

Heimsmeistarinn Magnus Carlsen kveðst ekki ætla að láta málsókn skákmannsins Hans Niemann hafa áhrif á taflmennskuna. Carlsen er staddur hér á landi til að taka þátt í heimsmeistaramótinu í Fischer-skák og hafa andstæðingar hans lýst yfir stuðningi.
Einn besti skákmaður heims kveðst ánægður með að heimsmeistarinn Magnus Carlsen hafi rætt svindl í íþróttinni. Tími hafi verið kominn til að einhver stigi fram og hann vonar að umræðan verði til þess að harðar verði tekið á svindli.
Norðmaðurinn Magnus Carlsen er kominn til Íslands. Heimsmeistarinn kom með flugvél Icelandair frá Osló í gærkvöldi en með í för eru faðir hans og móðir, Henrik Albert Carlsen og Sigrun Øen.
Margir af öflugustu skákmönnum heims með heimsmeistarann Magnús Carlsen í broddi fylkingar eru á leið til Íslands til að keppa um heimsmeistaratitilinn í Fisher skák. Heimsmeistarinn hlýtur 21 milljón í verðlaun.
Skákáhugamenn hér á landi iða í skinninu enda aðeins tveir sólarhringar í að heimsmeistarinn Magnus Carlsen komi til landsins. Átta sterkir skákmenn berjast um tæplega sextíu milljóna króna verðlaunafé á heimsmeistaramótinu í afsprengi skákar úr smiðju Bobby Fischer.
Skákmaðurinn umtalaði, Hans Niemann hefur birt lögsókn sína gegn öflum innan skákheimsins vegna skemmda sem aðilarnir eru sagðir hafa unnið á orðspori Niemann. Meðal þeirra aðila sem lögsóttir eru eru skákmaðurinn Magnus Carlsen og skákvefurinn Chess.com.
Klukkan fjögur í dag verður minningarmót um Hrafn Jökulsson haldið í Norðurturni Smáralindar fyrir framan veitingastaðin XO. Hrafn var skákmaður mikill en hann lést um miðjan september eftir baráttu við krabbamein.
Skákmeistarinn Hans Niemann þurfti að þola nánari öryggisgæslu en aðrir keppendur á bandaríska meistaramótinu í skák í vikunni þegar leitað var sérstaklega í afturenda Niemann af hjálpartækjum ástarlífsins.
Joachim Birger Nilsen, forseti norska Skáksambandsins, hefur sagt af sér eftir að hann viðurkenndi í gær að hafa svindlað á móti tímabilið 2016 til 2017. Hinn 29 ára Nilsen tefldi á sínum tíma fyrir skákliðið Norway Gnomes, því sama og hinn bandaríski Hans Niemann tefldi fyrir árið 2020.
Hinn 19 ára Hans Niemann, sem sakaður hefur verið um víðtækt svindl í skákum sínum, segist ekki ætla að hætta að keppa en gaf aðeins stutt og óskýr svör á blaðamannafundi í gær.
Skákmaðurinn Hans Niemann virðist hafa svindlað oftar en hundrað sinnum á ferli sínum, ef marka má rannsókn skákþjónsins Chess.com. Niemann á að hafa svindlað á skákmótum allt til ársins 2020 og þegið verðlaunafé fyrir í einhverjum tilfellum.
Stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands, Siumut, vonast til að samningar um öryggis- og varnarsamstarf við danska herinn, og hugsanlega einnig Bandaríkin, greiði hluta af þeim kostnaði sem fylgir því að reka flugvöllinn í Kangerlussuaq áfram eftir að hann missir hlutverk sitt sem aðalflugvöllur Grænlands eftir tvö ár. Þetta sagði talsmaður flokksins, Doris J. Jensen, í umræðum í grænlenska þinginu í liðinni viku.
Magnus Carlsen sendi fyrr í kvöld frá sér yfirlýsingu vegna viðureignar hans við Hans Niemann á Sinquefield-skákmótinu fyrr í mánuðinum. Hann segist vera pirraður og sakar Niemann um enn meira svindl.
Magnus Carlsen, margfaldur heimsmeistari í skák, gaf leik á móti Hans Niemann eftir aðeins tvo leiki í dag.
Mikil ólga er nú innan skákheimsins eftir að Magnus Carlsen, margfaldur heimsmeistari og einn mesti núlifandi skákmeistari heims, hætti á dögunum þátttöku á Sinquefield-skákmótinu.
Málið sem hefur heltekið skákheiminn heldur áfram að taka óvæntar beygjur. Nú hafa sprottið upp orðrómar þess efnis að Hans Niemann hafi nýtt sér hjálpartæki ástarlífsins, kynlífstæki, til að sigra fimmfaldan heimsmeistara Magnus Carlsen.
Magnus Carlsen, ríkjandi heimsmeistari í skák, taldi brögð vera í tafli er hann tapaði fyrir Hans Niemann á Sinquefield-ofurmótinu svokallaða á dögunum. Carlsen hætti keppni, og gaf þannig frá sér möguleikann á að vinna fúlgur fjár ásamt því að gefa til kynna að Niemann hefði unnið á óheiðarlegan hátt. Nú hefur Niemann svarað fyrir sig.
Magnus Carlsen, heimsmeistari í skák, hætti í miðri keppni á Sinquefield-mótinu. Talið er að Carlsen hafi hafi hætt þar sem hann taldi mótherja sinn vera að svindla. Er hann tjáði sig um málið á Twitter-síðu sinni þá vitnaði hann í knattspyrnuþjálfarann José Mourinho.
Magnus Carlsen, fimmfaldur heimsmeistari í skák, sagði áhugaverða sögu í hlaðvarpsviðtali á dögunum. Hann segir fulltrúa Real Madrid ekki hafa tekið vel í þegar hann sagði Cristiano Ronaldo, þáverandi leikmann liðsins, ekki vera í uppáhaldi.
Skákvélmenni fingurbraut sjö ára dreng í Moskvu í síðustu viku. Sergey Lazarev, formaður rússneska skáksambandsins, segir atvikið ekki vera gott.
Magnus Carlsen, heimsmeistari í skák, ætlar ekki að freista þess að verja titil sinn. Hann segist ekki finna fyrir neinum hvata til þess að tefla um titilinn sjötta sinn.
Kötlusetur í Vík í Mýrdal mun fagna því á morgun, 9. júlí að 50 ár eru liðin frá einvígi aldarinnar í skák með skáksýningu og hraðskákmóti í setrinu.
Átta sterkustu skákmenn heims, að undanskildum heimsmeistarunum, Magnus Carlsen, bítast nú um réttinn til að skora heimsmeistarann á hólm, í áskorendamóti sem haldið er í Madrid. Nú þegar tvær umferðir eru eftir af mótinu bendir allt til þess að Rússinn Ian Nepómníatsjí fari með sigur af hólmi, en engu að síður en það Bandaríkjamaðurinn Nakamura, sem athygli flestra beinist að.
Magnus Carlsen er á leiðinni til Las Vegas en ekki þó til að keppa í skák.
Breska skákkonan Tallulah Roberts segir að karlmenn hafi ítrekað sýnt henni og fleiri skákkonum vanvirðingu á nýafstöðnu Reykjavíkurskákmóti. Þá hafi maður klipið hana um mittið þegar hún átti leið um keppnissvæðið og annar tekið hana hálstaki.
Heimsmeistarinn í skák, Magnus Carlsen, er meðal þeirra sem ætla að heiðra Ísland í tilefni þess að hálf öld verður liðin frá því Bobby Fischer og Boris Spasskí háðu „einvígi aldarinnar“ í Laugardalshöll. Aldrei áður hafði nafn Reykjavíkur komist eins rækilega í heimsfréttirnar eins og þær vikur sumarið 1972 sem þeir Fischer og Spasskí tefldu um heimsmeistaratitilinn í skák á tíma þegar kalda stríðið milli stórveldanna var í hámarki.
Rússneskur fimleikamaður og rússneskur skákmaður voru í dag dæmdir í langt keppnisbann af alþjóðasamböndum sínum fyrir að sýna Valdimír Pútín stuðning.
Eftir að ekki var hægt að taka á móti erlendum keppendum á Reykjavíkurleikunum í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins er búist við yfir 300 erlendum keppendum í ár.
Nodirbek Abdusattorov, sautján ára Úsbeki, varð í gær heimsmeistari í atskák í pólsku höfuðborginni Varsjá og batt þar með enda á sigurgöngu Norðmannsins Magnus Carlsen sem var fyrir mótið handhafi þriggja stærstu heimsmeistaratitlanna í skákíþróttinni.
Norski heimsmeistarinn Magnus Carlsen hefur gefið í skyn að heimsmeistaraeinvígið sem haldið var í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á dögunum hafi verið hans síðasta. Hinn 31 árs gamli Carlsen hafði þar betur gegn Rússanum Ian Nepomniachtchi og vann þá sinn fimmta heimsmeistaratitil.