Skotland

Skotland

Höfuðborg: Edinborg. Mannfjöldi: 5,6 milljónir (2025). Flatarmál: 80.231 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar

Fámennur hópur leikara mun spreyta sig í prufutökum fyrir hlutverk breska njósnarans 007 á næstu dögum. Reiknað er með því að í það minnsta þrír leikarar taki þátt í tökunum í von um að taka við af hinum breska Daniel Craig sem lék njósnarann James Bond frá árinu 2006 til ársins 2021.

Bíó og sjónvarp

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hvað veistu um… Karl Breta­konung?

Karl Bretakonungur varð konungur árið 2022 eftir andlát móður sinnar, Elísabetar II, sem hafði þá gegnt embætti drottningar frá árinu 1952. Þegar Karl tók við embætti konungs hafði hann verið krónprins í rúmlega sjö áratugi og varð þá elsti maðurinn til að taka við bresku krúnunni.

Lífið
Fréttamynd

Skila­boð send úr símanum í blekkingar­skyni

Gríska lögreglan hefur til rannsóknar andlát skoskrar konu sem fannst látin í ferðatösku í yfirgefinni byggingu í Aþenu. Grunur leikur á að einhver hafi haft umráð yfir farsíma hennar eftir andlátið og sent skilaboð til að villa um fyrir þeim sem leituðu hennar.

Erlent
Fréttamynd

Vill færa Bretum von á nýjan leik

Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, segir að breskir stjórnmálamenn verði að standa sig betur. Hann segist skilja að kjósendur séu komnir með upp í kok af pólitík í Bretlandi og að yfirvöld og stjórnmálin verði að vinna í hag almennings. Hann segist vilja færa Bretum von á nýjan leik.

Erlent
Fréttamynd

„Konungur norðursins“ sjöundi for­sætis­ráð­herrann á ára­tug

Andy Burnham, nýr leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, tekur við sem forsætisráðherra landsins í dag þegar Keir Starmer hverfur á braut. Starmer mun flytja sína síðustu ræðu sem forsætisráðherra nú fyrir hádegið áður en hann og arftaki hans halda á fund konungs í Buckingham höll, þar sem Karl konungur mun leggja blessun sína yfir valdaskiptin.

Erlent
Fréttamynd

Starmer segir af sér

Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr leiðtogi Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. 

Erlent
Fréttamynd

Sak­felldur vegna sjálfs­vígs eigin­konunnar

Dómstóll í Skotlandi dæmdi þarlendan karlmann í átta ára fangelsi fyrir manndráp vegna sjálfsvígs eiginkonu hans. Þetta er í fyrsta skipti sem maður sem beitir maka sinn ofbeldi er gerður ábyrgur fyrir sjálfsvígi.

Erlent
Fréttamynd

Til­lögu um lög­leiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skot­landi

Skoska þingið hefur hafnað lögleiðingu dánaraðstoðar en tillaga þess efnis var felld með 69 atkvæðum á móti 57. Frumvarpið hafði mætt töluverðri mótspyrnu og þá var harðlega deilt um það á þinginu í síðustu viku hvort einstaklingar í viðkvæmri stöðu myndu njóta nægilegrar verndar frá mögulegum þvingunum.

Erlent
Fréttamynd

Eld­haf í Glasgow

Umfangsmikill eldur kviknaði í fornfrægri fjögurra hæða byggingu við hlið mikilvægustu lestarstöðvarinnar í Glasgow í Skotlandi í gærkvöldi. Þar logaði lengi mikið eldhaf stjórnlaust og er byggingin að miklum hluta hrunin. Ekki er vitað til þess að nokkurn hafi sakað.

Erlent
Fréttamynd

Vellinum í Edin­borg lokað um stund og seinkanir mögu­legar

Edinborgarflugvelli var lokað í skamma stund í morgun vegna bilana hjá þjónustuaðila flugumferðarstjórnarinnar á vellinum. Að sögn Guðna Sigurðssonar, staðgengils forstöðumanns samskipta hjá Icelandair, kann lokunin að hafa einhverja seinkun í för með sér fyrir farþega félagsins.

Erlent
Fréttamynd

Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mis­tök

Nicola Sturgeon, fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands, segir blikur á lofti í breskum stjórnmálum. Sótt sé að stofnunum sem gegni lykilhlutverki í lýðræðissamfélagi, þar á meðal fjölmiðlum á borð við BBC. Þótt fjölmiðillinn hafi gert mistök og sé ekki hafin yfir gagnrýni, sé markvisst reynt að grafa undan stofnuninni. Þá óttast Sturgeon mögulegt bakslag í kvennréttindabaráttunni en hún segir konur í leiðtogastöðum verða fyrir auknu aðkasti frá því sem var þegar hún var að hefja sinn leiðtogaferil í stjórnmálum.

Erlent