Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Félagið Melody Man ehf., sem er í eigu Jökuls Júlíussonar söngvara Kaleo, fær ekki fjárstuðning frá Akureyrarbæ til þess að halda tónlistarviðburð í Vaglaskógi í sumar. Umsókn um 12 milljóna króna styrk frá bænum var hafnað af bæjarráði. 30.5.2025 12:10
Klúðursleg rannsókn lögreglu leiddi til sýknu skipstjóra Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað karlmann af ákæru fyrir brot á siglingalögum með því að hafa sýnt af sér gáleysi í starfi sínu sem skipstjóri þegar hann sigldi bát upp í grjótgarð nærri höfninni í Hólmavík. Dómari taldi mikla ágalla á rannsókn lögreglu á málinu. 30.5.2025 11:24
Telja manninn hafa örmagnast við sjósundsæfingar Leit að manni sem talið er að hafi örmagnast í sjónum úti fyrir Fiskislóð í Reykjavík verður fram haldið eftir hádegi í dag. Fjöldi viðbragðsaðila kemur að leitinni. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var maðurinn að æfa sjósund þegar hann örmagnaðist. 30.5.2025 10:08
Nauðlending á þjóðveginum Flugmaður eins hreyfils flugvélar framkvæmdi nauðlendingu á þjóðveginum vegna bilunar sem kom upp í vélinni. Hann var ómeiddur þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. 27.5.2025 00:16
Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Dæmi eru um að fólk tapi háum fjárhæðum þegar það samþykkir auðkenningarbeiðnir í hugsunarleysi, og millifærir þar með á svikahrappa úti í heimi. Engar bætur er að fá ef fólk notast við rafræn skilríki til að samþykkja slíkar millifærslur. 26.5.2025 23:22
Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum PCC BakkiSilicon hf. hefur tilkynnt um tímabundna rekstrarstöðvun verksmiðju sinnar á Húsavík, frá og með miðjum júlí. Ástæðan er sögð erfiðleikar á mörkuðum fyrir kísilmálm og raskanir sem rekja megi til tollastríðs. Um 80 manns munu missa vinnuna. 26.5.2025 22:40
Fjögur börn í hópi þeirra mest slösuðu Fjögur börn voru í hópi þeirra sem slösuðust þegar bíl var ekið á hóp fólks í Liverpool í kvöld. Málið er ekki rannsakað sem hryðjuverk. Einn hefur verið handtekinn og lögregla telur hann hafa verið einan að verki. 26.5.2025 22:07
„Bara sjokk hvað maður var nálægt þessu“ Íslendingur sem var viðstaddur skrúðgöngu til heiðurs knattspyrnuliðinu Liverpool, þar sem bíl var ekið inn í þvögu fólks, segist í áfalli vegna atburðarins. Hún og foreldrar hennar voru steinsnar frá götunni þar sem bílnum var ekið í mannhafið. 26.5.2025 19:46
Sendir í leyfi fyrir að vinna ekki nógu mikið Fimm flugumferðarstjórar hafa verið sendir í leyfi frá störfum vegna gruns um að þeir hefðu ekki unnið tilskilinn fjölda vinnustunda til að halda réttindum sínum. Samgöngustofa rannsakar mál þeirra. 26.5.2025 18:18
Krókur á móti bragði færði útlendingamálin framar í röðinni Þingflokksformenn funduðu með forseta Alþingis nú síðdegis um að flýta afgreiðslu á útlendingamálum dómsmálaráðherra, eftir boð stjórnarandstöðunnar um það. Ráðherrann sagði um helgina að stjórnarandstaðan tefði fyrir afgreiðslu málanna á þingi. Að endingu náðust samningar um að færa mál ráðherrans framar á dagskrá. 26.5.2025 18:00