
Umferðaröryggi

Segir Dag hafa fellt tillögu um lækkun hámarkshraða á Hringbraut
Ólafur F. Magnússon, fyrrum borgarstjóri, segir í samtali við fréttastofu að Dagur B. Eggertsson hafi verið á meðal þeirra sem felldu tillögu sína um lækkun hámarkshraða á Hringbraut og víðar árið 2009.

Hámarkshraði við einbreiðar brýr lækkaður
Vegagerðin hefur ákveðið að lækka hámarkshraða í 50 kílómetra á klukkustund við allar einbreiðar brýr á þjóðvegum landsins, þar sem umferð er meira en 300 bílar á dag að jafnaði.

Móðir litla drengsins grátbiður borgarstjóra og lögreglustjóra
Skiptar skoðanir eru um hvernig eigi að bæta öryggi við Hringbraut.

Brunaði yfir á rauðu ljósi eftir að gangbrautarvörður var farinn
Stuðningsfulltrúi við Vesturbæjarskóla var mættur á gönguljósin á gatnamótum Hringbrautar og Meistaravalla í morgun og stóð vaktina frá klukkan átta til rúmlega hálf níu.

Þarf að lækka hámarkshraða á Hringbraut
Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar hefur boðað til fundar með lögreglu, Vegagerðinni, Samgöngustofu og íbúasamtökum Vesturbæjar vegna umferðar við Hringbraut eftir að ekið var á stúlku þar í morgun.

R-leið um Reykhóla féll á umferðaröryggismati
Svokölluð R-leið, með stórbrú þvert yfir Þorskafjörð, sem sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur stefnt að, féll á nýju umferðaröryggismati og þyrfti fjögurra milljarða króna kostnaðarauka til að hún teldist hæf til að bera Vestfjarðaumferðina.

Svara kalli Vesturbæinga um gangbrautarvörslu og íbúafund
Ákveðið hefur verið að setja upp gangbrautarvörslu fyrir skólabörn við gönguljós yfir Hringbraut við Meistaravelli. Samráðsfundur verður haldinn í næstu viku og verður auglýstur síðar.

Segir úrbætur á brúm ganga of hægt
Banaslys eða önnur alvarleg slys hafa orðið á fjórtán einbreiðum brúm frá aldamótum.

Of algengt að asískir ferðamenn noti ekki öryggisbúnað
Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir barnabílstóla veita mikla vörn en óvíst sé hvort að það hefði breytt einhverju í banaslysinu við Núpsvötn í gær.

Slysið setur meiri þrýsting á nýja brú á svæðinu
Guðmundur Valur Guðmundsson forstöðumaður hjá Vegagerðinni segir að slysið í dag þrýsti á framkvæmdir við Súlu sem fyrst.

Ungir ökumenn aldrei staðið sig jafn vel og nú
Umferðarslysum sem ungir ökumenn eiga aðild að hefur farið fækkandi undanfarin ár og miðað við tölur fyrstu átta mánaða ársins heldur sú þróun áfram. Samskiptastjóri Samgöngustofu segir ýmsar ástæður að baki þessari þróun.

Ungmenni vilja meira umferðaröryggi
"Umferðaröryggi er auðvitað bara málefni sem snertir alla og það er mikilvægt að heyra raddir ungs fólks," segir formaður Ungmennaráðs Grindavíkur

Hafa verið boðaðir á fund samgönguráðherra
Guðbergur Reynisson, annar stofnanda hópsins Stopp, vill að klárað verði að tvöfalda Reykjanesbraut sem fyrst.

Stofnandi þrýstihópsins alfarið á móti lokun Reykjanesbrautar
Ísak Ernir Kristinsson, annar stofnenda þrýstihóps um að stjórnvöld klári tvöföldun Reykjanesbrautar, kveðst ekki sammála Guðbergi Reynissyni, hinum stofnenda hópsins, um að vegurinn verði lokaður í mótmælaskyni.

Banaslysum barna í umferðinni fjölgað
Ísland er í fyrsta sæti í Evrópu hvað varðar hlutfall banaslysa á börnum í umferðinni. Verkfræðingur hjá Vegagerðinni segir þetta gefa tilefni til frekari rannsókna á því hvernig huga megi betur að öryggi barna í umferðinni.