Bruni á Kirkjuvegi

Fær milljónir þar sem enginn gekk úr skugga um meint asbest í húsinu
Tryggingafélagið VÍS þarf að greiða eiganda húsnæðisins sem brann við Kirkjuveg á Selfosi árið 2018 rúmar níu milljónir króna sem félagið hafði áður dregið frá vátryggingarbótum, meðal annars vegna kostnaðar við niðurrifs hússins. Niðurrifið reyndist kostnaðarsamt þar sem talið var að asbest væri í húsinu. Eigandinn taldi hins vegar svo ekki vera. Enginn sem kom að niðurrifinu virðist hafa gengið úr skugga um hvort að þar væri asbest að finna eða ekki.

Tuttugu milljónir til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey
Ríkisstjórnin hyggst veita tuttugu milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey.

Dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir brunann á Selfossi
Vigfús Ólafsson, 54 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir brennu og manndráp með því að hafa orðið fólki að bana með íkveikju í húsi á Kirkjuvegi á Selfossi í október 2018.

Manndrápsmál verður tekið fyrir í Hæstarétti
Hæstiréttur hefur fallist á áfrýjunarbeiðni Vigfúsar Ólafssonar, sem dæmdur var í fjórtán ára fangelsi í Landsrétti fyrir manndráp með því að hafa orðið tveimur að bana með íkveikju í húsi á Kirkjuvegi á Selfossi í október 2018.

Fjórtán ára fangelsisdómur fyrir manndráp í brunanum á Selfossi
Landsréttur hefur þyngt fangelsisdóm yfir Vigfúsi Ólafssyni úr fimm árum í fjórtán.

Áfrýja dómnum yfir Vigfúsi til Landsréttar
Vigfús var í upphafi mánaðarins dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi og brennu. Ríkissaksóknari vill að hann verði sakfelldur fyrir manndráp.

Ósannað að Vigfús hafi ætlað að drepa fólkið
Héraðsdómur Suðurlands segir að ekkert hafi fram komið í sakamáli á hendur Vigfúsi Ólafssyni sem bendi til þess að beinn ásetningur Vigfúsar hafi staðið til að bana þeim.

Dómurinn ekki í samræmi við aðalkröfu ákæruvaldsins
Dómur Héraðsdóms Suðurlands yfir Vigfúsi Ólafssyni vegna brunans á Selfossi er ekki í samræmi við aðalkröfu ákæruvaldsins í málinu.

Dæmdur í fimm ára fangelsi vegna brunans á Selfossi
Vigfús Ólafsson var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa valdið eldsvoða sem varð tveimur að bana á Selfossi í október í fyrra. Frá dómnum dregst gæsluvarðhald sem hann hefur setið í síðan í nóvember í fyrra.

Segir hæfilega refsingu mannsins allt að 18 ár
Karlmaður sem ákærður er fyrir að valda dauða tveggja með íkveikju á Selfossi er ekki talinn hafa framið verknaðinn með hæsta stigi ásetnings.

„Ég er morðingi, guð fyrirgefi mér“
Myndbandsupptaka úr lögreglubílnum sem Vigfús var settur í strax eftir brunan og var spiluðu í Héraðsdómi Suðurlands í dag sýnir hann í annalegu ástandi þar sem hann segir, "Ég er morðingi, guð fyrirgefi mér.

Fólkið reyndi að bjarga sér úr eldinum
Fundust látin í svefnherberginu.

„Þú ert ógeðslegur morðingi“
Sjúkraflutningamaður sem var fyrst á vettvang í brunanum á Kirkjuvegi í október í fyrra lýsti því að húsið hafi verið alelda þegar hún kom á vettvang.

Segir Vigfús hafa hótað að kveikja í húsinu
Elva Marteinsdóttir, sem ákærð er fyrir að láta hjá líða að gera það sem í hennar valdi stóð til að afstýra eldsvoða sem varð fólki að bana í húsi við Kirkjuveg á Selfossi í október í fyrra, segir Vigfús Ólafsson hafa hótað að kveikja í húsinu.

Bað guð um að fyrirgefa sér í lögreglubílnum
Vigfús Ólafsson, sem ákærður er fyrir manndráp með því að hafa valdið eldsvoða sem varð tveimur að bana á Selfossi í október í fyrra, viðurkenndi í dómsdal í morgun að hafa verið að fikta með eld í aðdraganda þess að kviknaði í.

Gæsluvarðhald framlengt vegna brunans á Selfossi: Ekki fallist á að fyrri úrskurðir væru ógildir vegna dóms MDE
Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að framlengja gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa valdið eldsvoðanum á Selfossi þann 31. október á síðasta ári sem varð tveimur að bana.

Eldsvoðinn á Selfossi: Annar ákærðu krafinn um 25 milljónir
Aðstandendur konu sem létu lífið í eldsvoða á Kirkjuvegi á Selfossi í lok október síðastliðnum hafa krafið karlmann, sem ákærður er fyrir manndráp í málinu, um 25 milljónir króna í bætur.

Ákærður fyrir manndráp vegna brunans á Selfossi
Kona einnig ákærð fyrir að reyna ekki að vara við eða afstýra eldsvoðanum.

Rannsókn á brunanum á Selfossi svo gott sem lokið
Maðurinn sem grunaður er um að hafa valdið bruna við Kirkjuveg á Selfossi þann 31. október með þeim afleiðingum að karl og kona létust hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 24. janúar.

Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt um fjórar vikur
Héraðsdómur Suðurlands hefur framlengt gæsluvarðhald yfir karlmanni, sem grunaður er um að hafa valdið mannskæðum eldsvoða að Kirkjuvegi á Selfossi í lok október, um fjórar vikur.

Viðurkenndi íkveikju og sagðist vera morðingi
Tveir létust í eldsvoðanum en manninum er gert að sæta gæsluvarðhaldi til 29. nóvember næstkomandi.

Dýrt að farga húsinu vegna asbestsins
Búist er við því að niðurrifi á húsinu við Kirkjuveg 18 á Selfossi ljúki í dag.

Segir húsráðanda á Kirkjuvegi hafa kveikt í gardínum eftir rifrildi
45 ára gömul kona, sem handtekin vegna brunans á Kirkjuvegi á Selfossi þann 31. október, tjáði lögreglu á vettvangi að húsráðandi hefði kveikt í húsinu.

Áfram í haldi vegna brunans á Selfossi
Maðurinn er grunaður um að hafa valdið eldsvoðanum.

Farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna gruns um íkveikju
Dómari tók sér frest til klukkan 11:30 á morgun til að kveðja upp úrskurð um kröfuna.

Bruninn á Selfossi: Hin grunuðu yfirheyrð í dag
Lögreglan á Suðurlandi mun síðar í dag yfirheyra manninn og konuna sem úrskurðuð voru í gæsluvarðhald í liðinni viku vegna brunans við Kirkjuveg 18 á Selfossi.

Beint í fangelsi eftir að gæsluvarðhald var fellt úr gildi
Landsréttur felldi í dag úr gildi gæsluvarðhald yfir konu sem grunuð er um aðild að brennu að Kirkjuvegi 18 á Selfossi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Rannsókn á bruna á Selfossi á viðkvæmu stigi
Lögreglan á Suðurlandi vinnur áfram að rannsókn bruna sem kom upp í húsi við Kirkjuveg 18 á Selfossi síðastliðinn miðvikudag.

Hvetja fólk til að halda sig frá rústunum við Kirkjuveg
Veðurspá er óhagstæð og íbúar og vegfarendur eru hvattir til að halda sig frá nágrenni lóðarinnar.

Fólkið ekki yfirheyrt aftur fyrr en eftir helgi
Lögregla heldur þétt að sér spilunum í rannsókn málsins.