
Bolungarvík

Hætta rannsókn banaslyssins í Óshlíð
Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun lögreglunnar á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á banaslysi í Óshlíð fyrir rúmlega fimmtíu árum síðan. Hinn nítján ára gamli Kristinn Haukur Jóhannesson er talinn hafa látist þegar leigubifreið sem hann var í hafnaði utan vegar á Óshlíðarvegi árið 1973. Málið var tekið upp að nýju í maí 2022, en rannsaka átti hvort að andlát hans hafi mögulega borið að með öðrum hætti.

Von á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku
Lögreglan á Vestfjörðum segist enn engu nær varðandi dánarorsök sambýlisfólks á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi á Bolungarvík í síðustu viku. Von er á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku.

Bíða krufningar til að varpa ljósi á atburðarásina
Sambýlisfólk á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi í Bolungarvík hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögregla fékk ábendingu um málið. Lögreglustjórinn segir krufningu geta leitt í ljós hvort eitthvað saknæmt átti sér stað, og hvenær fólkið lést.

Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn
Sambýlisfólk á sjötugsaldri hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögreglumenn fundu lík þess í húsi í Bolungarvík í gærkvöldi. Enginn er með réttarstöðu grunaðs í tengslum við andlátin en lögreglustjóri segir að krufning eigi eftir að skýra myndina betur.

„Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“
Bæjarstjórinn í Bolungarvík segir samfélagið í áfalli vegna andláts sambýlisfólks á sjötugsaldri í gærkvöldi.

Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar
Lögreglan á Vestfjörðum segir ekkert benda til þess að saknæmur atburður hafi átt sér stað í Bolungarvík í gær. Lögreglan hefur til rannsóknar andlát tveggja einstaklinga í heimahúsi í bænum en um er að ræða sambýlisfólk á sjötugsaldri.

Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík
Yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum segir að enginn hafi verið handtekinn í tengslum við mannslát í Bolungarvík í gær. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var send á staðinn í gærkvöldi.

Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík
Lögreglan á Vestfjörðum kallaði í kvöld eftir aðstoð tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar andlát í Bolungarvík. Lögreglustjóri vill lítið sem ekkert tjá sig um málið.

GPS-hattarnir horfnir og eigandinn heitir fundarlaunum
Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar nú þjófnað á svokölluðum GPS-höttum en fjórum þeirra var stolið. Elvar Sigurgeirsson, sem er eigandi Þotunnar ehf., segir tjónið nema 6 til 8 milljónum.

Framleiða allt að hundrað tonn á dag
Laxavinnslan Drimla í Bolungarvík verður formlega vígð í dag þegar bæjarbúum og öðrum gestum gefst kostur á að skoða vinnsluna. Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Artic fish segir að um níutíu til hundrað tonn af afurðum séu framleiddar í húsinu á dag.

Rannsaka þjófnað í Bolungarvík sem hleypur á mörgum milljónum
Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar þjófnað í Bolungarvík sem átti sér stað um helgina.

Þyrla kölluð út vegna slyss á Kistufelli
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti unglingsstrák sem slasaðist þar sem hann var á göngu með skólahópi á Kistufelli á Vestfjörðum í dag.

Pósthúsafgreiðslu í Bolungarvík lokað
Pósthúsafgreiðsla í Bolungarvík lokar frá og með 1. september næstkomandi. Þjónustupósthús Bolungarvíkur verður Pósthúsið á Ísafirði. Þá verður áfram póstþjónusta en hún verður með breyttu sniði.

Vonbrigði á Vestfjörðum og áfall í Árneshreppi vegna niðurskurðar
Niðurskurður samgönguáætlunar seinkar uppbyggingu Vestfjarðahringsins um þrjú ár sem veldur Fjórðungssambandi Vestfirðinga miklum vonbrigðum. Í Árneshreppi eru íbúar í áfalli vegna áforma um að slá af marglofaðar vegarbætur, sem áttu að hefjast á næsta ári.

Patreksfjörður í efsta sæti strandveiðanna
Strandveiðunum þetta sumar lýkur að öllu óbreyttu í næstu viku en þá stefnir í að útgefinn kvóti klárist. Eftir fyrstu tvo mánuði er búið að landa afla í alls 49 höfnum og er Patreksfjörður í efsta sæti með mestan landaðan afla og fjölda báta.

Póstboxum fjölgar á Vestfjörðum
Nýjum póstboxum hefur verið komið fyrir í sex bæjarfélögum á Vestfjörðum, á Patreksfirði, Bolungarvík, Tálknafirði, Flateyri, Þingeyri og Bíldudal.

„Þetta skip fer aldrei út aftur“
Í mars árið 1983 strandaði skipið Hafrún við Stigahlíð á Vestfjörðum. RAX fékk að fara með Landhelgisgæslunni að bjarga skipverjunum en hann fékk að sitja í franskri Puma þyrlu sem verið var að kynna fyrir gæslumönnum. Það var farið að dimma þegar leiðangurinn kom að Stigahlíð í hríðarbyl og vondu skyggni. Loks komu björgunarmenn auga á blys.

Svona verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um land allt
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn og verða af því tilefni mikil dagskrá víða um land og sums staðar alla helgina.

Ofurmóðirin María sem eignaðist sex sinnum tvíbura
María Rögnvaldsdóttir er að öllum líkindum sú íslenska kona sem hefur oftast eignast tvíbura, eða sex sinnum. Á sextán árum eignaðist María 15 börn með eiginmanni sínum Ólafi Hálfdánarsyni, þrjá einbura og sex tvíbura. Auk þess tóku hjónin að sér einn fósturson og ólu hann upp með barnahópnum. Geri aðrir betur.

„Nú er maður bara allt í einu orðinn heimsmeistari“
Katrín Pálsdóttir, hjólreiðakona og fjármálastjóri Bolungarvíkur, varð heimsmeistari í tvíþraut, sund- og hjólreiðakeppni (long distance aquabike), á móti á vegum World Triathlon á spænsku eyjunni Ibiza fyrr í dag.

Þúsundasta Bolvíkingnum heilsast vel
Þúsundasti Bolvíkingurinn fæddist á fimmtudag og heilsast vel. Sveitarfélagið hefur lengi stefnt að þessu markmiði og nú þarf að hækka ránna.

Það fæst nánast allt í Bjarnabúð í Bolungarvík
Bjarnabúð í Bolungarvík, ein elsta verslun landsins stendur alltaf fyrir sínu, enda mikið verslað í versluninni, en hún líkist einna helst gömlu kaupfélögum þar sem allt milli himins og jarðar fékkst.

Pósthúsið í Mjóddinni kveður og póstafgreiðsla víða úti á landi
Pósturinn hyggst loka pósthúsum á næstunni og meðal þeirra sem hverfa á braut er pósthús Breiðhyltinga í Mjódd og Ólsara í Ólafsvík. Forstjóri Póstsins segir breytingarnar í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda.

Segir að þetta hús lyfti upp norðanverðum Vestfjörðum
Stærsta og afkastamesta laxvinnsla landsins rís núna í Bolungarvík á vegum Arctic Fish og á hún að taka til starfa í júní. Ráðamenn fyrirtækisins gera ráð fyrir að bara á síðari helmingi þessa árs verði unninn þar lax fyrir yfir fimmtán milljarða króna.

Vildu að öðru lögregluembætti yrði falin rannsókn Óshlíðarmálsins
Ríkissaksóknari hefur gert lögreglunni á Vestfjörðum að taka ný gögn, sem komið hafa fram um dauða ungs manns í Óshlíð árið 1973, til skoðunar. Rannsókn málsins var látin niður falla í október en fjölskylda mannsins sem lést kærði ákvörðun lögreglunnar til saksóknara og vildi að öðru embættið yrði falin rannsókn málsins.

Bæjarstýran hlýtur að vera ánægð að fá hafnargjöldin
Mikil umsvif hafa verið í Ísafjarðarhöfn og Dýrafirði undanfarnar vikur í kringum norskt fiskvinnsluskip, sem fengið var tímabundið til Vestfjarða til laxaslátrunar. Útflutningsverðmæti afurðanna úr þessu eina verkefni nemur þremur og hálfum til fjórum milljörðum króna.

Myndasyrpa úr Idolinu: Sjáðu stemninguna
Það var mikið um dýrðir í Idolhöllinni í gærkvöldi þegar Saga Matthildur og Kjalar kepptu í úrslitum. Saga Matthildur bar sigur úr býtum og er ný Idol-stjarna Íslands.

Saga Matthildur vann Idolið
Saga Matthildur er Idol-stjarna Íslands. Hún keppti til úrslita í kvöld á móti Kjalari og bar sigur úr býtum.

Atkvæðagreiðsla um umtalaðan samning hafin og hljóðið gott
Formenn þriggja félaga innan Starfsgreinasambandsins í ólíkum landshlutum segja jákvætt hljóð í sínu félagsfólki gagnvart kjarasamningnum við Samtök atvinnulífsins. Formaður Eflingar segir samninginn ófullnægjandi en myndi ekki leggjast svo lágt að beita sér fyrir því að einstaka félagsmenn greiddu atkvæði gegn samningnum.

Gul viðvörun gefin út á Vestfjörðum
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á Vestfjörðum vegna norðaustan hvassviðris eða storms og snjókomu sem sé í vændum.