Viðskipti
44 45 46 47 48 49 50 51 52 … 223 ›
Zimbabvebúar fá tugmilljónadalaseðilinn Seðlabanki Afríkuríkisins Zimbabve hefur undanfarið brugðist við ógnarhárri verðbólgu með prentun og útgáfu nýrra peningaseðla. Seðlarnir hlaupa á milljónum Zimbabve-dala og var tíu milljónadalaseðillinn settur í umferð í dag. Viðskipti erlent 18.1.2008 10:44
Teymi og Bakkavör ein á uppleið Gengi bréfa í Teymi og Bakkavör var það eina sem hækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands. Félögin eru jafnframt þau einu sem greiningardeild Glitnis mælti með að fjárfestar keyptu í vikunni. Viðskipti innlent 18.1.2008 10:18
Lækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað á hlutabréfamörkuðum í Evrópu þrátt fyrir hækkun á asískum mörkuðum. Útlitið var hins vegar ekki bjart framanaf í Japan en Nikkei-vísitalan féll um tæp þrjú prósent við upphaf viðskiptadagsins og virtust asískir markaðir almennt á niðurleið. Viðskipti erlent 18.1.2008 09:30
FL Group tók flugið Gengi hlutabréfa í FL Group hækkaði mest skráðra félaga í Kauphöll Íslands í dag, eða um 3,33 prósent. Gengið í enda viðskiptadagsins í 10,85 krónum á hlut og hefur það fallið um rúm 25 prósent frá áramótum. Viðskipti innlent 17.1.2008 16:42
Tap Merrill Lynch meira en spáð var Bandaríski fjárfestingabankinn Merrill Lynch skilaði tapi upp á 9,83 milljarða dala, jafnvirði 642 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi síðasta árs samanborið við 2,35 milljarða dala hagnað árið á undan. Langmestu munar um 15 milljarða dala afskriftir á skuldabréfavöndlum og verðbréfum sem tengjast bandarískum undirmálslánum. Viðskipti erlent 17.1.2008 13:50
Nýr forstjóri yfir Carnegie Mikael Ericson hefur verið ráðinn forstjóri sænska fjárfestingarbankans Carnegie og mun hann taka við starfinu eigi síðar en í júlí í sumar. Bankinn lenti í miklum vandræðum í fyrrahaust þegar rannsókn efnahagsbrotayfirvalda leiddi til þess að fyrrum yfirmaður hans var dæmdur í hálfs árs fangelsi vegna innherjasvika. Maðurinn mun hafa gefið vini sínum trúnaðarupplýsingar um að góðar fréttir væru á leiðinni frá einu félagi í sænsku kauphöllinni og hagnaðist sá um tæplega 5 milljónir króna á þeim. Viðskipti erlent 17.1.2008 11:33
Góð jól hjá HMV Breska bóka- og tónlistarverslunin HMV átti góð jól, að sögn stjórnenda hennar en salan jókst um 9,4 prósent á milli ára í desember. Þetta er nokkuð annað hljóð en hjá öðrum verslunum í Bretlandi en í heildina talið dróst velta saman á milli ára. Viðskipti erlent 17.1.2008 10:52
Grænt upphaf í Kauphöllinni Íslensku bankarnir og fjármálafyrirtækin tóku sprettinn við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag og stóðu á grænu. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á erlendum hlutabréfamörkuðum eftir dapurt gengi undanfarna daga. Viðskipti innlent 17.1.2008 10:18
Sameining fær byr undir báða vængi Hugsanlegar sameiningar flugfélaga hafa fengið byr undir báða vængi í Bandaríkjunum en Delta Air Lines þykir vera að þreifa fyrir sér að kaupa ýmist United Airlines eða Northwest Airlines. Viðskipti erlent 17.1.2008 09:46
Hlutabréfaverð á uppleið víða um heim Gengi hlutabréfa í Evrópu og Asíu hefur almennt hækkað í dag eftir skell í byrjun vikunnar. Viðskipti erlent 17.1.2008 09:05
Verðbólga eykst í Bandaríkjunum Verðbólga jókst talvert í Bandaríkjunum í fyrra samanborið við 2006. Hún mældist 4,1 prósent en var 2,5 prósent í hitteðfyrra og hefur ekki hækkað jafn snarlega á milli ára síðan árið 1990. Mestu munar um verðhækkanir á matvöru og raforku. Viðskipti erlent 16.1.2008 14:01
Hagnaður JP Morgan niður um 34 prósent Hagnaður bandaríska bankans JP Morgan nam 2,97 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði rétt rúmra 194 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Til samanburðar nam hagnaðurinn 4,53 milljörðum dala á síðasta fjórðungi 2006 4,5 milljörðum dala. Þetta er því 34 prósenta samdráttur á milli ára, sem skýrist að langmestu leyti af afskriftum um á 2,54 milljarða dala á bandarísku undirmálslánasafni bankans. Viðskipti erlent 16.1.2008 13:11
Úrvalsvísitalan hækkar í alþjóðlegri niðursveiflu Gengi bréfa í Kaupþingi, Existu, Atorku og Bakkavör hefur hækkað í dag en önnur félög hafa lækkað í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Önnur félög hafa hins vegar lækkað, mest í Icelandic Group en gengi félagsins hefur fallið um tæp 4,9 prósent á hálftíma. Viðskipti innlent 16.1.2008 10:25
Verðfall víða um heim Talsverður taugatitringur hefur verið á evrópskum hlutabréfum í dag eftir fall á bandarískum mörkuðum í gær og asískum í morgun. FTSE-vísitalan í Bretlandi féll um rúm þrjú prósent skömmu eftir upphaf viðskiptadagsins en jafnaði sig fljótlega. Hún hefur það sem af er dags lækkað um 0,78 prósent. Viðskipti erlent 16.1.2008 09:49
Dreamliner ekki í loftið í bráð Flugvélasmiðir hjá Boeing eiga í vandræðum með smíði Boeing 787 Dreamliner-þotunnar, nýjustu farþegavélar fyrirtækisins, og gæti svo farið að afhending hennar dragist frekar á langinn. Þetta fullyrða dagblöðin Financial Times og Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 16.1.2008 09:08
Ár skuldabréfanna er runnið upp Undanfarin ár hafa sjónir manna nánast eingöngu beinst að hlutabréfamarkaði, á meðan færri hafa gefið skuldabréfamarkaði gaum. Margar skýringar kunna að liggja þar að baki. Ein er þó líklega sú að ekki hefur verið sami dýrðarljómi yfir skuldabréfum og hlutabréfum, enda eru sveiflur á skuldabréfamarkaði ekki jafn tíðar og á hlutabréfamarkaði og þar af leiðandi er jafnan minni áhætta af fjárfestingu í skuldabréfum. Viðskipti innlent 15.1.2008 21:12
Gæti orðið dýrt að halda bréfunum „Hvert veltumetið á fætur öðru hefur verið slegið það sem af er ári. Gengi bæði verðtryggðra og óverðtryggðra skuldabréfa hefur hækkað töluvert. Það er mjög sjaldgæft að við sjáum svona miklar og kröftugar hreyfingar og við höfum orðið vitni að síðustu vikur,“ segir Hjördís Vilhjálmsdóttir, hagfræðingur hjá greiningu Glitnis. Viðskipti innlent 15.1.2008 21:12
Bandaríkin féllu Talsvert fall varð á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en fjárfestar urðu mjög uggandi um að samdráttarskeið sé í þann mund að renna upp. Viðskipti erlent 15.1.2008 21:26
Skellur á gengi Flögu Gengi fjölmargra félaga í Kauphöllinni tók dýfu í dag, mest í Flögu sem féll um 13,85 prósent. Þetta er annar dagurinn í röð sem gengi bréfanna fellur en markaðsvirði félagsins hefur fallið um rúm 34 prósent frá áramótum. Viðskipti innlent 15.1.2008 16:33
Mettap hjá Citigroup Citigroup, stærsti banki Bandaríkjanna, tapaði 9,83 milljörðum dala, jafnvirði rúmra 631 milljarðs íslenskra króna, á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Þetta er mesta tap í sögu þessa 196 ára gamla banka. Viðskipti erlent 15.1.2008 14:28
Salan undir væntingum hjá Burberry Þrátt fyrir að útlit sé fyrir að sölutekjur á vörum undir merkjum bresku verslanakeðjunnar Burberrys hafi aukist um 14 prósent á milli ára á síðasta fjórðungi nýliðins árs og væntingar um að tekjur aukist um 20 prósent á seinni hluta ársins, þá er það undir spám stjórnenda, að því er Associated Press-fréttastofan greinir frá. Viðskipti erlent 15.1.2008 09:04
