Augsburg niður um tvö sæti án Alfreðs Augsburg, lið Alfreðs Finnbogasonar, hefur dregist niður í fallbaráttu þýsku 1. deildarinnar í fótbolta í fjarveru íslenska landsliðsframherjans. Liðið tapaði 2-0 fyrir Herthu Berlín á útivelli í dag. 30.5.2020 15:35
Úr norsku C-deildinni í Arsenal Arsenal hefur gengið frá samningi við norska táninginn George Lewis eftir að hann var til reynslu hjá félaginu um tveggja vikna skeið í mars. 30.5.2020 15:00
Emil skoraði í sigri FH Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson spilar hugsanlega með FH í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í sumar. Hann lék með liðinu í æfingaleik gegn Fram í dag. 30.5.2020 13:58
„Kannski les hann þá Playboy?“ Liðsfélagar Ragnars Sigurðssonar hjá FC Köbenhavn virðast ekki hafa mikla trú á því að íslenski landsliðsmiðvörðurinn sé lestrarhestur. 30.5.2020 13:30
Alfreð þarf að bíða lengur Alfreð Finnbogason hefur verið að glíma við meiðsli og ekki getað spilað með liði Augsburg í þýsku 1. deildinni í fótbolta eftir að keppni hófst að nýju eftir hlé vegna kórónuveirufaraldursins. 30.5.2020 12:47
Liverpool vonast enn eftir Werner sem vill koma Liverpool hefur tíma fram til 15. júní til að kaupa þýska framherjann Timo Werner á 52,7 milljónir punda, jafnvirði 8,8 milljarða króna, frá RB Leipzig. 30.5.2020 12:45
Costa gæti fengið hálfs árs fangelsisdóm Skattsvikamál knattspyrnumannsins Diego Costa, framherja Atlético Madrid, fer fyrir dóm næsta fimmtudag en hann gæti átt yfir höfði sér hálfs árs fangelsi. 30.5.2020 11:15
Fólk í Vanúatú og Úsbekistan í íslenskum landsliðsfatnaði Það hefur verið nóg að gera á búningalager Knattspyrnusambands Íslands síðustu daga þar sem rýmt hefur verið til fyrir nýjum búningum og öðrum klæðnaði frá Puma, fyrir landsliðsfólkið. 30.5.2020 10:30
PSG greiðir sjö og hálfan milljarð fyrir Icardi en hefði greitt meira fyrir faraldur Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain eru búnir að tryggja sér áframhaldandi veru argentínska markaskorarans Mauro Icardi sem var að láni hjá félaginu í vetur. 30.5.2020 09:45
Úrslitaleikurinn tekinn frá Tyrkjum Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu í fótbolta verður ekki spilaður í Istanbúl í Tyrklandi eins og til stóð. Leikurinn átti að fara fram í dag en kórónuveirufaraldurinn kom í veg fyrir það. 30.5.2020 09:00