Viðskipti
188 189 190 191 192 193 194 195 196 … 223 ›
Reynt að halda viðskiptum FL Group Forstjóri Skeljungs, sem selur Icelandair eldsneyti, segir að fyrirtækið ætli að reyna að halda viðskiptunum, en flugfélagið ætlar að hefja eigin innflutning. Flugleiðir keyptu á síðasta ári eldsneyti fyrir tæplega sex milljarða króna, þar af um helminginn hér á landi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Heitir tímabundið MS/MBF Mjólkursamsalan hefur nú formlega sameinast Mjólkurbúi Flóamanna og hefur nú fengið nýtt nafn sem reyndar er einungis skammstöfun, MS/MBF. Það er til allrar hamingju tímabundin ráðstöfun því ný stjórn ætlar að velja nýtt nafn fljótlega að undangenginni samkeppni meðal starfsmanna og mjólkurframleiðenda þess. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Boeing og Airbus berjast í Asíu Flugvélaframleiðendurnir Airbus og Boeing keppast nú við að selja flugfélögum í Asíu framleiðslu sína en eftirspurn flugfélaga í álfunni eftir flugvélum hefur aukist mikið með batnandi efnahag. Boeing, sem er bandarískt fyrirtæki, hefur að undanförnu misst fjölmarga samninga til evrópska samkeppnisaðilans Airbus. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:08
FL Group íhugar olíuinnflutning Stærsti kaupandi eldsneytis á landinu íhugar að hefja innflutning sjálfur og hefur fest sér lóð fyrir birgðastöð. Forsvarsmenn FL Group útiloka ekki að hefja sölu á flugvélabensíni til annarra flugfélaga. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Nýta sér forkaupsrétt í Mogganum Hluthafar í <em>Morgunblaðinu</em> hafa skrifað sig fyrir þeim hlut sem var til sölu í blaðinu og er því útlit fyrir að ekkert verði af sölu hans til hóps tengdum Íslandsbanka. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Methagnaður og kaup á banka KB banki hefur gert bindandi tilboð í breska bankann Singer & Friedlander. Stjórn breska bankans hefur ákveðið að mæla með tilboðinu. Þar með er nánast ekkert sem komið getur í veg fyrir að KB banki kaupi breska bankann. KB banki birti einnig uppgjör sitt í gær og nam hagnaður bankans rúmum ellefu milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins sem er í samræmi við spár. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Vinna saman að tilboði í Símann Hópur fjárfesta vinnur nú að tilboði í Símann. Í hópnum eru Atorka Group, Frosti Bergsson, Jón Helgi Guðmundsson, Jón Snorrason og Sturla Snorrason. Hópurinn útilokar ekki samstarf við aðra, en í fréttatilkynningu frá þeim segir að fjárfestarnir hafi ekki starfað saman áður. Þeir vonast til að einkavæðingarferlið verði gagnsætt þannig að allir sitji við sama borð. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Keahótel reka Hótel Borg Keahótel og Hótel Borg undirrituðu í gær samning um að fyrrnefnda félagið taki við rekstri Hótel Borgar við Austurvöll. Ekki er um kaup á hótelinu að ræða heldur var gerður leigusamningur til næstu 15 ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Keahótelum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:08
Ver hagsmuni sína í kjölfar dóms Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir ljóst að Síminn muni verja hagsmuni sína í framhaldi af Hæstaréttardómi yfir þremur sakborningum í Landssímamálinu sem féll í gær. Lögfræðingar fyrirtækisins eru nú að kanna málið en eftir að dómur féll í héraðsdómi á síðasta ári segir hún grunn hafa verið lagðan að bótaskyldu. Innlent 13.10.2005 19:08
Gerir tilboð í Singer&Friedlander Kaupþing banki, sem á tæp tuttugu prósent í breska bankanum Singer og Friedlander, hefur gert bindandi kauptilboð í bankann upp á röska 64 milljarða króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Hagnaður Avion 2,5 milljarðar Hagnaður af rekstri Avion Group, móðurfélags Atlanta, Íslandsflugs og Exel Airways, nam tveimur og hálfum milljarði króna eftir skatta í fyrra og munaði þar mestu um mikinn hagnað af Exel Airways. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Hagnaður jókst um 266% Hagnaður af rekstri Kaupþings banka eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi nam ellefu milljörðum króna og jókst um rúm 266 prósent frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður á hvern hlut nam 17 krónum en var sjö krónur í fyrra. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Hagnaður Straums 4,5 milljarðar Straumur Fjárfestingabanki hagnaðist um rúma fjóra og hálfan milljarð eftir skatta á fyrsta þremur mánuðum ársins. Það er 127 prósenta hækkun miðað við árið í fyrra en þá nam hagnaðurinn rúmum tveimur milljörðum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Methagnaður BP-olíurisans Breska risaolíufyrirtækið BP, sem m.a. vinnur olíu úr Norðursjó, skilaði methagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Olíuhluti Norsk Hydro sýndi líka mjög góða afkomu. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:07
