Íþróttir
205 206 207 208 209 210 211 212 213 … 334 ›
Nýr stjóri tilkynntur hjá Charlton eftir helgi Forráðamenn úrvalsdeildarliðs Charlton ætla að tilkynna nýjan knattspyrnustjóra og þjálfarateymi hans þann 30. maí næstkomandi. Fjöldi stjóra hafa nú mætt í viðtal til félagsins og eins og staðan er í dag þykir líklegast að Ian Dowie, fyrrum stjóri Crystal Palace, verði næsti stjóri Lundúnaliðsins. Sport 26.5.2006 18:54
Ólöf úr leik í Frakklandi Ólöf María Jónsdóttir úr GKG er úr leik á franska meistaramótinu í golfi eftir að hún leik annan hringinn í dag á 8 höggum yfir pari. Hún var því samtals á 11 höggum yfir pari á mótinu og komst ekki í gegn um niðurskurðinn. Sport 26.5.2006 19:16
Heiðar Davíð náði fjórða sætinu Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason hafnaði í fjórða til sjötta sæti á Kinnaborg-mótinu í golfi sem lauk í Svíþjóð í dag. Heiðar lék lokadaginn á tveimur höggum yfir pari og lauk því keppni á einu höggi undir pari. Sport 26.5.2006 19:11
Morientes ekki orðinn leikmaður Valencia Yfirmaður knattspyrnumála hjá Valencia tók það fram í dag að þó félagið hefði náð samkomulagi við Liverpool um kaup á spænska framherjanum Fernando Morientes, sé hann ekki orðinn leikmaður Valencia ennþá, því enn sé nokkuð í land með að semja um kaup og kjör við leikmanninn sjálfan. Sport 26.5.2006 15:09
Mido fer frá Tottenham Tottenham hefur ákveðið að festa ekki kaup á framherjanum Mido sem verið hefur í láni hjá félaginu frá Roma í rúmt ár. Mido byrjaði vel hjá Tottenham og var orðinn algjör lykilmaður í liðinu áður en hann lenti í erfiðum meiðslum í lok leiktíðar. Sport 26.5.2006 18:01
Staðfestir brottför sína frá Milan Úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko staðfesti í dag að hann færi frá liði AC Milan á Ítalíu af fjölskylduástæðum sem hann hafði greint frá fyrir nokkru og mun hann því væntanlega fara á fullu í viðræður við Englandsmeistara Chelsea á næstu dögum. Sport 26.5.2006 17:53
Kveður Arsenal með söknuði Franski miðjumaðurinn Robert Pires, sem leikið hefur með Arsenal síðustu ár en hefur nú gengið til liðs við spænska liðið Villarreal, segist eiga eftir að sakna andrúmsloftsins hjá Arsenal. Sport 26.5.2006 14:58
Richard Dunne semur við City Miðvörðurinn Richard Dunne hefur gert nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City. Dunne gekk til liðs við félagið árið 2000 og hefur verið lykilmaður þess allar götur síðan. Hann er 27 ára gamall og er í írska landsliðinu. Sport 26.5.2006 14:52
Alonso reiknar með óvæntum úrslitum Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault reiknar fastlega með því að óvænt nöfn gætu orðið á meðal efstu manna í Mónakókappakstrinum um helgina. Sport 26.5.2006 14:35
Stojakovic ekki með Serbum á HM Stórskyttan Peja Stojakovic hjá Indiana Pacers verður ekki í landsliðshópi Serba á HM í körfubolta í sumar. Þetta staðfesti landsliðsþjálfarinn Dragan Sakota við ESPN sjónvarpsstöðina í gær. Þjálfarinn segist ætla að tefla fram yngri landsliðsmönnum í sumar til að veita þeim aukna reynslu, en bendir á að allir sterkustu leikmenn liðsins verði kallaðir inn í hópinn fyrir EM árið 2007. Sport 26.5.2006 14:20
Lennon fór á kostum Vængmaðurinn ungi Aaron Lennon frá Tottenham þótti vera eini leikmaðurinn sem stóð sig virkilega vel í leik B-liðs Englendinga og Hvít-Rússa í gær. Lennon segist sjálfur vera tilbúinn ef hann honum verði gefið tækifæri á HM í sumar og félagar hans Michael Carrick og Jermaine Jenas hjá Tottenham eru sammála. Sport 26.5.2006 13:56
Dickov kominn aftur heim Skoski framherjinn Paul Dickov hefur gert tveggja ára samning við gamla félagið sitt Manchester City eftir að hann var látinn fara frá Blackburn á dögunum. "Ég er í skýjunum yfir að vera kominn aftur í City og ég veit að menn segja alltaf svona hluti þegar þeir ganga til liðs við nýtt félag, en ég er í raun stuðningsmaður City og börnin mín líka, svo að þetta er sannkallaður draumur fyrir mig," sagði Dickov. Sport 26.5.2006 13:48
Rooney missir af riðlakeppninni á HM Eftir myndatöku í dag kom í ljós að framherjinn Wayne Rooney verður örugglega ekki með enska landsliðinu í riðlakeppninni á HM sem hefst 9. júní, en hann mun fara í aðra læknisskoðun þann 14. júní til að ganga endanlega úr skugga um hvort hann getur komið við sögu í síðustu leikjum liðsins í keppninni. Sport 26.5.2006 13:42
Detroit jafnaði gegn Miami Detroit Pistons jafnaði metin í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar í nótt með 92-88 sigri á Miami Heat á heimavelli sínum í Auburn Hills. Staðan í einvíginu er því orðin 1-1 og fara næstu tveir leikir fram í Miami. Heimamenn mættu mun grimmari til leiks í öðrum leiknum og var sigur liðsins öruggari en lokatölurnar gefa til kynna. Sport 26.5.2006 04:30
Samningur Brown framlengdur hjá Cleveland Forráðamenn Cleveland Cavaliers hafa ákveðið að Mike Brown verði áfram aðalþjálfari liðsins eftir að hann leiddi það til 50 sigra í deildarkeppninni og alla leið í oddaleik gegn Detroit Pistons í undanúrslitum Austurdeildarinnar á dögunum. Sport 25.5.2006 22:29
Chimbonda segist vera á leið til Tottenham Bakvörðurinn knái hjá Wigan, Pascal Chimbonda, segist viss um að hann muni ganga í raðir Tottenham í næstu viku. Wigan hefur þegar neitað þriggja milljón punda tilboði frá Tottenham í kappann og vill félagið fá meira en helmingi hærri upphæð fyrir hann. Sport 25.5.2006 22:13
FH lagði ÍA Íslandsmeistarar FH lögðu Skagamenn 2-1 í lokaleik dagsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu á heimavelli sínum í Kaplakrika. Sigurvin Ólafsson kom FH yfir í fyrri hálfleik, en Bjarni Guðjónsson jafnaði metin fyrir ÍA úr vítaspyrnu á 52. mínútu. Það var svo varamaðurinn Atli Guðnason sem tryggði heimamönnum sigurinn á 75. mínútu. Skagamenn eru því enn án stiga í deildinni, en Íslandsmeistararnir eru með fullt hús eftir þrjár umferðir. Sport 25.5.2006 21:51
Góður sigur Valsmanna í Eyjum Valsmenn unnu í dag sinn fyrsta sigur í Landsbankadeildinni þetta sumarið þegar þeir lögðu Eyjamenn örugglega 3-0 í Vestmannaeyjum. Matthías Guðmundsson kom Val á bragðið með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik og Garðar Gunnlaugsson bætti svo við tveimur mörkum í síðari hálfleiknum. Sport 25.5.2006 21:23
Skagamenn búnir að jafna Bjarni Guðjónsson var rétt í þessu að jafna leikinn fyrir ÍA gegn FH í 1-1 í Kaplakrika. Markið kom úr vítaspyrnu á 52. mínútu og skömmu síðar björguðu Skagamenn skoti FH á marklínu í annað sinn í leiknum, sem sýndur er beint á Sýn. Sport 25.5.2006 21:10
Englendingar töpuðu fyrir Hvít-Rússum B-lið Englands gerði lítið til að hrífa landsliðsþjálfara sinn Sven-Göran Eriksson í dag þegar það tapaði 2-1 fyrir Hvít-Rússum í æfingaleik sem haldinn var í Reading. Rangstöðufnykur var af marki enska liðsins, sem var arfaslakt í leiknum og missti þar að auki markvörðinn Robert Green í meiðsli sem þýða að hann missir af HM. Sport 25.5.2006 21:04
Íslandsmeistararnir yfir í hálfleik Íslandsmeistarar FH hafa yfir 1-0 í hálfleik gegn Skagamönnum í stórleik kvöldsins í Landsbankadeildinni. Það var Sigurvin Ólafsson sem skoraði markið sem skilur liðin að með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á 40. mínútu. Sport 25.5.2006 20:49
