
Erlendar

Tebow tryggði Denver sigur á Jets
Leikstjórnandinn Tim Tebow sá sjálfur um að tryggja Denver Broncos sigur á New York Jets með snertimarki á lokamínútu leiksins. Lokatölur voru 17-13.

Bolt ætlar að vinna fjögur gull á leikunum í London
Spretthlauparinn Usain Bolt ætlar að gera betur á Ólympíuleikunum í London á næsta ári en hann gerði Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 þar sem hann sló í gegn.

Bíll ræningjanna fundinn
Leitin að hafnaboltamanninum Wilson Ramos stendur enn yfir í Venesúela. Fjórir vopnaðir menn rændu leikmanninum heima hjá sér á miðvikudagskvöld.

Lindsay Vonn fór með fimmtán ára strák á skólaball
Hinn fimmtán ára Parker McDonald gerði sér lítið fyrir og bauð skíðadrottningunni Lindsay Vonn á skólaball. Vonn þekktist boðið og fóru þau saman á ballið.

Hafnaboltamanni rænt í Venesúela
Ekkert er vitað um afdrif Wilson Ramos, leikmanns Washington Nationals í hafnabolta, eftir að honum var rænt af heimili sínu í Venesúela.

Íshokkiþjálfari ætlaði að vaða í áhorfendur með kylfu
Allt ætlaði um koll að keyra þegar að rússneski hokkíþjálfarinn Andrei Nazarov reyndi að slá til áhorfenda á leik með kylfu. Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir ofan.

Demókratar vilja banna munntóbak og stera í hafnabolta
Þegar hugsað er um hafnaboltamann dettur mörgum í hug munntóbak og sterar. Skal engan undra þar sem ótrúlegur fjöldi leikmanna MLB-deildarinnar notar munntóbak og stera. Upp hefur komist um steranotkun margra af bestu leikmönnum síðari ára.

Ragna í aðra umferð án þess að svitna
Ragna Ingólfsdóttir er komin áfram í aðra umferð á Bitburger Open mótinu í badminton þrátt fyrir að hafa ekki keppt í dag. Ragna átti að keppa á móti Maja Tvrdy frá Slóveníu en Tvrdy tilkynnti mínútu fyrir leikinn að hún gæfi hann sökum meiðsla.

La Russa hættir á toppnum eftir 33 ára feril
Hafnaboltagoðsögnin Tony La Russa, þjálfari meistara St. Louis Cardinals, tilkynnti í dag að hann væri hættur allri þjálfun. Þessi 67 ára gamli þjálfari hefur ákveðið að hætta á toppnum.

Misheppnaður Robbie Savage í Dancing with the Stars
Hinn skrautlegi Robbie Savage tekur þessa daganna þátt í ensku útgáfunni af Dancing with the Stars.

Þormóður féll úr leik í fyrstu umferð
Þormóður Jónsson keppti í nótt á heimsmeistaramótinu í opnum flokki í júdó en tapaði í fyrstu umferð fyrir Rússanum Aslan Kambiev.

Cardinals tryggði sér titilinn í nótt
Ótrúleg saga St. Louis Cardinals fékk góðan endi í nótt er liðið tryggði sér titilinn í bandarísku MLB-deildinni í hafnabolta. Liðið hafði betur, 6-2, gegn Texas Rangers í oddaleik liðanna í St. Louis í nótt.

Allt undir í hafnaboltanum í nótt
Fólk víða um heim um líma sig við sjónvarpsskjáinn í nótt þegar fram fer hreinn úrslitaleikur um heimsmeistaratitilinn í hafnabolta. Úrslitarimman, og úrslitakeppnin í heild sinni, er talin vera sú skemmtilegasta í manna minnum. Er því vel við hæfi að úrslitarimman fari í sjö leiki.

Wozniacki græðir milljónir á því að halda efsta sæti heimslistans
Danska tennisstjarnan Caroline Wozniacki er þegar búin að tryggja sér efsta sætið á heimslistanum út þetta ár og þetta verður því annað árið í röð sem Wozniacki endar í efsta sæti heimslita alþjóða tennissambandsins.

Norðmaður besti sundmaðurinn í Evrópu í ár
Norski sundmaðurinn Alexander Dale Oen hefur verið valinn sundmaður ársins í Evrópu af evrópska sundsambandinu en hann varð í sumar fyrsti Norðmaðurinn sem vinnur gull á HM í sundi.