Dæmigerður mánudagur á markaðnum Gengi fjármálafyrirtækja lækkaði almennt við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag á meðan Alfesca hækkaði. Gengi bréfa í SPRON hefur lækkað mest, eða um 3,15 prósent. Á eftir fylgja Kaupþing, Exista, Glitnir og Straumur sem hafa lækkað á bilinu rúmlega tvö til eitt prósent. Gengi Landsbankans hefur lækkað minnst fjármálafyrirtækjanna, eða um tæpt prósent. Viðskipti innlent 14.1.2008 10:21
Gullverð komið í methæðir Verð á gulli fór í rétt rúma 900 dali á únsu til skamms tíma á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í gær. Þetta er hæsta verð sem nokkru sinni hefur sést á eðalmálminum sem hefur hækkað mjög í verði upp á síðkastið, hraðar en reiknað hefur verið með. Óróleiki á fjármálamörkuðum hefur valdið því að fjárfestar hafa leitað í hefðbundnar, sem margir hverjir kalla gamaldags, en gulltryggðar fjárfestingar á borð við olíu, steinsteypu og gull. Viðskipti erlent 12.1.2008 00:48
Baugur og Formúlan Baugur kveðst ekki hafa keypt þriðjungshlut í liði Williams í Formúlu 1 kappakstrinum líkt og látið er að liggja á vef International Herald Tribune í gær. Orðrómurinn um aðkomu Baugs hefur hins vegar verið lífseigur Viðskipti innlent 12.1.2008 01:20
SPRON hækkar mest annan daginn í röð Gengi SPRON hækkaði um tæp 3,4 prósent í lok viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Þetta er annar dagurinn í röð sem gengið hækkar en í gær fór það upp um rúm fjögur prósent. Sparisjóðurinn hefur hins vegar ekki átt góðu gengi að fagna síðan hann var skráður á markað í október en það hefur lækkað um 9,5 prósent frá áramótum. Viðskipti innlent 11.1.2008 16:33
Bank of America kaupir Countrywide Bank of America greindi frá því í dag að samningar hafi náðst um að hann kaupi fjármálafyrirtækið Countrywide, stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins, fyrir fjóra milljarða dala, jafnvirði 251 milljarð íslenskra króna. Kaupin eru sögð nauðlending Countrywide sem geti forðað því frá gjaldþroti. Viðskipti erlent 11.1.2008 12:59
Rífandi gangur á SPRON Gengi hlutabréfa í SPRON hefur hækkað um 5,5 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag og leiðir það gengishækkun á öllum íslenskum bönkum og fjármálafyrirtækjum sem þar eru skráð. Þetta er annar dagurinn í röð sem gengið tekur kipp en það hefur hækkað um tæp tíu prósent á tveimur dögum. Viðskipti innlent 11.1.2008 10:34
Frekari afskriftum spáð hjá Merrill Lynch Bandaríski fjárfestingabankinn Merrill Lynch gæti neyðst til að afskrifta hátt í 15 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 940 milljarða íslenskra króna, vegna tapa á fasteignalánum fyrirtækisins, samkvæmt heimildum bandaríska dagblaðsins New York Times. Gangi það eftir eru afskriftirnar talsvert meiri en áður hafði verið reiknað með. Viðskipti erlent 11.1.2008 10:22
Seðlabankar grípa til aðgerða Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir merki um samdrátt í þarlendu efnahagslífi og boðaði aðgerðir til að sporna gegn því að einkaneysla dragist saman samhliða verðbólguþrýstingi. Kaupþing reiknar með stýrivaxtalækkun hér á landi fyrr en áætlað var. Viðskipti erlent 11.1.2008 09:18
Bank of America til bjargar Countrywide Viðræður eru langt komnar um kaup Bank of America, eins af stærstu bönkum Bandaríkjanna, á Countrywide, stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins. Countrywide hefur beðið afhroð í lausafjárkrísunni sem skekið hefur fjármálaheiminn upp á síðkastið og gengi þess fallið um heil 89 prósent. Viðskipti erlent 10.1.2008 21:01