Seðlabankinn
29 30 31 32 33 34 35 36 37 … 47 ›
Seðlabankinn sýknaður en Þorsteinn Már fær skaðabætur Seðlabanki Íslands var sýknaður í Landsrétti í dag af skaðabótakröfu sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja en hluta málsins var vísað frá dómi. Seðlabankinn var hins vegar dæmdur til að greiða Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, 2,7 milljónir króna í skaðabætur. Viðskipti innlent 11.3.2022 14:30
Frumvarpið „vonbrigði,“ auka þarf svigrúm til fjárfestinga erlendis „hraðar og meira“ Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna, meðal annars tveggja af þremur stærstu sjóðunum, gagnrýna að ekki sé gengið lengra í frumvarpsdrögum Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra um auknar heimildir þeirra til fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum. Innherji 11.3.2022 09:00
FME kærði meinta markaðsmisnotkun til lögreglu í fyrra Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands kærði meinta markaðsmisnotkun til lögreglu á síðasta ári. Þetta kemur fram í ritinu Fjármálaeftirlit sem Seðlabankinn birti í morgun en í svari við fyrirspurn Innherja kvaðst stofnunin ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið. Innherji 10.3.2022 18:04
Mesta dagsveltan á gjaldeyrismarkaði í sex ár Heildarveltan á millibankamarkaði gjaldeyri nam 107 milljónum evra, jafnvirði 15,6 milljarða íslenskra króna, síðastliðinn mánudag þegar Seðlabanki Íslands stóð að baki stærstu gjaldeyrissölu sinni á einum degi í að lágmarki þrettán ár til að vega á móti miklum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar. Innherji 10.3.2022 16:01
Svigrúm lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis verður aukið verulega á næstu árum Heimildir íslensku lífeyrissjóðanna til fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum verður rýmkað nokkuð á komandi árum þannig að lögbundið hámark erlendra eigna verður fært úr því að mega vera að hámarki 50 prósent af heildareignum sjóðanna upp í 65 prósent. Mun þessi breyting taka gildi í fimmtán jafn stórum skrefum á árunum 2024 til 2038. Innherji 9.3.2022 16:33
Seðlabankinn í þröngri stöðu, gæti þurft að hækka vexti ofan í kreppuverðbólgu „Allir tapa á þessu ömurlega stríði Pútíns,“ segir Valdimar Ármann, forstöðumaður eignastýringar Arctica Finance, en efnahagshorfur beggja vegna Atlantshafsins eru orðnar mun dekkri en áður eftir að stríðsátökin í Úkraínu hófust fyrir tólf dögum síðan. Innherji 8.3.2022 17:09
Stríðsátökin „varpa skugga á allt annað,“ fjárfestar búast áfram við miklum sveiflum Þróun stríðsátakanna í Úkraínu og skilaboð bandaríska seðlabankans í næstu viku eru þeir þættir sem munu ráða mestu um stefnu markaða næstu daga og vikur. „Það er líklegt að sveiflur verði áfram miklar enda er ekki að sjá neina lausn í sjónmáli,“ segir Davíð Stefánsson, sjóðsstjóri hjá Akta. Innherji 8.3.2022 12:04
Vaxtahækkanir áfram á dagskrá nema stríðið vindi upp á sig Óljóst er hvort efnahagslegar afleiðingar af stríðinu í Úkraínu, einkum miklar hækkanir á hrávöruverði, muni hægja á vaxtahækkunarferli Seðlabanka Íslands þegar upp er staðið. Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, bendir á að verðbólguhorfur hafi versnað umtalsvert og enn sé útlit fyrir að hagvöxtur verði þokkalegur á þessu ári. Innherji 8.3.2022 07:11
Ein mesta gjaldeyrissala í meira en áratug til að sporna gegn veikingu krónunnar Seðlabanki Íslands beitti ítrekuðum inngripum á gjaldeyrismarkaði í dag til að vega á móti miklum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar en hún féll engu að síður í verði um liðlega 1,5 til 1,9 prósent gagnvart evrunni og Bandaríkjadal. Innherji 7.3.2022 17:57
Brottrekstur Rússa úr heimshagkerfinu hafi gríðarleg áhrif Seðlabankastjóri gerir ráð fyrir að stríðið í Úkraínu mun hafa mjög mikil áhrif á hagkerfið hér á landi og víða um heim. Skammtímaáhrif séu strax komin í ljós. Hins vegar sé Rússland fremur fátækt land sem hafi ekki efni á langvarandi hernaði. Viðskipti erlent 6.3.2022 15:06
Ásgeir segir framboð, ekki vaxtalækkanir, rót vandans á íbúðamarkaði Verðhækkanir á fasteignamarkaði má fyrst og fremst rekja til framboðsskorts á húsnæði frekar en peningastefnu Seðlabanka Íslands. Þetta kom fram í máli Ásgeir Jónssonar seðlabankastjóra á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær þar sem hann var spurður um fasteignamarkaðinn og samhengi hans við peningastefnu bankans. Innherji 4.3.2022 13:28
Herdís tekur sæti Katrínar í peningastefnunefnd Herdís Steingrímsdóttir, dósent í hagfræði við Copenhagen Business School, hefur verið skipuð í peningastefnunefnd Seðlabankans til næstu fimm ára. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Viðskipti innlent 4.3.2022 10:24
Búast við jafnvægi á íbúðamarkaði á næsta ári Greiningardeild Íslandsbanka segir íbúðamarkað enn vera á blússandi siglingu og mikla eftirspurnarspennu ríkja á markaði. Þó er hún þeirrar skoðunar að jafnvægi náist á íbúðamarkaði á næsta ári með dvínandi eftirspurn og auknu framboði nýrra íbúða. Viðskipti innlent 3.3.2022 19:19
Seðlabankastjóri: Ekki ólíklegt að stríðið hafi dómínóáhrif eins og farsóttin Ísland verður ekki fyrir jafn beinum efnahagsáhrifum af Úkraínustríðinu og aðrar Evrópuþjóðir að sögn Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann óttast þó áhrif olíuverðshækkana á íslenska ferðaþjónustu og ófyrirséð dómínóáhrif sem stríðið gæti hrundið af stað. Þetta kom fram í máli seðlabankastjóri á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í morgun. Innherji 3.3.2022 16:00
67,6 milljarða lakari viðskiptajöfnuður 44,2 milljarða króna halli var á viðskiptajöfnuði við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2021. Niðurstaðan er 61,2 milljarða lakari en ársfjórðunginn á undan og 67,6 milljarða lakari en á sama tímabili árið 2020. Viðskipti innlent 2.3.2022 11:34
Vægi erlendra eigna stóru sjóðanna hélt enn að aukast þótt krónan hafi styrkst Hlutfall erlendra eigna tveggja stærstu lífeyrissjóða landsins, sem eru með eignir upp á samanlagt meira en 2.500 milljarða króna, jókst enn frekar á árinu 2021. Á fjórum árum hefur hlutfallslegt vægi slíkra eigna hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóði verslunarmanna (LIVE) hækkað um eða yfir 40 prósent og færst stöðugt nær lögbundnu hámarki sem kveður á um að erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða megi ekki vera meiri en sem nemur helmingi af heildareignum þeirra. Innherji 28.2.2022 19:00
Athugun fjármálaeftirlitsins leiddi í ljós „víðtæka veikleika“ hjá SaltPay Ákvörðun sektar upp á 44 milljónir króna í sátt fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og SaltPay vegna brota félagsins á ákvæðum peningaþvættislaga var byggð á því að athugun eftirlitsstofnunarinnar leiddi í ljós „víðtæka veikleika“ hjá SaltPay. Færsluhirðirinn hefur áður bent á að veikleikarnir tengist kerfum sem voru til staðar þegar félagið tók yfir Borgun vorið 2020. Innherji 24.2.2022 07:01
Allir studdu 75 punkta vaxtahækkun, óttast „hringrás verðlags- og launahækkana“ Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands viðraði áhyggjur af „mögulegum annarrar umferðar áhrifum af verðhækkun innfluttrar vöru og launahækkunum“ á fundi sínum í byrjun þessarar mánaðar. Afleiðingarnar gætu birst í meiri og almennari verðhækkunum á vöru og þjónustu til þess að bregðast við auknum innfluttum verðbólguþrýstingi og hærri launakostnaði sem gæti „framkallað hringrás verðlags- og launahækkana.“ Innherji 23.2.2022 16:45
Bankarnir ekki lánað minna til íbúðakaupa frá upphafi faraldursins Hækkandi vextir Seðlabankans, ásamt sögulega litlu framboði fasteigna á höfuðborgarsvæðinu, er farið að hægja verulega á útlánavexti bankanna vegna íbúðakaupa heimilanna. Ný lán þeirra með veði í íbúð námu þannig 13,3 milljörðum króna í janúar á þessu ári og hafa ekki aukist minna í einum mánuði frá því í apríl 2020. Innherji 23.2.2022 11:44
Kári segir ákvörðun rektors í siðanefndarmáli herfileg mistök Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur það mikil mistök af hálfu Jóns Atla Benediktssonar háskólarektors að telja úr vegi að siðanefnd HÍ fjalli um kæru Bergsveins Birgissonar á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra. Innlent 22.2.2022 09:44
Innlit í stúdíóíbúð á milljón/m²: Klikkunin á íslenskum húsnæðismarkaði Ástandið á íslenskum húsnæðismarkaði hefur aldrei verið eins slæmt, segja fulltrúar markaðarins sem fréttastofa hefur rætt við. Innlent 21.2.2022 08:30
Hvernig á að berjast við verðbólgu? Verðbólga, eins flókið fyrirbæri og það er, á sér nokkrar grundvallarástæður. Ein af þeim er ósamræmið á milli eftirspurnar eftir ákveðinni vöru m.v. framboð af henni: ef eftirspurn (magn af peningum sem er að eltast við viðkomandi vöru) er mikið meiri en framboðið hefur verðið á henni tilhneigingu til að hækka. Úr verður verðbólga. Skoðun 19.2.2022 20:01
Nýr banki kominn með starfsleyfi hjá Seðlabankanum Seðlabanki Íslands veitti í dag áskorendabankanum indó leyfi til að starfa sem sparisjóður. Indó tryggði sér tæplega 600 milljóna króna fjármögnun síðastliðið haust. Viðskipti innlent 15.2.2022 18:32
Um „ofurhagnað“ bankanna Verðum við ekki að ætlast til þess að viðskiptaráðherra viti að raunvextir í landinu eru í dag neikvæðir, þannig að nú á sér stað stórfelld yfirfærsla sparifjár frá sparifjáreigendum til lántakenda. Umræðan 13.2.2022 18:01
Seðlabankinn hlýtur „aðeins að naga sig í handabökin að hafa lækkað vexti svona mikið“ Seðlabankinn hlýtur að naga sig í handabökin yfir því að hafa lækkað vexti mjög skart í upphafi faraldursins vorið 2020. Þó má segja að lækkunin hafi verið eðlileg þar sem flestir gerðu ráð fyrir því að efnahagslegar afleiðingar faraldursins yrðu mun verri og vara lengur heldur raunin var. Innherji 13.2.2022 09:58
Bankarnir sýni heimilunum svigrúm Forsætisrráðherra og fjármálaráðherra segja góða stöðu banka í eigu ríkisins koma sér vel með miklum argreiðslum í ríkissjóð sem nýtist til fjármögnunar félagslegra verkefna. Fjármálaráðherra segir heimilin þó standa vel og vanskil þeirra séu í algeru lágmarki. Innlent 11.2.2022 19:30
Sigmar sakar Sjálfstæðisflokkinn um efnahagslegt metnaðarleysi Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, gerði vaxtahækkanir og hækkandi afborganir almennings af húsnæðislánum sínum að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnum í þinginu í dag og sakaði Sjálfstæðisflokkinn um efnahagslegt metnaðarleysi. Innherji 10.2.2022 17:00
Sátt verði að ríkja um fyrirtæki sem rekin eru í þágu þjóðar Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að það sé hennar helsta verkefni að reka bankann vel, tryggja aðgengi að fjármálaþjónustu á sanngjörnum kjörum en líka að tryggja að eign þjóðarinnar rýrni ekki í verði. Viðskipti innlent 10.2.2022 13:47
Kallar eftir því að bankarnir noti „ofurhagnað“ til að létta undir heimilunum Lilja Dögg Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra segir bankana skila „ofurhagnaði“ og að þeir séu þess vegna í stöðu til að létta undir með heimilunum í landinu, sem sjá fram á verulegar vaxtahækkanir. Innlent 10.2.2022 06:54
Seðlabankastjóri segir „algjör öfugmæli að tala um neyðarástand“ „Það þýðir ekki að tala um mikilvægi þess að ná niður verðbólgunni í einu orðinu en í því hinu að boða aðgerðir sem búa til brennsluefni fyrir hana með því að auka neysluna,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í viðtali við Innherja. Innherji 9.2.2022 19:55