Cardinals náði að jafna metin
Unnendur hafnabolta fengu flestir ósk sína uppfyllta í nótt er St. Louis Cardinals tryggði sér oddaleik gegn Texas Rangers í World Series-úrslitarimmunni í MLB-deildinni í nótt.

Ólympíumeistari handtekinn með níu kíló af kókaíni
Búlgarinn Galabin Boevski, fyrrum Heims- og Ólympíumeistari í kraftlyftingum var handtekinn á flugvelli í Sao Paulo í Brasilíu eftir að hann reyndi að smygla níu kílóum af kókaíni til Spánar. Reuters-fréttastofan segir frá þessu.

Birti mynd af sér með klámmyndastjörnu og allt varð brjálað
Rob Gronkowski, leikmaður New England Patriots í NFL-deildinni, þurfti að biðjast afsökunar eftir að hafa setið fyrir á mynd með klámmyndastjörnu á Twitter.

Meira áhorf á hafnabolta en NFL
Forráðamenn MLB-deildarinnar í hafnabolta glöddust þegar í ljós kom að fleiri fylgdust með leik fjögur í World Series á sunnudaginn en kvöldleiknum í NFL-deildinni.

Rangers bara einum sigri frá titlinum
Texas Rangers vann í nótt sinn annan sigur í röð í World Series-úrslitarimmunni í bandaríska hafnaboltanum. Liðið er þar með komið með 3-2 forystu gegn St. Louis Cardinals og þarf bara einn sigur til viðbótar til að landa titlinum.

Hugsanlegt bjórbann hjá hafnaboltaliðunum
Forráðamenn hafnaboltadeildarinnar í Bandaríkjunum íhuga það alvarlega þessa dagana að banna alla bjórdrykkju í félagsheimilum liðanna.

Leikur Cardinals hrundi er Rangers jafnaði metin
Staðan er nú jöfn, 2-2, að loknum fjórða leiknum í World Series-úrslitakeppninni í bandaríska hafnaboltanum í nótt. Texas Rangers vann þá öruggan sigur á St. Louis Cardinals, 4-0.

Nýja-Sjáland heimsmeistari í ruðningi
Úrslitaleikurinn á heimsmeistaramótinu í ruðningi fór fram á Nýja-Sjálandi í nótt, en þar mættust heimamenn og Frakkar.

Mótorhjólakappi lést eftir slæman árekstur
Ítalski ökuþórinn Marco Simoncelli dó í nótt í skelfilegum árekstri í MotoGP heimsbikarnum á mótorhjólum.

Sögleg frammistaða Pujols og Cardinals-liðið komið 2-1 yfir
Albert Pujols sýndi styrk sinn í nótt þegar lið hans St. Louis Cardinals vann 16-7 sigur á Texas Rangers og náði 2-1 forystu í úrslitaeinvígi bandaríska hafnarboltans, World Series.

Texas stal sigrinum í St. Louis
Annar leikur St. Louis Cardinals og Texas Rangers í World Series var bæði hundleiðinlegur og afar dramatískur. Honum lauk með dramatískum sigri Texas sem stal sigrinum í lokin og jafnaði þar með rimmu liðanna í 1-1.

Cardinals vann fyrsta leikinn í World Series
St. Louis Cardinals er komið með 1-0 forystu í úrslitarimmu sinni gegn Texas Rangers í bandaríska hafnaboltanum. Leik liðanna lauk í nótt með 3-2 sigri Cardinals.

Kastarar Red Sox sagðir hafa drukkið bjór á bekknum
Þrír af kösturum hafnaboltaliðsins Boston Red Sox hafna þeim ásökunum sem komu fram í sjónvarpsfréttum í gær að þeir hafi laumast til þess að drekka bjór á bekknum í leikjum Red Sox.

Þjálfurum í NFL-deildinni lenti saman eftir leik
Jim Harbaugh, þjálfari San Francisco 49ers og Jim Schwartz, þjálfari Detroit Lions, hafa vakið mikla athygli fyrir frábæra byrjun sinna liða í NFL-deildinni en það var þó ekki frammistaða liða þeirra sem vakti mesta athygli í gær heldur það sem gerðist milli þeirra eftir leikinn.

Ökumaður lést í Indy 300-kappakstrinum
Ökuþórinn Dan Wheldon lét lífið í kvöld þegar fimmtán bílar lentu í árekstri í Las Vegas Indy 300-keppninni. Wheldon var aðeins 33 ára gamall.