Mál mannsins á þingpöllunum komið til saksóknara Máli íraksks flóttamanns sem var með háreysti á þingpöllum Algingis og steig yfir handrið þeirra í mars á síðasta ári hefur verið vísað til héraðssaksóknara. 12.7.2024 07:18
Stöðvuðu starfsemi Hríseyjar Seafood Matvælafyrirtækið sem Matvælastofnun gerði að hætta starfsemi í síðustu viku, vegna alvarlegra frávika frá matvælalögum, er Hrísey Seafood. Fiskvinnslu félagsins var lokað og má ekki opna aftur fyrr en úrbætur hafa verið gerðar. 11.7.2024 16:54
Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Fyrirtækið Lagsmaður, sem heldur úti vefheildsölunni fiska.is, hefur innkallað Kite-hveiti. Ástæðan er sú að hveiti inniheldur ólöglega aukaefnið benzólý peroxíð. 11.7.2024 16:03
Telur pólitísk afskipti hafa ráðið því að ráðningin var dregin til baka Óskar Steinn Ómarsson stjórnmálafræðingur telur pólitísk afskipti af ráðningarferli Hafnarfjarðarbæjar vera ástæðu þess að ráðning hans í starf deildarstjóra í grunnskóla í bænum hafi verið dregin til baka. Hann segist ætla með málið eins langt og hægt er. 11.7.2024 15:40
Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Greinandi segir horfur hjá Icelandair ekki endilega jafnslæmar og umræðan virðist benda til. Félagið hafi flutt fleiri farþega á þessu ári en á sama tíma í fyrra. Framtíðarhorfur ráðist einfaldlega af fjölda ferðamanna hingað til lands. 11.7.2024 14:56
„Komin upp í þak“ í verðlagningu Markaðssetja þarf Ísland með öflugari hætti en síðustu ár, að sögn leiðtoga ferðaþjónustufyrirtækja, sem segir Ísland hafa náð ákveðnum toppi í verðlagningu. Dregið hefur úr fjölda ferðamanna hingað til lands miðað við síðasta ár. 10.7.2024 22:15
Gríðarlega gefandi að fá að hitta aðra í sömu sporum Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, heldur sumargleði í Viðey í kvöld. Verkefnastjóri hjá félaginu segir gríðarlega mikilvægt að félagsmenn fái tækifæri til að vera í kringum hvern annan, og starfsemi Krafts gefi þeim það tækifæri. 10.7.2024 19:44
Finna vel fyrir fækkun ferðamanna en láta ekki deigan síga Gistinætur á Íslandi í maí voru færri en á sama tíma á síðasta ári. Hlutfallslega mestur samdráttur í gistinóttum var á Austurlandi, en framkvæmdastjóri hagsmunastofnunar þar segist þrátt fyrir það bjartsýn, og sér tækifæri í veðrinu sem leikur nú við Austfirðinga. 10.7.2024 13:30
Þjófarnir hafi sýnt að þeir séu frambærilegir til vinnu Verkstjóri á stóru byggingarsvæði segir þjófa, sem steli köplum í skjóli nætur, hafa lítið upp úr þjófnaðinum, en tjónið geti verið mikið fyrir verktaka og byggingaraðila. Hann segist tilbúinn að ræða við þjófana, og ráðleggur þeim að sækja um vinnu hjá honum. 9.7.2024 20:01
„Gott veður alls staðar á sunnudag og mánudag“ Útlit er fyrir talsverða vætu á vesturhluta landsins næstu daga. Á Norðaustur- og Austurlandi verður hins vegar þurrt, bjart og hlýtt. Um og eftir helgi er útlit fyrir prýðisveður víðast hvar um landið. Um helgina er spáð 25 stiga hita á Egilsstöðum. 9.7.2024 12:57