Almenningur í klemmu Almenningur ehf. sem hyggst bjóða í hlut í Símanum er í klemmu milli þess að undirrita trúnaðareið vegna útboðsgagna við sölu Símans og þess að upplýsa væntanlega hluthafa félagsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Enn barist um vörumerkið Iceland Enn er barist um notkun orðsins Iceland sem vörumerkis. Breska verslanakeðjan Iceland, sem er í eigu Baugs, hafði boðist til að draga til baka umsókn um einkarétt á skráningu heitisins í löndum Evrópusambandsins, að beiðni íslenskra stjórnvalda. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Varað við erlendri skuldasöfnun Viðskiptahallinn í ár stefnir í að vera sá mesti síðan eftir fyrra stríð og á sér ekki hliðstæðu í þróuðu ríki. Seðlabankastjóri segir skuldasöfnun helst ógna stöðu þjóðarbúsins en fjármálakerfið sé í meginatriðum traust. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Ekki aðhafst frekar KB banki segir að Fjármálaeftirlitið hafi lýst því yfir við bankann að það telji ekki tilefni til að aðhafast frekar í máli er varðar ítrekuð tilmæli Fjármálaeftirlitsins til bankans um að hann veiti fyrrverandi viðskiptavini tilteknar upplýsingar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Fékk ekki að kveðja starfsfólk Nýrri stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar lá svo á að reka sparisjóðsstjórann í gær að hann fékk ekki að kveðja starfsfólkið á starfsmannafundi eins og til stóð. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Skattaumhverfi gæti orðið betra Íslensk fyrirtæki greiða ekki háan tekjuskatt miðað við fyrirtæki í öðrum löndum og skattaumhverfi hér gæti orðið með því besta í heiminum, samkvæmt skýrslu sem Deloitte vann fyrir Samtök atvinnulífsins. Frjáls félagasamtök telja hins vegar skattaumhverfið óhagstætt góðgerðafélögum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Skeljungur og Olís í fótspor Esso Öll stóru olíufélögin, Esso, Olís og Skeljungur, hafa hækkað verð á bensíni og díselolíu um eina krónu og fimmtíu aura og má rekja það til hækkunar á heimsmarkaðsverði og lækkunar krónunnar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Esso hækkar olíu- og bensínverð Olíufélagið Esso hefur hækkað verð á bensíni og díselolíu um eina krónu og fimmtíu aura og má rekja hækkunina til hækkunar á heimsmarkaðsverði og lækkunar á gengi krónunnar. Gengi krónunnar lækkaði um liðlega eitt prósent í gær sem er mikil lækkun á einum degi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Nýr sparisjóðsstjóri í Hafnarfirði Ný stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar, sem komst til valda í síðustu viku, hefur þegar skipt um sparisjóðsstjóra. Björn Ingi Sveinsson, fyrrverandi borgarverkfræðingur, sem ráðinn var sparisjóðsstjóri síðastliðið haust hefur nú vikið fyrir Magnúsi Ægi Magnússyni sem starfað hefur hjá Sparisjóðnum í sjö ár. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Íbúðarverð hækkar um 13% Hækkun á verðmæti íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu á fyrsta ársfjórðungi nemur þrettán prósentum. Það jafngildir 315 þúsund krónum á hvern íbúa samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Það bætist við drjúga verðmætaaukningu á síðasta ári þegar verð íbúða á svæðinu hækkaði um 23 prósent. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Samruni við Línu.Net samþykktur Samkeppnissráð samþykkti í dag samruna Og Vodafone og Línu.Nets. Þetta kemur fram á heimasíður Kauphallar Íslands. Í ákvörðun ráðsins segir að samkeppnisráð telji ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:06
Olíuverð hækkar á ný Olíuverð fer nú hækkandi á ný eftir að bilanir komu upp í olíuhreinsunarstöðvum í Bandaríkjunum. Að auki ríkir vissa um að jaðra muni við skort þegar sumarleyfatímabilið hefst á Vesturlöndum en þá eykst eldsneytisþörfin jafnan. Á Bandaríkjamarkaði kostaði fatið um 56 dollara. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:06
Frekari fjárfestingar í Hollandi Samskip hafa keypt frystiflutninga- og geymslustarfsemi hollenska flutningafyrirtækisins Kloosterboer og verður hún sameinuð frystiflutningastarfsemi Samskipa. Með kaupunum eykst heildargeymslupláss Samskipa á frystum sjávarafurðum um 84 þúsund tonn, en fyrir var Samskip með sex þúsund tonna frystigeymslu í Sundahöfn. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:06
Straumur kaupir meira Straumur fjárfestingarbanki keypti á föstudag bréf í Íslandsbanka fyrir þrjá milljarða króna. Þessi kaup benda eindregið til þess að Straumur muni leggja upp í lokaorrustu um bankann. Kaupin verða tilkynnt á mánudag. Eigendur Landsbankans og viðskiptafélagar þeirra hafa veruleg ítök í hluthafahópi Straums. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:06
50 milljarða kortaviðskipti Seðlabankinn segir að gríðarleg eyðsla landsmanna að undanförnu geti leitt til þenslu í hagkerfinu sem ástæða sé til að hafa áhyggjur af. Landsmenn hafa sjaldan eytt eins miklu og á fyrstu þremur mánuðum ársins þegar þeir notuðu kreditkort fyrir tæplega fimmtíu milljarða króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:06
Dregur úr hækkun íbúðaverðs Verð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,4% milli febrúar og mars samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Næstu mánuði á undan mældist meiri hækkun á milli mánaða, um eða yfir 5% þegar litið er til janúar og febrúar á þessu ári. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:06
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti