Viðskipti
48 49 50 51 52 53 54 55 56 … 223 ›
2,4 prósenta hagvöxtur í Þýskalandi Landsframleiðsla jókst um 0,7 prósent í Þýskalandi á þriðja ársfjórðungi samanborið við 0,3 prósent í fjórðungnum á undan. Þetta jafngildir því að hagvöxtur jókst um 2,4 prósent í Þýskalandi á árinu. Viðskipti erlent 22.11.2007 11:24
Fasteignagullæðið búið Fasteignaverð á Íslandi mun ekki hækka jafn hratt á næsta ári eins og síðustu ár. Fasteignamarkaðurinn fer ekki undir frostmark heldur verður við ísskápshita. Viðskipti innlent 22.11.2007 11:21
Enn titrar fjármálaheimurinn Gengi helstu hlutabréfavísitalna í Bandaríkjunum féll á ný í dag eftir hækkun í gær. Þetta er svipuð þróun og á hlutabréfamörkuðum víða um heim í dag, þar á meðal hér á landi. Viðskipti erlent 21.11.2007 21:51
Hneyksli skekur Ericsson Hlutabréf í sænska símafyrirtækinu Ericsson hefur fallið um 5,13 prósent kauphöllinni í Stokkhólmi í dag í kjölfar afkomuviðvörunar og hneykslismáls sem fjallað er um í sænskum fjölmiðlum. Viðskipti erlent 21.11.2007 12:17
Rauð opnun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Existu féll um 2,57 prósent skömmu eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Gengi bréfa í félaginu stendur í 26,55 krónum á hlut og hefur ekki verið lægra síðan snemma í febrúar á þessu ári. Gengi annarra félaga hefur lækkað sömuleiðis, helst í fjármálafyrirtækjum, en ekkert hækkað á sama tíma. Viðskipti innlent 21.11.2007 10:14
Hagnaður Spalar eykst milli ára Spölur, sem rekur Hvalfjarðargöng, hagnaðist um 112 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi, sem er síðasti fjórðungur ársins í bókum félagsins. Til samanburðar var hagnaður inn 153 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 21.11.2007 10:05
Snörp lækkun á hlutabréfamörkuðum Snörp lækkun var á helstu hlutabréfamörkuðum í Asíu og Evrópu í dag eftir að oliuverð fór í hæstu hæðir og gengi bandaríkjadals lækkaði frekar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Allir markaðirnir stóðu á rauðu í dag. Eini fjármálamarkaðurinn þar sem fjárfestar gátu andað léttar var í kauphöllinni í Karachi í Pakistan. Viðskipti erlent 21.11.2007 09:46
Mjög dró úr hagnaði Icebank Hagnaður Icebank nam rúmum 64.8 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við rúma 4,4 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nam hins vegar rúmum 4,2 milljörðum króna samanborið við 6,2 milljarða á fyrstu níu mánuðum síðasta árs. Viðskipti innlent 20.11.2007 15:47
Hætta á harðri lendingu íslenska hagkerfisins Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur breytt horfum á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands úr stöðugum í neikvæðar. Matsfyrirtækið segir neikvæðar horfur endurspegla vaxandi hættu á harðri lendingu íslenska hagkerfisins. Gengi krónunnar féll við þetta um tvö prósent. Viðskipti innlent 20.11.2007 13:12
Viðsnúningur í Kauphöllinni Talsverður viðsnúningur varð á gengi hlutabréfa eftir sem leið á morguninn og snéru flest fyrirtæki úr lækkanaferli í hækkun, ekki síst fjármálafyrirtækin, sem hafa hækkað lítillega eða staðið í stað. Viðskipti innlent 20.11.2007 11:00
Atlantic Petroleum hefur flugið á ný Gengi færeyska olíuleitarfélagsins Atlantic Petroleum hefur hækkað um rúm átta prósent í fyrstu viðskiptum dagsins. Þetta er annar hækkunardagur félagsins í Kauphöllinni eftir um næstum þriðjungslækkun í síðustu viku. Þá hefur gengið Straums hækkað í Kauphöllinni eftir að viðskipti hófust. Önnur félög hafa ýmist staðið í stað eða lækkað. Viðskipti innlent 20.11.2007 10:16
Úrvalsvísitalan féll undir 7.000 stigin Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,63 prósent í Kauphöllinni í dag. Hún stendur í 6.955 stigum og hefur ekki verið jafn lág síðan seint í janúar. Gengi fjármálafyrirtækja hefur hríðfallið það sem af er dags, mest í Straumi og Exista en gengi beggja hefur fallið um rúm fimm prósent. Gengi Straums hefur ekki verið lægra síðan í ágúst á síðasta ári. Viðskipti innlent 19.11.2007 16:04
Atlantic Petroleum hækkar eftir fall Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur hækkað um 5,5 prósent eftir að viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag eftir tæplega þriðjungsfall í síðustu viku. Einungis tvö önnur félög hafa hækkað á sama tíma en fimm lækkað, þar af mest í FL Group. Viðskipti innlent 19.11.2007 10:43
Tæp þriðjungslækkun í vikunni Gengi hlutabréfa í Atlantic Petroleum hélt áfram að lækka í dag eftir breytt verðmat á félaginu í byrjun vikunnar en nú fór það niður um níu prósent. Gengið fór hæst í 2.433 stig á mánudag en stendur nú í 1.692 stigum sem jafngildir því að gengið hefur fallið um tæp 30 prósent á þremur dögum. Viðskipti innlent 16.11.2007 16:33
Afkoma Icelandic Group undir væntingum Icelandic Group tapaði rúmum 2,5 milljónum evra, jafnvirði rúmra 220 milljóna íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 953 þúsunda evra hagnað á sama tíma í fyrra. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandic Group, segir áætlanir um hagræðingu og rekstrarhagnað á árinu ekki hafa gengið eftir. Viðskipti innlent 16.11.2007 13:37
SPRON opnar skrifstofu í Berlín SPRON Verðbréf dótturfélag SPRON hf., hefur opnað skrifstofu í Berlín og hefur ásamt íslenskum fjárfestum keypt 430 íbúðir þar í borg fyrir fimm og hálfan milljarð króna. Hlutverk skrifstofunnar er að veita ráðgjöf og annast fjárfestingar í fasteignum og fyrirtækjum í Þýskalandi, sem og á nálægum svæðum og bæta með því enn frekar þjónustu við einka- og fyrirtækjafjárfesta á Íslandi. Viðskipti innlent 16.11.2007 12:41
Gengi FL Group ekki lægra í rúmt ár Gengi bréfa í FL Group féll töluvert við opnun viðskipta í Kauphöllinni í dag en það fór niður um 2,94 prósent og hefur ekki verið lægra síðan um miðjan september á síðasta ári. Viðskipti innlent 16.11.2007 10:08
Vilja koma í veg fyrir aðra undirmálslánakrísu Bandarískir þingmenn hafa samþykkt frumvarp sem felur í sér hert eftirlit með bandarískum fasteignalánafyrirtækjum með það fyrir augum að koma í veg fyrir að fjármálakrísa í tengslum við undirmálslán vestanhafs endurtaki sig. Viðskipti erlent 16.11.2007 09:43
Úrvalsvísitalan lækkaði í Kauphöllinni Gengi nær allra fjármálafyrirtækja lækkaði í kringum eitt til rúmlega tvö prósent undir lok viðskipta í Kauphöllinni í dag. Mest var lækkun á gengi bréfa í Föroya banka, sem fór niður um 2,93 prósent. Næst á eftir fylgdu bréf í olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum, sem féll hratt við upphaf dags en jafnaði sig eftir því sem á leið. Viðskipti innlent 15.11.2007 16:35
Samdráttur hjá J. C. Penny Hagnaður bandarísku verslanakeðjunnar J.C. Penny nam 261 milljón dala, jafnvirði 15,6 milljörðum íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 287 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Þetta er níu prósenta samdráttur á milli ára. Stjórnendur verslunarinnar segja sölu hafa dregist saman á fjórðungnum og séu horfur á að efnahagurinn muni versna frekar á yfirstandandi fjórðungi þar sem ljóst þyki að neytendur haldi að sér höndum þessa dagana. Viðskipti erlent 15.11.2007 13:30
Vísa samrunaviðræðum á bug Orðrómur hefur verið uppi um að bandarísku flugfélögin Delta og United Airlines eigi í viðræðum sem geti leitt til samruna þeirra. Gengi það eftir yrði til stærsta flugfélag í heimi. Forstjórar flugfélaganna vísa því hins vegar á bug að samrunaviðræður eigi sér stað. Viðskipti erlent 15.11.2007 13:01
Verðbólga eykst á evrusvæðinu Verðbólga mældist 2,6 prósent á evrusvæðinu í síðasta mánuði samanborið við 2,1 prósent í september, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Helstu liðir til hækkunar liggja í hærra eldsneytis- og matvælaverði, ekki síst á mjólkur- og kornvörum sem hefur hækkað mjög í verði víða um heim. Viðskipti erlent 15.11.2007 10:36
Macy's spáir minni einkaneyslu Gengi hlutabréfa tók að lækka skyndilega í Bandaríkjunum í gær eftir að bandaríska verslanakeðjan Macy's skilaði inn uppgjörstölum sínum fyrir þriðja ársfjórðung. Verslunin skilaði 33 milljóna dala hagnaði, sem jafngildir tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna, á tímabilinu. Þetta er á pari við væntingar markaðsaðila. Viðskipti erlent 15.11.2007 09:40
John Thain í forstjórastól Merrill Lynch Talsverðar líkur eru taldar á því að John Thain, forstjóri NYSE Euronext, hinnar tiltölulega nýsameinuðu kauphallar New York í Bandaríkjunum og samevrópsku kauphallarsamstæðunnar Euronext, verði veittur forstjórastóllinn hjá bandaríska fjárfestingabankanum Merrill Lynch. Viðskipti erlent 14.11.2007 18:52
Smásöluverslun jókst lítillega í Bandaríkjunum Smásöluverslun jókst um 0,2 prósent á milli mánaða í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Til samanburðar jókst verslun um 0,7 prósent á milli mánaða í september. Fjármálaskýrendur segja greinilegt að slæmar aðstæður á fasteignamarkaði í Bandaríkjunum, hátt raforkuverð og erfiðara aðgengi að lánsfé nú um stundir hafi sett mark sitt á einkaneyslu vestanhafs. Viðskipti erlent 14.11.2007 14:05
Exista leiðir hækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hefur tekið ágætlega við sér eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Gengi bréfa í Existu hefur hækkað mest, eða um 3,2 prósent. Á eftir fylgja bankar og önnur fjármálafyrirtæki. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á erlendum fjármálamörkuðum í gær og í dag eftir talsverðan viðsnúning á mörkuðum eftir skell í síðustu viku og byrjun þessarar viku. Viðskipti innlent 14.11.2007 10:30
Fjárfestar bjartsýnir víða um heim Gengi helstu hlutabréfavísitalna hafa hækkað talsvert í Asíu og Evrópu í dag eftir mikla hækkun í Bandaríkjunum í gær. Fjárfestar þykja bjartsýnir á að fjármálakrísan sé ekki eins slæm og af var látið þrátt fyrir að fasteignalán hafi sett skarð í afkomu bandarískra og japanskra fjármálastofnana. Viðskipti erlent 14.11.2007 10:07
Óbreyttir stýrivextir í Japan Japanski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentum. Í rökstuðningi bankastjórnarinnar koma fram áhyggjur vegna fjármálakrísunnar á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum og hægari hagvöxtur í Bandaríkjunum sem gæti skilað sér í minni útflutningi frá Japan til Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 13.11.2007 11:58
Lækkun í Kauphöllinni Gengi tólf fyrirtækja í Kauphöllinni hefur lækkað frá því viðskipti hófust í dag. Ekkert hefur hækkað á sama tíma en fjöldi staðið í stað. Gengi Atlantic Petroleum hefur lækkað mest, eða um 3,82 prósent. Gengi bréfa í þessu færeyska olíuleitarfélagi hefur hækkað langmest skráðra félaga í Kauphöllinni á árinu, eða um rúm 324 prósent. Viðskipti innlent 13.11.2007 11:07
Hlutabréf hækka í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hækkaði almennt eftir upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Bréf Flögu hækkaði um 2,7 prósent en bankar og fjárfestingafélög fylgja fast á hæla þess. Þá hélt gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu áfram að hækka og stendur gengið í hæstu hæðum. Einungis gengi bréfa í Eimskipafélaginu hefur lækkað. Viðskipti innlent 12.11.2007 10:06
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti