liðin sem áttust við í úrslitaleik enska deildarbikarsins á dögunum, Wigan og Manchester United, leiða saman hesta sína á JJB-vellinum í Wigan. Sport 6.3.2006 18:28
Tíundi sigur Phoenix í röð Phoenix Suns er heitasta lið NBA deildarinnar í dag eftir að liðið vann tíunda leik sinn í röð í nótt gegn Dallas á útivelli 115-107. Þetta var annað tap Dallas í síðustu þremur leikjum, en áður hafði liðið verið á mikilli sigurgöngu. Sport 6.3.2006 17:10
Hyypia verður klár gegn Benfica Finnski varnarmaðurinn Sami Hyypia hjá Liverpool verður væntanlega tilbúinn í slaginn í síðari leiknum gegn Benfica í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið, en óttast var að hann mundi missa af leiknum vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Charlton um helgina. Sport 6.3.2006 17:03
Ætlar að þagga niður í Mourinho Argentínska undrabarnið Lionel Messi hjá Barcelona ætlar að þagga niður í Jose Mourinho hjá Chelsea í síðari leik liðanna í Meistaradeildinni annað kvöld, en Mourinho ásakaði Messi um leikaraskap eftir fyrri leik liðanna. Sport 6.3.2006 16:55
Woods varði titil sinn Stigahæsti kylfingur heims, Tiger Woods, vann nauman sigur á Ford-meistaramótinu í Flórída í nótt og varð með því aðeins annar kylfingurinn í sögu mótsins til að vinna það tvö ár í röð. Woods lauk keppni á 20 undir pari og slapp með skrekkinn á síðustu holunum eftir að hafa klúðrað öruggri forystu. Sport 6.3.2006 16:35
Áfrýjar rauða spjaldinu á Robben Chelsea hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem Arjen Robben fékk að líta í leiknum við West Brom um helgina. Robben fékk beint rautt spjald hjá Halsey dómara fyrir tæklingu sína á Jonathan Greening og á nú yfir höfði sér leikbann. Sport 6.3.2006 16:28
McCarthy rekinn frá Sunderland Úrvalsdeildarfélagið Sunderland sagði stjóra sínum Mick McCarthy upp störfum í morgun og Kevin Ball mun taka við starfi hans tímabundið. Brottrekstur McCarty nú kemur nokkuð á óvart, því talið var að hann fengi að klára leiktíðina sem nú þegar er í molum. Nokkrir leikmenn Sunderland lýstu strax yfir óánægju sinni með brottrekstur stjórans. Sport 6.3.2006 16:21
Arsenal og Tottenham berjast um Trabelsi Tottenham ætlar að ræna Hatem Trabelsi beint fyrir framan erkifjendur sína í Arsenal en bæði lið hafa hug á að klófesta leikmanninn sem spilar með Ajax. Talið er að Arsenal sé búið að gera Túnisbúanum tilboð en Tottenham hefur nú lýst yfir áhuga sínum á þessum sterka varnarmanni sem spilar að öllum líkindum í Englandi á næsta tímabili. Sport 6.3.2006 00:47
Ronaldinho hefur engan áhuga á Chelsea Besti knattspyrnumaður í heimi, Ronaldinho, segist ekki hafa neinn áhuga á því að ganga til liðs við Chelsea. Barcelona tekur á móti Englandsmeisturunum í seinni leik liðanna í Meistaradeildinni á morgun. Sport 6.3.2006 00:21
Hiddink hættir með ástralska landsliðið Guus Hiddink verður ekki áfram með knattspyrnulandslið Ástralíu eftir HM í sumar. John O"Neill, framkvæmdastjóri ástralska knattspyrnusambandsins, sagði um helgina að ólíklegt væri að Hiddink yrði áfram með liðið enda hefði þess aldrei verið vænst. Þessi frábæri þjálfari hefur verið orðaður við landslið Rússlands og Englands en hann hefur neitað því statt og stöðugt. Sport 6.3.2006 00:17
Hefur Man Utd fundið miðjumann? Manchester United er á höttunum eftir Jean Makoun, miðjumanni Lille, í Frakklandi. "United-menn vilja fá mig. Þeir sendu útsendara til að horfa á leikinn gegn Monaco í síðustu viku og umboðsmenn mínir hafa rætt við forráðamenn liðsins. Þeir vilja kaupa mig í sumar," sagði Makoun í gær. Sport 6.3.2006 00:42