Fleiri forföll í enska landsliðshópnum Það hefur heldur betur dregið til tíðinda í æfingalandsleik Englendinga og Hvít-Rússa sem fram fer í Reading í kvöld. Markvörðurinn Robert Green meiddist illa þegar hann tók útspark og Hvít-Rússarnir jöfnuðu metin í 1-1 í kjölfarið. Strax hefur fengist staðfest að Green getur ekki farið með Englendingum til Þýskalands og mun því Scott Carson taka stöðu hans í hópnum. Sport 25.5.2006 20:39
Valsmenn komnir í 2-0 í Eyjum Valsmenn eru búnir að bæta við öðru marki sínu í Vestmannaeyjum og var þar að verki Garðar Gunnlaugsson strax í upphafi síðari hálfleiksins. Það er því útlit fyrir að Valur sé að krækja í sín fyrstu stig á Íslandsmótinu í sumar. Staðan í leik FH og ÍA í Hafnarfirði er enn 0-0, en sá leikur er sýndur í beinni á Sýn. Sport 25.5.2006 20:23
Valur yfir í hálfleik gegn ÍBV Valsmenn hafa yfir 1-0 gegn ÍBV í Vestmannaeyjum þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í Landsbankadeild karla. Það var Matthías Guðmundsson sem skoraði markið á 18. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti sínu eftir fyrirgjöf Guðmundar Benediktssonar. Leikurinn hefur verið mjög fjörugur og eflaust eiga eftir að koma fleiri mörk í Eyjum í síðari hálfleik. Hægt er að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni hér á Vísi og þá er rétt að geta þess að leikur FH og ÍA er hafinn í beinni útsendingu á Sýn. Sport 25.5.2006 20:00
B-lið Englands yfir gegn Hvít-Rússum Varalið Englendinga leikur æfingaleik við Hvít-Rússa í kvöld og hefur yfir 1-0 í hálfleik. Enska liðið getur þakkað fyrir að vera með forystu í leiknum eftir að rússneska liðið átti stangarskot undir lok hálfleiksins. Það var Jermaine Jenas sem kom enska liðinu yfir á 35. mínútu þegar hann fylgdi eftir skalla Michael Owen í þverslánna, en endursýning í sjónvarpi sýndi reyndar að Owen var rangstæður þegar hann skallaði knöttinn. Sport 25.5.2006 19:56
Bolton hækkar tilboð sitt í Johnson Bolton gerði í dag 8,5 milljón punda tilboð í framherjann Andy Johnson hjá Crystal Palace og jafnaði þar með tilboð Wigan frá því fyrir skömmu. Bæði tilboð hafa verið samþykkt af hálfu Palace og nú er það Johnson sem velur til hvors liðsins hann vill fara í sumar. Sport 25.5.2006 19:48
Bell missir af næsta leik með Phoenix Skotbakvörðurinn Raja Bell hjá Phoenix Suns verður ekki með liðinu í öðrum leik úrslitaeinvígisins við Dallas Mavericks eftir að hafa tognað illa í leik liðanna í nótt. Josh Howard hjá Dallas sneri sig á ökkla í byrjun leiksins og kom ekki meira við sögu eftir það, en um helmingslíkur eru taldar á að hann verði með í næsta leik. Sport 25.5.2006 19:04
Guðjón Þórðarson hættur hjá Notts County Guðjón Þórðarson er hættur störfum hjá enska liðinu Notts County. Guðjón staðfesti þetta í samtali við Arnar Björnsson í íþróttafréttum NFS nú rétt eftir klukkan 18. Guðjón sagðist nokkrar mismunandi ástæður að baki ákvörðun sinni, en vildi ekki ræða þær nánar. Guðjón segist fjarri því að vera hættur að þjálfa og er nú á heimleið, þar sem hann mun fara yfir þá möguleika sem eru í stöðunni. Sport 25.5.2006 18:13
Morientes til Valencia Spænski framherjinn Fernando Morientes hjá Liverpool gekk í dag í raðir Valencia í heimalandi sínu, en kaupverðið hefur ekki fengist uppgefið. Morientes náði sér aldrei á strik hjá enska liðinu á því ári sem hann var í herbúðum þess og skoraði aðeins 12 mörk í þeim 60 leikjum sem hann spilaði. Sport 25.5.2006 18:08
Fyrsti sigur Víkings í höfn Nýliðar Víkings unnu í dag sinn fyrsta sigur í Landsbankadeild karla þegar þeir burstuðu Breiðablik 4-1 í uppgjöri nýliðanna í deildinni. Heimamenn höfðu tögl og haldir í leiknum gegn slökum Blikum. Sport 25.5.2006 17:48